Fréttablaðið - 06.10.2010, Blaðsíða 38
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Ljóðaflokkarnir Svanasöngur eftir Franz Schubert og
Ástir skálds eftir Robert Schumann komu út í fyrsta skipti
á íslensku á dögunum. Þeir eru í flutningi söngvarans Eiðs
Ágústs Gunnarssonar sem á veg og vanda að útgáfunni.
„Ljóðaflokkarnir, sem koma út á tveimur hljómdiskum og
er dreift af 12 Tónum, voru hljóðritaðir á árunum 1983 og
1984 hjá Ríkisútvarpinu. Þeir voru fluttir einu sinni en fóru
eftir það upp í hillu,“ segir Eiður. „Það var svo í fyrravetur
að ég fékk þá hugmynd að gaman væri að eignast eitthvað af
þeim lögum sem ég hef sungið fyrir útvarp í gegnum tíðina
og varð úr að ég keypti öll þau lög sem til voru,“ bætir hann
við. Eiður ákvað að biðja Garðar Cortes, skólastjóra Söng-
skólans í Reykjavík, að leggja mat á það hvort það væri þess
virði að gefa ljóðaflokkana út. „Hann var svo elsku legur
að gefa sér tíma til að hlusta og þegar ég hitti hann næst
náði ég varla að heilsa. Hann sagði þetta vera menningar-
verðmæti sem ég yrði að gefa út og það strax og líkti þessu
jafnvel við demant ef ég man það rétt. Ég bara gegndi því
en ef ég hefði ekki fengið þessa miklu hvatningu hefði ég
líklega ekki látið af því verða,“ segir Eiður.
Í kjölfarið keypti hann útgáfuréttinn af RÚV. Að hans
mati er það mikill fengur að efnið í heild sinni skuli nú
vera aðgengilegt á íslensku enda hefur það lengi verið talið
eitt ástsælasta efni tónlistarunnenda. Ljóðaflokkarnir eru
í íslenskri þýðingu Daníels Á. Daníelssonar, fyrrverandi
héraðsdýralækns á Dalvík. „Hann sendi þýðinguna á sínum
tíma til Ólafs Vignis Albertssonar píanóleikara sem hafði
samband við mig til Þýskalands, þar sem ég starfaði við
óperuna í Aachen, og bað mig um að annast flutninginn.
Eiður segir ekki ólíklegt að hann komi til með að gefa út
meira af því efni sem hann keypti af RÚV. „Það veltur þó
á því að þessir diskar fái þokkalegar mótttökur enda ekki
ókeypis að gefa þá út upp á eigin spýtur. Ég á hins vegar í
það minnsta efni í fimm til sex diska til viðbótar. Þá veit ég
til þess að útvarpið átti meira efni en það hefur ekki fundist
og er líklega týnt.“ Eiður segir að mestu um að ræða íslensk
lög. „Ég gæti örugglega gefið út heila plötu með lögum Sig-
valda Kaldalóns en auk þess er þarna eitthvað um lög á
ítölsku og þýsku.“ vera@frettabladid.is
SVANASÖNGUR OG ÁSTIR SKÁLDS:
GEFIN ÚT Á ÍSLENSKU Í FYRSTA SINN
Tónlistarperlur út-
gefnar á íslensku
MENNINGARVERÐMÆTI Garðar Cortes hvatti Eið til að gefa efnið út.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hulda Snorradóttir
frá Dagverðartungu,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn
8. október kl. 13.30.
Gylfi Pálsson Rósa María Björnsdóttir
Ragna Pálsdóttir Ævar Ragnarsson
Gísli A. Pálsson Stefanía Þorsteinsdóttir
Snjólaug Pálsdóttir Þorsteinn Sigurðsson
Snorri Þ. Pálsson
ömmu- og langömmubörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Gunnvör Björnsdóttir
Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi,
lést á Sjúkrahúsi Akraness laugardaginn 2. október.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 8.
október kl. 14.
Björn Sigurðsson Susanna Modin
Guðmundur Sigurðsson Jónína Björg Magnúsdóttir
Kristinn Hallur Sveinsson Margrét Rós Jósefsdóttir
Rósa Guðrún Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóhanna Pétursdóttir
frá Hjalteyri,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 29. september.
Jarðarför verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðju-
daginn 12. október kl. 13.00.
Pétur J. Eiríksson Erla Sveinsdóttir
Sigrún Ástríður Eiríksdóttir
Þórólfur Eiríksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur samhug við
andlát og útför eiginmanns míns,
föður, afa og langafa,
Jóhanns Águstssonar
Kópavogstúni 8, Kópavogi.
Svala Magnúsdóttir
Magnús V. Jóhannsson Bjarnveig Ingvarsdóttir
Guðmundur Örn Jóhannsson Íris Gunnarsdóttir
Sólveig Fríða Jóhannsdóttir Ingimar Bjarnason
barnabörn og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Fríða Freymóðsdóttir
Andrésbrunni 17, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 1.
október. Útför fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
11. október kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á líknarstofnanir.
Ásdís K. Molvik
Erla Helgadóttir Tómas Guðmarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hjartkær vinur minn og bróðir okkar,
Hörður Haraldsson
fyrrverandi kennari í Bifröst,
andaðist á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
þriðjudaginn 5. október.
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Eiríkur Haraldsson
Pétur Haraldsson
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Eygló Eyjólfsdóttir
fyrrverandi skólameistari,
Prestastíg 9, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstu-
daginn 8. október kl. 13.00.
Steinarr Höskuldsson
Höskuldur Steinarsson Helga Ívarsdóttir
Gunnhildur Steinarsdóttir Fanney Stefánsdóttir
Steinarr Hrafn Höskuldsson
Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir
Hróbjartur Höskuldsson
Guðlaug Sóley Höskuldsdóttir
Guðmundur Þorsteinsson
Eygló Þorsteinsdóttir
Guðrún Ólafía Þorsteinsdóttir
Hjartkær eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Geir Austmann Björnsson
rafvirkjameistari og kaupmaður,
fæddur á Strjúgstöðum í Húnavatnssýslu 20. febrúar
1920, lést í Reykjavík 1. október síðastliðinn. Útförin fer
fram frá Grensáskirkju föstudaginn 15. október kl. 15.
Arnheiður Lilja Guðmundsdóttir
Guðrún Erla, Steinunn Jóna, Geir Arnar og Sigurjón
Guðbjörn Geirsbörn,
tengdabörn, afabörn og langafabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Magnea Rósbjörg
Pétursdóttir
Álfhólsvegi 85, Kópavogi,
lést þriðjudaginn 21. september sl. á bráðamóttöku
Landspítalans í Fossvogi. Útförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu. Innilegar þakkir til þeirra
sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför hennar. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi.
Ástbjartur Sæmundsson
Pétur Ástbjartsson Hrafnhildur Hjartardóttir
Ástríður Sæunn Ástbjartsdóttir Jón Þór Hallsson
Bjarni Valur Ástbjartsson Nongnart Lue-U-Kosakul
Gylfi Ástbjartsson Hafdís Helga Ólafsdóttir
Hjalti Ástbjartsson Bryndís Emilsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Gjótuhrauni 8, 220 Hafnarfirði Sími: 571 0400, legsteinar@gmail.com
GRANÍT OG LEGSTEINAR
Fallegir legsteinar
á einstöku verði
Frí
áletr
un
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi,
Halldór Margeir
Ingólfsson,
Unufelli 25, Reykjavík,
lést á Landspítalanum miðvikudaginn 29. september.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 7.
október kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Elísabeth Esther Lunt.