Fréttablaðið - 19.10.2010, Side 4
4 19. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 18.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,7045
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
111,41 111,95
177,10 177,96
155,04 155,90
20,788 20,910
19,049 19,161
16,710 16,808
1,3717 1,3797
175,15 176,19
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
MENNTAMÁL Séra Halldór Reynis-
son, verkefnisstjóri fræðslusviðs
Þjóðkirkjunnar, segir tillögur
meirihluta mannréttindaráðs
Reykjavíkur um breytingar á
samstarfi skóla og kirkjunn-
ar koma sér á óvart. Hann seg-
ist ekki hafa heyrt af óánægju
meðal skólastjórnenda varðandi
samstarfið.
Nái breytingartillögurnar fram
að ganga munu embættismenn
trúfélaga ekki lengur starfa á
nokkurn hátt í leik- og grunnskól-
um á höfuðborgarsvæðinu. Sam-
starfi kirkju og skóla verður hætt,
sem og heimsóknir barna í kirkj-
ur og fermingarfræðsla á skóla-
tíma. Þegar leita þarf aðstoðar
vegna sálrænna áfalla skal kalla
til fagaðila á borð við sálfræðinga
frekar en fulltrúa trúfélaga.
Varðandi þá tillögu að fagfólk
eins og sálfræðingar eigi að ann-
ast áfallahjálp í skólum frekar en
prestar segir Halldór að fáir vinni
eins mikið með sorg og áföll.
„Við erum fagfólkið,“ segir
hann. „Þegar um mjög alvar-
leg áföll eins og dauðsföll er að
ræða eru það mál sem við erum
fagaðilar í. Ef það má ekki kalla
okkur til að gæta að velferð barn-
anna er ekki verið að tryggja þeim
börnum hina bestu þjónustu.“
Margrét Sverrisdóttir, formaður
mannréttindaráðs, segir tillögurn-
ar á gráu svæði og mikilvægt sé að
halda áfram með þá vinnu sem nú
þegar hafi verið unnin. Foreldrum
sé vissulega frjálst að útvega börn-
unum sínum hverja þá áfallahjálp
sem henti, en fulltrúar trúarhópa
muni ekki sinna þessum störfum
af hálfu skólans á skólatíma.
„Skólinn hefur sitt hlutverk og
kirkjan sitt. Hvor stofnun fyrir sig á
að virða hlutverk hinnar, en til þess
verður að móta skýrar reglur.“
Margrét segir mikilvægt að taka
fram hvaða atriði felist ekki í hug-
myndum mannréttindaráðs. Hún
nefnir þar breytingar á námsefni
eins og kristinfræði, jólaföndri,
sálmasöng og öðru slíku.
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
velferðarráðs, segir mestu máli
skipta að málið sé unnið í sátt borg-
ar og kirkju. Ekki sé ráðlegt að
taka burt samstarf sem verið hafi
til staðar í áratugi án þess að hafa
um það samráð beggja aðila.
„Það er grundvallaratriði að
virða trúfrelsi fólks, en einnig rétt
fólks til trúar,“ segir Björk.
sunna@frettabladid.is
Telur tillögu meirihlutans
bitna á þjónustu við börnin
Tillögur mannréttindaráðs um samstarf kirkju og skóla kveða á um að fagfólk eins og sálfræðingar eigi að
sinna áfallahjálp í skólum fremur en prestar. Við erum fagfólkið, segir verkefnastjóri Þjóðkirkjunnar.
MARGRÉT SVERRISDÓTTIRSÉRA HALLDÓR REYNISSONBJÖRK VILHELMSDÓTTIR
Niðurstöður úr skýrslu starfshóps um samstarf skóla og
kirkju frá árinu 2007:
Fara börnin í heimsókn í kirkju á vegum skólans?
Stofnun Já, fyrir jól Já, fyrir jól og páska Nei, aldrei
Leikskóli 67,6% 2,7% 23,0%
Grunnskóli 81,6% 2,6% 5,3%
Hanga uppi auglýsingar frá kirkjunni í skólanum?
Stofnun Já Nei
Leikskóli 56,9% 43,1%
Grunnskóli 64,9% 35,1%
Eru börn send heim með auglýsingar frá kirkjunni?
Stofnun Já Nei
Leikskóli 11% 89,9%
Grunnskóli 65,8% 34,2%
„Stjórn SAMFOK telur mikilvægt að fram fari markviss umræða skólafólks og
foreldra um þessi mál og telur brýnt að skoða vandlega rök með og á móti
því að taka með þessum hætti ákvörðunarrétt um innra starf úr höndum
skólayfirvalda og foreldra.“
„Stjórn SAMFOK telur að svo stöddu hvorki ljóst að framkomnar tillögur
endurspegli vilja meirihluta foreldra né að ákvæði stjórnarskrár kalli á þær.
