Fréttablaðið - 19.10.2010, Síða 13

Fréttablaðið - 19.10.2010, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. október 2010 AF NETINU Á að leggja jólin niður? Á sama tíma og fólk í Evrópu gerir sér grein fyrir því að nauðsyn ber til að gæta að þjóðlegri menningu og standa vörð um trúarleg gildi eins og kom m.a. fram í ræðu kansl- ara Þýskalands í gær, þá sér fjölmenningarfólkið í Mann- réttindanefnd ástæðu til að sækja að kristni og íslenskri trúarhefð. Gangi tillögur þessar eftir er spurning hvort ekki sé rökrétt að leggja jóla- hald og jólaskreytingar alfarið niður í skólum og afnema jólafrí. Skyldi þessi fjölmenningarlegi meirihluti hafa velt því fyrir sér hvert börnin í grunnskólum Reykjavíkur eigi að leita huggunar ef eitthvað bjátar á. Í slíkum tilvikum verður líklega bannað að fara með bænir eða leita til þjóna kristinna safnaða gangi tillögur nefndarinnar eftir. jonmagnusson.blog.is Jón Magnússon Persónukjör hefur lengi verið hjartans mál tiltekins hluta þjóðarinnar – stundum jafn- vel kynnt sem hin tæknilega útfærsla á kosningum sem verði flestra meina bót. Er þá væntan- lega gengið út frá þeirri forsendu að íslenskir stjórnmálamenn hafi almennt verið betri og réttsýni fyrir 1959 þegar hlutfallskosn- ingar voru endanlega teknar upp á Íslandi. Fyrir þann tíma var stór hluti þingmanna kjörinn í svokölluðum einmenningskjör- dæmum þar sem kjósendur gátu kosið á milli einstaklinga. Í raun stóð valið í þessum kjördæmum þó oftast á milli eins stórbónda úr Sjálfstæðisflokknum og ann- ars úr Framsóknarflokknum. Núna geta þeir sem komnir eru á efri ár og ólust upp í dreifbýli endurnýjað kynni sín við þetta form en fyrir stóran hluta þjóð- arinnar er hér nýmæli á ferð. Það á nefnilega að kjósa til stjórnlaga- þings með persónukjöri. Um 500 manns hafa nú skilað inn framboði og verður kosið á milli þeirra á grundvelli verðleika þeirra sem einstaklinga. Aðferðin sem á að nota er svo- kölluð forgangsröðunaraðferð (e. single transferable vote). Í henni felst að ef tiltekinn frambjóðandi hlýtur atkvæði umfram tiltekið lágmark (1/26 gildra atkvæða) þá færast þau atkvæði á þá fram- bjóðendur sem kjósendur þess tiltekna frambjóðanda setja í annað sæti. Það gildir einnig um atkvæði greidd frambjóðanda sem er langt frá því að ná kjöri, að þau falla niður og teljast þá greidd því fólki sem kjósendur hans setja í annað sæti. Þannig eiga kjósendur að geta raðað eftir vægi í 25 sæti en í raun og veru skiptir samt mestu máli hvern maður velur í fyrsta sætið, annað og þriðja sæti skipta all- nokkru máli en tæplega atkvæði neðar á listanum. Einungis lítill hluti þeirra 500 sem gefa kost á sér til stjórnlaga- þings telst til þjóðkunnra ein- staklinga. Nokkrir munu varla fá atkvæði annarra en fámenns hóps persónulegra kunningja. Ef kjósandi velur slíka kunn- ingja í þrjú efstu sætin hjá sér eru miklar líkur á því að atkvæði hans hafi á endanum ekkert vægi. Því er freistandi fyrir kjósanda að setja þjóð- kunnan einstakling í fyrsta eða annað sætið til að vera viss um að atkvæði sitt hafi vægi. Nokkr- ar líkur eru því á því að fáeinir frægir muni þannig sópa að sér atkvæðum en fólk taki síður áhættuna á að veðja á frambjóð- endur sem ekki eru þjóðþekktir. Þetta er sú áhætta sem er tekin við persónukjör. Það getur snúist upp í vinsældakosningu eða mælingu á klukkustundum í sjónvarpi sem fólk hefur safn- að sér á lífsleiðinni. Það er nefnilega ekki einfalt mál fyrir kjósendur að velja á milli ein- staklinga sem þeir þekkja lítið til en virðast meira eða minna berjast fyrir auknu lýðræði og gegn spillingu. Einnig er ljóst að frambjóðendur munu hafa misjöfn tækifæri til að kynna sig. Sumir eiga eflaust ekki í vandræðum með að ráðstafa þeim tveimur milljónum sem alþingi hefur gefið frambjóðend- um heimild til að eyða í þessari kosningabaráttu. Aðrir munu ekki hafa efnahagslegt bolmagn eða vilja til að kaupa sér þannig sæti á stjórnlagaþingi. Svo eru það frambjóðendurnir sem flestir kannast við. Meðal þeirra nafna sem kvisast hafa út kannast maður við ansi marga atvinnulausa fjölmiðlamenn, sem ýmist eru á eftirlaunum eða búnir að missa vinnuna í kreppunni. Einstaka háskóla- maður virðist ætla að nota rann- sóknamisserið sitt í að sitja á stjórnlagaþingi. Svo eru það bloggarar af ýmsu tagi sem gefst núna færi á að komast að því hversu víða frægð þeirra hefur borist. Og forstöðumaður Vinnumálastofnunar. Það verð- ur að viðurkennast að nafn hans á þessum lista vekur vissa for- vitni og jafnvel ugg. Það getur ekki verið góður fyrirboði að forstöðumaður þeirrar stofnun- ar sem sér um málefni atvinnu- lausra sé núna að leita að sér vinnu, þó að hún sé að vísu aðeins tímabundin. Að öllu gamni slepptu er skipan stjórnlagaþings merk tilraun í íslensku samfélagi og kannski í anda hennar að gera aðra tilraun í leiðinni, með inn- leiðslu persónu kjörs. Ætla má að frammistaða stjórnlagaþingsins muni hafa áhrif á framtíð þess- arar kosningaaðferðar í fram- tíðinni. Ef það heppnast vel mun þeim eflaust fjölga sem trú hafa á persónukjöri. Annars gæti hið gagnstæða orðið raunin. Persónukjör að fornu og nýju Sverrir Jakobsson sagnfræðingur Í DAG Þetta er sú áhætta sem er tekin við persónukjör. Það getur snúist upp í vinsældakosningu eða mælingu á klukkustundum í sjónvarpi sem fólk hefur safnað sér á lífsleiðinni. Samningaviðræður Íslands við ESB Klárum dæmið Hvernig má auka pólitíska samstöðu um að ljúka aðildarviðræðum? Fundur í Iðnó fimmtudaginn 21. október kl. 8:15 - 9:30 Kaffibolli og rúnnstykki í upphafi fundar Semjum og látum þjóðina ákveða G. Valdemar Valdimarsson, formaður alþjóðanefndar Framsóknarflokksins Margrét Guðmundsdóttir, formaður Félags atvinnurekenda Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi og ritari stjórnar VG Geta þingmenn náð höndum saman? Birkir Jón Jónsson, alþingismaður og varaformaður Framsóknarflokksins Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, varaformaður VG Valgerður Bjarnadóttir, alþingismaður Fundarstjóri er Jón Steindór Valdimarsson, formaður Sterkara Íslands Nánari upplýsingar á www.sterkaraisland.is ÞAÐ ER HOLLT AÐ SPARA LÆGRA LYFJAVERÐ Í 14 ÁR –einfalt og ódýrt Spönginni • Hólagarði • Hagkaup Skeifunni • Hagkaup Akureyri D Y N A M O R E Y K JA V ÍK Au gl ýs in ga sím i

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.