Fréttablaðið - 08.10.2010, Blaðsíða 23
FÖSTUDAGUR
8. október 2010
3
Kynning
„Tjarnarbíó, í hjarta borgarinnar,
verður nú kraumandi suðupottur
skapandi listgreina því hér bjóð-
ast aðstæður sem henta undir
alla sviðslist, kvikmyndir og tón-
list,“ segir Gunnar Gunnsteinsson
framkvæmdastjóri Tjarnarbíós,
sem borgarstjórinn í Reykjavík
opnar formlega klukkan 17 í dag
eftir gagngerar endurbætur á því
einstaka menningarheimili sem
Tjarnar bíó er íslensku þjóðinni.
„Húsið er afskaplega merkilegt
og byggt 1904 sem íshús, en Tjarnar-
bíó og Listasafn Íslands voru þá
samkeppnisaðilar á ísmarkaði í
Reykjavík þar sem bátar sigldu
upp Lækjargötuna með viðkomu í
þessum tveimur húsum að ná sér í
ís áður en þeir héldu til veiða. Enn
merkilegra við húsið er þó brunn-
ur frá 17. öld undir sjálfu sviðinu,
þangað sem Reykvíkingar sóttu sér
vatn í gamla daga, og í miðjum end-
urbótum kom í ljós gamli tjarnar-
bakkinn undir miðju anddyri húss-
ins, svo hér býr ýmislegt undir, sem
nú hefur verið skjalfest af forn-
leifafræðingum,“ segir Gunnar og
viðurkennir fúslega að andi fortíðar
lifi enn í sögufrægu húsinu.
„Andrúmsloftið er rafmagnað,
hér streymir upp einhver sérkenni-
legur kraftur og maður finnur vel
fyrir sögu hússins, en líður fyrst
og fremst vel að koma hingað inn,“
segir Gunnar í glæsilegu anddyri
Tjarnabíós sem allt hefur fengið
allsherjar andlitslyftingu.
„Húsið er allt gjörbreytt eftir
endurbæturnar, en svalirnar halda
sér í upprunalegri mynd vegna
friðunar. Fremsta hluta sviðsins
og fyrstu áhorfendabekkjum hefur
verið breytt í kassa með færan-
legum bekkjum, og byggt hefur
verið yfir portið við hliðina þar
sem komið er kaffihúsið Majónes
sem verður opið alla daga frá því
eldsnemma á morgnana. Móttaka
gesta hefur því breyst mikið frá
því flestir þurftu að híma úti vegna
þrengsla, en húsið tekur nú frá 100
upp í 220 gesti, allt eftir því hvað
sviðið er haft stórt.“
Og dagskrá Tjarnarbíós byrjar
með trukki og dýfu. Meðal viðburða
í október verða Keðja Reykjavík,
Airwaves, dansverkin Singletrack
og Colorblind, útgáfutónleikar
Jónasar Sig og Ritvéla framtíðar-
innar, og Ódó á Gjaldabuxum, svo
fátt sé upptalið.
„Í nóvember verða sunnudagar
svo lagðir undir fjölskyldudagskrá,
þar sem hægt verður að kíkja til
okkar í kakó og kleinu eftir brauð-
gjöf á Tjörninni og þá ýmist leik-
sýning, bíó, tónleikar, námskeið
eða upplestur í boði fyrir alla fjöl-
skylduna,“ segir Gunnar og minn-
ir á heimasíðuna tjarnarbio.is, þar
sem nálgast má upplýsingar um við-
burði ásamt því að kaupa miða.
„Hingað er hátíðlegt að koma og
Tjarnarbíó staðurinn í Reykjavík.
Húsið er hlaðið sjarma og mikilli
nálægð listamanna við áhorfendur
í fáheyrt góðum hljómburði.“
thordis@frettabladid.is
Kaffi, majónes
og listagnótt
Gyðja lista hefur nú tekið sér bólfestu í nýuppgerðu Tjarnarbíói sem
opnar formlega í kvöld. Þar er nú aftur hægt að njóta spennandi list-
viðburða og ljúfmetis í Majónesi eftir brauðkast til fugla við Tjörnina.
Tjarnarbíó var upphaflega reist sem
íshús, þangað sem bátar sigldu og sóttu
sér ís. Síðan varð það fimleikahús og
síðast leik- og tónleikahús.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hér stendur Gunnar Gunnsteinsson, framkvæmdastjóri Tjarnarbíós, í anddyri og
miðasölu hússins sem gert var upp í upprunalegum stíl. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Íslandsmót skákfélaga fer fram í Rimaskóla um helgina. Þetta er fjölmennasti
skákviðburður ársins en á mótinu tefla á fimmta hundrað skákmenn. Þar á meðal eru
sterkustu skákmenn landsins, sterkir skákmeistarar utan úr heimi, konur, eldri borgarar
og börn niður í sex ára. Mótið hefst klukkan 20 á morgun.
