Fréttablaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 18
21. október 2010 FIMMTUDAGUR18
Umsjón: nánar á visir.is
3,0%
Nýsköpunar er þörf í íslenskum sjávarútvegi:
Byggir of mikið á
hefðum og venjum
„Við sjáum ýmis tækifæri til
nýsköpunar í sjávarútvegi. Hann
hefur gengið á hefðum og venj-
um, viðkvæðið er gjarnan að
svona hafi hlutirnir verið gerð-
ir í gegnum tíðina og þeim því
ekki breytt,“ segir Andri Heiðar
Kristinsson, framkvæmdastjóri
nýsköpunar- og frumkvöðlaset-
ursins Innovit.
Innovit hefur, ásamt nem-
endum við Háskóla Íslands og
Háskólann í Reykjavík, lokið
við markaðsgreiningu á Iceland-
ic Group. Fyrirtækið er alþjóð-
legt net sjálfstæðra fyrirtækja í
fjórtán löndum sem starfa hvert
á sínum markaði við framleiðslu
og sölu á sjávarfangi.
Vinnan, sem var að frum-
kvæði Innovit, hefur staðið
yfir frá í fyrrasumar. Hópur-
inn hefur skilað af sér ítarlegri
greiningu á skipulagi fyrirtæk-
isins.
Niðurstaðan er í grófum drátt-
um sú að mikil tækifæri eru til
nýsköpunar hjá stærri fyrir-
tækjum í sjávarútvegi, svo sem
á sviði markaðsmála, skipulagi,
stjórnun og í vöruþróun. Andri
bendir á að mikil samþætting
hafi verið í gangi hjá Icelandic
Group síðastliðin tvö ár og sé
hún langt komin.
Hann telur fiskmarkaði á
meðal þess sem megi skoða
betur. „Þeir eru ekkert ósvipaðir
fjármálamörkuðum. Ef nýtísku-
legri aðferðum væri beitt gætu
verðmæti orðið til þar,“ segir
hann. - jab
ANDRI Mögulegt er að leysa úr læðingi
aukin verðmæti á fiskmörkuðum með
nýtískulegri viðskiptaháttum, að sögn
framkvæmdastjóra Innovit.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Stjórnarfrumvarp um styttri
fyrningartíma skulda við gjald-
þrot – niður í tvö ár – gæti umbylt
íslensku fjármálakerfi og þjóðlífi.
Þetta eru í stórum dráttum
vangaveltur greiningardeildar
Arion banka um frumvarp forsæt-
is- og fjármálaráðherra sem boðað
var á þriðjudag.
Greiningardeildin bendir á að til
skemmri tíma styrki frumvarpið
stöðu skuldara, það geti komið í
veg fyrir gjaldþrot og létt á skulda-
vanda heimilanna.
Á hinn bóginn gætu margir
ákveðið að fara gjaldþrotaleið-
ina. Við það aukist framboð á fast-
eignamarkaði og eftirspurn dragist
saman. Það geti haft í för með sér
verri eiginfjárstöðu íbúðareigenda,
sem geti leitt til tregðu fjármála-
fyrirtækja til lánveitinga. Í kjöl-
farið geti gjaldþrotum fjölgað.
Deildin bendir á að íslensk heim-
ili beri ýmsar aðrar skuldir en hús-
næðislán. Hafi fólk möguleika á
því að þurrka út skuldir gagnvart
Lánasjóði íslenskra námsmanna,
kreditkortafyrirtækjum og fleiri
með tveggja ára útlegð geti það
haft í för með sér grundvallar-
breytingar á íslenskum þjóðhátt-
um. Í kjölfarið verði erfiðara að
afla lánsfjár, meira verði um eldri
bíla en nú og fólk búa í smærri
íbúðum en áður. Tekið er fram í
umfjölluninni að enn eigi eftir að
kynna frumvarpið og því er ekki
ljóst hvernig lögin verði útfærð.
jonab@frettabladid.is
Skuldafyrning gæti
umbylt samfélaginu
Greiningardeild Arion banka segir frumvarp um tveggja ára fyrningu skulda
geta valdið því að framboð á húsnæði verði meira en eftirspurn. Verði mögu-
legt að þurrka út allar skuldir geti orðið grundvallarbreyting á þjóðháttum.
HORFT YFIR MIÐBÆ HÖFUÐBORGARINNAR Fari svo að fjármálafyrirtæki verði treg til
lánveitinga sökum þess hversu auðvelt verði að gera skuldir sínar að engu mun fólk
búa í minna húsnæði en áður og aka um á eldri bílum en í dag, samkvæmt framtíð-
arsýn greiningardeildar Arion banka. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur til sölumeðferðar
allt að 99,5% af útistandandi hlutabréfum í Högum hf.
Eignarhluturinn er í eigu Eignabjargs ehf. sem er
dótturfélag Arion banka. Áformað er að óska eftir því að
hlutabréf í Högum verði tekin til viðskipta í kauphöll, á
aðalmarkaði Nasdaq OMX Iceland hf., og bjóða
fagfjárfestum og almenningi að kaupa hluti í félaginu í
aðdraganda þeirrar skráningar.
Gert er ráð fyrir að eignarhald Haga verði dreift, en áður en til
þess kemur að almennum fjárfestum verði boðnir hlutir í
félaginu er talið æskilegt að upplýsingar liggi fyrir um það
hvaða hluthafar muni veita Högum forystu þegar félagið verði
skráð í kauphöll. Fyrsti hluti söluferlis á eignarhlut bankans í
Högum snýr því að sölu á kjölfestuhlut. Samhliða fyrirhugaðri
sölu á kjölfestuhlut verða kannaðir möguleikar á að selja í einu
lagi framangreindan 99,5% eignarhlut í Högum.
Söluferlið – fyrsti hluti
Í fyrsta hluta söluferlisins er boðinn til sölu kjölfestuhlutur
í Högum og er þá miðað við 15-29% eignarhlut. Í þessum
hluta ferlisins er jafnframt gefinn kostur á að leggja fram
tilboð í allan hlut bankans í Högum sem nemur um 99,5%
af útistandandi hlutum í félaginu.
Fyrsti hluti söluferlisins er opinn öllum áhugasömum
fjárfestum með til þess bæran fjárhagslegan styrk. Seljandi
áskilur sér rétt til þess að takmarka aðgang að þessum hluta
söluferlisins, meðal annars ef fyrir hendi eru lagalegar
hindranir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo
sem vegna samkeppnisreglna.
Fjárfestar sem óska eftir að taka þátt í fyrsta hluta
söluferlisins eru beðnir að hafa samband við
Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka. Skulu þeir leggja fram
trúnaðaryfirlýsingu á þar til gerðu formi í síðasta lagi
miðvikudaginn 3. nóvember 2010.
Sölugögn verða kynnt og afhent þátttakendum á næstu
vikum. Tekið verður við óskuldbindandi tilboðum til
mánudagsins 15. nóvember 2010. Tilboðum skal skilað á
þar til gerðu formi.
Í kjölfarið verða tilboðin metin og völdum fjárfestum boðin
áframhaldandi þátttaka í fyrsta hluta söluferlisins. Munu þeir
fjárfestar fá aðgang að frekari upplýsingum um rekstur og
fjárhag Haga áður en óskað verður eftir bindandi tilboðum og
gengið til endanlegra samninga um kaup og sölu á
kjölfestuhlut (eða öllum eignarhlut bankans) í Högum.
Seljandi áskilur sér rétt til að i) gera breytingar á skilmálum
og/eða viðmiðum söluferlisins og/eða ii) ganga til samninga
við hvaða tilboðsgjafa sem hann kýs eða hafna öllum.
Frekari upplýsingar
Upplýsingar um söluferlið má nálgast hjá Fyrirtækjaráðgjöf
Arion banka í síma 444 6805 eða með því að senda
tölvupóst á fyrirtaekjaradgjof.hagar2010@arionbanki.is.
Kjölfestuhlutur
í Högum hf. boðinn til sölu
Hagar eru leiðandi fyrirtæki á íslenskum smásölumarkaði. Undir samstæðu Haga falla verslanakeðjurnar Bónus, Hagkaup, Útilíf, verslanir á
Íslandi undir vörumerkjunum All Saints, Coast, Day, Debenhams, Dorothy Perkins, Evans, Karen Millen, Oasis, Top Shop, Warehouse og Zara,
ásamt innkaupafyrirtækjunum Aðföngum, Hýsingu, Banönum og Ferskum kjötvörum. Á síðastliðnu fjárhagsári, sem lauk 28. febrúar 2010,
námu heildartekjur framangreindra eininga 65,1 milljarði króna og var rekstrarhagnaður (EBITDA) þeirra 4,0 milljarðar króna.
VERÐBÓLGA verður hér á landi samkvæmt spá Greiningar Íslandsbanka. Gangi það eftir hefur verð-
bólga ekki verið minni síðan í júní árið 2005. Verðbólga mælist nú 3,7 prósent.