Fréttablaðið - 02.10.2010, Blaðsíða 53
2. október 2010 LAUGARDAGUR1
Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Viltu vera
í okkar liði?
Nánari upplýsingar veita Jenný Sif Steingrímsdóttir, jsteingrimsdottir@actavis.is
og Ragnheiður Dögg Ísaksdóttir, risaksdottir@actavis.com
Actavis Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 10. október nk.
Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu
hágæðasamheitalyfja. Fyrirtækið er með starfsemi í 40 löndum. Actavis hf. er
eitt af dótturfyrirtækjum samstæðunnar og er framleiðslueining fyrirtækisins
hér á Íslandi. Hjá Actavis á Íslandi starfa yfir 600 starfsmenn á ýmsum sviðum.
Sérfræðingur í geymsluþolsdeild
Geymsluþolsdeild tilheyrir þróunarsviði Actavis Group og sér um geymsluþolsmælingar á framleiðsluvörum fyrirtækisins, útreikninga og frágang á niðurstöðum.
Niðurstöður geymsluþolsrannsókna eru teknar saman í skýrslur þar sem þær eru metnar og ályktað er um stöðugleika vörunnar sem um ræðir.
Helstu verkefni:
Gerð skýrslna þar sem niðurstöður geymsluþolsrannsókna eru teknar saman
Mat á geymsluþolsniðurstöðum m.t.t gildandi krafna
Vinna við uppbyggingu og framþróun í geymsluþolsdeild
Við leitum að einstaklingi;
með háskólamenntun á sviði raunvísinda
sem tileinkar sér nákvæm og öguð vinnubrögð
með góða samskiptahæfni og skipulagshæfileika
með góða ensku- og tölvukunnáttu
Fulltrúi í gæðamálum - Quality Systems Representative
Quality Systems deild Actavis Group sér um samræmingu gæðamála innan Actavis samstæðunnar, metur stöðu gæðamála og aðstoðar við gæðaumbætur.
Helstu verkefni:
Ritstýra gæðahandbók samstæðunnar (Actavis Corporate Manual)
og taka þátt í uppfærslum á innihaldi hennar
Fylgja eftir niðurstöðum úr úttektum á gæðakerfum dótturfyrirtækja
Svara fyrirspurnum sem berast deildinni
Safna saman og halda utan um gæðamælikvarða frá dótturfélögum
Samþykkja reikninga
Við leitum að einstaklingi;
með háskólamenntun (æskilegt en ekki nauðsynlegt)
með góða ensku- og tölvukunnáttu
sem býr yfir hæfileikum í textagerð
með mikla skipulagshæfileika
sem er fljótur að tileinka sér ný vinnubrögð og þekkingu
sem býr yfir hæfni í mannlegum samskiptum
Störf í töfludeild
Í töfludeild fer fram lyfjablöndun sem felur í sér vigtun, blöndun og frumvinnslu hráefna. Einnig sér töfludeild um framleiðslu á töflum og hylkjum. Í starfinu felst
samsetning á vélum, skýrslugerð og skjalfesting. Unnið er á þrískiptum vöktum.
Ef þú ert...
hress og jákvæð/ur
stundvís
samviskusöm/samur og getur tileinkað þér nákvæm vinnubrögð
verklagin/n
með grunnþekkingu í ensku
góð/ur í að vinna í hópi
...þá bjóðum við
snyrtilegan og öruggan vinnustað
fjölskylduvænt starfsumhverfi
góðan starfsanda
gott mötuneyti
fræðslu og þjálfun
iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni sem sinna heilsuvernd starfsmanna
árlegan styrk til íþróttaiðkunar auk fræðslustyrks
öflugt starfsmannafelag
Hráefnasérfræðingur á þróunarsviði
Hráefnasérfræðingur sér um val og rýni á hráefnum til nota í þróunarverkefni Actavis. Aðrar deildir á þróunarsviði meta gæði, tæknilega eiginleika, einkaleyfastöðu o.fl.
fyrir hvert lyf, en hlutverk hráefnasérfræðingsins er að halda utan um þær niðurstöður og leggja mat á heildarmyndina.
Helstu verkefni:
Rýni á hráefnum og gögnum þeim tengdum
Utanumhald um hráefnasýni og mælingar á þeim
Leit að vísindagreinum og upplýsingum úr gagnagrunnum
og úrvinnsla þeirra gagna
Við leitum að einstaklingi;
með háskólamenntun á sviði raunvísinda; efnafræði kostur
með góða færni í leit og öflun vísindaupplýsinga
með góða ensku- og tölvukunnáttu
sem sýnir frumkvæði, sjálfstæði og hefur tileinkað sér sjálfstæð vinnubrögð