Fréttablaðið - 21.10.2010, Side 12
12 21. október 2010 FIMMTUDAGUR
ÞING KOMMÚNISTAFLOKKSINS Um
helgina var afgreidd næsta fimm ára
áætlun efnahagslífsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KÍNA, AP Xi Jinping, varaforseti
Kína, þykir nú líklegur til að taka
við af Hu Jintao forseta á næsta
flokksþingi kínverska Kommún-
istaflokksins, sem haldið verður
eftir þrjú ár.
Xi var á efnahagsþingi flokks-
ins um helgina hækkaður í tign
innan herráðs flokksins.
Línur skýrðust þó lítt á þinginu
um hugsanlegar lýðræðisumbæt-
ur. Wen Jinbao forsætisráðherra,
sem hefur talað um nauðsyn
slíkra umbóta, virðist eiga í bar-
áttu við íhaldssamari félaga sína
í flokknum. - gb
Xi hækkaður í tign:
Lýðræðið bíður
seinni tíma
SAMGÖNGUR Breiðþota Lufthansa,
sem var á leið frá New York til
München, þurfti að millilenda á
Keflavíkurflugvelli í gærmorgun
vegna alvarlegra veikinda fimm
farþega um borð.
Á vellinum biðu læknar og
sjúkrabílar sem fluttu fólkið á
Landspítalann til rannsóknar.
Farþegarnir voru allir útskrifað-
ir seinnipartinn í gær, en að sögn
læknis á Landspítalanum er talið
að um heiftarlega matareitrun
hafi verið að ræða. Sýnishorn af
matnum sem fólkið borðaði um
borð hefur verið sent sóttvarna-
lækni til rannsóknar. - sv
Þota lenti óvænt í Keflavík:
Fimm farþegar
á sjúkrahús
VIÐSKIPTI Jóhannes Jónsson, löngum
kenndur við Bónus, hefur ekki tekið
ákvörðun um það hvort hann leggi
fram tilboð eða kaupi hlut í Högum
þegar fyrirtækjasamstæðan verð-
ur skráð á hlutabréfamarkað eftir
áramót.
„Ég er ekki í stuði til að svara
því núna. Það mun líða nokkur
tími fram að ákvarðanatöku,“
segir Jóhannes, sem nýkominn er
heim eftir um tveggja vikna dvöl
á sjúkrahúsi vegna baráttu sinnar
við krabbamein. Arion banki, sem á
99,5 prósent hlutafjár í Högum, til-
kynnti á mánudag að hann áform-
aði að selja kjölfestufjárfesti 15 til
29 prósenta hlut í fyrirtækinu fyrir
skráningu. Áhugasamir fjárfestar
gætu lagt fram tilboð í félagið allt.
Jóhannes lýsti því yfir þegar
hann hætti sem stjórnarformaður
Haga í ágústlok að hann hefði full-
an hug á að gera tilboð í félagið og
eignast Bónus á ný. Jóhannes segir
nú að þrátt fyrir þetta hafi hann
ekki að fullu sagt skilið við Bónus.
Hann hafi keypt helmingshlut Haga
í verslunum SMS í Færeyjum. Lykl-
ana fær hann afhenta 1. desember
næstkomandi. „Þá verður maður
kominn í Bónus aftur.“ - jab
Jóhannes Jónsson í Bónus jafnar sig eftir sjúkrahúsvist vegna krabbameins:
Óvíst hvort hann bjóði í Haga
JÓHANNES Stofnandi Bónuss hefur ekki
sagt skilið við fyrirtækið að fullu. Hann
festir sér helmingshlut í verslunum
fyrirtækisins í Færeyjum í desember.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FÓLK Yfirborðskennd samskipti
á Facebook eru mikilvægari en
úrtölumenn gætu talið, sam-
kvæmt niðurstöðum doktorsrann-
sóknar Håkans Selg við Uppsala-
háskóla í Svíþjóð.
„Myndirnar, athugasemdirn-
ar og aðrar færslur minna okkur
stanslaust á tilvist vina okkar.
Innihaldið skiptir ekki öllu, held-
ur sú staðreynd að við upplifum
það að vinir okkar sem eru einnig
vinir okkar á Facebook séu nán-
ari okkur en þeir sem ekki eru á
Facebook,“ segir Selg. - bj
Facebook-vinirnir vinalegri:
Bull á Facebook
sagt mikilvægt
FJARSKIPTI Íslenskur almenningur verður
sjálfur að gæta að öryggi eigin tölvubúnaðar,
bæði til að verja eigin upplýsingar og til að
tölvur þeirra séu ekki notaðar til árása eða
innbrota í tölvukerfi annars staðar í heimin-
um, segir sérfræðingur í netöryggi.
„Ef ríkið getur ekki séð um að verja þig
verður þú að verja þig sjálfur,“ segir Jón
Kristinn Ragnarsson, sem vann meistara-
verkefni í alþjóðasamskiptum við Háskóla
Íslands um netógnir.
