Fréttablaðið - 08.10.2010, Blaðsíða 64
8. október 2010 FÖSTUDAGUR32
sport@frettabladid.is
Laugardalsv., áhorf.: 7.255
Ísland Skotland
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 15-5 (8-2)
Varin skot Arnar 1 – Martin 6
Horn 6–2
Aukaspyrnur fengnar 10–10
Rangstöður 4–3
0-1 Jamie Murphy (19.)
1-1 Jóhann Berg Guðmundsson (34.)
2-1 Almarr Ormarsson (78.)
2-1
Hendrikus Bas Nijhus (6)
7255 STUÐNINGSMENN íslenska U-21 landsliðsins voru fjölmennir á Laugardalsvellinum í gær og studdu strákana af krafti. Fáheyrt er að svo margir mæti á leik með landsliði yngri leikmanna
Íslands.
Einkunnir íslenska landsliðsins gegn Skotlandi
Arnar Darri Pétursson 4
Reyndi nákvæmlega ekkert á hann nema þegar Skotar skoruðu. Þar átti hann
að gera betur. Spyrnur ekkert sérstakar.
Skúli Jón Friðgeirsson 4
Lenti á stundum í vandræðum og var með slakar sendingar oft á tíðum. Getur
betur.
Hólmar Örn Eyjólfsson 3
Alls ekki hans dagur. Gaf mark sem og tvær hættulegar aukaspyrnur fyrir utan
teig. Var í vandræðum með að standa í lappirnar og fann sig aldrei.
Eggert Gunnþór Jónsson 7
Leysti Jón Guðna af með sóma. Öruggur í sínum aðgerðum og hreinsaði oft
vel upp eftir Hólmar.
Hjörtur Logi Valgarðsson 5
Lét lítið fyrir sér fara og fallegu fyrirgjafirnar hans voru í fríi. Hefði mátt koma
meira með fram og gefa fyrir.
Aron Einar Gunnarsson 6
Traustur í hlutverki aftasta manns og var ekkert að reyna of mikið.
Bjarni Þór Viðarsson 6
Týndur lengi framan af en vann sig ágætlega inn í leikinn.
Birkir Bjarnason 5
Byrjaði virkilega vel og átti stóran þátt í fyrra markinu. Hvarf síðan algjörlega
sjónum.
Jóhann Berg Guðmundsson 7 – Maður leiksins
Virkilega sprækur og duglegur. Átti margar sendingar fyrir sem félagar hans
hefðu mátt nýta betur. Skoraði þess utan glæsilegt mark.
Gylfi Þór Sigurðsson 6
Átti nokkrar fínar rispur en datt aldrei almennilega í gang. Var að reyna að axla
ábyrgð og gera hlutina sjálfur með litlum árangri. Átti þó margar fínar spyrnur
sem sköpuðu usla.
Kolbeinn Sigþórsson 6
Hörkuduglegur og ógnandi. Átti nokkra ágæta skalla sem fóru ekki í markið.
Varamenn:
Almarr Ormarsson fyrir Birki Bjarnason á 73. mínútu. -
FÓTBOLTI Síðari leikur Íslands og
Skotlands í umspili EM verður afar
áhugaverður eftir 2-1 sigur Íslands
á Laugardalsvellinum í gær. Ísland
stýrði leiknum frá upphafi en vel
skipulagðir Skotar stóðu vaktina
vel í vörninni.
Það var ljóst strax frá byrjun
hver skipun Billy Stark, þjálfara
Skota, var. Liðið átti að verjast og
fara með ágæta stöðu í síðari leik-
inn. Íslenska liðið tók því völdin
strax í upphafi, strákarnir mjög
sprækir til að byrja með og gekk
ágætlega að opna skosku vörnina.
Þeir fengu ágætis færi og markið
lá í loftinu.
Þá dundi áfallið yfir. Saklaus
skalli í átt að íslensku vörninni sem
Hólmar Örn átti að ráða við. Hann
hitti ekki boltann og Jamie Murphy
slapp einn í gegn. Hann lét vaða á
nærstöngina og inn fór boltinn án
þess að Arnar Darri hreyfði sig
í markinu. Skelfileg mistök hjá
Hólmari og Arnar Darri hefði getað
gert betur. Mark algjörlega gegn
gangi leiksins úr fyrsta skoti Skota
í leiknum.
Íslensku strákarnir létu markið
ekki slá sig út af laginu og héldu
áfram að sækja. Skotarnir voru
afar þéttir fyrir og bökkuðu enn
aftar eftir markið. Stórskota árás
íslenska liðsins bar loks árangur á
34. mínútu. Birkir átti magnaðan
sprett upp hægri kantinn og gaf
boltann fyrir þar sem Skotarnir
hreinsuðu frá. Jóhann Berg beið
fyrir utan teiginn og smellti bolt-
anum viðstöðulaust í netið. Glæsi-
legt mark.
Það var greinilega þungu fargi
létt af íslensku strákunum að ná inn
langþráðu marki. Svo mikið var lið-
inu létt að það slakaði allt of mikið
á og hætti að sækja af sama krafti
og áður. 1-1 í hálfleik.
Hálfleiksræða Eyjólfs þjálfara
virkaði ekki sem skyldi því það
var sama slenið yfir liðinu í síð-
ari hálfleik. Leikur liðsins var allt
of kraftlaus. Það virtist vanta allt
malt í strákana eins og stundum er
sagt. Sóknarleikur liðsins hægur
og fyrir sjáanlegur og vel skipu-
lögð vörn Skota var ekki í neinum
vandræðum. Leikmenn þess utan
að nota allt of margar snertingar á
bolta og það hjálpaði ekki til.
Eyjólfur gerði aðeins eina skipt-
ingu í leiknum og hún var heldur
betur árangursrík. Almarr Orm-
arsson kom af bekknum og hann
skoraði glæsilegt mark algjörlega
upp úr þurru. Fékk boltann fyrir
utan teig, lét vaða og boltinn söng
efst í markhorninu. Á þessum kafla
var ekkert að gerast í sóknar leik
íslenska liðsins og fátt sem benti
til þess að íslenska liðið væri að
fara að skora. Gæðin í liðinu eru
þó mikil eins og sást best í þeim
glæsilegu mörkum sem strákarn-
ir skoruðu.
Ísland fer með 2-1 forskot í síð-
ari leikinn, sem er lítið veganesti.
Íslenska liðið sýndi aftur á móti i
gær að það er talsvert sterkara en
þetta skoska lið þó svo að strákarn-
ir hafi ekki alveg sýnt allar sínar
bestu hliðar að þessu sinni. Þeir
fengu þó færi í leiknum til þess að
gera betur og það er eigin lega grát-
legt að liðið fari aðeins með eins
marks forskot í síðari leikinn miðað
við færin sem þó komu.
Með þokkalega eðlilegum leik úti
í Skotlandi fer Ísland samt áfram í
lokakeppni Evrópumótsins. Ég er
sannfærður um það enda liðið ein-
faldlega gott. henry@frettabladid.is
Naumt veganesti til Skotlands
Þrumufleygur Almars Ormarssonar færði U-21 liði Íslands eins marks forskot í rimmunni við Skota. Ísland
hefði að ósekju mátt vinna stærri sigur enda mun sterkara liðið þó svo að það hafi ekki sýnt sitt besta í gær.
FÓTBOLTI „Það er mikill léttir að
klára leikinn með sigri eftir að
hafa lent undir,“ sagði Eyjólfur
Sverrisson, landsliðsþjálfari U-
21 landsliðsins í leikslok eftir 2-1
sigur gegn Skotum á Laugardals-
velli. Liðið er nú í dauðafæri að
tryggja sig inn á Evrópumót lands-
liða næsta sumar.
„Það var eins og strákarnir
fengju smá sjokk við markið hjá
Skotum. Við vorum óþolinmóðir og
reyndum að vinna boltann strax í
stað þess að sýna skynsemi. Liðið
sýndi hins vegar karakter og missti
ekki trúna. Við sýndum flottan fót-
bolta í þessum leik og áttum sigur-
inn fyllilega skilinn.“
Eyjólfur er ekki í vafa um að
íslenska liðið sé betra en það
skoska. „Ég tel okkur vera með
mun betra lið. Ég er búinn að sjá
ellefu leiki með þeim og þeir spila
alltaf eins. Við getum varist vel í
seinni leiknum og erum með gríð-
arlega ógn framar á vellinum.
Þegar við erum með boltann
munum við sækja af krafti. Núna
er hálfleikur og við búum okkur
vel undir seinni leikinn.“
Almarr Ormarsson átti
frábæra innkomu í gær og skor-
aði sigurmark Íslands. „Ég held
að þetta hljóti að vera mark
ferilsins. Þetta var mögnuð stund
fyrir mig. Ég þarf að nýta þau
tækifæri sem ég fæ og gerði það
svo sannarlega í þessum leik.
Við erum með svakalegt lið og
allir þeir sem eru að leika fyrir
framan vörnina eru að leika með
sterkum liðið erlendis. Ég er
því mjög sáttur með þau tæki-
færi sem ég fæ og á örugglega
eftir að fara nokkrum sinnum í
gegnum þetta mark í huganum,“
segir Almarr og var landsliðs-
þjálfarinn ánægður með þessa
draumaskiptingu. „Almarr var á
heimavelli og er heitur á Laugar-
dalsvellinum.“ - jjk
Eyjólfur Sverrisson segir að það hafi verið léttir að hafa unnið Skota í gær:
Erum með betra lið en Skotar
FÓTBOLTI „Þetta var glæsilegur
sigur og það eru allir Íslending-
ar sem standa með okkur,“ sagði
Aron Einar Gunnarsson, sem
átti góðan leik á miðjunni hjá
íslenska liðinu. „Við vorum þung-
ir og stressaðir í byrjun leiks en
náðum svo að finna okkar leik.
Þetta er frábært lið og það er
mögnuð stemmning í hópnum.“
Skotarnir leika mjög varnar-
sinnaða knattspyrnu og er Aron
ekkert sérstaklega hrifinn
af þeirra leik. „Þetta er ekki
skemmtilegasta liðið sem maður
mætir. Þeir mæta í pilsum og eru
með leiðindi. Við erum með miklu
betra knattspyrnulið en þeir.
Við leystum þetta frábærlega
og getum verið stoltir af okkar
frammistöðu.“ - jjk
Aron Einar Gunnarsson:
Mæta í pilsum
með leiðindi
SIGURMARKINU FAGNAÐ Landsliðsstrákarnir fagna
þrumufleyg Almars Ormarssonar sem skoraði sigurmark
Íslands í gær, skömmu eftir að hann kom inn á sem
varamaður.
ÞJÁLFARANUM LÉTT Eyjólfur Sverrisson gat leyft sér að anda léttar eftir sigur Íslands í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI „Það var mjög mikilvægt
fyrir okkur að vinna þennan leik.
Það tók okkur smá tíma að leysa
varnarvinnuna hjá Skotum og
vorum ekki nógu fljótir að dæla
boltanum út á kantana en um leið
og það gekk upp opnaðist leikur-
inn,“ sagði fyrirliðinn Bjarni Þór
Viðarsson þegar 2-1 sigur var í
höfn.
„Það var mikill léttir að ná að
jafna leikinn og við skoruðum
tvö frábær mörk í þessum leik.
Við hefðum átt að skjóta meira
á skoska markvörðinn því hann
virkaði ekki öruggur.“ - jjk
Bjarni Þór Viðarsson:
Hefðum átt að
skjóta meira
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI