Fréttablaðið - 08.10.2010, Qupperneq 16
16 8. október 2010 FÖSTUDAGUR
FRÁ DEGI TIL DAGS
greinar@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
F
æðingarorlof er hvergi á Norðurlöndum styttra en hér á
Íslandi. Þrátt fyrir það getum við og höfum verið stolt af
því hversu margir feður nýtt rétt sinn til fæðingarorlofs.
Nú liggja fyrir áform um að skera niður í fæðingaror-
lofssjóði um einn milljarð króna og verður úr vöndu að
ráða þegar ákveða á hvar niðurskurðarhnífinn skuli bera niður.
Á að stytta orlofið sem er samtals níu mánuðir og þar með styttra
en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við? Eða á að
lækka hámarksgreiðslurnar enn frekar en orðið er þótt vitað sé að
allar líkur séu á því að það muni skila sér í því að færri feður muni
nýta rétt sinn til töku fæðingarorlofs?
Undirliggjandi markmið með
því að auka rétt feðra til fæðingar-
orlofs á sínum tíma var að auka
jafnrétti kynja. Ekki bara með
því að stuðla að meiri samveru
feðra og barna og um leið auk-
inni þátttöku þeirra í umönnun
þeirra og almennri ábyrgð á
heimilishaldi. Einnig var vonast
til að með tímanum skilaði aukin fæðingarorlofstaka feðra sér í
auknu launajafnrétti, því ein skýringin sem til hefur verið tekin á
launamun kynja er að konur nái ekki sama starfsframa og launum
og karlar vegna þess að á ákveðnu árabili geti þær hvenær sem er
horfið frá störfum tímabundið vegna barneigna.
Þrátt fyrir að hvorki fleiri né færri en níu af hverjum tíu feðrum
hafi nýtt rétt sinn til fæðingarorlofs í þrjá mánuði hefur það að því
er virðist ekki haft teljandi áhrif á launajafnrétti. Nú gildir það þó
um bæði kyn að fólk hverfi frá störfum tímabundið vegna barn-
eigna. Engu að síður hefur ríkt mikil ánægja með þátttöku feðra í
orlofinu, sem virðist hafa skilað sér í aukinni þátttöku og ábyrgð
á börnum sínum.
Gildandi lög um fæðingarorlof eru tíu ára gömul. Setning þeirra
markaði tímamót í stöðu foreldra á Íslandi og færði okkur mun nær
fjölskyldu- og barnvænu samfélag. Það verður að teljast varhuga-
hugavert að hrófla við ágætum árangri sem orðið hefur með auk-
inni þátttöku og ábyrgð feðra á umönnun barna sinna, sem hlýtur
að skila sér í traustari og nánari böndum til framtíðar.
Hámarksgreiðsla úr fæðingarorlofssjóði hefur þegar verið skert
þrisvar sinnum frá hruninu sem varð fyrir réttum tveimur árum.
Hún nemur nú 300 þúsund krónum og veruleg hætta hlýtur að telj-
ast á því að frekari skerðing muni fyrst og fremst draga úr orlofs-
töku feðra og þar með grafa undan þeirri góðu þróun sem orðið
hefur með auknum samvistum feðra við ung börn sín.
Fæðingarorlof er grunnþjónusta í velferðarsamfélagi. Og fæð-
ingarorlof snýst ekki bara um rétt foreldra til að vera með börnum
sínum heldur ekki síður rétt barna til að eiga fyrstu mánuði ævi
sinnar í rólegum faðmi foreldra. Á þeim tíma er tengslamyndun
afar mikilvæg og það væri sorglegt spor aftur á bak fyrir börn,
mæður og feður ef höggvið yrði í þessa grunnþjónustu.
HALLDÓR
SKOÐUN
Steinunn
Stefánsdóttir
steinunn@frettabladid.is
Eftir örfáar vikur fara fram kosningar til stjórnlagaþings. Margir hafa deilt um
kosti og galla þess.
En hvað er þetta stjórnlagaþing og til
hvers er það? Jú, stjórnlagaþing á að koma
saman hinn 15. febrúar næstkomandi og
starfa í tvo til fjóra mánuði í lotum. Það
besta er að allir mega bjóða sig fram, og
ef þú nærð kjöri verður atvinnurekandinn
þinn að gefa þér frí. Svo er bónusinn að þú
nýtur sömu launa og kjara eins og þú sért
alþingismaður. Stjórnlagaþingið ætlar að
taka fyrir íslensku stjórnarskrána, sem er í
sjö köflum. Stjórnlagaþingið ætlar að fjalla
um kosningar, forsetann, þingmenn, já, og
ráðherraábyrgð, dómstólana svo ekki sé
minnst á mannréttindin.
Það eru margir sem halda að eingöngu
lögfræðingar og stjórnsýslufræðingar megi
gefa kost á sér. Ég segi bara, það er rangur
misskilningur eins og einn Færeyingur orð-
aði það svo skemmtilega. Allir mega gefa
kost á sér til Stjórnlagaþingsins. Allir þeir
sem eru orðnir 18 ára og eru ekki þing-
menn, varaþingmenn eða dómarar.
Að mínu mati skiptir miklu máli að þetta
þing fái tækifæri til þess að fjalla um sjálfa
stjórnarskrána. Enda plagg síðan á 19. öld.
Á stjórnlagaþinginu eiga 25 til 31 ein-
staklingur að skiptast á skoðunum um ráð-
herraábyrgð, Ísland eitt kjördæmi, þingrof
og mannréttindi. Svo ekki sé minnst á for-
setaembættið, á það að vera til áfram eða á
það að víkja, svo eitthvað sé nefnt.
Ef ég væri stjórnlagaþingmaður myndi
ég beita mér fyrir því að hafa mannrétt-
indakaflann fyrsta kaflann í stjórnar-
skránni, en ekki í síðasta kaflanum líkt og
hann er í dag.
Ég hvet þá sem ætla að gefa kost á sér að
beita sér fyrir þessu.
Framboðsfrestur er til 18. október. Við
Íslendingar höfum allt að vinna og engu
að tapa. Ég minni á að kosningarnar eru
persónukosningar, svo ekki þarf að kjósa
flokka eða hópa. Loksins, loksins fær
almenningur að kjósa fólk. Svo verður
Ísland eitt kjördæmi, þannig að Gunna á
Akureyri getur kosið Jón á Selfossi. Ég hef
fulla trú á því að ný stjórnarskrá sameini
okkur sem eina þjóð á ný og færi þjóðinni
nýja og bjartari tíma.
Stjórnlagaþing meira en
200 milljóna króna virði
Stjórn-
lagaþing
Bergvin
Oddsson
rithöfundur og
fyrirlesari
Al-Verk ehf. - Byggingaþjónusta
Símar: 568 0080 • 858 0980 • 858 0981
Einnig er hægt að senda fyrirspurn á alverk@alverk.is
Hyggur þú á breytingar, og-
eða endurbætur heima fyrir ?
Baðherbergið eða eldhúsið. E.t.v. eitthvað annað?
Hjá okkur færðu alla þjónustu löggiltra iðnaðarmanna.
Vönduð og metnaðarfull vinnubrögð.
Hafðu samband og við gerum tilboð, þér að kostnaðarlausu.
Allt á einum stað hjá traustu fyrirtæki.
Varhugavert er að skera niður fæðingarorlof,
bæði fyrir börn og foreldra.
Fæðingarorlof er
grunnþjónusta
Listamenn og venjulegt fólk
Ásbjörn Óttarsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, uppskar mikla
reiðiöldu þegar hann lýsti því yfir á
Alþingi að leggja ætti listamannalaun
niður. „Af hverju geta þessir lista-
menn ekki farið að vinna og komið
sér bara í eðlilega vinnu eins
og allt venjulegt fólk?” spurði
Ásbjörn. Viðbrögð listamanna
voru gríðarlega hörð á öllum
vefmiðlum og óteljandi
bloggsíðum. „Þingmenn
framleiða ekki neitt og
skila engum tekjum til
þjóðarbúsins,“ sagði
Úlfur Eldjárn og var
einn af nokkrum sem
spurðu Ásbjörn á móti af hverju
hann fengi sér sjálfur ekki vinnu
eins og venjulegt fólk. Baldvin Esra
útgefandi kallaði eftir því að allir
listamenn í þjóðfélaginu færu í verk-
fall til þess að sýna mikilvægi starfa
sinna í þjóðfélaginu.
Nýstárleg viðbrögð
Miðað við andrúmsloftið í
þjóðfélaginu og íslenska
umræðusiði undanfarin ár er
ekki hægt að segja
annað en að
viðbrögð
Ásbjörns
hafi
verið
óvenjuleg. Fyrir hádegi var hann
búinn að biðjast afsökunar og
sagðist eiga þær málsbætur að hafa
látið orðin falla í tímahraki eftir að
forseti þingsins var farinn að spila
á bjölluna af því að ræðutíminn var
liðinn. Ásbjörn sagðist aðallega hafa
verið að lýsa óánægju með byggingu
tónlistarhússins Hörpu við
Reykjavíkurhöfn. Síðar um
daginn sagði Vísir frá því að
Ásbjörn hefði þegið boð frá
stjórn Bandalags íslenskra
listamanna þar sem honum
voru kynntar tölur um arðsemi
lista- og menningarstarfsemi
fyrir þjóðarbúið.
peturg@frettabladid.is