Fréttablaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 12. október 2010 Málþing með notendum Faxaflóahafna Þriðjudaginn 12. október, kl. 16:00 í Sjóminjasafninu við Grandagarð Nàttúruleg vellíðan ERTU MEÐ VIÐKVÆMA HÚÐ? Finnur þú fyrir þurrki í leggöngum, kláða, sveppasýkingu eða færðu sár við notkun dömubinda? Prófaðu þá Natracare lífrænar hreinlætisvörur, án klórs, ilm- og plastefna. www.natracare.is LÍFRÆNAR HREINLÆTISVÖRUR Einn af forfeðrum mínum var um tíma í vinnu hjá stöndug- um bónda á Austurlandi, og var vel liðinn. Þótti góður starfs- kraftur, var handlaginn, hag- mæltur og vinnusamur. En þegar fór að draga saman með honum og dóttur bóndans var það ekki liðið. Bóndinn var þægilegur en blátt áfram og umbúðalaus: Pilturinn væri prýðilegur í alla staði, en það kæmi ekki til greina að þau yrðu hjón. Þó að hann væri duglegur væri hann allt of bókhneigður, og það kynni ekki góðri lukku að stýra. Menn yrðu að vera með allan hugann við búskapinn, ef vel ætti að vera. Þó að sagan vitni um annað, og margir bændur hafi gegnum tíðina komist vel af þó að þeir hafi verið bæði ritfærir og bók- hneigðir, var þetta sjónarmið gott og gilt á sínum tíma. Flinkir iðnaðarmenn Þegar ég var að vaxa úr grasi var athafnafrelsi krakka á annan veg en nú er. Ég hafði til dæmis mikinn áhuga á því að príla í húsum sem voru í byggingu, ganga á stillönsunum og komast inn ef þess væri kostur. Finna lyktina af steypunni og timbrinu og reyna að sjá fyrir mér hvernig húsið yrði tilbúið. Var stundum með öðrum, en oftast ein. Þegar Dvalarheimili aldr- aðra sjómanna í Laugarásnum var í smíðum átti ég þar góðar stundir eitt sumarið, sem og í Heilsuverndarstöðinni við Bar- ónsstíg sem var í smíðum þegar ég var í vist í hverfinu, ellefu ára gömul. Naumast þarf að taka fram að þetta príl átti sér oftast stað eftir að smiðirnir voru farn- ir heim á kvöldin eða um helgar, en stundum var maður líka að þvælast í kringum iðnaðarmenn- ina og spyrja um hitt og þetta. Og þegar ég lít um öxl finnst með með ólíkindum hvað þessir menn voru umburðarlyndir við forvitna krakka. Einnig snilling- arnir í vélsmiðju Seyðisfjarðar og karlarnir á bátunum, togaran- um Ísólfi á Seyðisfirði og konan sem leyfði mér að koma með sér í fjósið meðan hún mjólkaði, hve- nær sem ég vildi. Það myndast oft skemmtilegt andrúmsloft þar sem iðnaðar- menn eru að vinna, og þeir geta skilað óaðfinnanlegu verki, þó að þeir séu að spjalla við félaga sína á meðan. Góðir iðnaðarmenn eru beinlínis listamenn. Nám og næmi Í dag nýtur bóknám sömu virð- ingar og vinnusemi og verksvit gerði áður. Reyndar væri orðið líkast til framandi fyrir ungt fólk ef merkingin væri ekki aug- ljós. Bæði á heimilum og vinnu- stöðum var oft sagt með furðu eða óþolinmæði við ungling sem fórst eitthvað óhönduglega eða gerði hlutina illa: Hvað er að sjá þetta? Hefurðu ekkert verksvit!” Vitið og virðingin á nú heima í bóknáminu. Ekki er talað um verksvit, heldur að fólk sé verk- lagið. Þegar efnilegt æskufólk velur Iðnskólann er stundum spurt hvort því hafi ekki gengið nógu vel í námi, rétt eins og iðn- nám sé eitthvert neyðarúrræði. Háskólamenntað fólk er hreint ekki allt á sömu snúru þótt það hafi fengið sömu menntun. Eitt er að kunna hlutina, annað að skilja þá – ekki síst í stærra sam- hengi. Við erum svo lánsöm í dag að hver og einn á möguleika á að læra það sem hugurinn stendur til, og við getum farið í nám hvenær sem er á ævinni. Við eigum líka kost á námi í virtustu háskólum í Evrópu og vestan- hafs og margir Íslendingar hafa staðið sig framúrskarandi vel. En hvernig væri umhorfs hér á landi ef við ættum ekki framúr- skarandi faglega og jafnvel list- ræna iðnaðarmenn á öllum svið- um? Og hvernig nýttist okkur langskólamenntun og reynsla fjölmargra Íslendinga í viður- kenndum stofnunum víða um heim þegar kreppan var í fæð- ingu? Skorti þekkingu, skilning eða næmi? Það væri gaman að vita. Bókvit og verksvit Í blaðinu á föstudag þann 1. október skrifar Rúna Hjaltested Guð- mundsdóttir sagnfræðingur grein sem titluð er: „Eru mannréttindi ekki fyrir Íslendinga?“ Þar finnur hún m.a. að áherslum utanríkisráð- herra, Össurar Skarphéðinssonar, út frá ræðu hans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna, þar sem hann gagnrýndi stjórn Ísraels fyrir að hindra flutning íslenskra gervifóta inn á Gasa. Greinarhöfundur kall- ar eftir því að barist sé fyrir mann- réttindabrotum á Íslandi. Það er óþolandi að horfa upp á getuleysi ráðamanna gagnvart eignamissi þúsunda Íslendinga. En þessi samanburður greinarhöf- undar er í besta falli óviðeigandi og sæmir ekki sagnfræðingi sem vill láta taka sig alvarlega. Össur Skarphéðinsson hefur hlutverk sem utanríkisráðherra í ríkisstjórn Íslands og er ég ekki sammála öllu sem hann gerir á þeim vettvangi. En gamli róttæk- lingurinn hefur haldið lífi í glæð- um réttlætiskenndarinnar þegar hann fjallar um málefni Palestínu. Þar hefur hann staðið sig með ein- dæmum vel sem utanríkisráðherra. Það ber að virða en ekki nota í nei- kvæðum samanburði. Góður sagnfræðingur þarf að geta lifað sig inn í mismunandi tíma og rúm. Besta leiðin til þess er að hugsa sér framandi aðstæð- ur inn í sitt umhverfi. Í framhaldi af því er ég afskaplega þakklát- ur fyrir að búa ekki við þá und- irokun sem íbúar Gaza gera. En mér er ekki sama, mér kemur það við. En það hindrar mig ekki í að fara niður á Austurvöll til að tjá óánægju mína gagnvart ríkisstjórn og þingi og samstöðu með þeim þúsundum Íslendinga sem eiga á hættu að missa eignir sínar. Eru mannréttindi ekki fyrir alla? Menning Ari Tryggvason sagnfræðinemi Jónína Michaelsdóttir Blaðamaður Í DAG Þegar efnilegt æskufólk velur Iðn- skólann, er stundum spurt hvort því hafi ekki gengið nógu vel í námi, rétt eins og iðnnám sé eitthvert neyðarúrræði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.