Fréttablaðið - 08.10.2010, Page 6
6 8. október 2010 FÖSTUDAGUR
VIÐSKIPTI Malcolm Walker, forstjóri
og stofnandi lágvöruverðskeðjunnar
Iceland Foods, hefur sýnt áhuga á að
kaupa fyrirtækið. Þetta staðfestir
Páll Benediktsson, upplýsingafull-
trúi skilanefndar Landsbankans.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að Walker hefði fyrir fjórum mán-
uðum lagt fram tilboð í fyrirtækið
upp á einn milljarð breskra punda.
Páll segir málefni félagsins enn
til meðferðar í bankanum og því
ekki tímabært að taka afstöðu til
áhuga manna á því. Iceland Foods
sé sterkt og gott félag og eðlilegt að
margir sýni því áhuga.
Páll bendir á að eignarhlutur
skilanefndar í Iceland Foods
flokkist ekki með dótturfélögum og
öðrum eignum, eins og fram kom í
Fréttablaðinu, heldur með útlánum
og kröfum auk skuldabréfa og hluta-
bréfa. Heildarvirði þeirra eigna
nemur 469 milljörðum króna. Þar af
er virði hlutabréfa og skuldabréfa
87 milljarðar. Ályktanir um hækk-
andi endurheimtur vegna lágs bók-
færðs verðs séu því á misskilningi
byggðar, að hans sögn.
Tilboð Walkers í Iceland Foods
endurspeglar eftir sem áður að
verslunin er með verðmætustu eign-
um gamla Landsbankans, tæpur
fimmtungur miðað við núverandi
eignamat, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. - jab
Smiðjuvegi 2
Kópavogi
Sími 544 2121
www.rumgott.is
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 11-16
Löggiltir dýnuframleiðendur
– Starfandi í 60 ár
HAUSTTILBOÐ Á ÍSLENSKUM HEILSURÚMUM
RúmGott býður öllum
viðskiptavinum upp á fría
legugreiningu með hinum
byltingar kennda Xsensor
Medical Pro búnaði.
FRÍ LEGUGREINING
OG FAGLEG RÁÐGJÖF
30%
AFSLÁTTUR
AF ÍSLENSKUM HEILSURÚMUM
ÖLL ARINELDSTÆÐI
Á 50% AFSLÆTTI
DÓMSMÁL Sérstakur saksóknari
hafði ekki heimild samkvæmt
lögum til að rannsaka málefni
Byrs og því ber að vísa svoköll-
uðu Exeter-máli frá dómi. Þetta
er samhljóða niðurstaða verjenda
sakborninganna þriggja í málinu.
Þessi röksemd kemur fram í
greinargerðum verjendanna, sem
Fréttablaðið hefur undir höndum.
Þeir vísa í upprunaleg lög um
sérstakan saksóknara sem tóku
gildi haustið 2008. Þar segir að
sérstakur saksóknari skuli „rann-
saka grun um refsiverða háttsemi
í aðdraganda, tengslum við og kjöl-
far atburða er leiddu til setningar
[neyðarlaganna].“
Verjendurnir fullyrða allir að
meint brot sem til rannsóknar eru
í Exeter-málinu tengist á engan
hátt atburðum sem leiddu til setn-
ingar neyðarlaganna, enda hafi
Byr staðið vel á þessum tíma og
ekkert hafi bent til þess að bank-
inn riðaði til falls.
Málið snýst um rúmlega millj-
arðs lán sem Byr veitti til félags-
ins Exeter Holdings í árslok 2008
til kaupa á stofnfjárbréfum í Byr
af MP banka og stjórnarmönnum
sparisjóðsins.
„Það ætti að vera óumdeilt að
atvik sem lýst er í ákæru gerð-
ust eftir setningu neyðarlaganna.
Þau hafa enga vitræna tengingu
við þau atvik sem urðu tilefni til
setningar neyðarlaganna,“ segir
Ólafur Eiríksson, verjandi Jóns
Þorsteins Jónssonar, fyrrverandi
stjórnarformanns Byrs.
Settur ríkissaksóknari hefði
því með réttu átt að ákveða hver
skyldi fara með málið. „Ekki
verður séð af gögnum málsins
að ríkissaksóknari hafi tekið
ákvörðun um að mál þetta ætti
undir embætti sérstaks saksókn-
ara og hefir hann að því er virðist
að sjálfsdáðum ákveðið að málið
ætti undir hann. Rannsókn
hans er því ónýt og marklaus,“
segir Reynir Karlsson, verjandi
Ragnars Z. Guðjónssonar, fyrr-
verandi sparisjóðsstjóra.
„Með því að embættið hefur
þrátt fyrir þetta annast
alla rannsókn máls-
ins frá upphafi, án
þess að hafa til
þess vald, er sú
svokallaða rann-
sókn sem fram
hefur far ið
markleysa –
nullitet – og
að engu haf-
andi,“ segir
Ragnar
H. Hal l ,
verjandi
Styrmis
Þórs Bragasonar, fyrrverandi for-
stjóra MP banka.
Lögum um embætti sérstaks
saksóknara var breytt í sumar,
eftir að rannsókn á Exeter-
málinu var lokið, og orðalag
þeirra gert almennara. Nú
skal hann rannsaka grun
um refsiverða háttsemi
sem tengst hefur starfsemi
fjármálafyrirtækja.
stigur@frettabladid.is
Rannsókn sérstaks
sögð ónýt markleysa
Verjendur Exeter-manna telja að sérstakur saksóknari hafi ekki haft heimild
til að rannsaka málið. Þar til í sumar hafi hann bara mátt rannsaka mál tengd
setningu neyðarlaganna. Exeter-málið hafi enga vitræna tengingu við hana.
