Fréttablaðið - 20.10.2010, Page 4
4 20. október 2010 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNMÁL Skuldir einstaklinga fyrnast tveim-
ur árum eftir gjaldþrot í stað fjögurra áður,
samkvæmt frumvarpi sem ríkisstjórnin tók
fyrir á fundi sínum í gær. „Með þessu verða
þeir sem fara í gjaldþrot ekki eltir út yfir
gröf og dauða. Málið fer væntanlega fyrir
þingið í vikunni,“ sagði Jóhanna Sigurðardótt-
ir forsætisráðherra á blaðamannafundi eftir
ríkisstjórnarfundinn. Fyrir svörum sat einnig
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.
Enn verður þó til farvegur í gegnum dóm-
stóla til að viðhalda kröfum, að sögn Stein-
gríms, séu til þess réttmætar ástæður. „Það
er ekki ástæða til þess að skaðabætur, sekt-
ir eða annað sem menn hafa verið dæmdir í
fyrnist,“ sagði hann. Farvegur til þess að end-
urnýja og viðhalda kröfum yrði hins vegar
þrengdur til muna og sýna yrði fram á það
fyrir dómi að slíkar aðgerðir þjónuðu tilgangi
og líkur væru á að eitthvað hefðist upp í kröf-
una.
Jóhanna sagði fleiri mál sem sneru að
„bráðavanda“ heimilanna hafa verið rædd í
ríkisstjórn í gær. Búast mætti við að frum-
varp efnahags- og viðskiptaráðherra um
gengistryggð lán yrði lagt fyrir ríkisstjórnina
á föstudag, sem og svonefnt „lyklafrumvarp“.
Vegna skaðabótaábyrgða yrði ekki hægt að
láta ákvæði lyklafrumvarpsins vera aftur-
virkt. Eins sagði Jóhanna verið að skoða stöðu
ábyrgðarmanna, en líkt og með lyklafrum-
varpið þyrfti að ná samningum við lánastofn-
anir um hvernig farið yrði með mál þeirra.
Steingrímur sagði æskilegast að samkomu-
lagi yrði náð um stöðu ábyrgðarmanna, enda
væri mál þeirra mjög snúið. „Sú hugmynd
hefur verið rædd að ábyrgð og lánsveð sæti
sambærilegri niðurfærslu í skuldaendur-
skipulagningu og aðrar kröfur. Krafan lækki
hlutfallslega í samræmi við niðurfærslu
skuldarinnar, en standi að öðru leyti.“ Eins
segir hann hafa verið rætt að ekki verði geng-
ið að ábyrgðarmönnum umfram greiðslugetu.
„En það þarf samkomulag til, því það er alveg
ljóst að stjórnarskráin ver þetta ígildi eign-
arréttar sem þarna er á ferð, alveg eins og
annað.“
Steingrímur og Jóhanna áréttuðu bæði
mikil vægi þess að mynd úrlausna fyrir bæði
fólk og fyrirtæki í greiðsluvanda skýrðist
Erfiðara að viðhalda kröfum
Skuldir fyrnast á tveimur árum í stað fjögurra áður, samkvæmt nýju frumvarpi. Á föstudag á að leggja fyrir
ríkisstjórn frumvarp um gengistryggð lán og lyklafrumvarp. Samið við banka um stöðu ábyrgðarmanna.
Gert er ráð fyrir að sérfræð-
ingahópur sá er liggur yfir
útreikningum vegna átta til níu
leiða, sem gagnast eiga hópum
sem ekki duga bráðaúrræði,
liggi fyrir um eða eftir næstu
helgi, að því er forsætisráðherra
upplýsti eftir ríkisstjórnarfund í
gær. Að útreikningunum koma
Hagsmunasamtök heimilanna,
fjármála- og forsætisráðuneyti,
bankar, lífeyrissjóðir og Íbúða-
lánasjóður. Síðan segir Jóhanna
að ríkisstjórnin þurfi að vinna úr
niðurstöðunum með stjórnar-
andstöðunni áður en blásið
verði til stórs fundar allra sem
komið hafi að.
„Þannig að einhvern tíma mun
þetta taka, en verið er að vinna
hratt og örugglega að öllum
þessum málum,“ sagði hún.
Jóhanna segir ekki búið að
blása af með öllu flata almenna
niðurfellingu skulda, óháð
greiðslugetu og skuldastöðu,
þótt enn standi orð hennar um
að ólíklegt sé að samningar
náist við lánastofnanir um slíkar
aðgerðir. Verið sé að skoða fleiri
útfærslur slíkra aðgerða, svo
sem stiglækkandi niðurfærslu
eftir skuldastöðu. „Það er verið
að skoða ýmsar leiðir í því og
það er það sem þessir reikni-
meistarar eru að gera.“
Niðurstaða útreikninga eftir næstu helgi
EFTIR RÍKISSTJÓRNARFUND Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra svöruðu spurningum fjölmiðlafólks að loknum ríkisstjórnarfundi í hádeginu í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
sem fyrst. Frumvörp væru á mismunandi
stigum og vonandi styttist í samkomulag við
fjármálafyrirtækin um aðgerðapakka fyrir
fyrirtæki. „En það er eitt sem er mikilvægt
og vert að halda til haga,“ sagði Steingrím-
ur. „Það þarf enginn að fresta því að fara í
úrvinnslu sinna mála, standi honum til boða
úrræði í dag, vegna þess að það verður aldrei
neinn betri réttur af fólki tekinn. Þannig er
eðli allra þessara aðgerða.“ olikr@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
17°
9°
8°
8°
4°
10°
10°
24°
8°
21°
16°
30°
4°
9°
17°
6°Á MORGUN
Strekkingur allra austast
og á Snæfellsnesi.
