Fréttablaðið - 08.10.2010, Page 8
8 8. október 2010 FÖSTUDAGUR
1. Hvað heitir lögfræðingur
Myndstefs?
2. Um hvern fjallar bókin 10 10 10
sem kemur út á sunnudag?
3. Hvað íslenska knattspyrnulið
þjálfar Guðjón Þórðarson?
SVÖR:
1. Knútur Bruun. 2. Loga Geirsson. 3.
BÍ/Bolungarvík.
H
:N
m
ar
ka
ðs
sa
m
sk
ip
ti
/ S
ÍA
Þitt sjónarmið á erindi
Framboðsfrestur rennur út á hádegi 18. október 2010
Stjórnlagaþing - Borgartúni 24 – 105 Reykjavík – sími 422-4400 - www.stjornlagathing.is - www.kosning.is - www.landskjor.is
Stjórnlagaþing 2011
EFNAHAGSMÁL Horfa þarf til fleiri
þátta en gengis gjaldmiðla til að
tryggja að ekki verði til jarðvegur
fyrir aðra fjármálakreppu á borð
við þá sem reið yfir heiminn 2008
og 2009. Þetta kom fram í máli
Zhou Xiaochuan, seðlabankastjóra
Kína, sem var í heimsókn hér á
landi í gær.
Zhou Xiaochuan kom til lands-
ins á miðvikudag en hélt í gær til
Bandaríkjanna á ársfund Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins (AGS). Auk þess
að funda með Má Guðmundssyni
seðlabankastjóra hitti hann fjár-
málaráðherra landsins og efna-
hags- og viðskiptaráðherra áður en
hann fór. Á stuttum fundi í Seðla-
banka Íslands lýsti seðlabanka-
stjórinn þeim breytingum sem
orðið hafa síðustu ár á áherslum
í efnahagsstjórn Kína og viðhorfi
til samstarfs við önnur ríki. Hann
segir skipta máli að seðlabankar
og ríki heims taki höndum saman
í að koma á breytingum sem tryggi
stöðugleika.
Dominique Strauss Kahn, fram-
kvæmdastjóri AGS, kallaði, í
viðtali við Le Monde í gær, eftir
hraðari styrkingu júansins, gjald-
miðils Kína. Hann sagði veikt
gengi júansins uppsprettu skað-
legrar spennu í hagkerfum heims
og búa til jarðveg fyrir aðra fjár-
málakreppu.
„Ójafnvægi í alþjóðaviðskiptum
heimsins á rót sína að hluta til að
rekja til samspils gjaldmiðla, þótt
þar skipti aðrir þættir einnig máli,“
sagði Zhou Xiaochuan og benti á að
síðustu ár hafi verið afgangur á við-
skiptum Kína við útlönd en marg-
víslegar aðgerðir miði að því að við-
halda vexti um leið og dregið verði
til muna úr þeim afgangi. Kína eigi
líka hagsmuni af því að tryggja og
viðhalda heilbrigðum hagvexti á
heimsvísu. „Við reynum að leiðrétta
ójafnvægi þar sem það hefur orðið
til, en teljum að horfa þurfi til fleiri
þátta en gengis gjaldmiðilsins.“
Í inngangsorðum sínum sagði
Zhou Xiaochuan að kínverska hag-
kerfið hafi líka orðið fyrir alvar-
legum neikvæðum áhrifum af fjár-
málakreppunni 2008 og 2009. Það
hafi kallað á skjót viðbrögð bankans
og breytingar á peningastefnu hans.
„Við erum nú á batavegi, jafnvel þótt
ójöfnur kunni að vera á þeim vegi og
hægt sé farið yfir,“ sagði hann og
kvað viðunandi vöxt í augsýn á ný.
Seðlabankastjórinn kínverski
kvað Seðlabanka Kína ekki hafa
kannað sérstaklega kaup á íslensk-
um ríkisskuldabréfum, en kvaðst
telja að sambærileg áhrif fengjust
fram með gjaldeyrisskiptasamningi
þeim sem undirritaður var milli
Seðlabanka Íslands og Kína í sumar.
Hann ýti jafnframt undir áhuga kín-
verskra fjárfesta á Íslandi.
olikr@frettabladid.is
Í SEÐLABANKANUM Már Guðmundsson og Zhou Xiaochuan, sem Már segir að sé
valdamesti seðlabankastjóri sem sótt hefur landið heim síðan Paul Walker kom
hingað í veiði í tíð Jóhannesar Nordal. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fleira en samspil gjaldmiðla
skapar jarðveg fyrir kreppu
Seðlabankastjóri Kína fundaði í gær með seðlabankastjóra Íslands og ráðherrum. Hann segir Kínverja vilja
stuðla að heilbrigðum og viðvarandi hagvexti í heiminum, en horfa verði á fleiri þætti en gjaldeyrismál.
UNGVERJALAND, AP Rauða eiturleðjan
sem slapp úr úrgangslóni við súrál-
verksmiðju í Ungverjalandi hefur
borist út í Dóná. Vonast er til að
leðjan þynnist nægilega út í vatns-
miklu fljótinu svo skaðinn verði
ekki mikill.
Leðjan rann úr lóninu á mánu-
dag og olli gríðarlegu tjóni á fjöru-
tíu ferkílómetra svæði, en hefur
síðan verið að berst niður eftir ám
og vatnaleiðum frá þessu svæði
í áttina til Dónar, sem er næst-
lengsta fljót Evrópu.
