Fréttablaðið - 02.10.2010, Blaðsíða 112
2. október 2010 LAUGARDAGUR64
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Það er skammt stórra
högga á milli hjá Íslandsmeistur-
um Hauka. Þeir hófu leik á Íslands-
mótinu í vikunni og eiga nú leiki í
Evrópukeppni félagsliða um helg-
ina.
Haukar taka þá á móti ítalska
liðinu Conversano í tveimur leikj-
um í dag og á morgun en Haukarn-
ir keyptu útileikinn hingað heim
þar sem það var hagstæðara.
Haukarnir þekkja Conversano
ágætlega eftir að hafa mætt liðinu
þrívegis á síðustu árum.
„Það hefur ekkert gengið allt of
vel að afla sér upplýsinga um liðið
en við eigum einhverjar myndir
af þeim frá því í fyrra. Liðið hefur
síðan breyst nokkuð en hversu
mikið veit ég ekki nógu vel,“ sagði
Halldór Ingólfsson, þjálfari Hauka,
en hann viðurkenndi að Haukarnir
renndu nokkuð blint í sjóinn.
„Þeir hafa áður mætt hingað
með hörkulið þannig að ég býst
ekki við neinu öðru en hörkuleikj-
um. Við höfum metnað fyrir þess-
ari keppni og ætlum okkur að kom-
ast áfram. Hvort það er raunhæft
verður að koma í ljós.“
Leikurinn í dag hefst klukkan
16.00 og á morgun klukkan 18.00.
Miðaverð er 1.000 krónur en 1.500
ef fólk kaupir á báða leikina. - hbg
Haukar hefja leik í Evrópukeppni félagsliða:
Ætlum að komast áfram
Í ELDLÍNUNNI Haukarnir spila tvo Evrópuleiki um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Það verður mikil gleði ef
íslenska U-21 árs liðið kemst á EM
en að sama skapi verður það mar-
tröð fyrir mótastjóra KSÍ, Birki
Sveinsson.
Lokamót EM mun fara fram í
júní á næsta ári og miðað við að
liðið þarf líka að undirbúa sig er
nánast allur júnímánuður í hættu.
Þau lið sem eiga fulltrúa í liðinu
munu væntanlega ekki spila neitt
á meðan og þá er spurning hvort
það gangi að láta önnur lið spila á
sama tíma.
Þetta gæti því orðið ansi mikill
hausverkur fyrir Birki, sem mun
eflaust brjóta heilann lengi og vel
um hvernig hægt sé að leysa málið
á sem bestan hátt.
„Ég er ekki farinn að hugsa of
mikið um þetta. Ég ætla að leyfa
þessum leikjum gegn Skotum að
klárast áður en ég helli mér í þetta.
Því er samt ekki að neita að þetta
verður snúið þar sem allur júní-
mánuður er í hættu,“ sagði Birkir
stuttur í spuna.
Það er ljóst að einhvern tímann
verður að spila þessa leiki og svo
gæti hreinlega farið að mótið byrj-
aði í apríl. Þá eru tæplega neinir
grasvellir tilbúnir og þá stendur
eftir gervigras og knattspyrnu-
hallir. Það eru aðeins Kórinn og
Egilshöll sem taka við einhverj-
um fjölda af áhorfendum og því
yrði afar sérstakt ef heil umferð
færi fram í þessum húsum yfir
eina helgi.
Hvað svo sem verður er ljóst að
Birkir verður ekki öfundsverður af
hlutverki sínu, fari svo að íslenska
U-21 árs liðið komist á EM. - hbg
Íslandsmótið verður væntanlega með breyttu sniði fari U-21 árs liðið á EM:
Pepsi-deildin gæti byrjað í apríl
STYTTRA UNDIRBÚNINGSTÍMABIL? Íslandsmeistarar Breiðabliks gætu verið mættir á
völlinn fyrr en búist var við. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Ísland mætir Portúgal
í undankeppni EM 2012 hinn 12.
október næstkomandi. Eins og
kom í ljós fyrr í vikunni ákvað
stjórn Knattspyrnusamband
Íslands að U-21 landsliðið, sem
leikur við Skota um svipað leyti,
fengi forgang á leikmenn.
Þegar Eyjólfur Sverrisson,
þjálfari U-21 landsliðsins, til-
kynnti leikmannahópinn sem
mætir Skotum í næstu viku valdi
hann sjö leikmenn sem voru í síð-
asta leikmannahópi Ólafs Jóhann-
essonar A-landsliðsþjálfara.
Fimm af þessum sjö leikmönn-
um eru miðvallarleikmenn og er
því ljóst að hausverkur Ólafs snýst
nú fyrst og fremst um að manna
miðju íslenska liðsins.
Á þeim þremur árum sem Ólaf-
ur hefur verið landsliðsþjálfari
hefur hann stýrt liðinu í 31 leik
og notað 77 leikmenn. Fréttablaðið
nefnir nú fimmtán leikmenn sem
ekki voru í landsliðshópnum gegn
Noregi og Danmörku en gætu allir
nýst Ólafi nú. Allir eiga það sam-
eiginlegt að hafa spilað landsleik
undir stjórn Ólafs og það oftar en
einu sinni.