FÖSTUDAGUR
Strekkingur allra aust-
ast og á Snæfellsnesi.
-2
-1
-1
1
2
1
2 -1
1
-1
4
4
2
2
3
2
1
4
3
6
-3
4
5
7
6
7
7
11
6
5
6
5
15
ÉL NORÐANTIL
Það verða él norð-
an- og austanlands
næstu daga en
þó ætti að verða
bjart þar um tíma
í dag. Sunnan- og
vestanlands verður
bjartviðri að mestu.
Það er rétt að gera
ráð fyrir nætur-
frosti víða um land
næstu daga og
möguleika á hálku
að morgni dags.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
FRAKKLAND, AP Grímuklædd ung-
menni tókust á við lögreglu í
nokkrum borgum Frakklands í
gær, þar sem fjöldi fólks hefur
mótmælt áformum stjórnvalda um
að hækka eftirlaunaaldur.
Samgöngur voru víða í lama-
sessi í landinu. Hætta þurfti við
hundruð flugferða, langar bið-
raðir mynduðust við bensínstöðv-
ar og lestarsamgöngur féllu víða
niður. Æ meiri harka er að færast í
mótmælin og er óttast að átök fari
vaxandi næstu daga. Nicolas Sar-
kozy forseti gaf í gær loforð um að
lög og regla verði tryggð og óláta-
seggir teknir úr umferð. - gb
Enn mótmælt í Frakklandi:
Harka færist
í mótmælin
ÁTÖK Í LYON Sarkozy ætlar að taka hart
á málunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
TÆKNI Með hugmyndum Sambands
tónskálda og eigenda flutnings-
réttar (STEF) um lagningu gjalda
á nettengingar er beinlínis verið
að vega að hagsmunum annarra
skapandi atvinnugreina, svo sem
tölvuleikjaframleiðenda, að mati
Samtaka tölvuleikjaiðnaðarins á
Íslandi (IGI).
Samtökin mótmæla hugmynd-
unum harðlega, og segja að slíkt
gjald myndi koma bæði niður á
fyrirtækjum í tölvuleikjaiðnaðin-
um og viðskiptavinum þeirra. - bj
Mótmæla hugmyndum STEF:
Vega að tölvu-
leikjaiðnaði
ALÞINGI Hreyfingin vill að heim-
speki verði skyldufag í grunn- og
framhaldsskólum.
Í greinargerð með þingsálykt-
unartillögu segir að mikilvægt sé
að styrkja ábyrgðarkennd nem-
enda gagnvart samfélaginu og
stuðla jafnframt að gangrýninni
hugsun, sem sé ein meginfor-
senda þess að borgarar geti verið
virkir þátttakendur í lýðræðis-
samfélagi. Vill Hreyfingarfólk að
grunnskólanemar fái heimspeki-
kennslu annað hvert ár og fram-
haldsskólanemar árlega. - bþs
Heimspekin verði skyldufag:
Ábyrgðarkennd
nemenda styrkt
SAMGÖNGUMÁL „Maður bara horf-
ir upp í himininn,“ er fyrsta svar
Sigmars Jónssonar, hafnarvarð-
ar í Landeyjahöfn, þegar hann
er spurður hvað hann fáist við á
meðan Vestmannaeyjaferjan Herj-
ólfur kemst ekki inn í höfnina
vegna sands í innsiglingunni.
„Nei, það er ekki það,“ heldur
Sigmar áfram. „Það er ýmislegt að
dudda. Það er verið að binda enda-
hnútinn á lóðaframkvæmdir þannig
að það er ýmislegt að horfa í.“
Eftir nokkra bið er áhöfn dýpk-
unarskipsins Perlunnar tekin til
óspilltra málanna við að dæla
sandi úr innsiglingu Landeyja-
hafnar. Þangað til því verki er
lokið heldur miðasölufólkið fyrir
Herjólf sig í Þorlákshöfn þaðan
sem ferjan siglir á meðan nýja
höfnin er enn lokuð.
Sigmar er því eini starfsmaður-
inn í Landeyjahöfn þessa dagana.
Hann segir útlitið hins vegar alveg
ágætt.
„Það er best að gefa ekki neitt
út um það hvenær verður farið af
stað,en eftir því sem Perlan fer
fleiri ferðir og dýpkar meira þá
styttist í það,“ segir hafnarvörð-
urinn í Landeyjahöfn. - gar
Hafnarvörður hefur lítið fyrir stafni en er bjartsýnn eftir komu dýpkunarskips:
Óvíst hvenær Landeyjahöfn opnast
LANDEYJAHÖFN Loka hefur þurft
höfninni vegna gífurlegs aurburðar sem
sérfræðingar segja að sé að miklu leyti
gosefni úr Eyjafjallajökli.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 19.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,6183
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
111,44 111,98
176,01 176,87
155,16 156,02
20,804 20,926
19,032 19,144
16,704 16,802
1,3674 1,3754
175,04 176,08
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR