Fréttablaðið - 09.10.2010, Blaðsíða 102
9. október 2010 LAUGARDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Laugardagur 9. október
➜ Tónleikar
16.00 Hljóðaklettar hita upp fyrir Ice-
land Airwaves í
Havarí í dag klukk-
an 16. Fram koma
Pétur Eyvindson
og Graupan & The
Crying Cowboy.
22.00 Á laugardagskvöld verða 100.
tónleikar ársins á Græna hattinum en
þá kemur fram Bloodgroup sem verður
með strengjakvartett. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 22.00 og er forsalar í verslunum
Eymundsson.
➜ Opnanir
14.00 Erna G.S. opnar sýningu sína
REMIX MÓMENT 2009 í sal íslenskrar
Grafíkur, Tryggvagötu 17. Opnunin
stendur frá 14 til 18. í dag
14.00 Sýningin Trékarlar eftir Guð-
mund Sigurðsson trésmið verður
opnuð í anddyri Náttúrufræðistofu
Kópavogs í dag klukkan 14. Allir vel-
komnir og ókeypis aðgangur.
16.00 Samsýning framhaldsskólanema
opnar í Gallerí Tukt, Pósthússtræti 3-5.
í dag. Sýningin er opin á milli 16 og 18.
Á sýningunni eru verk unnin í tengslum
við tilraunaáfangann Nýsköpunarmennt
og atvinnulíf í grenndarsamfélagi.
16.00 Geirþrúður Finnbogadóttir
Hjörvar opnar klukkan 16 sýningu sína
„Heimsendingarþjónusta” í Suðsuð-
vestur í Reykjanesbæ. Sýningin stendur
til 14. nóvember. Suðsuðvestur er opið
um helgar frá 14 til 17 eða eftir sam-
komulagi.
➜ Ópera
20.00 Óperan
Rigoletto eftir Giu-
seppe Verdi verður
frumsýnd í Íslensku
óperunni í kvöld,
laugardagskvöld kl.
20. Almennt miða-
verð 5900 krónur.
Nánar á www.
opera.is.
➜ Dansleikir
20.30 Skvettuball FEBK verður haldið
í Félagsheimilinu Gullsmára, Gullsmára
13, Kópavogi, í kvöld frá 20.30 til 23.30.
Miðaverð er 1000 krónur. Hljómsveit-
in Arizóna, Ari og Finnbogi leika og
syngja fyrir dansi. Allir velkomnir.
23.00 Hljómsveitin Orginal ætlar að
spila fyrir dansi á Gamla Bauk, Húsa-
vík, í kvöld. Húsið opnar kl. 23 og fer
hljómsveitin á svið á miðnætti. Miða-
verð er 1500 kr.
➜ Dagskrá
12.30 Trúðaatriði með sérfræðingun-
um Mr. Klumz og Plong, sem kynna
nýjustu niðurstöður úr rannsóknum
sínum (á ensku), fer fram á Kjarvals-
stöðum kl. 12.30. Atriði er hluti af
dagskrárveislu Skottanna og Listasafns
Reykjavíkur.
➜ Málþing
14.00 Samskipti karla og kvenna
á hernumdum svæðum í Palestínu
verða efni UNIFEM umræðna sem
haldnar eru í samstarfi við Alþjóðlegan
jafnréttisskóla við Háskóla Íslands í
dag. Umræðurnar hefjat kl. 14.00 til
15.00 og verða í ÖSKJU, stofu 132. Allir
velkomnir.
➜ Útivist
10.15 Í dag verður farið í hjólreiðaferð
frá Hlemmi á vegum LHM.is. Lagt er
af stað kl. 10.15 og hjólað í 1-2 tíma um
borgina. Allir eru velkomnir og þátttaka
ókeypis.
Sunnudagur 10. október
➜ Leiklist
20.00 Fátæka leikhúsið sýnir Pizza-
sendilinn eftir Elísabetu Jökulsdóttur
á Faktorý, Smiðjustíg 6, í kvöld kl. 20.
Hægt er að panta miða með því að
senda tölvupóst á fataek@gmail.com
eða hringja í 845-2387. Miðaverð er
1000 krónur.
➜ Síðustu forvöð
10.00 Sýningunni Indian Highway
lýkur í dag, sunnudag. Sýningin er sýnd
í Hafnarhúsinu og er opið frá 10- 17.
15.00 Í Listasafni Kópavogs verður
leiðsögn um sýninguna 9- samsýningu
níu ungra myndlistarmanna í Gerða-
safni í dag kl. 15. Sýningunni lýkur jafn-
framt í dag.
➜ Upplestur
14.00 Í Gerðubergs-
safni verður í dag
sögustund með Gerði
Kristnýju rithöfundi
sem hlaut Vestnorrænu
barna- og unglinga-
bókaverðlaunin 2010.
Sögustundin hefst kl.
14.00.
➜ Dansleikir
20.00 Dansleikur Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni verður að Stang-
arhyl 4, sunnudagskvöld klukkan 20 til
23. Sighvatur Sveinsson leikur fyrir dansi.
➜ Listamannaspjall
15.00 Listhjúkkurnar Anna Hallin og
Ósk Vilhjálmsdóttir verða með lista-
mannaspjall um sýningu þeirra SPOR í
dag klukkan 15. Sýningin er í Listasafni
ASÍ, Freyjugötu 41.
