Fréttablaðið - 19.10.2010, Blaðsíða 22
19. OKTÓBER 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● bílar
Vel merktur vörubíll.
Slök útkoma Hvalfjarðarganganna í jarð-
gangaúttekt EuroTAP var meðal þess sem
rætt var á morgunverðarfundi samgöngu-
nefndar Evrópuþingsins í Brussel í síðustu
viku. Fulltrúar FÍB sátu fundinn með Brian
Simpson, formanni samgöngunefndar Evr-
ópuþingsins, ásamt fulltrúum nokkurra
bifreiðaeigendafélaga innan FiA.
Eins og fram kemur á fréttavef FÍB var
rætt á fundinum almennt um bætt umferð-
aröryggi, starfsemi og öryggismarkmið
Evrópudeildar FIA og aðildarfélaga innan
samtakanna, þar á meðal FÍB.
Robert Sauter frá ADAC í Þýskalandi,
stjórnandi EuroTAP, lýsti Hvalfjarðar-
göngunum sem svartholi með engu inni í.
Það vekti athygli að tiltölulega nýleg veg-
göng reyndust svo aftarlega á merinni í
öryggismálum. Af þeim 26 göngum sem
tekin voru út af EuroTAP á þessu ári hefðu
fern göng reynst hafa öryggiságalla og ein
þeirra þó sýnu verst – Hvalfjarðargögnin
á Íslandi.
Nánar verður hægt að lesa um könnun-
ina í FÍB blaðinu.
- rat
Göngin sögð vera svarthol
Hvalfjarðargöngin voru sögð svarthol með engu inni í á fundi samgöngunefndar Evrópuþingsins í Brussel.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Kennslubifreið Öku- og vinnu-
vél a skól a Í s l a nd s f y r i r
meiraprófskennslu hefur verið auð-
kennd að aftan með endurskinsborð-
um sem ramma flutningakassann
inn. Það gefur ótvírætt til kynna að
um stóran bíl sé að ræða.
Knútur Halldórsson, skóla-
stjóri Öku- og vinnuvélaskóla Ís-
lands, segir þetta vera lið í um-
ferðaröryggi enda eigi skólinn að
vera öðrum til eftirbreytni. „Víða
í Evrópu eru stórir bílar merktir
með þessum hætti. Nú er að koma
svartasta skammdegið hjá okkur
hér á Íslandi og okkur fannst til-
valið að merkja okkar bíl á sama
hátt. Þetta hefur vakið eftirtekt og
margir hafa hringt í okkur, bæði
með fyrirspurnir og einnig til að
lýsa ánægju sinni.“ - gun
Alvöru
endurskin
● ELDSNEYTISSPAR-
ANDI AKSTUR Hér eru
nokkur mikilvæg atriði í sam-
bandi við vistakstur:
■ Skiptu snemma upp
■ Forðastu háan snúningshraða
■ Haltu jöfnum hraða
■ Forðastu ónauðsynlega
hemlun
■ Aktu strax af stað eftir ræsingu
■ Notaðu hraðastilli og hand-
virka hraðatakmörkun
■ Forðastu ónauðsynlegan
lausagang
■ Ekki vera með dót í bílnum
sem þyngir hann að óþörfu
■ Réttur loftþrýstingur skal vera
í dekkjum
Við leitum að góðu fólki
Á vefnum getur þú með einföldum hætti flett í gegnum og skoðað atvinnuauglýsingar
Fréttablaðsins. Þú kaupir atvinnuauglýsingu í Fréttablaðinu - öflugasta auglýsingamiðli
ALLT ATVINNA fylgir helgarblaði Fréttablaðsins... og birtist á í viku
...ég sá það á visir.is
landsins og hún birtist frítt í heila viku á einum stærsta vefmiðli landsins –
og Fréttablaðið kynna nýjan og öflugan atvinnu- og raðauglýsingavef