Fréttablaðið - 08.10.2010, Qupperneq 4
4 8. október 2010 FÖSTUDAGUR
VIRKJANIR Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra hefur áfrýj-
að dómi Héraðsdóms Reykjavík-
ur þar sem synjun hennar á þeim
hluta aðalskipulags Flóahrepps er
varðar Urriðafossvirkjun var ógilt.
Hún segir ástæðuna vera þá að hún
vilji skýrari leiðsögn um það hver
megi koma að kostnaði við skipu-
lagsgerð.
Forsaga málsins er sú að Flóa-
hreppur og Landsvirkjun gerðu
árið 2007 með sér samkomulag sem
fól meðal annars í sér að Lands-
virkjun skyldi kosta skipulagsgerð
vegna fyrirhugaðrar virkjunar við
Urriðafoss.
Eftir nokkurt þóf, þar sem samn-
ingnum var meðal annars breytt
eftir kærumál, barst skipulagstil-
lagan umhverfisráðuneytinu í mars
2009, en í janúar síðastliðnum neit-
aði ráðherra að staðfesta skipulagið
því hún efaðist um lögmæti aðkomu
Landsvirkjunar.
Flóahreppur kærði synjun-
ina og héraðsdómur ógilti
hana á þeim grundvelli að
lög bönnuðu ekki að fram-
kvæmdaraðili greiddi
fyrir kostnað vegna skipu-
lagsvinnu.
Svandís segir í samtali
við Fréttablaðið að dómur-
inn hafi hins vegar ekki
verið nógu skýr og því
hafi hún áfrýjað. „Þetta
er skilið eftir opið, en
ekki bara hvað varðar
þessa löggjöf.“
Tryggja þurfi að
rekstrargrunnur sveitar-
félaga komi úr almennum
sjóðum svo almannahags-
munum sé ekki ógnað með þrýst-
ingi frá kostendum.
Athygli vekur að í nýjum skipu-
lagslögum, sem samþykkt voru í
síðasta mánuði og taka gildi í
upphafi næsta árs, segir að ef
þörf sé á sveitarstjórn megi
innheimta gjald fyrir skipu-
lagsvinnu sem nauðsynleg er
vegna framkvæmda.
Svandís segir að þó að ný
lög séu skýrari tiltaki þau
ekki frekar en héraðs-
dómur með tæmandi
hætti hverjir megi
koma að málum.
„Það er grein í
nýju lögunum
þar sem gert
er ráð fyrir að
gera megi samn-
ing við þriðja
aðila um aðkomu að
kostnaði. En með hvaða hætti það
er gert og hvernig það er útfært er
ekki skýrt.“ Á meðan eru skipulags-
mál Flóahrepps í biðstöðu.
Margrét Sigurðardóttir sveit-
arstjóri segir í samtali við Frétta-
blaðið að nóg sé komið. „Við erum
búin að bíða allt of lengi og bíðum
enn og í mínum huga er þetta sóun
á tíma og peningum.“
thorgils@frettabladid.is
FRÁ URRIÐAFOSSI Virkjunaráætlanir Landsvirkjunar eru í biðstöðu á meðan Flóa-
hreppur og umhverfisráðuneytið eigast við fyrir dómstólum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Svandís áfrýjar dómi
vegna óskýrra laga
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segist áfrýja dómi um skipulagsmál í
Flóanum til að fá skorið úr um hverjir megi koma að kostnaði sveitarfélaga við
skipulagsgerð. Skipulagsmál Flóahrepps eru í biðstöðu á meðan.
130 MW virkjun
Virkjun við Urriðafoss verður
130 MW að afli að því er segir á
heimasíðu Landsvirkjunar. Inn-
takslón virkjunarinnar, Heiðarlón,
verður um níu ferkílómetrar og
myndað með stíflu í Þjórsá við
Heiðartanga og stíflugörðum upp
eftir vesturbakka árinnar.
SVANDÍS
SVAVARSDÓTTIR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
26°
21°
15°
15°
20°
24°
13°
13°
25°
20°
28°
22°
30°
13°
23°
18°
12°Á MORGUN
Hægviðri en
strekkingur syðst.
SUNNUDAGUR
Stíf A-átt syðst,
annars hægari.
8
7
7
10
10
12
9
10
10
12
5
3
4
4
4
3
8
3
5
4
4
3
13
9
10
11
12 12
11 12
10
12
HLÝINDI Helgar-
spáin er óvenju
góð miðað við
árstíma – í það
minnsta hvað hita-
tölur varðar. Horfur
eru á hægum vindi,
lítilli úrkomu og allt
að 15°C hita inn
til landsins S- og
V-til. Allra syðst
verður hins vegar
strekkingur og bæt-
ir heldur í vind til
sunnudags.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn mun
á næstu mánuðum ráðfæra sig við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, aðra ráð-
gjafa og stjórnvöld um endurskoð-
un á áætlun um afnám gjaldeyris-
hafta, að sögn Arnórs Sighvatssonar
aðstoðarseðlabankastjóra. Hann
segir gjaldeyrishöft brengla efna-
hagslega hvata, leiða til þess að
viðskiptatækifæri glatast og vera
gróðrarstíu lögbrota.
Arnór hélt erindi í gær á fundi
eignastýringarfyrirtækisins Íslensk
verðbréf en þar fjallaði hann um
leiðina úr höftunum.
Arnór benti á að óstöðugt skamm-
tímafjármagn, krónueignir í eigu
erlendra fjárfesta, skapi ákveðna
hættu þegar næstu skref hafta verði
afnumin.