„Öllu lífi í ánni Marcal hefur
verið útrýmt,“ segir Tibor Dobson,
talsmaður almannavarna í Ung-
verjalandi. Hann sagði björgunar-
fólk enn vinna hörðum höndum
að því að dæla bæði gifsefnum og
ediksýru út í ána Raba þar sem
hún rennur út í Dóná, í því skyni
að draga úr skaðsemi leðjunnar og
minnka tjónið.
Viktor Orban, forsætisráðherra
Ungverjalands, sagði slysið ekki
eiga sér nein fordæmi í sögu Ung-
verjalands.
„Ef þetta hefði gerst að nætur-
lagi hefðu allir hér látið lífið,“
sagði hann þegar hann kom til
Kolontar í gær. „Þetta er svo mikið
ábyrgðarleysi að yfir það er ekki
hægt að finna nein orð.“ - gb
Forsætisráðherra Ungverjalands ómyrkur í máli um umhverfisslysið:
Eiturleðjan komin út í Dóná
EKKERT LÍF EFTIR Í ÁNNI Áin Marcal varð
illa úti á löngum kafla. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MENNING „Þeir eru búnir að viðurkenna þessi mistök
og málið er úr sögunni af minni hálfu,“ segir Eygló
Sigurðardóttir, sem á fjórar ljósmyndir í 35 mynda
verki Ólafs Elíassonar.
Myndir Eyglóar eru eins og fleiri í verkinu Cars in
Rivers úr albúmum Ferðafélags Íslands í Þórsmörk.
Ferðafélagið lét Ólaf hafa myndirnar til að nota í
verkið en hvorki félagið né Ólafur könnuðu hverjir
væru höfundar þeirra mynda til að fá leyfi fyrir notk-
un þeirra. Í Fréttablaðinu á miðvikudag kom fram að
Sigurður Ó. Sigurðsson á eina mynd í verkinu.
Eygló gerði athugasemdir við bæði Ferðafélagið og
talsmenn Ólafs Elíassonar og hefur nú fengið útprent
af Cars in Rivers áritað af Ólafi Elíassyni.
Börkur Arnarsson í I8, sem starfaði með Ólafi að
Cars in Rivers, vill ekki svara því hversu mörgum
myndanna þeir hafi í raun ekki vitað hverjir voru
höfundar að og ekki fengið leyfi þeirra fyrir. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins eru þær fleiri úr
Ferða félags albúminu en áðurnefndar fimm myndir.
„Það breytir engu hvað þær eru margar, það er bara
á milli okkar og Ferðafélagsins,“ svarar Börkur. Hann
vill ekki staðfesta að einhverjir ljósmyndaranna hafi
verið beðnir afsökunar. „Mér finnst það ekki skipta
máli fyrir lesendur Fréttablaðsins. Það hlýtur að vera
prívat á milli þeirra aðila sem málið snýr að. Mér sýn-
ist á öllu að þetta sé allt að leysast á farsælan veg.“
- gar
Höfundur fjögurra ljósmynda í verki Ólafs Elíassonar féllst á afsökunarbeiðni:
Fjöldi ófeðraðra mynda enn á huldu
HRAKNINGAR Í STEINHOLTSÁ Myndin í miðjunni er ein fjögurra
sem Eygló Sigurðardóttir tók og er í verkinu Cars in Rivers.
MYND/ÚR VERKI ÓLAFS ELÍASSONAR
EVRÓPUMÁL Einar K. Guðfinnsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
vildi ekki standa að ályktun sam-
eiginlegrar þingmannanefndar
Íslands og Evrópusambandsins,
sem hélt sinn fyrsta fund á þriðju-
dag.
„Ég taldi þessi ályktun vera of
hliðholla hugmyndum um aðild
Íslands að Evrópusambandinu til
að ég gæti undirritað hana,“ sagði
Einar, sem var á fundinum í fjar-
veru Bjarna Benediktssonar.
Árni Þór Sigurðsson, hinn
íslenski formaður nefndarinnar,
segir að ályktuninni hafi verið
breytt mikið eftir að hún var
kynnt nefndarmönnum í síðustu
viku.
„Það komu fram nokkrar
athuga semdir, meðal annars frá
sjálfstæðismönnum, og þær voru
allar teknar til greina,“ segir
Árni Þór. - gb
Einar K. á fundi ESB-nefndar:
Gat ekki fallist
á ályktunina
EINAR K. GUÐFINNSSON Taldi ályktunina
of hliðholla aðild Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
EFNAHAGSMÁL Evrópski seðlabank-
inn og Englandsbanki héldu báðir
stýrivöxtum óbreyttum í gær.
Stýrivextir á evrusvæðinu
standa í 1,0 prósentum og hafa
þeir aldrei verið lægri. Í Bretlandi
hefur vaxtastigið verið óbreytt í
0,5 prósentum í eitt og hálft ár og
mánuði betur. Vaxtastig sem þetta
hafði ekki sést í mörg hundruð ár.
Howard Archer, hagfræðingur hjá
greiningarfyrirtækinu IHS Global
Insight, sagði í samtali við AFP-
fréttastofuna í gær ákvörðunina í
takt við væntingar. - jab
Óbreyttir vextir í Evrópu:
Stýrivextir eru
enn mjög lágir
VEISTU SVARIÐ?