Fréttablaðið - 09.10.2010, Blaðsíða 39
Laugardaginn 23. okt. kl. 12:30
Margrét Eir Hjartardóttir söngkona sýnir sína bestu tónlistartakta.
Sunnudaginn 24. okt. kl. 15
Hrafnhildur Schram sýningarstjóri Með viljann að vopni verður með leiðsögn um
sýninguna. Síðast komu 60 manns á leiðsögn Hrafnhildar og gerðu góðan róm að henni.
Mánudaginn 25. okt. kl. 12:30
Hildur Hákonardóttir les valda kafla upp úr bókinni JÁ, ÉG ÞORI, GET OG VIL og rifjar upp
atriði frá Kvennafrídeginum 1975. Þar verður spurt og reynt að svara því hvaða þörf það
var sem knúði konur til að leggja niður störf þennan dag með jafn róttækum hætti.
Smiðja í tenslum við sýninguna- Með viljann að vopni – verður í gangi meðan á sýningu
stendur og er fyrir alla fjölskylduna. Hugmyndavinna í höndum Ragnheiðar Bjarnarson
listakonu, en hugmyndin er unnin út frá Kynungabók.
Slippurinn
23., 24., og 25. okt.
23. október – Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona frumsýnir frumsaminn einleik sinn
MAMMA, ÉG?! kl.20.
Áfram stelpur!
Söngdagskrá verður 24. október milli 18–19 og 20:30–21:30 og 25. október kl. 18–19.
Fram koma: Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Brynhildur Björnsdóttir. Esther Jökulsdóttir,
Margrét Pétursdóttir og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir.
25. október – Þórunn Lárusdóttir mætir með hljómsveit og syngur eigin útsetningar á
þekktum söngperlum um og eftir konur kl. 20. Sjá nánar á www.nemaforum.com
Kvennafrídagsgangan
Mánudaginn 25. okt. kl. 14:25
Konur leggja niður störf og hittast við Hallgrímskirkju.
Guðríðarkirkja
Að kvöldi Kvennafrídags 25. okt. kl. 20:30
Einleikurinn Þá mun enginn skuggi vera til sem
fjallar um sifjaspell og afleiðingar þess eftir
Björgu G. Gísladóttur og Kolbrúnu Ernu
Pétursdóttur leikkonu í leikstjórn Hlínar
Agnarsdóttur. Umræður á eftir.
Á Kjarvalsstöðum verður sannkölluð dagskrárveisla. Frá 9.–25. október munu dag legir
hádegisviðburðir verða á dagskrá frá 12:30–13:00, nema á sunnudögum en þá verða
þeir kl. 15. Sýningin Með viljann að vopni sem nú stendur þar yfir verður umgjörðin fyrir
viðburðina. Þá munu einnig vera nokkrir skemmtilegir viðburðir í Slippnum sem og
einleikur í Guðríðarkirkju. Allir viðburðirnir eru ókeypis. Sjá nánar um dagskrá á www.
listasafnreykjavikur.is
Kjarvalsstaðir
Laugardaginn 9. okt. kl. 12:30
Trúðaatriði með sérfræðingunum Mr. Klumz og Plong sem kynna nýjustu niðurstöður
úr rannsóknum sínum (á ensku). Það eru leikkonurnar Tinna Þorvalds Önnudóttir og
Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir sem bregða sér í hlutverk trúðanna.
Sunnudaginn 10. okt. kl. 15
Fyrirlestur Þóru Þórisdóttur um konur í myndlist, utan sem innan rammans. Fjallað verður
um innkomu feminismans í myndlist á ofanverðri síðustu öld og um lífseigar, kynjaðar
goð sagnir varðandi listsköpun.
Mánudaginn 11. okt. kl. 12:30
Ljóðadagskrá tileinkuð Stígamótum. Fram koma Björg Guðrún Gísladóttir og Kolbrún Erna
Pétursdóttir.
Þriðjudaginn 12. okt. kl. 12:30
Söngur og spil þar sem fram koma leik- og söngkonurnar Þórunn Erna Clausen og Guðrún
Árný og Soffía Karlsdætur.
Miðvikudaginn 13. okt. kl. 12:30
Trúbatrixa með Guðrúnu Jakobsdóttir sem flytur frumsamin ljóð.
Fimmtudaginn 14. okt. kl. 12:30
Pörupiltar leika við hvurn sinn fingur og dekra við dömurnar á staðnum. Leikarar: Alexía
Björg Jóhannesdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og María Pálsdóttir.
Föstudaginn 15. okt. kl. 12:30
Júlía Hannam flytur ljóð eftir Ingibjörgu Haralds.
Laugardaginn 16. okt. kl. 12:30
Brot úr einleiknum Ferðasaga Guðríðar. Þórunn Erna Clausen leikur Guðríði Þorbjarnar-
dóttur undir leikstjórn Maríu Ellingsen.
Sunnudaginn 17. okt. kl. 15
Hildur Hákonardóttir tekur þátt í leiðsögn um sýninguna Með viljann að vopni.
Mánudaginn 18. okt. kl. 12:30
Þóra Passauer contra alt syngur einsöng við píanóleik Lilju Eggertsdóttur. Á dagskrá tón-
leikanna eru ýmsar söngperlur þ.á.m. Draumalandið eftir Sigfús Einarsson og Nótt eftir
Árna Thorsteinsson.
Þriðjudaginn 19. okt. kl. 12:30
Upplestur og dagskrá unnin upp úr bókinni Laugavegurinn (um líf og störf þvottakvenna).
Fram koma Unnur Jökulsdóttir, Harpa Björnsdóttir og Þórdís Alda Sigurðardóttir.
Miðvikudaginn 20. okt. kl. 12:30
Lay Low og Agnes Erna Estherardóttir verða á rólegu nótunum en þær hafa samið tónlist
við ljóð valinkunnra kvenna. Um frumflutning nokkura laga er að ræða.
Fimmtudaginn 21. okt. kl. 12:30
Söngkonan Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og Kristín Björg Ragnarsdóttir fiðlu leikari flytja
fallegar vögguvísur.
Föstudaginn 22. okt. kl. 12:30
Þóra Karítas Árnadóttir leikles einleikinn Nauðgunin eftir ítalska leikskáldið, leikkonuna
og femínistann Franca Rame.
Kvennafrídagurinn nálgast og af því tilefni hafa Skotturnar og Listasafn Reykjavíkur tekið
höndum saman og skipulagt dagskrárveislu í aðdraganda stóra dagsins 25. október!
Upphitun fyrir