Fréttablaðið - 24.09.2010, Side 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Föstudagur
skoðun 16
24. september 2010 FÖSTUDAGUR
1
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
J óhannes Steinn Jóhannes-son, matreiðslumaður árs-ins 2008 og 2009 og kokk-ur á veitingastaðnum Vox, ætlar að eftirláta öðrum að keppa um titilinn í ár enda á hann fullt í fangi með að undirbúa sig undir heimsmeistarakeppnina í matreiðslu sem verður haldin í Lúxemburg í nóvember. Þangað stefnir hann með kokkalands-liði Íslands og eru stífar æfingar fram undan. Keppnin um matreiðslumann Íslands fer fram í Smáralind á sunnudag en hún er liður í Matar-dögum 2010 sem hófust í gær og standa fram á sunnudag. „Ég mun ekki láta mig vanta á keppn-ina og mun fylgjast spenntur með á hliðarlínunni enda verða þrír matreiðslumenna frá Vox að keppa,“ segir Jóhannes St iÁ V
Jóhannes Steinn Jóhannesson, tvöfaldur matreiðslumaður ársins, mun krýna nýjan nýjan matreiðslu-
mann Íslands á sunnudag enda sjálfur að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramót.Eftirlætur öðrum titilinn
Jóhannes Steinn notar aðallega norrænt hráefni. Hér er hann með alíslenskan sveppaforrétt.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 box Flúðasveppir250 g íslenskir kóngasveppir (má nota aðra villisveppi)
2 shallot-laukar 1 hvítlauksgeiri 1 l kjúklingasoð (má nota vatn og kraft) grænkál frá Eymundi Magnússyni bónda í Vallanesi
mergur innan úr einum nautabeinleggsalt
Kóngasveppasoð:Svitið laukinn og sveppina í potti, bætið soði við og sjóðið í 30 mínútur. Sigtið og smakkað til með salti.
Steiktir sveppir: Steikið sveppina á snarpheitri pönnu í olíu og smá smjöri. Gott er að setja smátt saxaðan shall t lút á
ÍSLENSKIR VILLISVEPPIR, NAUTAMERGUR OG GRÆNKÁL
forréttur fyrir fjóra
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 Fa 56
Netfang perl @
4ra rétta
Góð tækifærisgjöf!
Kryddlegin bleikjameð rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósuHumarsúparjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum
Fiskur dagsinsþað ferskasta hverju sinni; útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar
*** eða / Or ***
Lambatvennameð steinseljurótarmauki, aspas, rófu, soðkartöflu og basil-myntu gljáa
Kókoshnetu Tapiocameð steiktu mangói og lychee sorbet
Verð aðeins 7.290 kr.
tilboðsseðill
Fyrsta Tómasarmessan í Breiðholtskirkju í Mjódd á þessu
hausti verður sunnudagskvöldið 26. september klukkan 20.
Tómasarmessan einkennist af fjölbreytilegum söng og tón-
list, mikil áhersla er lögð á fyrirbænir og sömuleiðis á virka
þátttöku leikmanna.
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 24. september 2010
STÓR
Hönnuðurinn Tinna Pétursdóttir rekur hönnunarfyrirtækið Stúdíó Akkeri ásamt vinkonu sinni
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS • SEPTEMBER 2010
ALFREÐ
FINNBOGA
LEIKMAÐUR ÁRSINS
Í ÍSLENSKU DEILDINNI
VERÐUR UPPI Í STÚKU Á
ÚRSLITA LEIKNUM
ÚRSLITIN
RÁÐAST
SKYGGNI GULLFISKURINN
PÁLMI TEKUR VIÐ AF
KOLKRABBANUM PÁLI
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
Popp
veðrið í dag
24. september 2010
224. tölublað 10. árgangur
Er lukkunnar pamfíll
Garðar Cortes söngvari
fagnar sjötugsafmæli með
tónleikum.
tímamót 22
Sýnir í lúxusíbúðum
Hjörtur Hjartarson
sýnir landslagsmyndir í
lúxusíbúðum í New York.
fólk 32
LAUGAVEGUR 56
WWW.NIKITACLOTHING.COM
NÝJA
LÍNAN ER
KOMIN Í
HÚS!
OPIÐ:
Mán-Fim 10-18
Fös 10-20
Lau 10-16
Fréttablaðið er með 201%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
74,9%
24,9%
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið,
18–49 ára. Könnun Capacent í maí til júlí 2010.
HVESSIR SV-TIL Í dag verður hæg
vaxandi SA-átt með vætu SV-til,
annars hægari vindur af suðri og
þurrt. Hiti 5-12 stig.
VEÐUR 4
8
77
10
7
PlayStation veður í Nintendo Wii
Þegar Nintendo Wii var fyrst kynnt
til sögunnar er líklegt að Sony og
Microsoft hafi migið á sig af hlátri.
7
Draumur að rætast
Landsliðsþjálfari Íslands
hefur skrifað undir fimm
ára samning við Rhein-
Neckar Löwen.
sport 34
STJÓRNMÁL Árni Mathiesen, fyrr-
verandi fjármálaráðherra, mætti
á fund þingflokks Samfylkingar-
innar á miðvikudag og útskýrði
afstöðu sína til kæruefna í þings-
ályktunartillögum um að hann
og fleiri yrðu ákærðir fyrir
landsdómi.
Árna var boðið til fundar líkt
og hinum fyrrverandi ráðherr-
unum þremur sem meirihluti
þingmannanefndar telur hafa
gerst brotlega við lög um ráð-
herraábyrgð og fleira. Áður
hafði Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, fyrrverandi utanríkisráð-
herra, þegið sambærilegt boð
þingflokks Samfylkingarinnar
en Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, og Björgvin
G. Sigurðsson, fyrrverandi við-
skiptaráðherra, afþakkað.
Þórunn Sveinbjarnardóttir,
formaður þingflokksins, segir
fundinn hafa verið haldinn degi
eftir að Árni hafi þekkst boðið.
Sjálf hafði hún ekki tök á að sitja
fundinn.
Aðrir þingflokkar hafa ekki
boðið fjórmenningunum til
fundar.
Allsherjarnefnd Alþingis
framheldur í dag umfjöllun um
ákærutillögurnar en miðað er
við að hún skili áliti síðdegis.
Nefndin fékk nokkra lagasér-
fræðinga á sinn fund í gær og
verður framhald á þeim heim-
sóknum í dag.
Stefnt er að því að þingmanna-
nefndin ljúki meðferð sinni á
málinu í kvöld eða á morgun og
að síðari umræða geti hafist á
mánudag.
Samhliða ákærutillögunum
hefur þingmannanefndin breyt-
ingatillögur við skýrslu sína til
meðferðar. Um tugur breytinga-
tillagna var lagður fram og fór
nefndin í gær yfir hvort efni og
ástæður væru til að taka tillit til
þeirra. Sú vinna heldur áfram í
dag.
Samkvæmt starfsáætlun þings-
ins fyrir árið átti þingstörfun-
um nú í september að vera lokið
fyrir tveimur vikum. Nýtt þing
verður sett eftir viku, fyrsta dag
októbermánaðar, líkt og mælt er
fyrir í stjórnarskrá. - bþs
Tveir af fjórum sem lagt er til að fari fyrir landsdóm þáðu fundarboð:
Árni fór á fund Samfylkingarinnar
KÖNNUN Ríflega sex af hverjum tíu
landsmönnum vilja að einhverj-
ir af ráðherrunum í ríkisstjórn
Geirs H. Haarde sem sat í hrun-
inu verði ákærðir fyrir landsdómi.
Þetta er niðurstaða skoðanakönn-
unar Fréttablaðsins sem gerð var
í gærkvöldi.
Alls sögðust 61,2 prósent þeirra
sem afstöðu tóku í könnuninni
vilja ákæra einhvern ráðherra
fyrir landsdómi. Um 38,8 pró-
sent vildu ekki ákæra neinn af
ráðherrunum.
Mikill munur er á afstöðu fólks
til ákæranna eftir því hvaða
stjórnmálaflokk það sagðist styðja.
Þannig vildi meirihluti stuðnings-
manna Vinstri grænna og Fram-
sóknarflokks ákæra einhvern af
ráðherrunum fyrrverandi.
Stuðningsmenn Samfylkingar-
innar skiptast í tvö horn. Tæpur
helmingur vill ákæra ráðherra en
rúmur helmingur vill það ekki. Um
fjórðungur sjálfstæðismanna vill
ákæra ráðherra, en þrír af hverj-
um fjórum segjast andvígir því.
Ekki er tölfræðilega marktækt
að reikna afstöðu fylgismanna
annarra flokka. Mikill meirihluti
þeirra sem þátt tóku í könnuninni
tók afstöðu til spurningarinnar,
tæplega 80 prósent. Afstaða fólks
virðist ekki fara eftir kynferði,
svipað hlutfall karla og kvenna vill
ákæra ráðherrana.
Þingnefnd undir forystu Atla
Gíslasonar, þingmanns Vinstri
grænna, þríklofnaði í afstöðu
sinni til þess hvort ákæra ætti
ráðherrana. - bj / sjá síðu 4
Sex af tíu vilja fyrrverandi
ráðherra fyrir landsdóm
Alls vilja 61,2 prósent landsmanna ákæra einhvern af ráðherrunum í ríkisstjórninni sem sat við völd í hrun-
inu. Aðeins meðal stuðningsmanna Vinstri grænna og Framsóknarflokks er meirihluti fylgjandi ákærum.
61,2% 38,8%
Já Nei
Á að ákæra fyrir landsdómi einhvern af
ráðherrunum í ríkisstjórn Geirs H. Haarde
sem sat í hruninu?
Skoðanakönnun
National Geographic:
Mynda ofan í
Þríhnúkagíg
NÁTTÚRA Töfraheimur einnar
stórfenglegustu myndbirtingar
íslenskrar náttúru mun birtast
sjónvarpsáhorfendum innan
tíðar þar sem tökulið íslenska
kvikmyndafyrirtækisins Pro-
film mun á næstunni síga niður
í Þríhnúkagíg í Bláfjöllum. Til-
gangurinn er að taka myndir
fyrir sjónvarpsþátt National
Geographic um eldsumbrot á
Íslandi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar
flutti búnað upp að gígnum
í gær. Var bóma lögð yfir
gígopið og mun tökuliðið síga
þaðan niður í 200 metra djúp-
an gíginn, sem er talinn hafa
myndast fyrir um eitt þúsund
árum.
Vitað hefur verið um tilvist
gígsins frá því snemma á síð-
ustu öld, en Árni B. Stefánsson
varð sá fyrsti til að síga niður
um op hans, árið 1974. Fyrsti
rannsóknarleiðangurinn til að
kanna innviði gígsins fór niður
í hann árið 1991. - þj
OFAN Í HYLDÝPIÐ Kvikmyndafyrirtækið Profilm undirbýr nú tökur við Þríhnúkagíg í Bláfjöllum. Bóma
er komin yfir gígopið og mun tökuliðið á næstunni síga niður í 200 metra djúpan gíginn og mynda fyrir sjónvarps-
þátt National Geographic. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEIMILD: SKOÐANAKÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS