Fréttablaðið - 19.10.2010, Side 38
26 19. október 2010 ÞRIÐJUDAGURBESTI BITINN Í BÆNUM
„Það er komið endanlegt grænt
ljós á myndina, ég flyt út á sunnu-
dag og verð í New Orleans og Pan-
ama næsta hálfa árið. Vonandi geta
konan og börnin komið og verið eitt-
hvað með mér úti. Ég fæ smá jóla-
frí og klára þá síðustu tökurnar af
Djúpinu,“ segir Baltasar Kormákur
kvikmyndaleikstjóri.
Samningar eru í höfn við stór-
fyrirtækið Universal um að fram-
leiða og dreifa Contraband, end-
urgerð Reykjavík-Rotterdam, í
samvinnu við Working Title. Það
er því nánast gulltryggt að mynd-
inni verði dreift í tvö til þrjú þúsund
kvikmyndahús þar vestra. Fram-
leiðslukostnaður er áætlaður í kring-
um fjörutíu til fimmtíu milljónir
dala, sem jafngildir rúmum fjórum
milljörðum íslenskra króna. Eins og
Fréttablaðið hefur greint frá fara
Mark Wahlberg og Kate Beckinsale
með aðalhlutverkin í myndinni. Uni-
versal er eitt af stóru kvikmynda-
verunum í Hollywood og samning-
ur þessi er sá stærsti sem íslenskur
kvikmyndaleikstjóri hefur náð.
Baltasar forsýndi á sunnudag
Inhale í Háskólabíói, kvikmynd
sem lengi hefur verið beðið eftir.
Ólíkt mörgum öðrum myndum
eftir leikstjórann hefur frumsýn-
ing myndarinnar farið óvenju hljótt
en hún fer í almennar sýningar
seinna í vikunni. „Ég ákvað bara
að leyfa myndinni að tala fyrir sig
sjálfa, ef fólk „fílar“ hana þá kynn-
ir hún sig sjálf, ef ekki þá hverfur
hún bara smátt og smátt.“ Miðað
við viðbrögð áhorfenda í stóra sal
Háskólabíós voru flestir hrifnir.
„Ég var afskaplega ánægður, mynd-
in er búin að vera lengi á leiðinni og
það var kannski búið að tala niður
væntingarnar fyrir henni. Ég var
sjálfur mjög stressaður því maður
veit aldrei hvernig fólk tekur verk-
unum manns, maður ætti að vera
kominn með þykkari skráp eftir
allan þennan tíma.“
Baltasar kveðst hins vegar feg-
inn að hafa gert Inhale, sem er í
minni kantinum á amerískan mæli-
kvarða, áður en hann tekur stökkið
út í stóru hákarlalaugana. „Þarna
fékk maður tækifæri til að fást við
verkalýðsfélögin og öll þessi hlið-
arverkefni sem fylgja kvikmynda-
gerð þarna úti. Það hefði ekki verið
sniðugt að gera strax stóra stúdíó-
mynd blautur á bakvið eyrun.“
Nú þarf leikstjórinn til að mynda
að fara á fund hjá tuttugu jakka-
fataklæddum körlum á stórri skrif-
stofu í höfuðstöðvum Universal og
útskýra fyrir þeim hvernig hann
ætli að gera myndina. Leikstjórinn
virðist hafa veðjað á réttan hest
hvað Wahlberg varðar, því stjarna
hans hefur sennilega aldrei skin-
ið jafn skært, og fólk bíður spennt
eftir endurkomu Kate Beckinsale.
„Þetta virðist ætla að smella ansi
vel og það eru fleiri nöfn að detta
inn núna.“ freyrgigja@frettabladid.is
BALTASAR KORMÁKUR: FLYTUR TIL NEW ORLEANS OG PANAMA
Gerir draumasamning við
stórfyrirtækið Universal
Norska poppsveitin Datarock
kemur fram á tónleikaröðinni
Direkt, sem fer fram í Reykja-
vík dagana 4.-6. nóvember. Tón-
leikaröðin er hluti af norrænu
listahátíðinni Ting, sem er hald-
in í tilefni af afhendingu Norrænu
menningarverðlaunanna í tónlist
í Reykjavík.
„Datarock var hérna á Airwaves
árið 2006 og er ein allra skemmti-
legasta tónleikagrúppa sem ég hef
séð á ævi minni,“ segir skipuleggj-
andinn Steinþór Helgi Arnsteins-
son. „Þeir eru allir í brjálæðis-
lega miklu stuði fyrir komunni
hingað því þeir skemmtu sér
svo vel síðast.“ Þótt þeir Fredrik
Saroea og Ketil Mosnes séu kjarni
Datarock koma þeir hingað ásamt
fríðu föruneyti og verða með heila
hljómsveit með sér á tónleikum
sínum á Nasa 5. nóvember.
Sænska hljómsveitin Wild-
birds & Peacedrums stígur einn-
ig á svið á Direkt, rétt eins og
Slaraffenland frá Danmörku,
Budam frá Færeyjum og íslensku
sveitirnar Hjaltalín, Retro Stef-
son, Berndsen og Orphic Oxtra.
Wildbirds & Peacedrums er
ein heitasta hljómsveit Svía um
þessar mundir. Hún spilaði við
afhendingu sænsku Polar-verð-
launanna sem Björk hlaut á dög-
unum. Einnig tók sveitin upp sína
síðustu plötu í Gróðurhúsinu hér
á landi með aðstoð kórsins Schola
Cantorum. Kórinn kemur einmitt
fram bæði með hljómsveitinni og
Hjaltalín á hátíðinni. „Það verður
rúsínan í pylsuendanum,“ segir
Steinþór.
Direkt-tónleikaröðin fer fram
á Nasa, í Fríkirkjunni og í Tjarn-
arbíói. Miðasala er hafin á Midi.
is, Máli og menningu Laugavegi
18 og Skífunni í Kringlunni. - fb
Norræn tónleikaröð á Íslandi
DATAROCK Norska gleðipoppsveitin
spilar á Nasa 5. nóvember. Forsprakkar
hennar eru Frederik Saroea og Ketil
Mosnes. MYND/TOM OXLEY
„Þetta tók á, það er óhætt að segja það,“ segir
nýkrýndur Íslandsmeistari í póker, Stefán Jóhann
Arngrímsson.
217 keppendur hófu leik á Íslandsmeistaramót-
inu í póker á Hótel Örk í Hveragerði síðasta föstu-
dag. Stefán Jóhann tryggði sér sigur aðfaranótt
mánudags og fékk í sigurlaun tvær milljónir og
sex hundruð þúsund.
„Það er ekki búið að ráðstafa verðlaunafénu, ég
er ekki kominn svo langt,“ segir Stefán og bætir
við að húsmóðirin á heimilinu verði höfð með í
ráðum. „En það verður tekinn hluti af fénu frá
fyrir næsta Íslandsmeistaramót.“
Stefán er þriggja barna faðir og starfar sem
vefstjóri hjá Flugfélagi Íslands. Hann byrjaði að
spila póker fyrir rúmum tveimur árum og segist
spila á litlum mótum á netinu, en hann hefur yfir-
leitt ekki tíma í þau stóru. „Þetta var langstærsta
mót sem ég hef tekið þátt í, þar sem maður þarf
að setjast niður og mæta öðrum spilurum,“ segir
Stefán. Hann segir mótið hafa tekið á, enda teygði
það sig yfir þrjá daga. „Ég var alveg búinn. Þetta
tekur lúmskt á – að sitja svona lengi og þurfa að
halda einbeitingu.“
Stefán vann þátttökurétt á Íslandsmeistara-
mótinu í gegnum vefsíðuna Betsson, sem styrkti
mótið ásamt Iceland Express og Ölgerðinni.
Hann eyddi um 5.000 krónum í undanmót, sem
honum tókst að breyta í vel á þriðju milljón með
sigrinum. „Það er fín ávöxtun, það er ekki hægt
að neita því,“ segir Stefán og endar á því að hrósa
Pókersambandi Íslands fyrir gott mót. „Þetta var
mjög góð skemmtun og það var upplifun að fá að
taka þátt í þessu. Þetta var bara frábært.“ - afb
Fjölskyldufaðir Íslandsmeistari í póker
ÍSLANDSMEISTARI Ferð Stefáns til Hveragerðis
um helgina var sannarlega til fjár.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ALLT ANNAR LEIKUR Baltasar
Kormákur þarf nú að fást við
jakkafataklædda karla þegar
tökur hefjast á Contraband,
endurgerð Reykjavík-Rotterdam.
Hann flytur út á sunnudag og
verður búsettur í New Orleans
og Panama næsta hálfa árið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Hamborgarabúlla Tómasar
á B5. Ég fæ mér alltaf tilboð
aldarinnar og extra kokteilsósu
og franskar.“
María Birta Bjarnadóttir, leikkona í kvik-
myndinni Órói.
Verð án VSK kr. 25.697*
Verð með VSK kr. 32.250
Miele ryksugurnar eru í senn kraftmiklar, hljóðlátar, léttar
og þægilegar í notkun og fást þær í nokkrum litum.
Hægt er að setja ofnæmissíur í ryksugurnar.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Virðisaukinn af öllum Miele
ryksugum þessa viku
*G
ild
ir
á
m
eð
an
b
ir
gð
ir
e
nd
as
t.
Tækifæri til sparnaðar
– Þú finnur fjölda girnilegra uppskrifta að kvöldmatnum á www.gottimatinn.is
MÍN SKOÐUN
ALLA VIRKA DAGA
KL. 13 – 15