➜ Samkoma
14.00 Félagsvist í Breiðfirðingabúð
Faxafeni 14 í dag, sunnudaginn 10. okt-
óber og hefst kl. 14. Allir velkomnir.
14.00 Í tilefni af 10 ára ritafmæli
Ármanns Reynissonar verður blásið
til Vinjettuhátíð í Gróttu með upplestri
og hljóðfæraslætti í dag frá klukkan 14
til 16.
14.00 Í dag verður hjólað frá Aust-
urvelli kl. 14 og upp Hverfisgötu að
Hlemm í tilefni af alþjóðlegu átaki
gegn loftlagsbreytingum. Mæting kl
14.00 og endað á Hlemm kl. 15, en þar
hefjast svo tónleikar og skiptimarkaður
kl. 15.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Dansleikhús ★★★
Transaquania - Into the Air
Höfundar: Erna Ómarsdóttir,
Damien Jalet og Gabríela Frið-
riksdóttir, samið í samvinnu við
Íslenska dansflokkinn. Sýnt á stóra
sviði Borgarleikhússins.
Í upphafi er sviðið auðnin ein.
Smátt og smátt fylla kynlegar
verur það lífi og áhorfandinn fær
að fylgjast með þróun þeirra og
lífsbaráttu. Búningarnir voru mjög
flottir. Í fyrstu strigapokalegar
hempur, en síðar þröngir húðlitaðir
heilgallar sem huldu einnig andlit
dansaranna. Það að gera dansarana
óþekkjanlega gerði allar hreyfing-
ar þeirra áhrifameiri. Naktar brúð-
ur í mannsmynd eru notaðar í sýn-
inguni á mjög áhrifaríkan hátt.
Lýsingin eins og húðliturinn í bún-
ingunum undirstrikaði auðnina og
tómið. Hún var viðeigandi til að
hægt væri að njóta þess sem fram
fór á sviðinu og studdi við stemn-
inguna hverju sinni.
Hljóðveruleikinn í verkinu var
eins og lýsingin mátulegur og pass-
andi í langflestum tilfellum. Hann
dró fram dulúð og skapaði upplif-
un af því ómennska og kynlega á
ljúfan, ágengan og ofsafengin hátt.
Á einstaka stöðum skar hann þó í
eyru og truflaði heildarupplifun-
ina.
Dansverkið er samið af tveimur
danshöfundum og einum myndlist-
armanni sem gerði að verkum að
„fljótlega hliðraðist áherslan frá
því að skapa dans yfir í að skapa
lifandi skúlptúr“. Þessi áhersla
skilar sér mjög vel og var á köfl-
um eins og meira segja brúðurn-
ar hefðu öðlast sitt sjálfstæða líf.
Magnað atriði. Hreyfingarnar í
verkinu minntu helst á hreyfing-
ar frumuklasa þar sem frumurn-
ar ýmist iða einar og sér eða tengj-
ast í iðandi heildir. Erna talar sjálf
um að þau Damian séu að rann-
saka möguleika lífrænna hreyf-
inga í danssköpun frekar en „aka-
demískar“ og er sú áhersla þeirra
einkar áhugaverð.
Níu dansarar voru í verkinu,
nokkrir þeirra nýir í röðum flokks-
ins. Dansararnir stóðu sig vel og
unnu sem einn líkami, ein lífræn
heild. Þeir náðu að halda þessu
kynlega og dularfulla flæði hreyf-
inganna í gegnum allt verkið og
ná dásamlegum áhrifum eins og
í kaflanum sem minnti á samfellu
fæðinga. Á nokkrum stöðum misstu
hreyfingarnar þó hina kynngi-
mögnuðu áferð frumuklasans og
nálægð leikhússins þrengdi sér inn
í vitund áhorfandans. Í þeim tilfell-
um er þó líklega frekar við dans-
höfundana að sakast en dansarana.
Að horfa á Transaquania var eins
og að verða vitni að sköpun heims-
ins sem og tortímingu hans, ekki í
gegnum frásögn heldur að vera við-
staddur hinn eiginlega atburð. Það
var auðvelt að hverfa inn í þennan
goðsagnakennda heim og gleyma
sinni hversdagslegu tilveru.
Transaquania – Into Thin Air er
heildstætt verk bæði hvað varðar
samspil listformanna sem og heild-
aruppbyggingu verksins. Það fang-
ar athygli áhorfandans strax í upp-
hafi og heldur henni óskiptri allt til
loka með fáum undantekningum
þó. Undantekningarnar valda þó
því að verkið vantar herslumuninn
upp á að fá fjórar stjörnur.
Sesselja G. Magnúsdóttir
Niðurstaða: Heildstætt verk þar
sem áhorfinn gleymir sér í heillandi
goðsagnaheimi. Nokkrir hnökrar setja
þó strik í reikninginn.
Dulúð og drama LOKSINS KOMNAR
AFTUR Á DVD!
VINNINGAR AFHENDIR Í ELKO LINDUM. 199 KR/SKEYTIÐ.
MEÐ ÞVÍ Að TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.
SENDU SM
S SKEYTIÐ
EST SW Á
NÚMERIÐ
1900
OG ÞÚ GÆ
TIR UNNIÐ
!
AÐALVINNINGUR:
ALLT STAR WARS SAFNIÐ
FULLT AF AUKAVINNINGUM:
TÖLVULEIKIR • DVD MYNDIR
GOS OG MARGT FLEIRA!
10. HVERVINNUR!