Fréttablaðið - 19.10.2010, Síða 8
8 19. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Hafðu samband við fyrirtækjaþjónustu Pennans í síma 540 2050 eða þjónusturáðgjafa í verslunum Pennans; Hallarmúla 2, Hafnarstræti 93 Akureyri,
Strandgötu 31 Hafnarfirði, Sólvallagötu 2 Keflavík, Dalbraut 1 Akranesi, Hafnarstræti Ísafirði, Bárustíg 2 Vestmannaeyjum og Pennanum TRS, Eyrarvegi 37, Selfossi.
Sýningarsalir húsgagnasviðs eru í Hallarmúla 4, Reykjavík og Hafnarstræti 93, Akureyri.
www.penninn.is | pontun@penninn.is
Fáanlegur í öllum verslunum Pennans
Nýr vörubæklingur
Bræðraborgarstíg 9
Á Siglufirði finnst ung kona blóðug og hálfnakin í snjónum,
nær dauða en lífi, aldraður rithöfundur deyr á grunsamlegan
hátt og gleymdir glæpir fortíðar koma upp á yfirborðið í
myrkri, kulda og endalausum snjó.
Blóðugir glæpir á Siglufirði!
ALLIR
VELKOMNIR
– LÉTTAR
VEITINGAR!
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
Í dag kl. 17 fögnum við útgáfu
á glæpasögu Ragnars
Jónassonar, Snjóblindu,
í Eymundsson Skólavörðustíg.
Allir velkomnir!
EFNAHAGSMÁL Fjórði hver félags-
maður í stéttarfélögunum Eflingu,
Hlíf og Verkalýðs- og sjómanna-
félagi Keflavíkur og nágrennis
(VSFK), svokölluðu Flóabanda-
lagi, hefur dregið úr útgjöldum
sínum til heilbrigðismála vegna
versnandi fjárhags. Þetta kemur
fram í niðurstöðum nýrrar skoð-
anakönnunar sem gerð var meðal
félagsmanna.
Ríflega helmingur félagsmanna
hefur áhyggjur af fjárhagslegri
stöðu sinni. Mestar áhyggjur
hefur fólk á aldrinum 25 til 34
ára, en ríflega sex af hverjum
tíu í þeim hópi hafa áhyggjur af
fjárhagnum.
Um fimmtungur félagsmanna
hefur leitað sér aðstoðar vegna
fjármála sinna, og tíundi hver
hefur leitað eftir aðstoð banka
eða fjármálastofnana, samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar.
Félagar í Eflingu, Hlíf og
VSFK vinna yfirleitt hefðbundin
láglaunastörf á borð við almenn
verkamannastörf, störf við ræst-
ingu, leiðbeinendastörf á leikskól-
um og önnur sambærileg störf.
Um var að ræða símakönnun
sem unnin var af Capacent Gallup
fyrir Eflingu, Hlíf og VSFK.
Hringt var í 2.366 manns dagana
26. ágúst til 20. september. Svar-
hlutfallið var 54,4 prósent. - bj
Um helmingur hefur áhyggjur af fjármálunum:
Fjórðungur eyðir
minna í heilbrigði
HEILBRIGÐI Meirihluti þeirra sem þátt tóku í könnuninni eyddi minna í ferðalög og
skemmtanir, en fjórðungur eyddi einnig minna til heilbrigðismála. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM