Fréttablaðið - 06.09.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 06.09.2010, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 6. september 2010 13 SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG FYRIR ÞÁ SEM VILJA MIKLU MEIRA Á MILLI Þú færð ferska og gómsæta samloku frá Sóma á hverjum degi í næstu verslun. FERSKAR Í BÚÐIR Á HVERJUM DEGI! Í Sómahyrnunum er talsvert meira af áleggi og fersku grænmeti en þú átt að venjast og að sjálfsögðu er brauðið beint úr ofninum. SKIPTU UM SKOÐUN Komdu í skoðunarstöð Tékklands við Reykjavíkurveg eða í Holtagörðum og njóttu þess að láta skoða bílinn þinn. Það er ódýrara. Sími 414 9900 www.tekkland.istekkland@tekkland.isHoltagörðumReykjavíkurvegi Samkvæmt verðkönnun Fréttablaðsins 22. júlí 2010 Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Ökumaður sem uppvís er að því að hafa neytt áfeng- is ótæpilega áður en hann sett- ist undir stýri og stofna þannig lífi og limum meðborgaranna (og sínum eigin) í stórkostlega hættu er þar með sviptur rétt- indum sínum til að aka bíl í til- tekinn tíma, jafnvel þótt hann hafi verið beittur harðræði við sýnatöku. Knattspyrnumanni sem rennir sér fótskriðu inn í lærlegg mót- spilara síns er snarlega vikið af velli, jafnvel þótt hann hafi aðeins „ætlað í boltann“. Ráðherra sem sannast að hefur sagt þingheimi ósatt þarf að standa upp úr ráðherrastólnum, jafnvel þótt hann hafi metið það svo að þjóðarhagsmunir bönnuðu honum að segja satt. Maður sem mætir ekki til vinnu vikum saman er rekinn, jafnvel þótt hann segist haldinn „vinnufælni“. Læknir sem gerir sig sekan um stórkostleg afglöp á skurðar- borði sem leiða til dauða er þar með sviptur lækningaleyfi sínu, jafnvel þótt hann hafi verið „illa fyrirkallaður“. Kvikmyndagerðarmaður sem býr til lélega mynd sem enginn vill sjá fær ekki oftar að spreyta sig, jafnvel þótt þetta hafi verið „innra ferðalag um angist og ótta mannsins á tímum hraða og firringar“. Skipstjóri sem siglir skipi sínu í strand í góðu veðri missir fyrir vikið skipstjórnarréttindi sín, jafnvel þótt hann færi sér til málsbóta að vera „með skerta rýmisgreind“. Hárgreiðslumeistari sem ákveður að lita hárið á fínni frú grænt mun ekki kemba hærurn- ar í starfi sínu, jafnvel þótt þetta hafi „bara verið smáflipp“. Leiðsögumaður sem villist með hóp af tíu ára skátum uppi á fjöllum fer ekki í fleiri slík- ar ferðir, jafnvel þótt hann hafi „gleymt að skipta um batterí í áttavitanum“. Húsvörður sem kveikir í hús- inu sem honum var trúað fyrir fær ekki fleiri tækifæri þar, jafnvel þótt hann sverji og sárt við leggi að þetta hafi „verið síð- asta hasspípan“. Gítarleikari sem hvað eftir annað spilar vitlausa hljóma og tekur ótímabær sóló í vitlausri tóntegund og stillir auk þess alltof hátt, er þar með rekinn úr hljómsveitinni, jafnvel þótt hann segist hafa verið greindur með „tónlistarlegt tourette“. Kennari sem nennir ekki að kenna stærðfræði en tekur að einbeita sér að því að kenna nemendum sínum pottþétta aðferð við að vinna alltaf pott- inn í fjárhættuspili á netinu er látinn hætta, jafnvel þótt hann hafi „margprófað þetta og það lukkast eiginlega alltaf“. Rithöfundur sem skrifar bók sem enginn kaupir og fær hroða- lega dóma fær ekki fleiri slíkar útgefnar jafnvel þótt bókin hafi haft að geyma „rannsókn á þan- þoli tungumálsins á annasöm- um vegamótum ólíkra orðræðu- hátta“. Svona er það. Öll þurfum við að hlíta einhvers konar dómi fyrir störf okkar og taka afleið- ingum gjörða okkar. Og verði okkur stórkostlega á í einhverj- um efnum þurfum við að súpa seyðið af því – jafnvel þóttvið eigum okkur eflaust margvís- legar málsbætur. Eða það hefði maður haldið. Af hverju er þá ekki hægt að fyrirgera rétti sínum til að stunda viðskipti hér á landi? Fólk fyrirgerir rétti sínum til að aka bíl, spila fótbolta, klippa hár, kenna… En svo virðist sem engin afglöp í viðskiptalífinu séu svo mikil að það geti orðið til þess að þyrma okkur við frekari umsvif- um viðkomandi einstaklinga. Menn sem tæmdu gömul og stöndug fyrirtæki og söfnuðu skuldum í útlöndum sem nú sliga þjóðarbúið og þar með okkur öll eru ekki heima hjá sér með hauspoka heldur komnir á stjá. Karl Wernersson gerði Sjóvá gjaldþrota með óvenju hálfvitaleg- um fjárfestingum. Hann veðsetti bótasjóð félagsins, sem er lögbrot en umfram allt siðlaust. Í síðustu viku bárust fréttir af því aðhann sé orðinn framkvæmdastjóri Lyfja og heilsa. Slíkur maður á að selja okkur meðul. Hjá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni fór saman óþrjótandi fjárþörf, oftrú á eigin snilld og óeðlileg ítök í bankakerfinu þar sem hann virt- ist geta gengið um að vild. Í vik- unni var sagt frá því að honum hefði verið Gaumur gefinn: félag- ið fékk hjá Arion-banka eitthvað sem kallað er „kyrrstöðusamn- ingur“ og er víst ekki einu sinni til að sögn Umboðsmanns skuldara. Eftir allt sem á undan er gengið virðist hvarfla að Jóni Ásgeiri að hann geti enn staðið í viðskiptum, og það sem ótrúlegra er: áhrifa- menn í bönkum láta sér það detta í hug líka. Björgólfur Thor Björgólfs- son var einn aðaleigandi Lands- bankans eins og mátti sjá af fyrirgreiðslu bankans til hans. Af mörgum hroðalegum uppátækjum íslensku bankanna komu Icesa- ve-reikningar Landsbankans sér sennilega verst fyrir íslenska þjóð. Á því ber eigandinn enga ábyrgð að eigin sögn. Í vikunni bárust svo fréttir af því að íslenskir kröfuhaf- ar hafi að kröfu Deutsche Bank fellt niður persónulegar ábyrgðir Björgólfs Thors vegna lána hans. Eins og ekkert hafi í skorist. Fyrirgef oss þeirra skuldir Af mörgum hroðalegum uppátækjum íslensku bankanna komu Icesave- reikningar Landsbankans sér senni- lega verst fyrir íslenska þjóð. Á því ber eigandinn enga ábyrgð að eigin sögn. Í vikunni bárust svo fréttir af því að íslenskir kröfuhafar hafi að kröfu Deutsche Bank fellt niður persónulegar ábyrgðir Björgólfs Thors vegna lána hans.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.