Fréttablaðið - 08.10.2010, Blaðsíða 2
2 8. október 2010 FÖSTUDAGUR
ALI ZERBOUT Eftirlýstur vegna
tilraunar til manndráps.
ROBERT DARIUSZ SOBIECKI
Eftirlýstur vegna nauðgunar.
PAP OUSMAN KWEKO SECKA
Eftirlýstur vegna nauðgunar
og misneytingar.
LÖGREGLUMÁL Fjórir erlendir karl-
menn eru eftirlýstir af alþjóðalög-
reglunni Interpol fyrir alvarleg
brot sem þeir hafa framið hér á
landi. Hinn fimmti, sem eftirlýst-
ur var til skamms tíma, hefur nú
verið handtekinn og situr í fang-
elsi í Líbanon. Mennirnir hafa
allir verið eftirlýstir um árabil.
Í Venezúela situr svo í fangelsi
Steingrímur Þór Ólafsson sem
handtekinn var ytra í kjölfar eftir-
lýsingar Interpol fyrir íslensk lög-
regluyfirvöld vegna rannsóknar
lögreglu á fjársvikamáli.
Smári Sigurðsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn hjá alþjóðadeild
ríkislögreglustjóra segir að reglu-
lega þurfi að svara fyrirspurnum
frá lögregluyfirvöldum ytra hvort
vilji sé til þess hjá lögreglu hér að
hinn eftirlýsti sé áfram á listan-
um.
Sá sem situr inni í Líbanon, Moh
D Bashar Najeh Suleiman Almas-
id, var dæmdur hér árið 2006 í
tveggja ára fangelsi í Hæstarétti
fyrir að vera með til söludreifing-
ar nær 250 grömm af amfetam-
íni og samtals 656 amfetamín- og
e-töflur, sem hann faldi í holu í
baðherbergisvegg á veitingastað
sem hann rak þá í Hafnarstræti í
Reykjavík, Purple onion. Maður-
inn stakk af áður en til afplánun-
ar kom.
Þá er litháískur karlmaður,
Robert Dariusz Sobiecki, eftir-
lýstur. Hann var dæmdur í Hæsta-
rétti í þriggja ára fangelsi fyrir
að nauðga konu inni á kvenna-
salerni á Hótel Sögu í mars árið
2007. Hann hvarf úr landi áður en
afplánun hófst.
Annar maður frá Litháen, Thom-
as Dovydaitis, er eftirlýstur fyrir
líkamsárás og rán hér, í félagi við
annan mann. Þeir réðust á karl-
mann í húsasundi við Laugaveg
kýldu hann í andlitið og rændu
hann síðan. Maðurinn slasaðist
mikið við árásina.
Sá sem nú er eftirlýstur stakk
af úr landi en félagi hans var
dæmdur í tveggja ára fangelsi
hér.
Þá er 45 ára karlmaður frá
Alsír, Ali Zerbout, eftirlýst-
ur fyrir tilraun til manndráps
á bílastæði í Reykjavík. Hann
var dæmdur í Hæstarétti í sex
ára fangelsi fyrir að stinga hálf-
fertugan mann tvívegis með
hnífi þannig að hann hlaut djúp
lífshættuleg stungusár á höfði og
líkama. Árásarmaðurinn lét sig
hverfa þegar átti að ákæra hann.
Loks er eftirlýstur maður
frá Gana, Pap Ousman Kweko
Secka. Hann átti yfir höfði sér
tvær ákærur frá ríkissaksóknara.
Hann var ákærður fyrir nauðgun
annars vegar og misneytingu hins
vegar. Maðurinn hvarf af landi
brott áður en málin voru þingfest
í héraðsdómi en hann hafði búið
hér árum saman.
jss@frettabladid.is
Eftirlýstir af Interpol
fyrir glæpi hérlendis
Fjórir menn eru eftirlýstir af Interpol vegna glæpa sem þeir frömdu hér á landi.
Þeir eiga það sameiginlegt að hafa stungið af þegar átti að færa þá fyrir dóm-
ara eða eftir að þeir höfðu hlotið dóma hér. Brotin eru mismunandi en öll gróf.
THOMAS DOVYDAITIS Eftir-
lýstur vegna líkamsárásar og
ráns.
SPURNING DAGSINS
– Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta að kvöldmatnum á www.gottimatinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-0
2
9
3
Aðalsteinn, er þetta ekki
brennheitt efni?