SÉRSTAKUR
SAKSÓKNARI
Ólafur Þór
Hauksson
sinnir nú
störfum
sínum
samkvæmt
almennt orðaðri
lögum en áður.
FYRIR DÓMI Sakborningarnir þrír mættu allir fyrir dóminn við þingfestingu ákærunnar.
Þeir neituðu sök. Hér sjást Styrmir og Jón Þorsteinn ásamt verjendunum þremur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Skilanefnd Landsbankans staðfestir að Malcolm Walker hafi áhuga á Iceland Foods:
Walker ekki einn um að vilja kaupa Iceland
Erlendur fjárfestingarsjóður vill bjóða 1,4 milljarða punda, jafnvirði 246 millj-
arða króna, í hlut Landsbankans í Iceland Foods, að því er Stöð 2 greindi frá
í gærkvöld. Bjóðandinn er ónafngreindur erlendur fjárfestingarsjóður.
Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans, sagði við
Stöð 2 að mikill áhugi væri á Iceland Foods og að öll tilboð í eignir bankans
væru skoðuð.
„Hins vegar þarf að gæta þess að beita þeim aðferðum við sölu, sérstaklega
svona verðmætra eigna, sem eru til þess fallnar að tryggja að sem hæst
verð fáist fyrir eignirnar og að sem flestir áhugasamir komi að slíku ferli,“
sagði Lárentsínus við fréttastofu Stöðvar 2. - gar
Nýtt tilboð upp á 246 milljarða króna
Telur þú að mótmæli við Austur-
völl muni leiða til pólitískra
breytinga á næstunni?
Já 63,3
Nei 36,7
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að hætta við fyrirhugaðan
niðurskurð í heilbrigðisþjónustu
á landsbyggðinni?
Segðu þína skoðun á visir.is.
ÍSRAEL, AP Palestínumenn hafa
fallist á tillögu Bandaríkjanna
um að Ísraelar framlengi fram-
kvæmdabann á landtökubyggðum
um tvo mán-
uði, gegn því
að þessir tveir
mánuðir verði
notaðir til þess
að komast að
samkomulagi
um legu landa-
mæra Ísraels
og væntanlegs
Palestínuríkis.
Dugi þessir
tveir mánuðir ekki til að ná sam-
komulagi er hugmyndin sú að
framkvæmdabannið verði aftur
framlengt.
Benjamin Netanjahú, forsætis-
ráðherra Ísraels, hefur sömuleið-
is gefið til kynna einhvern sátta-
vilja í þessu máli. Hann hefur
meðal annars ákveðið að ríkis-
stjórnin kjósi í næstu viku um
breytingar á orðalagi í hollustu-
eiði sem innflytjendur, aðrir en
gyðingar, þurfa að sverja sæki
þeir um ríkisborgararétt. - gb
Deilan um landtökubyggðir:
Samkomulag
talið í sjónmáli
BENJAMÍN
NETANJAHÚ
VEIÐI Áfram verður bannað að
selja rjúpu og rjúpuafurðir í
ár, en veiðitímabilið hefst í lok
október og lýkur 5. desember.
Á því tímabili verður heimilt
að stunda veiðar á föstudögum,
laugardögum og sunnudögum og
verða veiðidagar því átján talsins.
Í tilkynningu frá umhverfis-
ráðuneytinu segir að Náttúru-
fræðistofnun Íslands telji að
meira hafi verið veitt af rjúpu í
fyrra en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Eru veiðimenn því hvattir til
að stunda hófsamar veiðar, til að
ekki verði farið yfir markið á ný
og stofninn nái sér á strik. - þj
Átján dagar til að veiða rjúpu:
Áfram bann á
rjúpusölu
VILLIBRÁÐ Rjúpnaveiðitíminn hefst í lok
október. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Hæstiréttur Íslands
þyngdi dóm yfir Ólafi Gottskálks-
syni, fyrrverandi landsliðsmark-
verði í knattspyrnu, í gær en hann
hlaut tíu mánaða óskilorðsbundið
fangelsi í Héraðsdómi Reykja-
ness fyrir að ryðjast inn á heimili
manns, misþyrma honum og hafa
tölvu á brott með sér.
Hæstiréttur þyngdi refsinguna
um tvo mánuði og því skal Ólafur
afplána árslanga refsivist. Við
ákvörðun refsingar var litið til
þess að Ólafur framdi brotið í
félagi við annan mann og að brotið
var til þess fallið að vekja ótta hjá
brotaþola. Var ráðið af gögnum
málsins að brotavilji Ólafs hefði
verið einbeittur.
Hæstiréttur úrskurðar:
Þyngdi dóm
yfir markverðiFiskverð lækkað
Á fundi Úrskurðarnefndar sjómanna
og útvegsmanna var ákveðið að
lækka verð á slægðum og óslægðum
þorski, sem ráðstafað er til eigin
vinnslu eða seldur til skyldra aðila,
um átta prósent. Jafnframt var
ákveðið að lækka verð á slægðri og
óslægðri ýsu um tíu prósent.
SJÁVARÚTVEGUR
Innbrotsþjófar í Grafarvogi
Tveir karlmenn voru handteknir í
Grafarholti í fyrradag. Í íbúð þeirra
fannst þýfi en mennirnir, sem eru um
tvítugt, hafa játað á sig nokkur inn-
brot. Þeir hafa áður komið við sögu
hjá lögreglu.
LÖGREGLUFRÉTTIR
KJÖRKASSINN