Fréttablaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 20.10.2010, Blaðsíða 10
 20. október 2010 MIÐVIKUDAGUR fenginn til að sinna því. Samstarfið náði ekki lengra en á undirbúnings- stigið. Þegar kom að því að dönsk stjórnvöld fóru að fjárfesta í búnaði og þjálfun fyrir sérfræðinga sína heltist Ísland úr lestinni. Einnig hefur verið unnið að und- irbúningi innan Póst- og fjarskipta- stofnunar, en þar eins og hjá Varn- armálastofnun stoppar málið á kostnaðinum. Sérfræðingar á sviði fjarskipta- og varnarmála sem Fréttablað- ið hefur rætt við segja stjórnvöld ekki hafa neinar leiðir til að bregð- ast við tölvuárás eins og aðstæður séu í dag. Norðmenn eru komnir lengra en Danir og hafa mun öfl- ugri varnir en Danir hafa hugsað sér að byggja upp. Ekki er ljóst hver kostnaður Íslands af því að koma upp vörnum gegn tölvuárásum gæti verið. Áætl- un sem Póst- og fjarskiptastofnun hefur gert hljóðar upp á fimmtíu til sextíu milljóna króna kostnað á ári og um tíu milljóna króna upphafs- kostnað til viðbótar. Atlantshafsbandalagið hefur byggt upp varnir gegn tölvuárásum en þær varnir miðast að miklu leyti við að verja eigin kerfi og koma til aðstoðar sé árás gerð á tölvukerfi vinveitts lands. Á meðan hinar Norður- landaþjóðirnar hafa byggt upp varnir gegn tölvuárás- um hafa íslensk stjórnvöld verið aðgerðalítil. Undir- búningur hófst árið 2008 en ekki hefur fengist fé til slíkra varna. Hryðjuverkaárásir og tölvuárásir eru meðal þeirra ógna sem bresk stjórnvöld telja helst steðja að Bretlandi um þessar mundir, sam- kvæmt nýrri skýrslu um varnar- mál. Aðrar Norðurlandaþjóðir hafa á undanförnum árum lagt áherslu á uppbyggingu varna gegn tölvuárás- um en Íslendingar hafa setið eftir og eru með litlar sem engar varnir gegn slíkum árásum. Tölvuárásir geta verið af marg- víslegum toga og misalvarlegar. Þær eru í sumum tilvikum gerð- ar til að brjótast inn í tölvukerfi í þeim tilgangi að afla upplýsinga eða skemma gögn. Aðrar árásir miða að því að lama vefsíður og jafnvel samskiptakerfi heilla landa með því að auka álagið á þessi kerfi úr öllu hófi. Það getur leitt til þess að Netið virkar illa eða ekki og getur haft áhrif á sum sím- kerfi og fleira. Þeir sérfræðingar sem Frétta- blaðið hefur ráðfært sig við telja að líkurnar á árásum af þessum toga hér á landi séu nægilega miklar til þess að þörf sé á því að byggja upp varnir gegn þeim. Alvarlegri árásir eru einnig mögulegar, en þær eru mun ólík- legri almennt séð, hvað þá hér á landi. Dæmi um slíkar árásir væri að nota segulbylgju til að skemma harða diska í ákveðinni byggingu eða byggingum, sem eyðileggur öll gögn á diskunum. Sérfræðingar eru sammála um að Íslendingar þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af þessum mögu- leika, en tiltölulega ódýrt sé að vera viðbúinn honum. Það megi gera með því að geyma öryggisafrit af mikilvægum tölvukerfum í vörðum byggingum. Slíkar byggingar eru til á svæði Varnarmálastofnunar á Miðnesheiði. Danir ákváðu árið 2008 að koma þyrfti upp vörnum við tölvuárás- um, og buðu íslenskum stjórnvöld- um samstarf. Boðið var þegið og starfsmaður Varnarmálastofnunar Stjórnvöld sögð varnar- laus gegn tölvuárásum Lítið land eins og Ísland ætti ekki að hafa minni áhyggjur af tölvuárásum en stærri ríki, enda tölvuárásir þess eðlis að þær gera ekki upp á milli ríkja, segir dr. Paul Cornish, sér- fræðingur í alþjóðlegum varnarmálum við Chatham House hugveituna í Bretlandi. Hann bendir á að lönd sem séu lengra komin í því að koma á rafrænni stjórnsýslu en stærri lönd á borð við Bret- land ættu að taka hættuna á tölvuárásum alvarlega. „Ég sé ekki fyrir mér að margir tölvuþrjótar eigi sér þann draum heitastan að komast inn í tölvukerfin á Íslandi, á svipaðan hátt og marga þeirra dreymir um að komast inn í kerfin hjá varnarmálaráðuneytinu í Bandaríkjunum,“ segir Cornish. Hann segir að hafa verði í huga að Ísland sé mjög háð sínum tölvukerfum, svo varnir þeirra kerfa ættu að vera