Fréttablaðið - 09.10.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 09.10.2010, Blaðsíða 38
2 fjölskyldan Fjölskyldan kemur út mánaðarlega með helgarblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson roald@frettabla- did.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Anton Brink Pennar: Ragnheiður Tryggvadóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir, Vera Einarsdóttir og Þórdís Lilja Gunnarsdóttir Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Benedikt Jónsson benediktj@365. Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Nú er stund milli stríða. Ég leyfi mér þó ekki að setjast niður. Veit sem er að ég þarf bara að standa strax upp aftur. Þá er auðveldara að standa áfram í lappirnar, þó fúnar séu og ýta frá sér öllum hugmyndum um hvíld í bili. Fæturnir eru þungir sem steypuklumpar og höfuðið sem grjót eftir stuttan og slitróttan nætursvefn. Verkefnalisti dagsins er langur og ég man ekki helminginn af því sem ég þarf að gera. Höfuðið svo fullt af atriðum að muna að þegar eitt bætist við, dettur annað út. Talsvert á þessum lista er síðan í gær og deginum þar áður og þar áður. Ég bíð eftir kallinu, veit að það kemur á hverri stundu. Með það hangandi yfir mér kem ég engu í verk og fæ hjartslátt yfir þeim dýrmætu sekúndum sem tapast í ekki neitt, það er svo margt sem ég á eftir eins og fjallið af þvottin- um í körfunni gefur til kynna. Tvístígandi fer ég að brjóta saman stykkin, en er varla búin með það fyrsta þegar kallið kemur, hátt og snjallt „mamma, búúúúiin!“ Við setjumst til borðs, svöng eins og úlfar og ég skammta á diska. Annað gólar af svengd meðan ég skammta því fyrra. Þegar ég skammta því seinna gólar það fyrra á meira. Þegar ég skammta sjálfri mér loks og sest eru bæði búin og góla í kór. Ég slafra í mig matnum. Svo taka kvöldverkin við. Eftir þvott á tuttugu mislitlum fingrum og tám bursta ég 28 mislitlar tennur, þvæ tvö mislítil andlit, hvorugt hrifið af aðförunum. Klósettferð, bleiuskipting, nátt- buxur, nátttreyja, náttgalli, pelasopi, söngur, lestur, söngur, svefn. Loks dettur allt í langþráð dúnalogn. Þessi tvö sem fyrir augnabliki spangóluðu bæði eins og hungraðir úlfar hafa nú breyst í yndisfríða engla. Ég gef mér nokkrar mínútur í að horfa á þau lúra. Þvottastaflinn glottir við mér þar sem hann flæð- ir yfir brúnir þvottakörfunnar í sófanum frammi í stofu. Næstum eins og hann vilji segja „Þú ert þó ekki að íhuga að setjast niður núna góða mín?“ En það er þó nákvæmlega það sem ég er að hugsa. Eitt augnablik horfi ég með samviskubiti yfir stofugólfið þakið leikföngum og morgunkorni, á uppvaskið og svo á árans þvottastaflann. Svo lít ég á sófann, vin minn í raun og áður en ég veit af hefur hann boðið mér sæti. Ég þigg það með þökkum, sveifla fótunum upp á þvottastaflann og kræki höndum fyrir aftan hnakkann. Ó, þú fjölskyldunnar ljúfa líf. Ó þú ljúfa líf BARNVÆNT Krakkajóga í Lótus Krakka- jóganámskeið hefjast í Lótus jógasetri 15. og 18. október næstkomandi. Þau eru annars vegar ætluð fimm til sjö ára börnum og hins vegar aldurshópn- um átta til tíu ára. Á námskeiðun- um verður jóga og leiklist fléttað saman. Unnið verður með jógastöður, öndunar æfingar, einbeitingu og slökun en leikjum og samsköpun blandað við í anda leiklistarinnar. Kennari á námskeiðunum er Ásta Arnardóttir sem hefur áralanga reynslu af skapandi starfi með börnum bæði í leiklist og jóga. Hún hefur einnig haldið fjölmörg námskeið fyrir leiðbeinendur á leikskólum um hvernig megi flétta jóga og leiklist inn í skólastarfið. Krakkanámskeiðin standa í sex vikur en þeim er ætlað að efla einbeitingu, sjálfstraust og samhæfingu í leik og gleði. Innifalið í námskeiðsverði eru þrír tímar í fjölskyldujóga. Tímarnir fyrir yngri hópinn eru á miðvikudögum klukkan 16 en fyrir eldri hópinn á föstudögum á sama tíma. Sjá nánar áwww.this.is/asta. Glaðværð og góður andi er ríkj-andi á heimili Ásgeirs og Ást-hildar í Kópavoginum. Vinkon-ur þeirra, systurnar Klaudia átta ára og Natalia, alveg að verða tíu, eru í heimsókn. „Þær koma þrisvar í viku og eru kannski klukkutíma, einn og hálf- an,“ segir Ásgeir. „Já, þetta er orðið svo eðlilegt, við tökum ekkert tímann,“ tekur kona hans glaðlega undir. „Þær eru að læra íslensku og hefur farið gífur- lega mikið fram síðan í fyrra. Það gerir náttúrulega skólinn og svo hugsa ég að þegar þær koma hingað til okkar sé það íslenskutími fyrir þær líka. En ég hef engan aga á þeim hér. Þegar þær nenna ekki að lesa meira þá bara hættum við,“ segir Ásgeir. Hann segir aðeins meiri alvöru í kennslunni þá tvo daga vikunn- ar sem hann fer heim til þeirra. „Þá er ég yfirleitt svona klukkutíma. Fer með þeim yfir heimalærdóminn og svo tala ég við foreldrana. Þau fá hinar og þessar tilkynningar frá skólanum sem þau skilja ekki alltaf,“ segir hann og kveðst hafa gaman af að setja sig inn í þeirra tungu- mál. „Pólska er ekki létt mál en ég var byrjaður að glíma við hana áður en ég kynntist þeim.“ Ásgeir og Ásthildur fluttu í Kópavog- inn 1973 vestan úr Ísafjarðardjúpi en þær systur eru upprunalega frá Tarn- ów í Póllandi. Nú skilur bara ein gras- flöt heimili þeirra að. Ásthildur fer í hug- anum tvö ár aftur í tímann. „Þegar ég sá þessa ungu og huggulegu fjölskyldu flytjast í húsið hér á bak við okkur þá átti ég mér strax þann draum að hún mundi stoppa. Í fyrra fór pabbi stúlknanna að rækta grænmeti og gaf okkur að bragða á uppskerunni. Ég var þá að klára vett- linga og datt í hug að gefa konunni hans þá í staðinn og sendi litlu skvísunum grifflur í leiðinni. Síðar þegar Natalia lenti í vandræðum í skólanum með prjón- ana sína þá kom mamma hennar með þá að girðingunni. Svona hófust samskiptin. Ég get samt ekkert talað við foreldrana en það eru engir tungumálaörðugleikar milli mín og telpnanna. Við lærum margt hver af annarri og erum miklar vinkon- ur. Þær eru svo eðlisgóðar þessar litlu stúlkur.“ „Já, og einstaklega námfúsar,“ bætir Ásgeir við. - gun Lærum hvert af öðru Góð og gefandi kynni hafa skapast milli pólsku systranna Klaudiu og Nataliu Kubis og hjónanna Ásgeirs Svanbergssonar og Ásthildar Pálsdóttur. Ásgeir fer tvisvar í viku að kenna stúlkunum íslensku og þær koma þrisvar í viku í heimsókn til hans og Ásthildar. Góðir vinir Natalia, Ásgeir, Klaudia og Ásthildur eiga góðar stundir saman. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KRISTIÐ SAMFÉLAG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.