„Alveg sjóðandi. Þetta rýkur út.“
Aðalsteinn Júlíus Magnússon og félagar
hjá hlusta.is bjóða viðskiptavinum
að sækja margar af perlum íslenskra
bókmennta á netið. Brennu-Njálssaga er
vinsælasta nýjungin þeirra.
MENNING Afar góð viðbrögð voru
í gær við áskorun Fréttablaðs-
ins til lesenda um að senda inn
myndir í ljósmyndasamkeppni
blaðsins.
Keppnin hófst í gær og lýkur á
hádegi í dag. Þema keppninnar
er Fólk að hausti. Til mikils er
að vinna fyrir sigurvegarann því
myndin sem hlýtur fyrstu verð-
laun mun prýða forsíðu helgar-
blaðs Fréttablaðsins á morgun.
Þess utan fær höfundur sigur-
myndarinnar gjafabréf fyrir tvo
á á einhvern af áfangastöðum
Iceland Express í Evrópu. Önnur
og þriðju verðlaun eru gjafakort í
Þjóðleikhúsið. Myndir á að senda
á netfangið ljosmyndakeppni@
frettabladid.is. - gar
Ljósmyndakeppni lýkur í dag:
Forsíðan bíður
sigurvegarans
LANDSDÓMUR Geir H. Haarde, fyrr-
verandi forsætisráðherra, hefur
gert athugasemdir við afgreiðslu
Alþingis á kæru á hendur honum
fyrir landsdómi. Í bréfi frá verj-
anda hans segir að svo virð-
ist sem Alþingi hafi látið málið
niður falla með því að ljúka ekki
afgreiðslu þess áður en þingi var
slitið.
Alþingi ákvað hinn 29. septem-
ber síðastliðinn að höfða bæri mál
á hendur Geir fyrir landsdómi.
Í lögum um landsdóm segir að
ákvörðun um málshöfðun skuli
taka með þingsályktun. Jafn-
framt því kjósi Alþingi saksókn-
ara, varasaksóknara og þingnefnd
til að fylgja málinu eftir.
Andri Árnason, verjandi Geirs,
sendi forseta Alþingis bréf á mið-
vikudag þar sem dregið var í
efa að rétt hafi verið að þessum
málum staðið.
Andri segir það
sinn skilning
að þingið hefði
átt að kjósa
saksóknara og
þingnefnd sam-
hliða kosningu
um ákæru. Það
hefði ekki verið
gert, heldur
hefði þi ng i
verið slitið í kjölfar atkvæða-
greiðslu um ákærur á hend-
ur fyrrverandi ráðherrum. Til
stendur að kjósa saksóknara á
þingfundi eftir helgi.
Þar sem þingið kaus ekki sak-
sóknara og eftirlitsnefnd áður en
því var slitið er rétt að velta því
upp hvort málið hafi hlotið fulln-
aðarafgreiðslu hjá Alþingi áður en
þingi var slitið og nýtt þing kom
saman, segir Andri í samtali við
Fréttablaðið. Samkvæmt lögum
um þingsköp Alþingis falla niður
í lok þings þau mál sem ekki hafa
hlotið lokaafgreiðslu.
Bregðist þingið ekki við þessu
með einhverjum hætti verður
væntanlega látið reyna á þetta
atriði fyrir landsdómi, komi
hann saman, segir Andri. Þá
verði dómurinn að taka afstöðu
til þess hvort saksóknarinn telj-
ist löglega kjörinn eða ekki. Sé
hann ekki löglega kjörinn verði
að fella málið niður.
Ásta Ragnheiður Jóhannes dótt-
ir, forseti Alþingis, kynnti erind-
ið í forsætisnefnd í gær. Í sam-
tali við Fréttablaðið sagði hún
að verið væri að fara yfir það á
þinginu, en ekki væri búið að taka
afstöðu til þeirra álitaefna sem
þar komi fram. - bj
Telur handvömm Alþingis geta leitt til þess að ákæran hafi fallið niður:
Segir ekki farið að lögum
GEIR H. HAARDE
MÓTMÆLI „Ég er ekki viss um að
fólk átti sig á því að það er verið að
eyðileggja varan-
lega Alþingshús-
ið, sem er þjóðar-
gersemi,“ segir
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis.
Hún segir
háþrýstiþvott
sem grípa þurfi
til vegna mat-
væla sem kastað
sé á þinghúsið
ganga afar nærri íslenska grágrýt-
inu sem húsið var hlaðið úr árið
1881. Steinninn molni undan þvott-
inum, og ekki sé hægt að gera við
þann skaða á friðlýstu húsinu.
