Fréttablaðið - 29.09.2010, Side 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
STJÓRNMÁL Alþingi samþykkti í gær
að Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, verði ákærður
og dreginn fyrir landsdóm. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, fyrrver-
andi utanríkisráðherra, Árni M.
Mathiesen, fyrrverandi fjármála-
ráðherra og Björgvin G. Sigurðs-
son, fyrrverandi viðskiptaráð-
herra, verða ekki ákærð.
Samfylkingin klofnaði í málinu.
Átta samfylkingarmenn af tut-
tugu greiddu atkvæði með því að
ákæra Geir. Ólína Þorvarðardótt-
ir og Sigríður Ingibjörg Ingadóttir
vildu ákæra alla nema Ingibjörgu
Sólrúnu en Helgi Hjörvar og Skúli
Helgason greiddu einungis atkvæði
með því að ákæra Geir. Þeim þótti
ekki ástæða til að ákæra Árna,
Björgvin og Ingibjörgu Sólrúnu.
Geir segir niðurstöðuna mikil
vonbrigði.
„Öll þessi ákæra, og allt þetta
mál af hálfu meirihlutans í þess-
ari þingmannanefnd, er á sandi
byggt,“ segir Geir. „Ef niðurstaða
landsdómsins verður síðan sú að
sýkna mig þá tel ég að allir þeir
sem samþykktu þessa ákæru þurfi
mjög verulega að athuga sinn gang
og hugsa sína stöðu upp á nýtt.“
Hann segir málið augljóslega
pólitískt.
„Samfylkingin passar greinilega
upp á sitt fólk, eins og kom fram
í þinginu, og menn skáskjóta sér á
milli manna við atkvæðagreiðsl-
ur til þess að koma tilteknum aðil-
um í skjól. Ég tel að það hvernig
þetta mál endaði í þinginu afhjúpi
algjörlega hið pólitíska eðli þess-
arar ákæru og tel að lítill sómi sé
að því fyrir þá sem að þessu hafa
staðið.“
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra, aftekur með öllu að pól-
itískar línur hafi verið dregnar.
Spurð hvort Samfylkingin hafi gert
pólitíska aðför að Geir H. Haarde
segir hún að sumir telji að svo sé.
„Ég hef alla tíð gagnrýnt lands-
dóm fyrir að hann gæti boðið upp
á slíkt,“ segir Jóhanna. „En í okkar
þingflokki var það þannig að hver
og einn tók ákvörðun fyrir sig. Nið-
urstaðan var ekki í samræmi við
það sem ég lagði til.“
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir Vinstri græn
hafa verið samkvæm sjálfum sér
í atkvæðagreiðslunni. Hann vilji
ekki blanda sér umræður um hvað
liggi að baki ákvörðunum einstakra
þingmanna. „Ég ætla bara að vona
að þingmönnum, sem flestum, líði
vel með það hvernig þeir greiddu
atkvæði. Það er ekki gaman að sjá
jafn mætan mann og Geir standa í
þessum sporum.“
Skúli rökstyður ákvörðun sína
með þeim hætti að Geir hafi haft
upplýsingar, aðstöðu og völd til þess
að bregðast við því válega ástandi
sem hér myndaðist. Ekki eigi það
einungis við um hans eigin ríkis-
stjórn heldur einnig sem fjármála-
ráðherra frá 1998.
Ólína undrast gagnrýni Geirs.
„Geir talar um mig sem póli-
tískan loddara en særður maður
segir ýmislegt og ég ætla ekkert
að skattyrðast við hann um þetta
mál. Einhvern tímann orðaði hann
það þannig að það væri ekki rétt að
persónugera vandann og ég vona að
hann falli ekki sjálfur í þá gryfju
núna.“
- shá, sh, th / sjá síður 8 til 13
Miðvikudagur
skoðun 14
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Gólfefni
29. september 2010
228. tölublað 10. árgangur
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Nýr tilboðsbæklingur í dag
Tilfinningarík!
Ný bók eftir
Önnu B. Ragde
Fréttablaðið er með 201%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
74,9%
24,9%
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið,
18–49 ára. Könnun Capacent í maí til júlí 2010.
Fórnar öllu
Líney Inga
Arnórsdóttir fékk
draumastarfið
í Banda-
ríkjunum.
fólk 34
21 árs liðið gengur fyrir
Ólafur Jóhannesson,
A-landsliðsþjálfari, er
ósáttur með ákvörðun
stjórnar KSÍ.
sport 30
Ég tel að það hvernig þetta mál endaði í þinginu afhjúpi algjörlega hið pólitíska eðli þessarar
ákæru og tel að lítill sómi sé að því fyrir þá sem að þessu hafa staðið.
GEIR H HAARDE
FYRRVERANDI
FORSÆTISRÁÐHERRA
Geir einn ákærður
Geir H. Haarde er eini ráðherrann sem verður ákærður og dreginn fyrir landsdóm. Geir sakar Samfylkinguna um pólitísk hrossakaup.
Formaður Samfylkingarinnar neitar því. Formaður VG vill ekki blanda sér í umræðuna um hvað réði ákvörðun einstakra þingmanna.
Gagnrýnið samfélag
Ungmenni fá kynningu um
réttindi sín í samfélaginu
frá laganemum.
tímamót 18
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
EINN Á SAKAMANNABEKK Úrslit atkvæða-
greiðslnanna á Alþingi runnu yfir skjáinn í
fréttum Stöðvar 2 á meðan Geir H. Haarde
ræddi við blaðamann Fréttablaðsins.
Gólfefni
Sérblað • miðvikudagur 29. september