Fréttablaðið - 19.10.2010, Síða 2
2 19. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
JAFNRÉTTISMÁL Kynbundinn launa-
munur meðal félagsmanna í
Eflingu, Hlíf og Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur og
nágrennis (VSFK) mælist nú 16,7
prósent samkvæmt nýrri könnun.
Munurinn hefur aukist lítillega
frá því í fyrra, þegar hann mæld-
ist 15,7 prósent. Árið 2008 var
munurinn 18,9 prósent.
Kvenkyns félagsmenn í stéttar-
félögunum þremur eru með 25,8
prósentum lægri laun en karl-
kyns félagsmenn. Þegar tekið
hefur verið tillit til aldurs, starfs-
aldurs, starfsstéttar og vinnu-
tíma er kynbundinn launamunur
hins vegar 16,7 prósent. - bj
Kynbundinn launamunur:
Munur aukist í
16,7 prósent
35%
30%
25%
20%
15% 2010
2009
2008
2007
2006
Launamunur
Heimild: Könnun Capacent Gallup
Launamunur
Kynbundinn launamunur
FANGELSISMÁL Afplánunarfangar
sem þurfa að leggjast á sjúkrahús
eru ekki vaktaðir af fangavörðum,
svo fremi sem þeir eru ekki tald-
ir hættulegir. Þetta segir Páll E.
Winkel, forstjóri Fangelsismála-
stofnunar.
Skammt er liðið síðan kven-
kyns fangi strauk af sjúkrahúsi í
tvígang með skömmu millibili. Í
fyrra sinnið auglýsti lögregla eftir
konunni, sem hafði verið alvarlega
veik. Í seinna skiptið skilaði hún
sér aftur af sjálfsdáðum.
„Þegar fangi í afplánun veik-
ist verðum við að meta það hverju
sinni hvort fanginn teljist hættu-
legur sjálfum sér eða öðrum,“
segir Páll. „Ef við teljum okkur
hafa fullvissu fyrir því að fangi
sé annars vegar verulega veikur
og þurfi að fara á sjúkrahús og að
hann sé hins vegar hættulaus, þá
erum við ekki með vaktir fanga-
varða yfir viðkomandi.“
Spurður hvað valdi því að fanga-
vörður fylgi ekki fanga á spítala
segir Páll að það sé talið óþarft,
auk þess sem sólarhringsvaktir af
því tagi séu gríðarlega dýrar.
„Sólarhringurinn kostar um
það bil eitt hundrað þúsund krón-
ur,“ útskýrir Páll og bætir við að
vaktakostnaðurinn sé fljótur að
vinda upp á sig, sé um nokkurra
daga eða jafnvel vikna dvöl á
sjúkrahúsi að ræða.
Spurður hvort algengt sé að
fangar noti tækifærið og láti sig
hverfa af spítalanum segir Páll það
hafa gerst í ákveðnum tilfellum.
„Þá er einfaldlega litið á það sem
strok og hefur afleiðingar fyrir
fangann. Þá er gefin út handtöku-
beiðni og viðkomandi síðan færður
í afplánun aftur þegar hann næst.
Í sumum tilvikum skila menn sér
sjálfir. Yfirleitt ganga þeir ekki
lengi lausir þar til þeir finnast,
sem vill því miður oft verða á stöð-
um sem þekktir eru sem sama-
staðir fíkniefnaneytenda. En í
heildina gengur þetta ágætlega í
langflestum tilvikum.“
Páll segir að almennt sé nokkuð
um að fangar þurfi að leggjast inn
á sjúkrahús. Sumir komi til afplán-
unar eftir langvarandi neyslu og
vandamál tengd henni. Stundum
þurfi sjúkrahúslegu til að koma
þeim til heilsu á nýjan leik.
jss@frettabladid.is
LANDSPÍTALINN VIÐ HRINGBRAUT Páll E. Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar,
segir nokkuð um að fangar þurfi að leggjast inn á sjúkrahús. Ef fangarnir séu ekki
taldir hættulegir séu fangaverðir ekki látnir vakta þá. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fangar eru án gæslu
inni á sjúkrahúsum
Afplánunarfangar sem liggja á sjúkrahúsi um skemmri eða lengri tíma eru
ekki vaktaðir af fangaverði séu þeir ekki taldir hættulegir. Nýlega strauk fangi í
tvígang. Lýst var eftir honum í fyrra skiptið en í hið síðara gaf hann sig fram.
Bjarki, ertu ekki bara þú?
„Jú, einmitt, ég er ekki þessi Bieber.
Þótt það sé fínt að vera líkt við hann
vil ég bara vera ég – Bjarki Lár.“
Bjarki Lár er fimmtán ára söngvari úr
Hafnarfirði sem slegið hefur í gegn með
lagið Bara þú. Bjarka er stundum líkt
við kanadísku unglingastjörnuna Justin
Bieber.
VIÐSKIPTI Arion banki, sem á 99,5
prósent í Högum, hyggst selja kjöl-
festufjárfesti á bilinu 15 til 29 pró-
senta hlut í fyrirtækinu, sem áður
var í eigu Baugsfjölskyldunnar
svokölluðu.
„Fyrsta skref bankans verð-
ur að bjóða til sölu kjölfestuhlut
í því skyni að fá til liðs við félagið
fjárfesti sem veita mun félaginu
forystu til lengri tíma. Að lokinni
sölu á kjölfestuhlut í Högum verð-
ur fagfjárfestum og almennum
fjárfestum gefið færi á að kaupa
hluti í félaginu, og í kjölfarið er
áformað að skrá hlutabréf félags-
ins í íslensku kauphöllinni,“ segir í
tilkynningu sem Arion banki sendi
frá sér í gær. Skráningin í Kaup-
höllina er áætluð á næsta ári.
Þó að ósk Arion banka sé að
Hagar verði í dreifðri eign munu
ýmsir innlendir og erlendir aðilar
hafa lýst áhuga á að eignast stærri
hluti í Högum og jafnvel fyrirtækið
allt. Bankinn ætlar að skoða öll til-
boð og gefur fjárfestum sem áhuga
hafa á að kaupa allan hlutinn kost
á því að leggja inn tilboð á fyrsta
stigi söluferlisins.
„Fyrir bankann er númer eitt að
selja fyrirtækið á sem hagstæðustu
verði,“ sagði Höskuldur H. Ólafs-
son bankastjóri í viðtali við Stöð 2
í gærkvöld. - gar
Arion banki selur Haga í áföngum og áformar skráningu félagsins í Kauphöllina:
Vill fá kjölfestufjárfesti í Haga
HÖSKULDUR H. ÓLAFSSON Bankastjór-
inn í Arion segir að fyrst og fremst eigi
að ná sem hagstæðustu verði fyrir Haga.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRAKKLAND, AP Starfsmenn olíu-
hreinsistöðva í Frakklandi virtu
að vettugi beiðni stjórnvalda um
að þeir sneru aftur til vinnu. Elds-
neytisskortur verður því viðvarandi
í landinu enn um hríð.
Starfsmennirnir efndu til mót-
mæla víða um land gegn hækk-
un eftirlaunaaldurs. Hópar ung-
menna tóku þátt í mótmælunum
og bifreiðastjórar bættust einnig í
hópinn.
Franska þjóðin er afar ósátt við
ákvörðun stjórnvalda um að hækka
lágmarks eftirlaunaaldur úr 60
árum í 62 ár, en hámarksaldur á
jafnframt að hækka úr 65 árum í
67 ár.
Nicolas Sarkozy forseti mælir
fyrir daufum eyrum þótt hann bendi
á að eftirlaunaaldur í Frakklandi
verði eftir sem áður sá lægsti sem
þekkist í Evrópu. Hann nær heldur
ekki eyrum þjóðarinnar þótt hann
bendi á að Frakkar lifi nú mun leng-
ur en áður og að eftirlaunasjóðir séu
óðum að rýrna.