„Það er sjálfsagt að mótmæla,
en þetta hús er okkar sameign, og
ég bið fólk um að virða það og láta
húsið í friði,“ segir Ásta. - bj
Hefur áhyggjur af þinghúsinu:
Skemmdirnar
óafturkræfarSKIPULAGSMÁL Mikill vilji er hjá skipulagsráði Reykjavíkur að
ganga frá úthlutun lóðar undir
mosku og menningarsetur Félags
íslenskra mús-
lima. Það segir
Páll Hjalta-
son, formaður
skipulagsráðs,
í samtali við
Fréttablaðið.
Eins og fram
hefur komið,
hefur félagið
beðið í um ára-
tug eftir að fá
lóð, en nú hillir undir að biðinni
muni ljúka.
Páll segir að hann hafi áhuga á
að ljúka málinu sem fyrst.
„Það verða á henni einhverjar
kvaðir eftir því hvar hún verð-
ur, svo þeta falli inn í aðstæður
og svo fá þeir bara úthlutað lóð
eins og hver annar til að hefjast
handa.“ - þj
Lóð undir mosku í Reykjavík:
Mikill vilji hjá
skipulagsráði
PÁLL HJALTASON
ALÞINGI Fjölga þarf hæstarétt-
ardómurum að mati Ögmundar
Jónas sonar dómsmálaráðherra.
Þetta kom fram í svari Ögmund-
ar við fyrirspurn Sigurðar Kára
Kristjánssonar í utandagskrár-
umræðum á Alþingi í gær.
Fimm hæstaréttardómarar
þurfa að sitja í landsdómi og því
ljóst að álag muni aukast veru-
lega á Hæstarétti á meðan lands-
dómur vinnur sín störf. Vigdís
Hauksdóttir, þingmaður Fram-
sóknarflokksins, lagði til að
hæstaréttardómurum yrði fjölgað
úr níu í fimmtán. Svo myndu þeim
fækka aftur niður í níu eftir því
sem hæstaréttardómarar færu á
eftirlaun. Gerði hún ráð fyrir að
þetta myndi gerast á um tíu árum.
Ögmundur hefur óskað eftir
greinargerð frá forseta Hæsta-
réttar og segir málið síðan verða
skoðað út frá þeim forsendum.
Aukið álag á Hæstarétt:
Fjölga dómur-
um úr 9 í 15
ÁSTA R.
JÓHANNESDÓTTIR
HEILBRIGÐISMÁL „Það er varla hægt að ætlast til
þess að eitt prósent af íbúum landsins taki á sig
sig tólf til þrettán prósent af niðurskurðinum í
heilbrigðiskerfinu,“ sagði Bergur Elías Ágústs-
son, bæjar stjóri í Norðurþingi, eftir um þrettán
hundruð manna borgarfund á Húsavík í gær.
Fundurinn í gær var sá fjölmennasti á
Húsavík fyrr og síðar. Sjö af tíu þingmönnum
kjördæmis ins mættu á fundinn. Samkvæmt
fjárlagafrumvarpi næsta árs á Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga að skera niður um fjörtíu
prósent. „En það gleðilega er að það var ekki
betur að heyra en þingmenn kjördæmisins ætli
að vinda ofan af þeim boðskap sem við höfum
fengið,“ segir Bergur.
Reyknesingar fjölmenntu á borgarafund í
Stapa til að mótmæla fjórðungs niðurskurði hjá
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Í Vestamanna-
eyjum mætti fjöldi íbúa á opinn fund til að mót-
mæla fyrirhuguðum niðurskurði þar. Myndaði
fólk hring í kringum sjúkrahúsið.
Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Austur-
lands komu saman á skyndifund í gær. Sagt er
allt níutíu manns þar geti misst vinnuna.
Á Ísafirði var einnig borgarafundur í gær-
kvöldi en honum lauk ekki áður en Fréttablaðið
fór í prentun.
Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra
var boðinn á þrjá þessara funda. Anna Sigrún
Baldursdóttir, aðstoðarkona ráðherrans, segir
hann ekki hafa viljað gera upp á milli staðanna
og því mætt á engan fundanna. - gar
Fjölmennt víða um land á borgarafundum um niðurskurð í heilbrigðisþjónustu:
Þingmenn lofa að vinda ofan af niðurskurðinum
KREFJAST ÞJÓNUSTU HEIMA Starfsmenn Heilbrigði-
stofnunar Suðurnesja settu svip á mótmæli gegn niður-
skurði í heilbrigðisþjónustu á svæðinu. MYND/VÍKURFRÉTTIR