mönnum ofarlega í huga. „Það sem á við í öðrum löndum á einnig við á Íslandi. Viðbrögðin við mögulegri tölvuárás verða að koma frá stjórn- völdum, ríkisstofnunum, almenningi og fyrirtækjum,“ segir Cornish. Árásir geti gert mikinn skaða og samstöðu þurfi um að vinna gegn því að svo verði. Ógnirnar geta verið af mörgum toga, segir Cornish. Þær geta komið frá táningi sem brýst inn í tölvukerfi til að sýna að hann geti það. Glæpamenn getu einnig ógnað öryggi tölvu- kerfa, sérstaklega þeir sem tengdir séu skipulagðri glæpa- starfsemi. Sama eigi við um hryðjuverkamenn. Þá sé einnig mögulegt að ógn geti starfað af tölvuárásum eins þjóðríkis á annað, þó að enn séu engin staðfest dæmi um slíkt. Ísland svo háð tölvukerfum að nauðsynlegt er að verja þau FRÉTTASKÝRING: Er Ísland varið gegn tölvuárásum? Tvö þekkt dæmi eru um tölvuárásir sem beinst hafa að heilu þjóðríkjunum. Í báðum tilvikum var um álagsárásir (e. denial of service) að ræða, þar sem tölvuþrjótar notuðu tölvur víða um heim til að auka álag á fjarskiptakerfi landanna svo mikið að þau fóru á hliðina í lengri eða skemmri tíma. ■ Eistland 2007: Stjórnvöld í Eistlandi stóðu í deilum við Rússland þegar gerðar voru álagsárásir á mikilvægar vefsíður í landinu. Álagið á fjarskipta- kerfi landsins jókst um þúsundir prósenta á nokkrum sekúndum. Afleið- ingarnar voru meðal annars þær að tölvukerfi í stofnunum og fyrirtækjum lömuðust. Ástandið var verst fyrstu vikuna, en árásirnar héldu áfram í um það bil mánuð með tilheyrandi raski. ■ Georgía 2008: Tölvuárásir voru gerðar á fjarskiptakerfi Georgíu á meðan stríðsátök landsins við Rússland vegna Suður-Ossetíu stóðu yfir. Stjórnvöld sáu sér þann kost vænstan að loka fyrir aðgengi að mikilvægum vefsíðum til að koma í veg fyrir að tölvuþrjótum tækist að nálgast upplýsingar. Tölvukerfi tveggja þjóða sett á hliðina Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 19 69 1 0/ 10 ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 1 6 2 6 0 9 /1 0 Hjúkrunarþjónusta í Lyfju Lágmúla Veitum ýmsa sérhæfða þjónustu, m.a. aðstoð við léttar sáraskiptingar og við að fjarlægja sauma. Þjónustan er opin virka daga frá kl. 8 -17. á vegum Skottanna Háskólabíói við Hagatorg 24.okt. 2010 kl. 10–17 Ráðstefnugjald 3.000 kr. Skráning fer fram á www.kvennafri.is Sunnudagur 24. okt. Kl. 10.00–10.15 Frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrum forseti og verndari Skottanna setur ráðstefnuna Kl. 10.15–10.45 Umboðskona Sameinuðu þjóðanna í ofbeldismálum, frú Rashida Manjoo Kl. 10.45–11.15 Janice Raymond prófessor, Coalition against Trafficking in Women: „Resisting the Demand for Prostitution and Trafficking“ Kl. 11.15–11.30 Menningaratriði Kl. 11.30–12.00 John Crownover frá CARE International NWB: „Young Men´s Initiative“ Kl. 12.00–13.30 Hádegisverður og menningaratriði Kl. 13.30–14.00 Knut Storberget, dómsmálaráðherra Noregs og meðlimur í „We Must Unite“, sem er hópur 14 heimsþekktra karlleið- toga, á vegum Ban Ki-moon´s aðalritara Sameinuðu þjóðanna, sem hafa skuld- bundið sig til þess að setja baráttuna gegn kynferðisofbeldi í forgang í störfum sínum Kl. 14.00–14.30 Dr. Esohe Aghatise: „Gender Violence in Africa: Prostitution and Trafficking in Select African Countries“ Kl. 14.30–15.00 Ruchira Gupta, forseti Apne Aap Women Worldwide, Indlandi Kl. 15.00–15.30 Kaffi Kl. 15.30–16.00 Taina Bien Aime, framkvæmdastýra samtakanna EQUALITY NOW!: „Grassroots Activism to End Women’s Rights Violations“ Kl. 16.00–16.30 Margarita Guille, í stjórn alþjóðasamtaka kvennaathvarfa: „Shelters and Women at Risk in Latin America, Why Do We Need to Network?“ Kl. 16.30–17.00 Guðrún Jónsdóttir, stjórnarformaður Skottanna: „The Burning Iissues in the Fight Against Gender Based Violence in Iceland“ Fundarstýra Kolbrún Halldórsdóttir NORDICPHOTOS/AFP ÞRJÓTAR Alþjóðastofnanir og stofnanir stórra ríkja verða reglulega fyrir árás- um tölvuþrjóta.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.