Reyndar eiga þessir leikmenn
samtals 97 landsleiki að baki og er
hér aðeins átt við þann tíma sem
Ólafur hefur verið landsliðsþjálf-
ari, síðan í nóvember árið 2007.
Meðalfjöldi mínútna þessara leik-
manna er 360 mínútur.
Um er því að ræða reyndan hóp
leikmanna sem allflestir þekkja
það vel að spila undir stjórn
Ólafs.
Hafa verður þó í huga að Ólafur
fær nú ekki að velja sitt sterkasta
lið að eigin mati. Allir sjö leik-
mennirnir sem Eyjólfur valdi í
sinn hóp nú komu við sögu í síðasta
leik A-landsliðsins, gegn Dönum á
Parken. Þar af voru fimm í byrj-
unarliðinu.
En Ólafur hefur í sinni landsliðs-
þjálfaratíð lagt ríka áherslu á að
velja fjölbreyttan hóp leikmanna
enda hefur liðið spilað fjölmarga
vináttulandsleiki sem ýmist voru
á opinberum landsliðsdögum og
óopinberum. Eftir stendur stór
hópur leikmanna sem hefur feng-
ið að kynnast því hvernig það er
að klæðast landsliðstreyjunni og
spila samkvæmt leikstíl Ólafs.
Þeirra sem Ólafur velur til að
spila við Portúgal í næstu viku
bíður gríðarlega erfitt verkefni,
enda andstæðingurinn eitt sterk-
asta landslið heims með stórstjörn-
ur á borð við Cristiano Ronaldo og
Nani innanborðs.
eirikur@frettabladid.is
15 leikmenn fyrir Ólaf
Ólafi Jóhannessyni hafa verið settar skorður fyrir leikmannaval A-landsliðs
karla. Hann nýtur þess þó nú að hafa valið fjölbreyttan hóp leikmanna á sínum
þremur árum sem landsliðsþjálfari sem gætu aftur komið inn í landsliðið.
HÖFUÐVERKUR Ólafur Jóhannesson, A-
landsliðsþjálfari karla þarf að fylla upp
í stórt skarð sem 21 árs landsliðsstrák-
arnir skildu eftir sig í A-landsliðinu þegar
ljóst var að KSÍ setti 21 árs landsliðið í
forgang. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Leikmannalistinn
Nafn: leikir/mínútur*
Baldur Sigurðsson 3/59
Bjarni Guðjónsson 6/459
Davíð Þór Viðarsson 7/288
Emil Hallfreðsson 17/1363
Eyjólfur Héðinsson 4/197
Garðar Jóhannsson 6/236
Hallgrímur Jónasson 1/17
Helgi Valur Daníelsson 9/566
Jónas Guðni Sævarsson 7/407
Kári Árnason 1/90
Matthías Vilhjálmsson 5/211
Óskar Örn Hauksson 2/70
Pálmi Rafn Pálmason 18/888
Steinþór Freyr Þorsteinsson 4/260
Theódór Elmar Bjarnason 7/287
* í landsleikjum undir stjórn Ólafs
Fjarverandi leikmenn
Þeir leikmenn sem tóku þátt í leikn-
um gegn Dönum á Parken en verða
fjarverandi gegn Portúgal vegna
U-21 landsliðsins:
Í byrjunarliðinu: Leikir/mínútur*
Aron Einar Gunnarsson 20/1393
Rúrik Gíslason 9/639
Eggert Gunnþór Jónsson 7/383
Gylfi Þór Sigurðsson 3/240
Jóhann Berg Guðmundsson 8/555
Varamenn:
Birkir Bjarnason 3/105
Kolbeinn Sigþórssson 4/205
* í landsleikjum undir stjórn Ólafs
NÚ ER
TVÖFALT
MEIRA
Í VINNING
EN Á-DUR!
I I
!
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
ÚRV.D.
ÚRV.D.
1. D.
Tottenham - Aston Villa
Birmingham - Everton
Stoke - Blackburn
Sunderland - Man. Utd.
W.B.A. - Bolton
West Ham - Fulham
Helsingborg - GAIS
Ipswich - Leeds
Barnsley - Cardiff
Crystal Palace - Q.P.R.
Doncaster - Nott. Forest
Millwall - Burnley
Sheffi eld Utd. - Watford
76.000.000
28.500.000
22.800.000
47.500.000
ENSKI BOLTINN 2. OKTÓBER 2010
39. LEIKVIKA
(13 R.)
(12 R.)
(11 R.)
(10 R.)
Stærstu nöfnin eru í Enska
boltanum og nú er potturinn
orðinn ennþá stærri. Vertu með
og tippaðu fyrir kl. 13 í dag.
SÖLU LÝKUR 2. OKT. KL. 13.00
1 X 2
TIPPAÐU Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA Á 1X2.IS
MEISTARAKEPPNIN Í KÖRFUBOLTANUM fer fram á sunnudaginn í Stykkishólmi. Íslandsmeistarar KR og bikarmeist-
arar Hauka mætast klukkan 17.00 hjá konunum en Íslands- og bikarmeistarar Snæfells spila strax á eftir við Grindavík. KKÍ hefur frá
árinu 1995 látið allan ágóða af þessum árlega leik renna til góðgerðarmála og í ár rennur ágóðinn til Fjölskylduhjálpar Íslands.