Verkföll olíuvinnslustarfsmanna
hafa haft gríðarleg áhrif í Frakk-
landi. Ökumenn hafa hamstrað elds-
neyti í stórum stíl, en bensínstöðvar
eru að tæmast hver af annarri. - gb
Frakkar mótmæla hækkun eftirlaunaaldurs enn af fullri hörku:
Enn skortir eldsneyti í Frakklandi
ÓEIRÐIR Í FRAKKLANDI Til átaka kom víða um land í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓLK Það voru lukkuleg hjón sem
komu við hjá Íslenskri getspá
með vinningsmiða í lottóinu upp á
rúmar 56 milljónir.
Miðann góða keypti heimilis-
faðirinn í Snælandi á Reykjavík-
urvegi í Hafnarfirði. Hann hlust-
aði svo á útdráttinn með öðru
eyranu á laugardagskvöldið og
heyrði kunnuglegar tölur þar sem
hann hafði valið þær allar sjálfur.
Annar vinningshafi hafði keypt
miða í Select við Vesturlandsveg
í Reykjavík og fékk 2 milljónir í
Jókernum. - gb
Lukkuleg hjón í Hafnarfirði:
Fengu stóra
vinninginn
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í
þrjá sumarbústaði á Suðurlandi.
Tveir bústaðanna eru í Heiða-
byggðarlandi og eru í eigu stétt-
arfélags. Þetta er í þriðja sinn
sem brotist er þar inn á innan
við ári. Í tvö fyrri skiptin náðust
þjófarnir með þýfið. Í þetta sinn
hafa hinir fingralöngu enn ekki
fundist. Þeir stálu flatskjáum.
Þriðji bústaðurinn er við Apavatn
og einnig í eigu stéttarfélags.
Þaðan var stolið raftækjum. - jss
Innbrot í þrjá bústaði:
Þjófar ófundnir
SAMGÖNGUR Engin áform eru
uppi um að opna á ný forgangs-
hlið í vopnaleit á Keflavíkurflug-
velli sem lokað var sumarið 2007.
Þetta kemur fram í áliti umboðs-
manns Alþingis.
Hliðinu, sem gjarnan var nefnt
Gullna hliðið, var ætlað að flýta
för farþega á dýrari farrýmum í
gegnum öryggisleit. Hliðinu var
lokað í kjölfar fréttaflutnings, og
óskaði umboðsmaður í kjölfar-
ið upplýsinga um heimildir til að
starfrækja sérstakt hlið.
Umboðsmaður fylgdi málinu
eftir nýverið og fékk þær upp-
lýsingar að ekki stæði til að opna
hliðið á ný, og er málinu því lokið
af hálfu umboðsmannsins. - bj
Skoðar öryggisleit á flugvelli:
Gullna hliðið
lokað áfram
KÍNA, AP Xi Jinping, varaforseti
Kína, þykir nú líklegur til að taka
við af Hu Jintao forseta á næsta
flokksþingi kínverska Kommún-
istaflokksins, sem haldið verður
eftir þrjú ár.
Xi var á efnahagsþingi flokks-
ins um helgina hækkaður í tign
innan herráðs flokksins.
Línur skýrðust þó lítt á þinginu
um hugsanlegar lýðræðisumbæt-
ur. Wen Jinbao forsætisráðherra,
sem hefur talað um nauðsyn
slíkra umbóta, virðist eiga í bar-
áttu við íhaldssamari félaga sína
í flokknum. - gb
Xi hækkaður í tign:
Lýðræðið bíður
seinni tíma
ÞING KOMMÚNISTAFLOKKSINS Um
helgina var afgreidd næsta fimm ára
áætlun efnahagslífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SPURNING DAGSINS
GOÐSAGNIR UM
SPARPERUR
„... flökta“
OSRAM sparperur flökta ekki. Innbyggði
rafræni stjórnbúnaðurinn sér til þess.
Endursöluaðilar um land allt osram.is
Jóh
an
n Ó
laf
sso
n &
C
o