Fréttablaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 11. október 2010 Ef hér væri vinstri stjórn myndi Póstur og sími vera tekinn af Bakkabræðrum. Þá gætum við hringt í Símann þegar eitthvað bilar án þess að hlusta í hálftíma á þungarokk rofið af og til með „þú ert númer áttahund- ruð í röðinni, viltu nokkuð vera að bíða lengur?“ Okkur fyndist kannski Póstur&Sími ekkert rosalega sexí en við hefðum samt aftur á tilfinningunni að þetta væri okkar fyrirtæki en við ekki þegnar þess. Væri hér vinstri stjórn hefðu bankarnir og sparisjóðirnir verið sameinaðir í einn ríkis- banka sem héti Landsbankinn og væri banki allra landsmanna. Þetta væri frekar þurrpumpu- legur banki sem myndi láta okkur standa lengi í röð þegar við kæmum til að fá lán og kall með flösu myndi svo hvessa á okkur glyrnurnar og spyrja höstug lega: „Og hvað þykistu ætla að gera við peninginn!“ Og: „Hvurn fjárann hefur þú við pallbíl að gera!“ Og: „hvernig hafðirðu hugsað þér að borga þetta! Með lottópeningum?“ Væri hér vinstri stjórn hefði ohf-dellan í ríkisútvarpinu verið stöðvuð fyrir löngu og þessi stofnun færð þjóðinni á ný vegna þess að vinstri stjórnir vita sem er að sumt er þess eðlis að best fer á því að það sé í almanna- eigu. Væri hér vinstri stjórn hefði maðurinn sem veðsetti bótasjóð Sjóvár ekki fengið að gerast framkvæmdastjóri lyfjafyrir- tækis því að lyf eru til að lækna fólk og braskarar eiga ekki að fá að koma nálægt því að selja þau heldur væri það háð ströngum takmörkunum hverjir höndluðu með lyf. Og ef hér væri vinstri stjórn yrði séð til þess að sjúkrahúsin í hinum dreifðu byggðum landsins hefðu bolmagn til að starfa og sinna þjónustu við hin smærri samfélög – ekki bara út af örygg- inu og ekki bara út af hag- kvæmninni heldur líka vegna þess að það eru lágmarkslífs- gæði og grundvallarmannrétt- indi að eiga kost á góðri heil- brigðisþjónustu í nágrenni sínu. Ef hér væri vinstri stjórn yrði starfsemi hins svokallaða Háskóla í Reykjavík sett undir Háskóla Íslands eða kannski bara send aftur í Versló og nám- skeið Stjórnunarfélagsins sem Árni Sigfússon var alltaf að halda í gamla daga. Þeir kenn- arar sem fengju að starfa áfram á háskólastigi yrðu að læra við- skiptafræðina og lögfræðina upp á nýtt. MBA-nám og hin sjálfstyrkingarnámskeiðin yrðu svo sett á námskeið Stjórnunar- félagsins. Væri hér vinstri stjórn myndi hún verja fé í mannaflsfrekar framkvæmdir sem skila þjóð- félaginu einhverju, efla hagvöxt og veita atvinnulausu fólki atvinnu – ekki með því að reisa samgöngu miðstöð í Vatns mýrinni handa Akureyringum, heldur mætti fá styrk hjá Evrópu- sambandinu til að láta nú loksins verða af því að járnbrautavæða Ísland. Það er ekkert smáræðis- verk að leggja járnbraut um þetta stóra land og reisa fallegar járn- brautarstöðvar á helstu þéttbýlis- stöðum. Önnur stórframkvæmd sem má hugsa sér er að fjarlægja byggingar sem lítil not eru fyrir og eru til lýta og leiðinda og reisa eitthvað nýtt og fallegt í staðinn. Til dæmis Smáralind: ekki er húsið sjálft einungis hlálegasta bygging í víðri veröld – risa- reður teiknaður af enskum arki- tektum sem hljóta að hafa grátið af hlátri á meðan – heldur virðist hvorki hægt að reka verslunar- kjarnann í núverandi mynd né selja hann. Best væri því að rífa Smáralind og breyta svæðinu í líflegan garð fyrir Kópavogsbúa, og svipað brúk má hugsa sér fyrir önnur risaverslunarhús sem reist voru í öngviti aldamóta- áranna og munu aldrei verða til annars en armæðu. Væri hér vinstri stjórn væri forgangsmál að þjóðin sjálf fengi hlutdeild í þeim arði sem ein gjöfulustu fiskimið í heimi gefa af sér, í stað þess að hann renni óskiptur til manna sem fyrir löngu hafa fyrirgert rétti sínum til kvótans með heimsku- pörum og veðsetningu á því sem þjóðin á. Já og væri þetta vinstri stjórn sem á að heita að stjórni hér landinu þá myndi hún róa að því öllum árum að gera landið að einu kjördæmi svo að alþingi Íslendinga endurspegli þjóðar- viljann og hér komist á raun- verulegt þingræði og við – fólkið – getum farið að bera virðingu fyrir þessari stofnun eins og við svo sárlega þráum. Ef hér væri vinstri stjórn yrði starf- semi hins svokallaða Háskóla í Reykja- vík sett undir Háskóla Íslands eða kannski bara send aftur í Versló. Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 Sogavegur VERÐLÆKKUN á fiski. -Fiskikóngurinn hjálpar þér að taka á kreppunni- Fiskfars (áður 990)......................................... Kinnar nýjar og saltaðar (áður 990)............. Fiskréttir í sósu (áður 1.590)..................... Fiskhakk (áður 1.390)..................................... Ýsuflök með roði (áður 1590).............. Sjáumst eldhress. ATH. þetta er ekki tilboð sem gildir aðeins í dag. Þessi verð eru komin til þess að vera á meðan kreppunni stendur. nú 550,- nú 690,- nú 1.390,- nú 790,- nú 1.290,- Á næstu árum mun Rio Tinto Alcan fjárfesta fyrir 57 milljarða króna í álverinu í Straumsvík. Ráðist verður í tvö stór verkefni. Straumhækkun mun auka afköst kerskálanna og skapa 360 ný störf þegar framkvæmdir standa sem hæst á næsta ári. Breytingar á steypuskála auka verðmæti framleiðslunnar og skapa um 150 ný störf árið 2011. Samanlagt kalla þessi verkefni á 620 ný ársverk á Íslandi. Rio Tinto Alcan Straumsvík Pósthólf 244 222 Hafnarfjörður Sími 560 7000 www.riotintoalcan.is 620 ný ársverk í Straumsvík Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Væri hér vinstri stjórn Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG AF NETINU Fordómar gegn feitum Feitt fólk mætir fordómum nánast á öllum stigum mannlífsins, hvort sem það er í vinnu, skóla, verslun og þjónustu, heilsugæslu eða jafnvel heima hjá sér. Þetta hafa rannsóknir ítrekað staðfest. Sú lausn sem iðulega er bent á að feitt fólk eigi bara að grenna sig er engin lausn þar sem a) þær megrunaraðferðir sem þekktar eru leiða yfirleitt ekki til viðvarandi þyngdar- taps og b) það er ekki á ábyrgð þeirra sem verða fyrir illri meðferð að breyta sér til að þóknast kvölurum sínum. Ábyrgðin er gerendanna. Þess vegna er kallað eftir samfélagsbreytingum. Við þurfum að gera sam- félagið þannig úr garði að öllum geti liðið þar vel, hvort sem þeir eru feitir eða mjóir, stórir eða litlir, ungir eða gamlir eða hvernig sem er. Veröldin er fyrir alla. http://blog.eyjan.is/likamsvirding/ Sigrún Daníelsdóttir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.