„Meðal þess sem kemur til álita er
að efna til útboða þar sem erlendum
aðilum sem eiga krónueignir gefst
kostur á að skipta á þeim og skulda-
bréfum í erlendum gjaldmiðli, sem
gengið geta kaupum og sölum án
takmarkana,“ sagði Arnór, en bætti
við að sömuleiðis komi til greina
að leggja á stiglækkandi útgöngu-
skatt, samhliða eða síðar. Þá megi
leita leiða til að beina fjármagninu í
innlenda langtímafjárfestingu. - jab
Aðstoðarseðlabankastjóri segir skref í afnámi gjaldeyrishafta í undirbúningi:
Höft eru gróðrarstía lögbrota
ARNÓR Semja verður um krónueignir
erlendra aðila sem festust hér við
innleiðingu gjaldeyrishafta áður en þau
verða afnumin, segir aðstoðarseðla-
bankastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
þyngt dóm yfir karlmanni um
sjötugt vegna umboðssvika.
Hann var dæmdur til að sæta
fangelsi í átta mánuði. Þar af eru
fimm mánuðir skilorðsbundnir.
Dóminn hlaut maðurinn, sem
hefur starfað sem lögmaður,
fyrir að hafa misnotað aðstöðu
sína sem þinglýstur eigandi að
sumarhúsalóð í Grímsnesi sem
hann seldi hjónum í ágúst 1988.
Rúmum nítján árum síðar seldi
hann lóðina í heimildarleysi með
afsali dagsettu í maí 2007. Hjónin
voru þá skilin en lóðin kom í hlut
konunnar.
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi manninn í sex mánaða
fangelsi, þar af þrjá á skilorði. - jss
Hæstiréttur þyngir dóm:
Dæmdur fyrir
umboðssvik
BANDARÍKIN, AP Þriggja daga sam-
eiginlegur ársfundur Alþjóða-
bankans og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sem hefst í Washington
í dag, virðist ætla að markast af
spennu vegna gjaldmiðlastríðs
sem virðist vera í uppsiglingu.
Bandaríkjadalur féll enn í
verði í gær gagnvart evrunni, og
hefur ekki veri lægri í átta mán-
uði. Jafnframt juku Bandaríkja-
menn þrýsting sinn á kínversk
stjórnvöld um að leyfa kínverska
júaninu að styrkjast.
Robert Zoellick, bankastjóri
Alþjóðabankans, sagði þessa
alþjóðlegu spennu geta dregið úr
trausti fjárfesta á gjaldmiðlana.
Slíkt kæmi á versta tíma, því ein-
mitt nú þyrfti efnahagslíf heims-
ins á því að halda að vöxtur hlypi
í einkageirann.
Fáir hagfræðingar virðast
búast við miklum tíðindum af
ársfundinum nú um helgina. - gb
AGS og Alþjóðabankinn:
Spenna vegna
gjaldmiðlastríðs
DÓMSMÁL Hönnuður hefur verið
sýknaður í Héraðsdómi Reykja-
víkur af broti á vopnalögum.
Manninum var gefið að sök að
hafa í júlí 2009 flutt til lands-
ins og haft í vörslu sinni allt til
fimmtudagsins 3. september 2009,
fjögur hnúajárn sem hann nýtti
sem handföng á fjórar regnhlífar.
Lögregla hafði farið í verslun
sem maðurinn rekur í tengslum
við verkstæði sitt og lagt hald á
regnhlífar, sem hann hafði hann-
að með handföngum í líki hnúa-
járna. Dómari handlék eina
þeirra og taldi ekki að hætta gæti
stafað af henni. - jss
Hönnuður var sýknaður:
Regnhlífar voru
ekki hættulegar
Jóhanna með lögregluvernd
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra hefur haft lögregluvernd
síðan mótmælin á Austurvelli hófust
síðastliðinn föstudag. Það mun vera
lögreglumaður frá Ríkislögreglustjóra
sem fylgir forsætisráðherranum.
ALÞINGI
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest gæsluvarðhald til 1. nóvem-
ber yfir manni sem er grunaður
um að hafa gengið í skrokk á
fyrrverandi sambýliskonu sinni
og stórslasað hana.
Maðurinn ruddist inn á heimili
konunnar í Hveragerði og barði
hana í höfuðið, að líkindum með
hnúajárni. Talið er hending að
hann hafi ekki orðið konunni ekki
að bana.
Samkvæmt úrskurði Héraðs-
dóms Suðurlands er maðurinn
einnig grunaður um að hafa hrint
fötluðum manni af reiðhjóli og
ráðist á hann með þeim afleiðing-
um að maðurinn mjaðmagrindar-
brotnaði. - jss
Ofbeldismaður áfram inni:
Barði konu og
hrinti fötluðum
BANDARÍKIN, AP Bandarísk þing-
nefnd gagnrýnir harðlega verk-
takafyrirtæki sem sinnt hafa
öryggisgæslu fyrir bandarískar
stofnanir í Afganistans.
Í skýrslu hermálanefndar öld-
ungadeildar þingsins segir að
verktakafyrirtækin kanni oft
ekki bakgrunn heimamanna sem
þau ráði til starfa. Oft séu þetta
langreyndir stríðsjálkar í nánum
tengslum við uppreisnarsveitir
sem berjist gegn afgönsku
stjórninni og erlenda fjölþjóða-
liðinu. - gb
Bandarísk þingnefnd:
Gagnrýnir ör-
yggisfyrirtækin
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 07.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
205,1918
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
110,35 110,87
175,86 176,72
154,09 154,95
20,664 20,784
19,097 19,209
16,531 16,627
1,3377 1,3455
173,34 174,38
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR