Fréttablaðið - 08.10.2010, Qupperneq 70
38 8. október 2010 FÖSTUDAGUR
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
„Ég held að þetta sé fyrsta íslenska
ilmvatnið sem fer í almenna sölu.
Það var reyndar íslensk lista-
kona, Andrea Maack, sem bjó til
ilmvatn á þessu ári og hafði það
hluta af gjörningi,“ segir Sigrún
Lilja Guðjónsdóttir, oftast kennd
við tískuvörumerkið Gyðju. Hún
hyggst setja á markað ilmvatnið
EFJ Eyjafjallajökull sem er fram-
leitt úr vatni jökulsins. Sigrún mun
vera andlit ilmsins en í næstu viku
fer hún með hópi tökufólks, leik-
urum og jarðfræðingnum Birni
Oddssyni með þyrlum upp á topp
eldfjallsins til að taka upp aug-
lýsingu og stutta heimildarmynd.
„Það er búið að gera handrit þar
sem kraftur náttúrunnar og kraft-
ur gyðjunnar kemst vel til skila,“
segir Sigrún.
Eins og gefur að skilja tekur
langan tíma að búa til eitt stykki
ilmvatn. Og Sigrún var búin að
reyna mikið af sýnishornum og
prófunum á sínum nánustu og
sjálfri sér áður en hún varð ánægð
með það sem hún fann. „Við pruf-
um sitt lítið af hverju og mér
finnst ilmurinn hafa allt til brunns
að bera, hann er nógu léttur til að
hægt sé að vera með hann á hverj-
um degi og það er svona ríkjandi
sítruskeimur af honum.“ Sigrún er
ekki í vafa um að íslenskur ilmur
eigi erindi á hinn harða mark-
að ilmvatna og hún hyggst nýta
sér það góða orðspor sem tísku-
vörumerkið Gyðja hefur aflað sér
erlendis hjá stórstjörnum á borð
við Kylie Minogue og Paris Hilt-
on. „Við ætlum okkur að sjálfsögðu
að koma þessu á framfæri við
umheiminn. Nafnið Eyjafjallajök-
ull er að sjálfsögðu ákaflega þekkt
vegna eldgossins en við ákváð-
um að nota líka skammstöfunina
EFJ þar sem það er frekar erfitt
að bera nafnið fram. Mér finnst
bara fyrst og fremst gleðilegt að
það skuli koma jákvæð vara út úr
þessu öllu,“ segir Sigrún en ilm-
vatnið er framleitt í Suður-Frakk-
landi.
Sigrún segir það alltaf hafa
verið á stefnuskránni hjá sér að
gera eigið ilmvatn. Og það verður
ekkert til sparað að gera vör-
una sem veglegasta. „Áletrun-
in framan á pakkningunni og á
flöskunni sjálfri er prentuð með 24
karata gulli og þetta er með Eau de
parfum-stimplinum sem þýðir að
þetta er hágæðailmvatn sem end-
ist vel.“
freyrgigja@frettabladid.is
SIGRÚN LILJA GUÐJÓNSDÓTTIR: ALLTAF VERIÐ Á STEFNUSKRÁNNI
Ilmvatn úr vatni Eyjafjalla-
jökuls á alþjóðamarkað
ÍSLENSKT HÁGÆÐAILMVATN
Áletrunin á EFJ Eyjafjallajök-
ull er prentuð með 24 karata
gulli en Sigrún Lilja Guðjóns-
dóttir hyggst setja á markað
fyrsta íslenska ilmvatnið sem
fer í almenna sölu.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
„Það myndi vera Top Gear,
þremenningarnir sem stjórna
þessum þætti eru snillingar og
kunna að stjórna sjónvarps-
þætti.“
Óskar Hrafn Þorvaldsson fréttastjóri
Grafíski hönnuðurinn Oscar
Bjarnason hefur í frístundum
sínum búið til afmælismerki
fyrir vini og kunningja á Face-
book. Núna eru merkin orðin
106 talsins. Á síðasta ári gerði
hann merki fyrir eins árs
afmæli bankahrunsins og
stutt er síðan tveggja ára
afmælismerki þess leit
dagsins ljós. „Það er með
íslenska fánanum og pásu-
merki. Það er ekkert búið
að gerast síðan síðast,“
segir Oscar um ástand
mála eftir hrunið. Spurð-
ur hvernig hann haldi að
þriggja ára afmælismerkið líti út
segist hann ekki hafa hugmynd.
„Það væri dásamlegt að sleppa því
að þurfa að gera það.“
Oscar hefur það sem reglu að
eyða helst ekki meira en tíu mín-
útum í hvert merki. Notfær-
ir hann sér
Facebook til
að sjá hver
á afmæli í hvert sinn. Á meðal
kunnra einstaklinga sem hafa
orðið þess heiðurs aðnjótandi að
komast á merkjalistann hjá honum
eru Hemmi Gunn, Ómar Ragnars-
son og John Lennon.
Oscar er margverðlaunaður
hönnuður. Hann var á meðal átta
sérfræðinga sem heimasíða dag-
blaðsins New York Times leit-
aði álits hjá um nýtt merki hjá
leigubílum New York-borgar.
Japanski fataframleiðand-
inn UNIQLO keypti einn-
ig af honum merki hans
Systm fyrir fatalínu
sína. - fb
Bankahrunið sem pásumerki
2 ÁRA AFMÆLI
Þetta merki
lýsir tveggja ára
afmæli banka-
hrunsins.
Sjónvarpsþættirnir Fagur fiskur
í sjó, þar sem þau Sveinn Kjart-
ansson úr Fylgifiskum og Áslaug
Snorradóttir göldruðu fram dýr-
indis fiskrétti, slógu eftirminni-
lega í gegn hjá RÚV. Sveinn hyggst
fylgja eftir þeim vinsældum með
matreiðslunámskeiði og mat-
reiðslubók.
„Allur þessi áhugi kom mér
svolítið á óvart. Fólk hefur verið
að senda mér spurningar en líka
sínar eigin hugmyndir um rétti.
Og svo hefur fólk líka hringt og
spurt um einhver góð brögð í eld-
húsinu,“ segir Sveinn Kjartans-
son, matreiðslumaður og eigandi
Fylgifiska. Sveinn segir vinsældir
sjónvarpsþáttarins hafa verið nán-
ast lygilegar. „Fólk hefur greini-
lega mikinn áhuga á matreiðslu
og þetta er svolítið tvíþætt. Ann-
ars vegar hefur eldri kynslóð-
in mikinn áhuga á öllum þessum
framandi kryddjurtum og -teg-
undum sem hafa flætt yfir okkur
undanfarin ár en yngri kynslóðina
langar kannski mest að vita hvern-
ig eigi að meðhöndla og matreiða
heilan fisk.“
Matreiðslumaðurinn hefur getið
sér gott orð fyrir fiskrétti sína hjá
Fylgifiskum en hann hefur aldrei
gefið út sína eigin matreiðslubók,
eingöngu lánað uppskriftir í fisk-
réttabók Hagkaups. „Núna er hins
vegar rétti tíminn, ég er að verða
fimmtugur og er kominn úr lær-
lingagallanum.“
- fgg
Sveinn undirbýr matreiðslubók
VINSÆLL Sveinn Kjartansson hefur
öðlast miklar vinsældir með þáttunum
Fagur fiskur í sjó. Hann hyggst fylgja
þeim eftir með matreiðslubók og nám-
skeiðahaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
OSCAR
BJARNASON
Oscar býr
til afmæl-
ismerki á
Facebook í
frístundum
sínum.
Fös 15.10. Kl. 20:00 frums.
Lau 16.10. Kl. 20:00 2. sýn
Fös 22.10. Kl. 20:00 aukas.
Lau 23.10. Kl. 20:00 3. sýn
Lau 30.10. Kl. 20:00 4. sýn
Sun 31.10. Kl. 20:00 5. sýn
Fös 5.11. Kl. 20:00 6. sýn
Lau 6.11. Kl. 20:00 7. sýn
Fim 11.11. Kl. 20:00 8. sýn
Fös 12.11. Kl. 20:00
Fös 19.11. Kl. 20:00
Lau 20.11. Kl. 20:00
Lau 9.10. Kl. 13:00
Lau 9.10. Kl. 15:00
Lau 16.10. Kl. 13:00
Lau 16.10. Kl. 15:00
Sun 17.10. Kl. 13:00
Sun 17.10. Kl. 15:00
Lau 23.10. Kl. 13:00
Lau 23.10. Kl. 15:00
Sun 24.10. Kl. 13:00
Sun 24.10. Kl. 15:00
Fös 8.10. Kl. 20:00
Lau 9.10. Kl. 20:00
Fös 15.10. Kl. 20:00
Lau 16.10. Kl. 20:00
Fim 21.10. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 22.10. Kl. 20:00
Lau 23.10. Kl. 20:00
Fös 29.10. Kl. 20:00
Lau 30.10. Kl. 20:00
Sun 31.10. Kl. 20:00
Fim 4.11. Kl. 20:00
Fös 5.11. Kl. 20:00
Lau 6.11. Kl. 20:00
Fim 11.11. Kl. 20:00
Fös 12.11. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fös 8.10. Kl. 19:00
Lau 9.10. Kl. 19:00
Sun 17.10. Kl. 19:00
Sun 24.10. Kl. 19:00
Þri 26.10. Kl. 19:00
Mið 27.10. Kl. 19:00
Fim 28.10. Kl. 19:00
Mið 3.11. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 7.11. Kl. 19:00
Mið 10.11. Kl. 19:00
Sun 14.11. Kl. 19:00
Mið 24.11. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 25.11. Kl. 19:00 Aukas.
Lau 11.12. Kl. 19:00 Aukas.
Sun 12.12. Kl. 19:00 Aukas.
Fim 21.10. Kl. 20:00
Fös 29.10. Kl. 20:00
Fim 4.11. Kl. 20:00
Lau 13.11. Kl. 20:00
Fim 18.11. Kl. 20:00 Aukas.
Fös 26.11. Kl. 20:00
Fös 3.12. Kl. 20:00
Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
Finnski hesturinn (Stóra sviðið)
Fíasól (Kúlan)
Hænuungarnir (Kassinn)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
Gildir
ágúst
2010
til jún
í 2011
úsk
orti
ð
1
OPIÐ
KORT
Gildir
á
Leik
hús
kor
tið
201
0/2
011
ÁSK
khusi
d.is I
midas
ala@
le
Leikhúsk
ort
4 miðar á
aðeins
9.900 kr.
Ö
U
U
U
U Ö Ö
U
U
Ö
Ö
U
Ö
U
U
U
U Ö
U
U
Ö
Ö
Ö Ö
U
Ö
Ö U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U
U
U
Ö
U
Frumsýnd í dag í Bíó Paradís.
Nánar á www.facebook.com/graenaljosid.
OFFICIAL SELECTION
CANNES FILM FESTIVAL
TORONTO FILM FESTIVAL
SUNDANCE FILM FESTIVAL
SXSW FILM FESTIVAL
„Enter the Void er ein áhrifaríkasta og
metnaðarfyllsta kvikmynd sem gerð
hefur verið.“
- ANDREW O'HEHIR, SALON
Ögrandi meistaraverk
frá leikstjóra Irréversible
A
u
g
lý
si
n
g
as
ím
i