Fréttablaðið - 09.10.2010, Síða 112

Fréttablaðið - 09.10.2010, Síða 112
 9. október 2010 LAUGARDAGUR64 sport@frettabladid.is 20/15 HLYNUR BÆRINGSSON átti stórleik í frumraun sinni í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Hann skoraði 20 stig og tók fimmtán fráköst er Sundsvall vann Örebro í gær, 86-60. Jakob Sigurðarson leikur einnig með Sundsvall og skoraði hann fimmtán stig í leiknum. Undankeppni EM 2012 A-RIÐILL: Kasakstan - Belgía 0-2 Austurríki - Aserbaídsjan 3-0 Þýskaland - Tyrkland 3-0 1-0 Miroslav Klose (42.), 2-0 Mesut Özil (79.), 3-0 Miroslav Klose (87.). B-RIÐILL: Armenía - Slóvakía 3-1 Andorra - Makedónía 0-2 Írland - Rússland 2-3 C-RIÐILL: Serbía - Eistland 1-3 Norður-Írland - Ítalía 0-0 Slóvenía - Færeyjar 5-1 D-RIÐILL: Lúxemborg - Hvíta-Rússland 0-0 Albanía - Bosnía 1-1 E-RIÐILL: Ungverjaland - San Marínó 8-0 Moldavía - Holland 0-1 0-1 Klaas-Jan Huntelaar (37.) F-RIÐILL: Georgía - Malta 1-0 Grikkland - Lettland 1-0 G-RIÐILL: Svartfjallaland - Sviss 1-0 Wales - Búlgaría 0-1 H-RIÐILL: Kýpur - Noregur 1-2 0-1 John Arne Riise (2.), 0-2 John Carew (42.), 1-2 Ionnis Okkas (58.). Portúgal - Danmörk 3-1 1-0 Nani (29.), 2-0 Nani (31.), 2-1 Ricardo Carval- ho, sjálfsmark (79.), 3-1 Cristiano Ronaldo (85.). I-RIÐILL: Tékkland - Skotland 1-0 Spánn - Litháen 3-1 IE-deild karla Fjölnir - Snæfell 97-102 Stig Fjölnis: Ben Stywall 25, Ægir Þór Steinarsson 25, I. Magni Hafsteinsson 19, Tómas Heiðar Tómasson 12, Jón Sverrisson 7, Trausti Eiríksson 4, Arnþór Guðmundsson 3, Sindri Kárason 2. Stig Snæfells: Ryan Amaroso 31, Jón Ólafur Jónsson 19, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 18, Sean Burton 12, Emil Jóhannsson 10, Lauris Mizis 4, Egill Egilsson 3, Sveinn Davíðss. 3, Atli Hreinss. 2. Njarðvík - Grindavík 68-84 Stig Njarðvíkur: Antonio Houston 13, Egill Jónasson 12, Guðmundur Jónsson 12, Jóhann Árni Ólafsson 11, Lárus Jónsson 7, Óli R. Alex- andersson 4, Kristján R Sigurðsson 3, Friðrik Stef- ánsson 2, Páll Kristinsson 2, Rúnar I. Erlingsson 2. Stig Grindavíkur: Andre Smith 25, Ómar Örn Sævarsson 15, Ólafur Ólafsson 13, Guðlaugur Eyj- ólfsson 11, Ryan Pettinella 8, Björn Brynjólfsson 5, Páll Axel Vilbergsson 5, Þorleifur Ólafsson 20. Hamar - Haukar 82-89 Stig Hamars: Andre Dabney 28/, Darri Hilmars- son 17, Ellert Arnarson 17, Svavar Páll Pálsson 10, Ragnar Á. Nathanaelsson 4, Kjartan Kárason 3, Nerijus Taraskus 3. Stig Hauka: Gerald Robinson 29, Semaj Inge 22, Davíð Páll Hermannsson 11, Örn Sigurðarson 9, Sævar Ingi Haraldsson 6, Óskar Ingi Magnússon 6, Haukur Óskarsson 3, Sveinn Ó. Sveinsson 3. ÚRSLIT Pósthúsið | Suðurhraun 1 | S: 585 8300 | www.posthusid.is Nú þegar farið er að dimma úti viljum við vinsamlega minna íbúa á að hafa kveikt á útiljósum við heimili sín á næturnar til að auðvelda blaðberum Pósthússins aðgengi að póstlúgu. Með fyrirfram þökk, Pósthúsið dreifingaraðili Fréttablaðsins og annarra dreifinga Blöð og tímarit Bréfasendingar Markpóstur Fjölpóstur Vörudreifing Plöstun blaða og nafnamerking Munum eftir að kveikja útiljósin! Við látum það berast