Eins og fjallað var um í Fréttablaðinu í
gær eru engar miðlægar varnir til staðar
hér á landi gegn tölvuárásum, þrátt fyrir að
slíkar árásir geti haft alvarlegar afleiðing-
ar. Bæði Varnarmálastofnun og Póst- og fjar-
skiptastofnun hafa undirbúið uppsetningu
slíkra varna, en ekkert fé hefur fengist til
þess að koma þeim á fót.
Jón Kristinn segir almenning geta varið
eigin tölvur, þó að stjórnvöld verði að koma
að því að verja landið.
Hann segir fólk verða að gæta að því að
vírusvörn og eldveggur séu í notkun, og öll
forrit séu uppfærð reglulega. Ef þetta sé
ekki gert geti tölvuglæpamenn notað tölv-
ur þeirra til að fremja glæpi hvar sem er í
heiminum. Einnig sé hægt að nota tölvurnar
til að gera álagsárásir, sem geta sett tölvu-
kerfi heilu þjóðanna á hliðina.
Íslensk tölvufyrirtæki eru mjög meðvit-
uð um hættuna sem stafar af tölvuárásum,
og stórir rekstraraðilar tölvukerfa þurfa að
verjast minni háttar árásum daglega. Öfl-
ugar tölvuárásir eru sjaldgæfari, en þó eru
þekkt dæmi um slíkt.
Öflug tölvuárás á margar íslenskar vefsíð-
ur samtímis gæti haft það í för með sér að
samskipti í gegnum tölvur og síma á landinu
öllu myndu detta niður. Jón Kristinn segir
að ástandið sem það myndi skapa gæti minnt
á ástandið 7. október 2008, þegar Glitnir og
Landsbankinn féllu.
„Ég er hræddur um að afleiðingarn-
ar yrðu alger ringulreið,“ segir Jón Krist-
inn. Hann segir að ef ráðist verði á vefsíð-
ur bankanna, sem hafi heldur betur verið
milli tannanna á fólki erlendis undanfarið,
geti það valdið ótta fólks um að peningarn-
ir þeirra séu ekki öruggir. Erfitt verði að
koma upplýsingum um ástandið til fólksins
ef netið liggi niðri, sem geti alið á enn meiri
ótta.
Aukin áhersla á rafræna stjórnsýslu gerir
landið sífellt veikara fyrir árásum tölvu-
glæpamanna. Jón Kristinn segir að stjórn-
völd ættu að stofna viðbragðshóp til að
bregðast við tölvuárásum, og gera úttekt
á helstu veikleikum kerfisins. Þá sé mikil-
vægt að efla tengslin við hin Norðurlöndin,
og tengslin við tölvuvarnadeild Atlantshafs-
bandalagsins. brjann@frettabladid.is
Netglæpamenn geta notað
óvarðar tölvur til innbrota
Verji fólk ekki tölvur sínar er hægt að fjarstýra þeim til að fremja netglæpi. Slíkar varnir gera þó ekkert
gegn árásum á netkerfi. Sérfræðingur óttast algera ringulreið yrði stór tölvuárás gerð á íslensk vefkerfi.
GLÆPIR Tölvuglæpir eru vaxandi vandamál í heiminum. Almenningur getur gert ýmislegt til að verja eigin
tölvur, en ekkert hefur verið gert til að verja allt tölvukerfið á Íslandi í heild sinni. NORDICPHOTOS/AFP
Vilji hinn almenni tölvunotandi reyna að tryggja
að tölvan hans sé ekki í hættu þarf hann að vera
með vírusvörn og eldvegg. Einnig er gott að nota
vafra sem talinn er hvað öruggastur. Þetta þarf
ekki að kosta peninga, heldur er hægt að finna
ókeypis forrit á netinu.
■ Vírusvörn: Avast! býður upp á ókeypis vörn, sjá
avast.com.
■ Eldveggur: Mælt er með Comodo eldveggnum,
sjá comodo.com.
■ Uppfærslur: Secunia sér um að öll forrit séu
uppfærð, sjá secunia.com.
■ Vafri: Google Chrome er talinn góður, sjá
chrome.google.com.
■ Upplýsingar: Hægt er að fá frekari upplýsingar
á vefnum, sjá netoryggi.is.
Tölvuvarnir fyrir byrjendur
jakki & buxur
Verð jakki: 5.500 kr.
Verð buxur: 5.000 kr.
(Stærðir: 62- 86)
Verð húfa: 2.000 kr.
Verð vettl.: 1.800 kr.
(Stærðir: 1- 2)
aukahlutir
Verð: 7.250 kr.
(Stærðir: 62- 86)
KR ÍA KR ÍA KR ÍA
heilgalli
Hlýr og þægilegur heilgalli fyrir þau yngstu.
Hægt er að loka fyrir ermar og skálmar.
Hlýr heilrenndur fl ísjakki með góðum kraga.
Þægilegar buxur með teygju í mittið. Hlýir og mjúkir aukahlutir fyrir þau yngstu.
TURN Indverski auðkýfingurinn Mukesh
Ambani hefur byggt sér þetta 27 hæða
hús í Múmbaí. Húsið er 37 þúsund
fermetrar, með þremur þyrlupöllum og
160 bílastæðum í kjallara.
NORDICPHOTOS/AFP