Fréttablaðið - 21.10.2010, Qupperneq 10
21. október 2010 FIMMTUDAGUR
DÓMSMÁL Tvítugur karlmaður
hefur verið dæmdur í Héraðsdómi
Reykjaness í fimm mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að ráðast
á mann með hnífi og veita honum
áverka á höfði og líkama.
Árásin átti sér stað á heimili
hnífamannsins í Kópavogi í byrj-
un apríl 2008. Pilturinn sem ráð-
ist var á hlaut skurði í hársverði, á
vinstri öxl og sár á hægri síðu.
Mönnunum hafði orðið sund-
urorða. Fórnarlambið neitaði að
yfirgefa heimilið. Árásarmaður-
inn, sem var ölvaður við handtöku,
viðurkenndi verknaðinn við yfir-
heyrslu lögreglu daginn eftir.
Dómurinn leit til þess við
ákvörðun refsingarinnar að hinn
dæmdi framdi brotið eftir nokkra
ertingu frá brotaþola. Einnig var
litið til þess að árásarmaðurinn
játaði sakargiftir við alla með-
ferð málsins og lagði sig fram
við að upplýsa málið. Var það virt
honum til málsbóta. Enn fremur
að ákærði var einungis sautján ára
þegar brotið var framið.
Hins vegar var litið til þess
við ákvörðun refsingar að það að
leggja til manns með hnífi væri
sérstaklega hættuleg árás enda
til þess fallin að geta valdið miklu
líkamstjóni. - jss
Tvítugur karlmaður dæmdur fyrir líkamsárás í Kópavogi:
Fimm mánuðir fyrir hnífaárás
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS Maðurinn
var dæmdur í fimm mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir hnífaárás.
Samfylkingin xs.is
Opnir umræðufundir í Reykjavík og á Akureyri
í framhaldi af skýrslu starfshóps um endurskoðun
á lögum um stjórn fiskveiða.
Í dag 21. október kl. 18-21, Borgartúni 6, Reykjavík.
Laugardaginn 23. október kl. 11-14 á Hótel KEA, Akureyri.
Samningsleið, tilboðsleið - hvert förum við héðan?
Ólína Þorvarðardóttir, varaformaður sjávarútvegs-
og landbúnaðarnefndar Alþingis
Bless og takk fyrir fiskinn. Skýrsla sáttanefndar.
Róbert Marshall, fulltrúi í sjávarútvegs-
og landbúnaðarnefnd Alþingis
Heildstæð auðlindastefna. Auðlindasjóður Íslands.
Gunnar Tryggvason, verkfræðingur
Er tekjulaus eign þjóðinni einhvers virði?
Dr. Þórólfur Matthíasson, prófessor, Háskóla Íslands
Fyrirspurnir og almennar umræður eftir því sem tíminn leyfir.
Súpa seld á staðnum.
Fundarstjóri í Reykjavík: Margrét S. Björnsdóttir, form.
framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar
Fundarstjóri á Akureyri: Helena Þ. Karlsdóttir,
formaður Samfylkingarinnar á Akureyri
Allir velkomnir
Stjórn fiskveiða
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000
REYNSLUBOLTAR
MEÐ RÍKA
ÞJÓNUSTULUND
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI N1
KOMDU VIÐ Á NÆSTA
HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI
N1. VIÐ TÖKUM VEL
Á MÓTI ÞÉR.
· Hjólbarðaþjónusta fyrir alla bíla, stóra, smáa, gamla og nýja
· Fagleg og skjót vinnubrögð
· Hagstætt verð
· Landsins mesta úrval af dekkjum og felgum
· Á dekkjahótelum N1 býðst þér að geyma sumardekkin
gegn vægu gjaldi
Kynntu þér nýja vefverslun með hjólbarða á www.n1.is
N1 VEGAA
ÐSTOÐ
FYRIR REY
KJAVÍK O
G NÁGREN
NI
Hafðu sam
band ef bí
llinn bilar!
Opið allan
sólarhring
inn, alla da
ga.
Sími 660 3
350
TÍVOLÍ
LAUGARDAGA FRÁ
13 – 16TOPPHELGAR
Erlingur Sigurðarson
Gunnar Þór Stefánsson
Kjartan Þór Ragnarsson
Kristbjörg Þórisdóttir
Íris Lind
Sæmundsdóttir
Ólafur Jakobsson
Ólafur Proppé
Framboð til stjórnlagaþings
ÞJÓÐKIRKJAN Hlutfall skráðra
barna og unglinga í Þjóðkirkjuna
hefur fækkað um 12,5 prósent á
síðustu tíu árum. Í dag eru um 80
prósent barna og unglinga undir
17 ára aldri skráð en árið 2000 var
hlutfallið í kringum 90 prósent.
Nú eru 64.790 börn og ung-
menni undir 18 ára aldri skráð
í Þjóðkirkjuna samkvæmt vef
Hagstofunnar. Árið 2000 voru
þau 69.865. Á þessu sama tíma-
bili hefur börnum og unglingum
á þessum aldri fjölgað úr 77.855 í
80.682. Þar af leiðandi er raun-
fækkun barna og unglinga í Þjóð-
kirkjunni 12,5 prósent.
Börnum fækkar í kirkjunni:
12,5 prósenta
fækkun skráðra
STJÓRNSÝSLA Óvíst er hvort dómur
Hæstaréttar um töku félagsgjalds
af útgerðarmanni til Landssam-
bands smábátaeigenda sem ekki á
aðild að sambandinu hafi áhrif á
búnaðargjald sem bændur greiða
af búvöruverði til Bændasamtak-
anna.
„Þrátt fyrir dóm Hæstaréttar er
ekki þar með sagt að innheimta bún-
aðargjalds sé ólögmæt eða brjóti í
bága við stjórnarskrá,“ segir Elías
Blöndal Guðjónsson, lögfræðingur
Bændasamtakanna. Hann bendir á
að öll félögin sem fái hlut af búnað-
argjaldinu hafi lögboðnum verkum
að sinna, svo sem að efla og þróa
landbúnað.
Hlutur Landssambands smábáta-
eigenda af félagagjaldinu er eina
tekjulind þess. Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
smábátaeigenda, sagði í samtali við
Fréttablaðið í gær niðurstöðuna geta
leitt til þess að sambandið verði að
leita sér annarra tekjuleiða.
Búnaðargjaldið fer lögum sam-
kvæmt til búgreinafélaga og Bjarg-
ráðasjóðs. Bændasamtökin fengu
105 milljónir króna af gjaldinu í
fyrra. Elías segir þetta hluta af
nokkrum tekjuleiðum samtakanna.
Endurskoðun á félagagjaldinu
hefur lengi legið á borði hins opin-
bera. Umboðsmaður Alþingis skoð-
aði réttmæti félagagjalda smábáta-
eigenda að eigin frumkvæði árið
2001. Hann mælti með endurskoðun
gjaldtökunnar. Starfshópur á vegum
forsætisráðuneytis komst að sam-
bærilegri niðurstöðu fyrir tæpum
tveimur árum. Þá lýsti Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra því
yfir á Alþingi í vor í kjölfar dóms
Mannréttindadómstóls Evrópu að
innheimta á iðnaðarmálagjaldi
bryti í bága við Mannréttindasátt-
mála Evrópu, og að gjaldtakan verði
skoðuð. Sú vinna stendur enn yfir.
Breytingar á búnaðargjaldi
liggja fyrir Alþingi. Elías segir að
gera megi ráð fyrir áhrifum dóms
Hæstaréttar og Mannréttindadóm-
stólsins á það. „Það getur vel verið
að skýra þurfi lögin betur og herða
eftirlitið til þess að gjaldtakan
standist stjórnarskrá,“ segir hann.
jonab@frettabladid.is
Skýra þarf betur lög
um félagagjöldin
Dómur Hæstaréttar um félagagjöld hefur ekki áhrif á búnaðargjald sem bænd-
ur greiða Bændasamtökunum. Gjaldtakan má ekki stangast á við stjórnarskrá.
ELÍAS BLÖNDAL Lögfræðingur Bændasamtakanna segir ólíklegt að dómur Hæstarétt-
ar um félagagjöld hafi áhrif á búnaðargjald bænda. Skýra þurfi lög um gjaldið betur.