Stjórnin telur brýnt að fram fari opin og málefnaleg umræða um þessi mál og
að sjónarmið og afstaða foreldra verði höfð til hliðsjónar við ákvarðanatöku.“
Samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík
Yfirlýsing frá stjórn SAMFOK
Ekki er rétt sem fram kom í Frétta-
blaðinu í gær að verkjalyfið Parkódín
Forte sé ekki til hjá dreifingaaðila.
Aðeins ein pakkningastærð af
lyfinu er á biðlista, það er með þrjú
hundruð stykkjum. Hið rétta er að
pakkningin er til í heildsölu fram í
janúar á næsta ári.
LEIÐRÉTTING
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
17°
9°
12°
9°
10°
10°
10°
24°
12°
19°
15°
30°
8°
12°
18°
9°Á MORGUN
3-10 m/s,
hvassast austan til.
FIMMTUDAGUR
Hæg NA-átt en
hvasst á Snæfellsnesi.
4
5
5
3
2
4
1
4
2
6
-2
4
7
7
6
8
7
6
8
5
7
4
6
3 1
0
4 4
3 0
0
3
SVALT Í VEÐRI
Loks kom að því að
hitastigið lækkaði
á landinu! Næstu
dagar einkennast af
tiltölulega hægum
vindi, norðlægum
áttum og svölu
veðri. Búast má
við nokkuð björtu
veðri sunnan til en
norðanlands eru
horfur á lítils háttar
úrkomu. Hlýjast
verður allra syðst.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
RÚSSLAND, AP Dmitrí Medvedev
Rússlandsforseti veitti rússnesk-
um njósnurum, sem bjuggu í
Bandaríkjunum þar til í sumar
þegar upp upp komst um ráða-
bruggið, æðstu orðu rússneska
ríkisins við hátíðlega athöfn í
Kreml í gær.
Fyrir fjórum mánuðum fengu
Rússarnir tíu að fara aftur til
Rússlands í skiptum fyrir fjóra
Bandaríkjamenn, sem hlotið
höfðu dóm í Rússlandi fyrir
njósnir.
Rússnesku njósnararnir fengu
höfðinglegar móttökur við kom-
una til Rússlands í sumar. - gb
Medvedev veitir orður:
Forseti heiðrar
hóp njósnara
ANNA CHAPMAN Þekktust rússnesku
njósnaranna. NORDICPHOTOS/AFP
KÍNA, AP Kínversk stjórnvöld gáfu
góðfúslega leyfi sitt til fjöldamót-
mæla í nokkrum borgum, en þeim
var beint gegn Japan. Sums staðar
fóru mótmælin úr böndunum og
til átaka kom við lögreglu.
Mikil reiði hefur gripið um sig
meðal almennings í Kína vegna
deilna um yfirráðarétt nokkurra
eyja, sem Kínverjar kalla Diaoyu-
eyjar en Japanar Senkaku-eyjar.
Þegar reiðin tók að beinast gegn
kínverskum stjórnvöldum virðast
þau hafa talið skynsamlegra að
leyfa mótmælin. - gb
Stjórnvöld í Kína:
Mótmæli leyfð
gegn Japönum
FJÁRMÁL „Landsbankinn fór í einu
og öllu að verklagsreglum þegar
skuldir Nónu ehf. voru afskrifað-
ar í janúar 2010,“ segir í tilkynn-
ingu frá Landsbankanum.
Nóna er dótturfélag Skinn-
eyjar-Þinganess. Einn eigenda
þess félags er Halldór Ágríms-
son, fyrrverandi forsætisráð-
herra. Hlutur Halldórs í Skinn-
ey-Þinganesi er 2,37 prósent að
sðgn Landsbankans sem kveðst
engar skuldir hafa afskrifað hjá
félaginu.
Landsbankinn segir að skuldir
Nónu hafi verið færðar niður
í 100 prósent
af eignavirði
til samræmis
við þágildandi
reglur bankans.
Samhliða hafi
eigendur Nónu
lagt félaginu til
nýtt fé. Komið
hefur fram að
Landsbankinn
afskrifaði 2,6
milljarða króna hjá Nónu.
„Með þessari leið og endur-
skipulagningu á skuldastöðu
Nónu ehf. telur bankinn sig
hámarka endurheimtur sínar af
lánum til fyrirtækisins,“ segir
Landsbankinn þar sem núgild-
andi reglur heimila niðurfærslu
skulda í 90 prósent af eignavirði
samhliða 10 prósenta framlagi
eigenda. „Öllum fyrirtækjum
með greiðslugetu stendur sú leið
til boða,“ segir Landsbankinn og
kveður viðskiptavini Landsbank-
ans njóta jafnræðis. „Það þýðir að
fyrirtækjum er hvorki ívilnað né
refsað þó einhver eigandi þeirra
kunni til dæmis að hafa starf-
að í stjórnmálum um lengri eða
skemmri tíma.“ - gar
Landsbankinn segir farið að öllum verklagsreglum við afskriftir:
Hámarka endurheimtur hjá Nónu
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON