Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.10.2010, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 20.10.2010, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 20. október 2010 3 Prjónablaðið Ýr 44 er fimmta tölublaðið á árinu og jafnframt það veglegasta. „Við erum jafnt og þétt að auka íslenska hönnun í blöðunum,“ segir Valdís Vífils- dóttir, framkvæmdastjóri Tinnu, sem gefur út prjónablaðið Ýr. Hún segir Helgu Hreinsdóttur vera aðalhönnuð Tinnu og lofar að á næstu vikum komi Tinna til með að kynna nýja línu af skrautmun- um, hálsfestum og aukahlut- um sem Helga hefur hannað. Fleira er á döfinni hjá Tinnu því í lok nóvember kemur út sér- stakt dúkku- blað en áður, eða í byrjun nóvember, er jólablaðið væntanlegt með fjölbreyttu föndri og fylgihlutauppskriftum. Valdís tók því vel að láta lesend- um Fréttablaðsins í té einfalda uppskrift til að kljást við næstu daga. Hún er af skrautlegu sjali í stærðinni 130x70 cm. Garnið sem Valdís miðar við er Kunstgarn frá Hjertegarn. Í sjalið fer ein dokka. Hringprjónn númer 6 er notaður til verksins og prjónfesta er: 17 lykkjur sléttprjón á prjóna nr. 6 = 10 cm ÞRÍHYRNT SJAL Munstur: 1. umferð: 1 kantlykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, *2 sléttar saman, sláið bandinu upp á prjóninn*, endurtakið frá * til * út umferðina, og endið á því að auka út um 1 lykkju, 1 kantlykkja slétt. 2.- 12. umferð: slétt, munið að auka út um 1 lykkju í 2. hverri umferð. Fitjið upp 4 lykkjur á prjóna nr. 6, og prjónið 1 umferð slétt = rangan á sjalinu. Næsta umferð: 1 kantlykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið slétt þangað til 1 lykkja er eftir, aukið út um 1 lykkju, 1 kantlykkja slétt. Næsta umferð: Haldið áfram að auka út í 2. hverri umferð 5 skipti til viðbótar, endið með einni umferð á röngunni = 14 lykkjur á prjóninum. Haldið núna áfram og prjónið samkvæmt munstur- útskýringu (munið útaukningu í 2. hverri umferð), og prjónið þangað til það er u.þ.b. 4 ½ metri eftir af garninu. Fellið passlega laust af. Klippið á þráðinn og gangið fallega frá endum. Erum jafnt og þétt að auka íslenska hönnun Áhugi á prjónaskap er aldrei meiri en á haustin. Þá lengjast kvöldin jafnt og þétt og jólin eru fram undan með þörf fyrir mjúka pakka. Því er fagnaðarefni þegar íslensk prjónablöð koma út. Ýr er það nýjasta. Kunstgarnið er til í mörgum litum. Hér eru aðrir tónar. Rendurnar koma af sjálfu sér ef notað er rétta garnið. MYNDIR/TINNA Smáratorgi + Kópavogi Gleráreyrum + Akureyri S. 580-0000 + www.a4.is Gildir til 31. október 2010 Gegn framvísun þessa miða færð þú 20% afslátt af hannyrðabókum hjá A4 Skrifstofu og skóla Nýtt Dale prjónablað með íslenskri þýðingu Uppskriftir fyrir 2-8 ára NÝTT 20% AFSLÁT TUR Danski prjónahönnuðurinn: Helga Isager • handprjón, spennandi prjónaaðferðir, “Hannaðu þína eigin peysu” Helga Jóna Þórunnardóttir frá Nálinni kennir prjóntækni og frágang. Ótrúlega spennandi námskeið fyrir bæði byrjendur og vana prjónara. Gisting og matur í nýuppgerðum Kvennaskólanum í yndislegu umhverfi. TEXTÍLSETUR ÍSLANDS Kvennaskólanum Blönduósi www.textilsetur.is • 894-9030 ALLA MORGNA FRÁ 6:45-10TOPPMORGNAR SVALI OGFÉLAGAR Allt í einu er kuldinn farinn að bíta og það kannski vonum seinna. Þessi eyrnaskjól gætu því komið sér vel. Hver þekkir ekki vandamálið með húfu undir reiðhjólahjálmi? Ólöf Jónsdóttir kjólameistari hefur leyst þann vanda með þessum eyrnaskjólum. Í þeim er yfirleitt þæfð ull eða ullarblanda í ytra byrði og flís að innan. Síðan er fransk- ur rennilás innan í til að halda þeim saman. Skrautið er ýmist perlur og steinar eða eitthvað annað skemmtilegt. Þau fást á vefnum www.litlubudirnar.is/is/ mos/309 í nytjahlutabúðinni og fleiri litir eru fáanlegir. Í haustveðráttu Eyrnaskjólin bæði hlífa og punta upp á. MYND/WWW.LITLUBUDIRNAR.IS Ef heimatilbún- ar gjafir eiga að vera í jólapakk- anum í ár er nú tíminn til að huga að því. Í ýmsum hannyrðabúðum og á Netinu má kaupa efni til slíkra gjafa. hannyrdir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.