FÓTBOLTI Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH mætast í N1-deild karla í dag. Eins og ávallt er mik- ill áhugi fyrir leikjum liðanna en ekki síst nú þar sem þau eru talin bestu lið deildarinnar. FH var spáð fyrsta sæti deildarinnar og Hauk- um öðru. FH-ingar hafa endurheimt landsliðsmanninn Loga Geirsson úr atvinnumennsku og hann seg- ist vart geta beðið eftir að flautað verði til leiks í dag. „Þetta er bara snilld. Ég hef beðið eftir þessum leik í sex ár, síðan ég fór í atvinnumennsku, og hef talið dagana. Það er skemmti- legast að spila þessa leiki enda hefur það verið greinilegt undan- farin ár hversu mikill áhugi er fyrir leikjum þessara liða,“ segir Logi í samtali við Fréttablaðið. „Við höfum aldrei verið sterkari en nú. Við ætlum að mæta brjál- aðir til leiks og við höfum verið að skipuleggja ýmislegt skemmtilegt í kringum leikinn.“ FH og Haukar fóru vel af stað í deildinni og unnu bæði lið leiki sína í fyrstu umferðinni. FH lagði Aftureldingu og Haukar lögðu Valsmenn. „Það er alltaf jafn gaman að spila þessa leiki,“ segir Freyr Brynjars- son, leikmaður Hauka, en liðið er handhafi allra titla á Íslandi nú. „Það er ákveðin spenna og fiðring- ur fyrir þessa leiki og ég hlakka mikið til að takast á við þetta. Það er mikil pressa á báðum liðum að vinna leikinn.“ Hann segist ánægður með byrjun Hauka á tímabilinu en þeir komust í 32- liða úrslit EHF-bikar- keppninnar um síðustu helgi með tveimur sigrum á Conversano á Ítalíu. „Ég átti ekki von á því fyrir fram að við yrðum jafn framarlega og við erum nú. Ungu strákarnir í liðinu hafa verið að taka þetta skref sem ég gerði ekki ráð fyrir að kæmi alveg strax. Það er frábært enda njóta þeir góðs af því að hafa verið viðloð- andi liðið undanfarin ár og fengið þannig dýrmæta reynslu. Þeir eru líka allir uppaldir Hauka- menn og það þarf því ekki að trekkja þá sérstaklega upp fyrir leik eins og þennan.“ Logi segir að allir Hafn- firðingar geri sér grein fyrir því hvað sé undir í leiknum. „Það er alltaf pressa, þó svo að þetta sé bara annar leikur tímabils- ins. Það hefur aldrei vant- að baráttuna í þessa leiki og bæði þessi lið eru nú það góð að þetta snýst meira um hugarfar leikmanna, ekki bara hvað þeir eru með mörg kíló á sér.“ Haukar hafa verið afar sigursælir undan- farin ár en Logi segir að FH ætli sér langt þetta árið. „Við ætlum okkur stóra hluti. Við lítum á alla leiki sem úrslitaleiki og það gerum við einnig nú. Ég lofa því að ef við vinnum þá verð ég með eitthvað óvænt í pokahorn- inu. Ég segi ekki meira, ég vil að fólk mæti á völlinn,“ segir hann kankvís. Báðir eiga þeir von á troðfullu húsi á Ásvöllum í dag en leikurinn hefst klukkan 15.45. „Annað væri skandall,“ segir Freyr. eirikur@frettabladid.is Sex ára bið Loga á enda „Ég hef beðið eftir þessum leik í sex ár, síðan ég fór út í atvinnumennsku,“ segir FH-ingurinn Logi Geirsson en hann verður í eldlínunni er Haukar taka á móti FH í Hafnarfjarðarslag í dag. Liðin eru talin þau bestu í N1-deild karla í ár. HAFNARFJARÐARSLAGUR Logi Geirsson er aftur kominn í FH-búninginn og verður í eldlínunni gegn Haukum í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KLÁR Í SLAGINN Freyr Brynjarsson er spennt- ur fyrir leik Hauka og FH í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Ég lofa því að ef við vinnum þá verð ég með eitthvað óvænt í poka- horninu. Ég segi ekki meira. LOGI GEIRSSON LEIKMAÐUR FH FÓTBOLTI KR-ingar munu ekki leyfa Björgólfi Takefusa að fara frá félaginu án greiðslu. Það stað- festi Kristinn Kjærnested, for- maður knattspyrnudeildar KR, í samtali við Fréttablaðið í gær. Björgólfur Takefusa greindi frá því í gær að sameiginlegur vilji – KR og hans – væri um að slíta samstarfinu. „Það er ekki rétt,“ sagði Kristinn. „Hann hefur óskað eftir því að fá að fara en hann fer ekki frítt frá okkur. Það stendur ekki til að leysa hann undan samningi.“ - esá Björgólfur Takefusa: KR sleppir Björg- ólfi ekki frítt FER EKKI FRÍTT Björgólfur Takefusa í leik með KR í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Landslið Portúgals virð- ist aftur komið á beinu braut- ina eftir 3-1 sigur á Danmörku í H-riðli undankeppni EM 2012 í kvöld. Nani, leikmaður Manchest- er United, fór mikinn og skoraði tvö mörk auk þess sem hann lagði það þriðja upp fyrir Cristiano Ronaldo. Báðir eru þeir væntan- legir í Laugardalinn á þriðjudag- inn þegar Ísland mætir Portúgal. Norðmenn eru þó langefstir í riðlinum með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Þeir unnu 2-1 útisigur á Kýpur í gær. - esá H-riðill í undankeppni EM: Portúgal hrökk loks í gang SKORAÐI TVÖ Nani fagnar öðru marka sinna gegn Dönum í gær ásamt félögum sínum. NORDIC PHOTOS/AFP KÖRFUBOLTI Íslandsmeistararnir í Snæfelli byrjuðu leiktímabilið eins og þeir enduðu það síðasta með fínum sigri á Fjölni í fyrstu umferð Iceland Express deild karla í gær- kvöldi. Leikurinn var jafn nán- ast allan tímann og liðin skiptust á að hafa yfirhöndina. Þegar upp var staðið var reynsla Snæfellinga það sem gerði gæfumuninn og þeir unnu að lokum 102-97. „Ég er bara mjög stoltur af strákunum að hafa náð að vinna hérna í kvöld,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir leikinn í gærkvöldi. „Við vorum að spila á móti alveg gríðarlega góðu liði sem á eftir að gera flotta hluti í vetur. Það var ekki fyrr en í lokin þegar við fórum að spila okkar varnar- leik sem við náðum að slíta okkur aðeins frá þeim og klára leikinn,“ sagði Ingi eftir leikinn. Tómas Holton var nokkuð sátt- ur við spilamennsku sinna manna, en þeir léku virkilega vel á köfl- um í gær. „Við vorum mjög góðir svona 3/4 af leiknum, en síðasti leikhlut- inn kostaði okkur of mikið,“ sagði Tómas. „Þetta var hraður og skemmti- legur leikur en þegar líða tók á fjórða leikhlutann voru það klaufa- leg mistök sem kostuðu okkur sig- urinn“. Ryan Amaroso skoraði 31 stig og tók þrettán fráköst fyrir Snæfell í gær en hjá Fjölni voru Ægir Þór Steinarsson og Ben Stywall stiga- hæstir með 25 stig hvor. - sáp Fyrstu umferð Iceland Express deildar karla lauk í gær: Vinnusigur Snæfells gegn Fjölni TITILVÖRNIN HÓFST Í GRAFARVOGI Jón Ólafur Jónsson tekur hér skot að körfunni í leik Snæfells og Fjölnis í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.