Fréttablaðið - 16.09.2010, Side 16

Fréttablaðið - 16.09.2010, Side 16
 16. september 2010 FIMMTUDAGUR16 Umsjón: nánar á visir.is Hefðu bankarnir verið einkavædd- ir á lengri tíma, hægar farið í fjár- festingar í stóriðju á Kárahnjúkum og Grundartanga og vöxtur bank- anna haminn, svo sem með bindis- skyldu, hefði peningastefna Seðla- bankans átt meiri möguleika á að ráða við þensluna á árunum fyrir efnahagshrunið. Snörp uppsveifla hagkerfisins frá og með einkavæð- ingu bankanna olli því hins vegar að vaxtatæki Seðlabankans nýttist ekki jafn vel og ætla mátti. Af þeim sökum varð samdráttur efnahags- lífsins meiri en ástæða var til og kreppan dýpri. Þetta er mat Ásgeirs Daníelsson- ar, forstöðumanns rannsóknar- og spádeildar á hagfræðisviði Seðla- bankans. Hann hélt erindi á mál- stofu um peningastefnu Seðlabank- ans í aðdraganda hrunsins síðdegis á þriðjudag. Ásgeir bendir á að hefðu stjórn- völd farið sér hægar í aðdraganda uppsveiflunnar hefði Seðlabankinn haft betri stjórn á þróun mála. Uppsveiflan, sem að hluta skýrð- ist af mjög snarpri útlánaþenslu og eignamyndun í kjölfar einka- væðingar og mikillar hækkun- ar á hlutabréfamarkaði samhliða gengisstyrkingu, hafi skilað sér í mjög snörpum eftirspurnarskelli. Seðlabankinn hafi ekki getað komið böndum á eftirspurnina með stýri- vaxtahækkunum. Vextirnir hefðu þurft að vera mun hærri til að virka líkt og til var ætlast. Ásgeir vill ekki segja til um hversu háir vextirnir hefðu þurft að vera til að draga úr eftirspurn. „Það hefði þurft að hífa vextina mjög hátt upp til að draga úr eftir- spurn manna sem allt í einu stóðu uppi með meiri pening en þeir raunverulega áttu von á. En það hefði valdið skaða annars staðar í hagkerfinu,“ segir hann og útilok- ar ekki að hefði hægar verið farið í sakirnar megi ætla að einhver af gömlu viðskiptabönkunum hefði lifað bankahrunið af. jonab@ Misstu tök á uppsveiflunni Stjórnvöld fóru of geyst í einkavæðingu bankanna og uppbyggingu í stóriðju. Við það fór efnahagslífið úr böndunum, að mati sérfræðings Seðlabankans. ÁSGEIR DANÍELSSON Stýrivextir hefðu þurft að vera mun hærri til að draga úr eftir- spurn á árunum fyrir efnahagshrunið. Það hefði hins vegar valdið skaða annars staðar í hagkerfinu, að mati forstöðumanns rannsóknar- og spádeildar Seðlabankans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Það hefði þurft að hífa vextina svo hátt upp til að draga úr eftirspurn manna sem allt í einu stóðu uppi með meiri pening en þeir raunverulega áttu von á. En það hefði valdið skaða annars staðar í hagkerfinu. ÁSGEIR DANÍELSSON FORSTÖÐUMAÐUR Í SEÐLABANKANUM Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins, ESB, samþykkti í gær tillögu sem veitir eftirlitsstofnun- um innan ESB umboð til að grípa til aðgerða gegn skortsölu þegar nauðsyn krefur. Michael Barnier, framkvæmda- stjóri innri markaða hjá ESB, sagði á blaðamannafundi í gær skortsölu geta alla jafna stutt við skilvirkni á fjármálamörkuðum. Þegar óróleika gæti líkt og í aðdraganda alþjóðlegu fjármálakreppunnar geti salan hins vegar valdið titringi, jafnvel verð- falli á mörkuðum. Tillögurnar munu til þess falln- ar að auðvelda eftirlitsaðilum að greina áhættuþætti á markaði og verður þeim gefið vald til að tak- marka eða banna skortsölu þegar svo ber undir. Barnier taldi þetta geta aukið stöðugleika á fjármála- mörkuðum innan ESB í framtíð- inni. Tillagan verður lögð fyrir Evr- ópuþingið og er gert ráð fyrir að hún taki gildi í júlí árið 2012. - jab Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins vill auka stöðugleika á fjármálamarkaði: Heimilað að banna skortsölu ER ÚRVALSVÍSITALA KAUPHALLARINNAR í lok dags í gær. Vísitalan tók gildi við upphaf árs 2009 og stóð hún þá í 1.000 stigum.953,7 Skotthúfa og vettlingar úr Polartec® Thermal Pro® sem er hlýtt og þornar fl jótt. skotthúfa og vettlingar lambhúshetta ÓÐINN ÓÐINN ÓÐINN húfa Hlý og þægileg húfa fyrir kalda daga. Tvöfalt fl íslag yfi r eyrun. Hlý lambhúshetta sem skýlir vel hálsi og enni. Endurskin á hnakka. Verð: 1.600 kr. Verð húfa: 1.900 kr. Verð vettlingar: 1.900 kr. Verð: 2.500 kr. Margir litir Margir litir Margir litir HEKLA Opið söluferli Hekla starfar á sviði sölu og þjónustu nýrra og notaðra bifreiða. Helstu bílaumboð Heklu eru Volkswagen, Audi, Skoda og Mitsubishi ásamt umboði fyrir vélhjól frá Piaggio. Starfstöðvar félagsins eru við Laugaveg 172-174 í Reykjavík en jafnframt er félagið með sölu- og þjónustuumboðsmenn víðs vegar um landið. Saga Heklu nær aftur til ársins 1933 og hefur hún haft umboð fyrir rótgróna bílaframleiðendur ásamt ýmsum véla- og raftækjaframleiðendum. Hekla er nú að fullu í eigu Arion banka. Söluferlið Boðið er til sölu allt hlutafé Heklu og er gert ráð fyrir að það verði selt í einu lagi. Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, svo og einstaklingum og lögaðilum sem að mati seljanda geta sýnt fram á að hafa viðeigandi þekkingu og viðhlítandi fjárhagslegan styrk. Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu, meðal annars ef fyrir hendi eru lagalegar hindranir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna. Fjárfestar sem óska eftir að taka þátt í söluferlinu skulu leggja fram trúnaðaryfirlýsingu sem skal skilað til Fyrirtækjaráðgjafar Arion banka á þar til gerðu formi. Sölugögn verða afhent þátttakendum á tímabilinu 21.–28. september næstkomandi. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka mun taka við óskuldbindandi tilboðum til kl. 16.00 miðvikudaginn 29. september næstkomandi. Tilboðum skal skila á þar til gerðu formi og skulu tilskildar upplýsingar um fjárfesta fylgja tilboðum. Í kjölfarið verða tilboðin metin og völdum fjárfestum boðin áframhaldandi þátttaka í söluferlinu. Munu þeir fjárfestar fá aðgang að frekari upplýsingum um rekstur og fjárhag Heklu áður en óskað verður eftir lokatilboðum og gengið til endanlegra samninga um sölu. Frekari upplýsingar Upplýsingar um söluferlið má nálgast hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka í síma 444-6000 eða með því að senda tölvupóst á fyrirtaekjaradgjof.hekla2010@arionbanki.is. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hefur verið falið að annast ráðgjöf og formlegt ferli sem lýtur að fyrirhugaðri sölu á öllu hlutafé Heklu.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.