Vefsíðunni helgin.
is er ætlað að auð-
velda fólki að finna
viðburði, afþreyingu
og skemmtun við sitt
hæfi. Hún
bendir á
það sem er
að gerast alla
daga vikunnar
þó megin-
áhersla sé
lögð á helg-
arnar. Þar er
meðal ann-
ars að finna upplýs-
ingar um tónleika og
það sem er að ger-
ast í skemmtanalífinu
hverju sinni.
Heimild: helgin.is
„Efnin í þessum nýja drykk,
Beat the Body with Goji, eru
afar kröftug en drykkurinn er
ætlaður fyrir fimm daga hreins-
un,“ segir Ólafur Sólimann, hug-
myndasmiður My Secret. Drykk-
urinn er mjög sterkur, til dæmis
mun sterkari en Aada, enda ekki
ráðlagt að drekka Aada og nýja
drykkinn á sama tíma.
„Níutíu og níu prósent af okkar
kúnnahóp eru konur og við feng-
um tíu flottar konur á mismun-
andi aldri og mismunandi í vexti
til að prófa drykkinn í svolítinn
tíma. Þær sögðu allar að árang-
urinn hefði verið afgerandi,“
upplýsir Ólafur en meðal efna í
drykknum eru engifer, rauðróf-
ur, cayenne-pipar, goji-ber, blá-
ber og mynta.
Öll efnin í drykknum hafa
hreinsandi eiginleika á mismun-
andi hluta líkamans. Þannig eru
rauðrófur þekktar fyrir hreins-
andi áhrif sín á blóð, ristil og
meltinguna, goji-ber eru sögð
draga úr matalyst, vera bólgu-
eyðandi, hjálpa lifur við hreins-
un og hafa góð áhrif á blóðþrýst-
ing og hjarta. Bláberin hafa fyrir
löngu sannað gildi sitt líkt og
goji-berin, en cayenne-piparinn
er talinn auka fitubrennslu.
Ólafur segir ekki ráðlegt að
drekka Beat the body with goji
lengur en í fimm daga í einu.
„Þá þarf að hvíla í tíu daga áður
en annar kúr er tekinn,“ áréttir
hann og bendir fólki á að drekka
vel af vatni með enda sé of mikil
vatnslosun ekki góð.
Á meðan drykkurinn er drukk-
inn er einnig mikilvægt að huga
vel að mataræðinu og leggja
áherslu á ferskt hráefni. Til
dæmis grænmeti, ávexti, engar
hveitivörur, ferskan fisk og kjúkl-
ing. www.mysecret.is
My Secret kynnir Beat the Body with Goji
Í kjölfar mikillar velgengni Aada-drykksins frá My Secret er nú kominn á markað nýr heilsudrykkur með hinum heilsusamlegu Goji-berjum. Drykkurinn, sem heitir Beat the
Body with Goji, þykir einstaklega hreinsandi fyrir öll kerfi líkamans en auk goji-berjanna inniheldur hann engifer, rauðrófur, cayenne-pipar, bláber og myntu.
Ólafur Sóliman afhendir vinninghafa síðasta leiks, Ágústu Guðrúnu Bernharðsdóttur, verðlaunin í Vega-
sleiknum. Ágústa hlaut ferð fyrir tvo til Las Vegas í viku, mánaðabirgðir af aada drykknum og inneign í
fríhöfninni að verðmæti 20 þúsund krónur.
Í tilefni af nýja drykknum
Beat the Body with
Goji efnir My Secret til
skemmtilegs leiks.
Með því að svara
þremur laufléttum
spurningum á
vefsíðunni www.
mysecret.is er
hægt að vinna
fjögurra daga ferð
til Boston fyrir 2
með gistingu á
Hotel Colonnade.
Þá fylgja miðar
á sýninguna
Blue Man Group,
út að borða á
veitingastaðinn
Cuchi Cuchi,
tvö gjafabréf
hjá Victoria ś
Secret í Boston
og út að borða á
Sjávarkjallaranum.HVERNIG Á AÐ DREKKA DRYKKINN?
2 glös á dag (200 ml): 1 á
fastandi maga á morgnana og 1
seinnipartinn.
EÐA
3 glös á dag (130 ml): 1 á
fastandi maga á morgnana, 1 í
hádeginu og 1 seinnipartinn.