Fréttablaðið - 19.10.2010, Síða 21
bílar ● fréttablaðið ●ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2010 3
Bandaríski ljósmyndarinn Roger Snider
hefur mikla ástríðu fyrir ofurtrukkum sem
aka um þjóðvegi Ameríku.
Roger Snider var harðákveðinn í að
verða vörubílstjóri þegar hann var að-
eins átta ára. Það fór þó svo að annar
draumur varð hinum yfirsterkari
þegar hann kynntist ljósmyndun. Hann
starfaði lengi sem tískuljósmyndari í
Miami, San Francisco, New York og
Los Angeles.
Fyrir tilviljun fékk hann verkefni
við að mynda sannkallaða ofurtrukka
fyrir leikstjóra sem vann að mynd um
slík farartæki. Stuttu síðar fór hann á
sína fyrstu trukkasýningu og eftir það varð
ekki aftur snúið.
Fyrir utan önnur ljósmyndaverk-
efni hefur Snider haft það að ástríðu
að mynda flottustu trukka landsins og
heimsins en hann hefur einnig ferð-
ast til annarra landa og mynd-
að trukkamenningu þeirra.
Hann hefur gefið út tíu ljós-
myndabækur þar sem trukk-
ar eru í sviðsljósinu en
helsta markmið Sniders er
að kynna trukkamenning-
una fyrir almenningi.
Þeim sem vilja kynna sér
starf Sniders nánar er bent
á www.ultrarigsoftheworld.
com og www.rogersnider.
com. - sg
Ofurtrukkar á þjóðvegum Ameríku
Mikið hefur verið lagt í innviði sumra
trukkanna.
Trukkarnir eru margir hverjir ævintýra-
legir á að líta. MYNDIR/ROGER SNIDER
Helgi Þórsson myndlistarmaður
á lítið lillablátt rúgbrauð með
gardínum. Tegundin er ítölsk og
heitir Piaggio, eins og vespurn-
ar. Árgerðin er 2000. „Ég var að
leita að svona bíl í fyrrasumar til
fara á til Noregs með málverk á
sýningu í Moss.
Var á ferð í Hafnarfirði og sá
þennan standa bilaðan utan við
verkstæði. Ég hafði samband við
eigandann og falaði af honum bíl-
inn. Síðan lét ég gera við hann,
málaði hann og setti upp gard-
ínur, tók svo Norrænu til Dan-
merkur og aðra ferju þaðan yfir
til Noregs.“
Sá fjólublái hefur sést á hvíta
tjaldinu því Helgi lánaði hann í
kvikmyndina Kóngavegur. Þá
voru gardínurnar teknar úr að
hluta og Helgi kveðst ekki hafa
komið því í verk að setja þær
upp aftur. En skyldi Piaggio vera
sparneytinn? „Já ef maður keyr-
ir ekki eins og bjáni,“ segir eig-
andinn glaðlega. „Hann er samt
svolítið eins og mótorhjól, maður
finnur svo vel fyrir hraðanum og
það hvetur mann til að glanna
svolítið.“ - gun
Bíllinn úr Kóngavegi
Helgi sá bílinn fyrir utan verk-
stæði í Hafnarfirði, hringdi í
eigandann og falaði gripinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Borgardekk
● AÐ SKIPTA UM DEKK
■ Drepið á bílnum og setjið í
handbremsu.
■ Takið hjólkopp af og losið
rærnar.
■ Tjakkið bílinn upp og takið
dekkið undan.
■ Rennið varadekkinu upp á
boltana og festið rærnar.
■ Látið bílinn síga niður og takið tjakkinn undan.
■ Herðið rærnar vel.
■ Akið á dekkjaverkstæði.
Heimild: Svona á að... eftir Derek Fagerstrom, Lauren Smith og fleiri.