Fréttablaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 12.10.2010, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 12. október 2010 17 Hún var 28 ára þegar hún fékk nóg. Hún var búin að vera með honum síðan hún var 16 og hann 18. Það voru næstum þrjú ár síðan hana hafði langað til þess að sofa hjá honum. Hann var góður maður. Hann hafði alltaf reynst henni vel. Hún gat bara ekki elsk- að hann lengur. Það versta var að hún hafði enga afsökun. Hún ósk- aði þess stundum að hann héldi framhjá henni eða gerði eitthvað sem gæti réttlætt ákvörðunina. Hún var með svo mikla sektar- kennd. Ekki bætti úr skák að allir vinirnir og fjölskyldan höfðu skoð- un á þessu. Öllum fannst svo leiðin- legt að þau væru að skilja. Öllum fannst þau svo frábær saman og fannst að hún gæti alveg lagt aðeins meira á sig. Enginn skildi hennar tilfinningar. Enginn setti sig í hennar spor. Hún fékk engan stuðning þegar hún tók erfiðustu ákvörðun lífs síns. Hann var 36 ára þegar hann gat ekki lengur lokað augunum fyrir staðreyndunum sem blöstu við. Það var augljóst að hún hélt fram- hjá honum. Þegar hann hafði safn- að í sig kjarki og spurt hana beint út fékk hann öll svörin sem hann hafði óttast mest. Hún hafði verið í sambandi við annan mann í þrjú ár. Hún var þó ekki viss hvort hún vildi hann eða hinn. Hún stakk upp á fjölskylduráðgjöf og þau fóru í tvo tíma. Í öðrum tímanum var ljóst að hún vildi bara halda þeim báðum. Hún vildi ekki skilja en hún vildi ekki heldur hætta með hinum. Þetta voru myrkustu mán- uðir lífs hans. Hann vissi varla mun á nóttu og degi. Hann hætti að geta borðað. Hann bara grét. Hann skildi hana samt svo vel að vilja einhvern annan en hann. Hann var svo sem ekki merkilegur pappír. En hann hafði alltaf elsk- að hana. Það hafði ekkert breyst. Oft langaði hann mest að láta bara sem ekkert hefði í skorist og horfa í hina áttina. Það var svo erfitt að skilja, að rífa sig upp frá öllu sem var kunnuglegt og halda út í óviss- una. Að lokum gat hann ekki annað en farið. Hann gat ekki látið koma svona fram við sig. Þegar hann loksins skildi kom í ljós hverjir voru virkilegir vinir hans. Hún var 42 ára þegar hún loks- ins fór frá honum. Þau höfðu verið saman frá því bæði voru 25 ára. Hún varð ólétt nánast um leið og þau kynntust og þá giftu þau sig, keyptu hús og byrjuðu í basl- inu. Fljótlega kom annað barn en síðan liðu fimm ár þar til litli kút- urinn fæddist. Það var þegar hún var ólétt af honum sem hann sló hana fyrst. Hún fékk svo sem ekki mikið áfall. Hann hafði alltaf verið ógnandi í framkomu þegar hann drakk og oft hafði hann hótað að leggja hendur á hana. Þetta var bara sjálfsagt framhald af öllu saman. Það tók hana tíu ár, frá fyrsta högginu, að koma sér í burtu. Hún vildi alltaf gera það sem börnun- um var fyrir bestu og hún vildi líka svo gjarnan hjálpa honum. Það tók hana tíu ár að átta sig á því að hún gæti aldrei hjálpað honum. Það tók hana líka tíu ár að viður- kenna að hjónabandið væri ekki það besta fyrir börnin. En það var svo erfitt þegar vin- irnir og vinkonurnar virtust ekki almennilega trúa henni. Þau létu stundum í það skína að hún væri bara að búa þetta til. Meira að segja mamma hennar og pabbi voru lengi vel á hans bandi. Hann hafði nú alltaf verið svo góður þrátt fyrir allt. Þessar sögur gætu allar verið sannar. Munur á sorg vegna dauðsfalls annars vegar og skilnaðar hins vegar getur falist í afleiðingum og viðbrögðum umhverfis. Við frá- fall maka fær eftirlifandi jafnan samúð og umhyggju. Sá sem lést er horfinn að eilífu. Við dauðsfall eru fyrir hendi skýrar reglur og hefðir um það hvernig hinn látni eða hin látna er kvödd. Það undir- strikar missinn og veitir farveg fyrir sorgarúrvinnslu og samúð til eftirlifandi. Oft verða margir til þess að veita hjálparhönd, bæði fagaðilar, ættingjar og vinir. Við skilnað geta viðbrögð umhverfis verið afar breytileg. Margir mæta skilningi og hlýju, aðrir geta mætt andúð og jafnvel fordæmingu. Sumir missa sam- band við fyrrverandi tengdafjöl- skyldu og vini, jafnvel börn sín. Mikill söknuður og sorg getur fylgt í kjölfarið. Það að horfa upp á fyrrverandi maka með nýjum lífs- förunaut getur valdið óbærilegri þjáningu. Sorgin og sorgarferlið verður oft blandin reiði og höfn- unartilfinningu sem erfitt getur reynst að vinna úr og jafna sig á. Þetta getur leitt af sér beiskju og einmanaleika. Þá getur þjóðfélags- staða og efnahagur breyst mikið og skipting eigna raskað fjárhag illilega. Stór hluti af daglegu lífi í söfn- uðum landsins gengur út á að ganga með fólki sem hefur misst. Þetta á jafnt við um fólk sem hefur misst vegna andláts og skilnaðar. Bæði er unnið með fólki í einstakl- ingsviðtölum og í sjálfshjálparhóp- um en það form hefur reynst vel þegar kemur að sorgarúrvinnslu. Í sorgarhópum og sjálfstyrkingar- hópum fyrir fráskilda gefst ein- staklingum tækifæri til þess að kynnast öðrum sem hafa svip- aða reynslu að baki, deila reynslu sinni og styðja hvert annað í því að ná áttum og sáttum. Að ná áttum og sáttum Hjónaskilnaðir Guðrún Karlsdóttir prestur í Grafarvogskirkju Það tók hana líka tíu ár að viður- kenna að hjónabandið væri ekki það besta fyrir börnin. Hverfisgata 56, 101 Reykjavík Sími: 552 1630 Opið: sun.-fim. 18:00 - 22:00 fös. og lau. 18:00 - 23:00 www.austurindia.is Indverjum duga ekki færri en fimm dagar til að halda upp á hátíð ljóssins, Diwali, sem nú á hug þeirra og hjörtu. Við hjá Austur-Indíafjelaginu viljum færa örlitla birtu inn í byrjun vetrar og bjóðum því upp á sérstakan fimm rétta Diwali-hátíðarmatseðil í október á afar góðu verði: 4.990 kr. alla daga. Borðapantanir í síma 552 1630. Hátíð ljóssins hjá Austur-Indíafjelaginu Chandrika Gunnarsson eigandi Austur-Indíafélagsins býður gesti velkomna á Diwali, hátíð ljóssins. DIWALI hátíðarmatseðill 4.990 kr. FORRÉTTUR Malabari Machli Pönnusteiktur lax í kókos með karrýlaufum og garam masala AÐALRÉTTIR Peshwari Gosht Grillað lambafillet marinerað í kasjúhnetum, engiferi, chillí og hvítlauk og Murgh Korma Kjúklingalundir á hægum eldi í blöndu af kókosmjólk, birkifræjum, kanil og kardemommum og Channa Masala Kjúklingabaunir eldaðar með tómötum, kúmeni, chilí og kóríander MEÐLÆTI Raitha Heimalöguð jógúrtsósa með gúrkum og kryddblöndu og Basmati hrísgrjón og Naan brauð Garlic Naan með hvítlauk Masala Kulcha með kúmeni, lauk og kóríander EFTIRRÉTTUR Kahjoor Halwa Indverskur eftirréttur með döðlum, súkkulaði, hesilhnetum og kókos Fimm rétta

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.