Fréttablaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 21. október 2010 19
Einkahlutafélagið Fjárfar tapaði 20,2 millj-
ónum króna í fyrra samanborið við tæpan
22.500 króna hagnað árið á undan.
Félagið var stofnað árið 1998 og heyrði
undir Baugs-samstæðuna. Þegar Jón Ásgeir
Jóhannesson keypti Vöruveltuna, móðurfé-
lag verslanakeðjunnar 10-11, síðla árs 1998
seldi hann 45 prósenta hlut til Fjárfars og
annarra aðila.
Félagið var annað tveggja sem tengd-
ust fyrstu kærum Skattrannsóknarstjóra
í Baugsmálinu árið 2004. Málinu var síðar
vísað frá dómi.
Samkvæmt ársreikningi Fjárfars fyrsta
árið var eigið fé þess tvær milljónir króna
en skuldir tæpar 456 milljónir. Eignir voru
um og yfir einum milljarði króna fram til
2003 þegar eignir voru seldar. Eftir það voru
skuldir miklu meiri en eignir og eigið fé nei-
kvætt upp á annað hundrað milljónir króna.
Það sama var upp á teningnum í fyrra. Þá
námu skuldir tæpum 175 milljónum króna
og eigið fé var neikvætt um tæpar 150 millj-
ónir. Eignir, sem fólust í skammtímakröfum,
hljóðuðu upp á 25,3 milljónir króna.
Í uppgjöri Fjárfars segir að óljóst sé hver
eigi hlutaféð. Jóhannes Jónsson, kenndur
við Bónus, var eini skráði stjórnarmaðurinn
fyrir tveimur árum.
- jab
EIN VERSLANA 10-11 Baugur eignaðist verslanir 10-11 í
gegnum einkahlutafélagið Fjárfar. Verslanirnar voru fyrir
skömmu teknar út úr Haga-samstæðunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Einkahlutafélagið Fjárfar er lítið meira en skel með neikvætt eigið fé utan um skuldir frá fyrstu árum Baugs:
Á minna en ekkert og skuldar milljónir
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, hefur svar-
að fyrirspurn
í þinginu með
þeim orðum að
hann hafi engar
upplýsingar
um efni henn-
ar, honum beri
ekki að lögum
að safna þeim
og geti því ekki
svarað.
Mörður
Árnason Sam-
fylkingunni
spurði ráðherr-
ann um eignar-
hald Íslendinga
í erlendum sjáv-
arútvegsfyrir-
tækjum. Vildi
hann meðal
annars vita
nöfn fyrirtækj-
anna, hvar þau starfa og hvert
talið er að virði hlutar Íslendinga
í þeim sé. - bþs
Sjávarútvegsráðherra spurður:
Veit ekki svörin
og ætlar ekki
að afla þeirra
JÓN BJARNASON
MÖRÐUR
ÁRNASON
Kínverski seðlabankinn kom
alþjóðlegum markaðsaðilum á
óvart í fyrradag með 25 punkta
hækkun stýrivaxta. Síðast var
hreyft við vöxtunum í desember
2008. Vextir í Kína eru nú 5,56
prósent.
Hlutabréfavísitölur víða um
heim lækkuðu verulega, um og
yfir tvö prósent. Þá fór heims-
markaðsverð á hráolíu undir átta-
tíu dali á tunnu og hefur það ekki
verið lægra frá í sumar.
Bloomberg-fréttaveitan segir
vaxtahækkunina eðlilega í ljósi
útlánaaukningar í Kína, sem hafi
vakið verðbólgudraug af værum
blundi, og vísbendinga um bólu-
myndun á þarlendum fasteigna-
markaði. Hvort tveggja megi
kveða niður með hækkuninni. - jab
Óvænt hækkun vaxta í Kína:
Stjórnvöld slá
þensluna niður
NÓG TIL AF PENINGUM Kínverski
seðlabankinn hefur haft áhyggjur af of
góðu aðgengi Kínverja að lánsfé upp á
síðkastið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
inkasso.is
INKASSO ehf | Smáratorgi 3 | 201 Kópavogur | Sími 520-4040 | Fax 520-4041 | inkasso@inkasso.is | www.inkasso.is
Ókeypis
reikningagerð
og innheimta
Útskrift og innheimta reikninga er tímafrekur
og kostnaðarsamur þáttur í rekstri hvers fyrirtækis.
Inkasso býður þessa þjónustu – ókeypis.
Einbeittu þér að rekstrinum og láttu okkur sjá um reikningana – ókeypis.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
10
26
48
1. Reikningagerð
Við höfum bein samskipti við bókhaldskerfi fyrirtækja, prentum út
reikninga og greiðsluseðla með merki fyrirtækis og sendum samdægurs.
2. Áminningar og eftirfylgni
Ef reikningar fást ekki greiddir fara þeir í milliinnheimtu.
3. Löginnheimta
Ef milliinnheimta ber ekki tilskilinn árangur er réttarkerfinu
beitt til innheimtu vanskilakrafna.
Matsfyrirtækið Standard og
Poor’s hefur hækkað lánshæfis-
einkunn Landsvirkjunar úr BB
með neikvæðum horfum í BB+
með neikvæðum horfum.
Í tilkynningu frá Landsvirkj-
un segir að hækkun lánshæfis-
einkunnar stafi einkum af
breyttum áherslum í rekstri fyrir-
tækisins og því að markvisst sé
unnið að því að draga úr áhættu í
rekstri, svo sem með því að draga
úr tengingu tekna við álverð. Þá
hafi lausafjárstaða fyrirtækis-
ins styrkst með auknu aðgengi að
fjármagni. Það hafi ekki lengur
áhrif á lánshæfiseinkunn Lands-
virkjunar. - jab
Lánshæfi Landsvirkjunar:
Dregið hefur úr
áhættu í rekstri