Fréttablaðið - 20.10.2010, Page 28

Fréttablaðið - 20.10.2010, Page 28
 20. október 2010 MIÐVIKUDAGUR timamot@frettabladid.is Tæknifræðingafélag Íslands (TFÍ) fagnar 50 ára afmæli sínu með fyrirlestraröð í Háskólanum í Reykjavík dagana 20. til 22. október. Formaður félagsins er Bergþór Þormóðs- son. „Félagið var stofnað 6. júlí 1960 við samruna Félags iðnfræðinga og félagsins Tækni. Fyrsti formaður var Axel Kristjánsson, framkvæmdastjóri Rafha, og stofnfélagar 37, en starfsheitið hefur verið lögverndað frá 1963,“ segir hann, inntur eftir fyrstu sporum félagsins hér á landi. „Í upphafi fengust tæknifræðingar aðeins við mannvirkja- gerð en eru nú að störfum víðs vegar í samfélaginu. Fyrstu tæknifræðingarnir sóttu sér menntun til útlanda, en 1964 tók Tækniskóli Íslands til starfa, sem síðar varð Tæknihá- skóli Íslands og gekk síðast inn í Háskólann í Reykjavík,“ segir Bergþór og upplýsir að enn fari helmingur tækni- fræðinema utan til náms. „Vinsælustu tækniháskólarnir eru í Danmörku, en þar er námið öflugt. Lengi var sveinspróf í iðngreinum inntökuskilyrði í tæknifræði, en síðustu ár hefur ekki verið hægt að halda uppi þeirri kröfu því ásókn stúd- enta hefur verið meiri í fagið. Háskóli Íslands hefur aldrei kennt tæknifræði en kennir í staðinn verkfræði, systurfag tæknifræðinnar,“ segir Bergþór, sem frá 1994 hefur sam- rekið skrifstofu TFÍ með Verkfræðingafélagi Íslands. „Eftirspurn eftir tæknifræðingum er mikil, sérstaklega þeim sem hafa bakgrunn í iðnnámi. Þeir hafa enda flest- ir unnið við iðn sína í einhver ár áður en þeir fóru í fram- haldsnám og orðnir gjaldgengir á vinnumarkaði þegar námi lýkur, með yfirgripsmikla þekkingu,“ segir Bergþór og bætir við að nú kalli atvinnulífið sem aldrei fyrr eftir tæknifræðingum til starfa. „En á sama tíma og ráðherrar tala um nýsköpun og fjölbreytni í atvinnulífi boðar mennta- málaráðherra niðurskurð í tæknitengdu háskólanámi. Því er rödd ráðherrans hjáróma þegar hann talar einn daginn um nýsköpun og þróun í atvinnulífi, þar sem tækni- og verk- fræðingar eiga að vera í fararbroddi sem fremstu nýsköp- unarmenn landsins, á sama tíma og skera á niður í mennt- un þeirra.“ Hann segir tæknifræði opna starfsvettvang í öllu þjóð- félaginu og menn ljúki námi öruggir með vinnu og góð laun. „Vandamál er að allt of fáar stúlkur sækja í námið, því tæknifræðin er kjörinn vettvangur fyrir þær líka og margar greinar innan hennar henta þeim betur, til dæmis landmælingar, sem krefjast mikillar nákvæmni og þolin- mæði. Tæknifræði og verkfræði eru einu háskólagreinarnar þar sem kynjahlutfall er strákum enn í hag, en það breyt- ist vonandi,“ segir Bergþór og játar að nám í tæknifræði sé strembið. „Það byggir á raungreinum og stærðfræði og er sem betur fer erfitt því háskólanám á að taka í. Félagið hefur frá stofn- un staðið vörð um gæði menntunar og að símenntun sé alltaf í boði en með því að viðhalda þekkingu höldum við gæðum félagsmanna uppi og þeirri vöru sem þeir bjóða atvinnu- lífinu,“ segir Bergþór, bjartsýnn á framtíðina. „Félagið er öflugt félag sem tekið er tillit til og borin virðing fyrir. Við erum leiðandi hópur í samningaviðræðum, eins og kjara- samningum, og hörð í horn að taka, en aldrei ósanngjörn.“ Þess má geta að í tilefni 50 ára afmælis TFÍ kemur út bókin Tækni fleygir fram: Tæknifræði á Íslandi og saga Tæknifræðingafélags Íslands. Upplýsingar um dagskrá afmælisfyrirlestra er á www.tfi.is. thordis@frettabladid.is TÆKNIFRÆÐINGAFÉLAG ÍSLANDS: 50 ÁRA Stelpur óskast BJÖRT FRAMTÍÐ Bergþór segist sakna þess hve fáar stúlkur sæki í raðir tæknifræðinga en segir þær eiga þar vel heima. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, hlýju og kærleik við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Mogens Rúnars Mogensen. Diljá Gunnarsdóttir Regin F. Mogensen Sara Lind Þórðardóttir Birta Mogensen Jónas Árnason afabörn Innilegar þakkir fyrir vináttu og hlýhug við andlát og útför Þorleifs Þorsteinssonar Álfhólsvegi 84, Kópavogi. Þökkum einnig starfsfólki deildar A4 á Landspítala í Fossvogi fyrir alúðlega umönnun. Ragnheiður S. Jónasdóttir Ólöf B. Þorleifsdóttir Brynjar S. Þorleifsson Vilhjálmur Þorleifsson Eva H. Þorleifsdóttir Guðmundur B. Kjartansson Leifur H. Þorleifsson Hlíf B. Óskarsdóttir Gróa K. Þorleifsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona, móðir og tengdamóðir Lilja Þorvaldsdóttir Glóru 2 Flóahreppi, andaðist á sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi sunnu– daginn 17. október síðastliðinn. Útför hennar verður gerð frá Hraungerðiskirkju föstudaginn 22. október kl. 13.30. Heimir Ólafsson, Ágúst Gísli Heimisson, Sigmundur Þórir Jónsson, Tanja Rún Jónsdóttir, Tómas Alfonsson. Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma Gíslína Þórarinsdóttir Dvalarheimilinu Hlíð Akureyri, lést fimmtudaginn 7. október. Útför hennar hefur farið fram. Helgi Helgason og börn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, Ragnheiðar Valdemarsdóttur, hjúkrunarheimilinu Skjóli, áður Byggðavegi 89, Akureyri. Starfsfólki á Skjóli þökkum við hlýhug og góða umönnun. Valdemar Ragnarsson Liisa Kajo Ásgerður Ragnarsdóttir Gunnar Eydal Óli Þór Ragnarsson Ingibjörg Marinósdóttir Árni Ragnarsson Ásrún Guðmundsdóttir Guðrún Ragnarsdóttir Valdimar Einisson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma Marta Sonja Magnúsdóttir síðast til heimilis að Austurbrún 6, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 13. október. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 22. október kl. 13.00. Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Hjartans þakkir eru færðar öllum þeim sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður minnar Sigurbjargar Björgvinsdóttur. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir ljúft og hlýlegt viðmót og frábæra umönnun. Stefán Hermanns Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Lárus Hvammdal Finnbogason Ársölum 1, 201 Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans Landakoti fimmtu- daginn 14. október. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 22. október kl. 13.00. Úlla Marteinsdóttir Finnbogi Hvammdal Lárusson Íris Guðlaugsdóttir Kristrún Dahl John Dahl Elva María Neraasen Ágústa Lárusdóttir Kjell Paulsen Margrét Lárusdóttir Jóhann Halldórsson og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Herborg Guðmundsdóttir Hátúni 4, lést á Landspítalanum í Fossvogi þann 18. þ.m. Útförin verður frá Fossvogskirkju mánudaginn 25. október kl. 13.00. Jónína Herborg Jónsdóttir Jón Herbert Jónsson Inger Jónsson Ingibjörg Sigurðardóttir Guðjón Sigurðsson Elínborg Sigurðardóttir Axel F. Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Þórhallur Filippusson andaðist á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 17. október sl. Útför hans fer fram frá Sauðárkróks- kirkju föstudaginn 22. október kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Skagafjarðar. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Anna Pálína Þórðardóttir Ólöf Þórhallsdóttir Jóhannes Hjálmarsson Þórunn Oddný Þórhallsdóttir Filippus Þórhallsson Dagbjört Kristín Þórhallsdóttir Benjamín Gunnarsson Kristín Þóra Þórhallsdóttir Nicholas Stagg barnabörn og langafabörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.