Fréttablaðið - 21.10.2010, Qupperneq 24
24 21. október 2010 FIMMTUDAGUR
Sameinuðu þjóðirnar hafa sam-þykkt að 20. október 2010 sé
fyrsti alþjóðadagur hagtalna.
Markmiðið er að vekja athygli á
mikilvægi hlutlausra hagtalna og
hlutverki þeirra fyrir opinbera
umræðu og ákvarðanir stjórnvalda,
fyrirtækja og heimila. Þá eru
traustar hagskýrslur mikilvægur
þáttur í samskipum við önnur ríki,
erlend fyrirtæki og stofnanir. Hag-
stofur um 100 ríkja víða um heim
halda upp á daginn með ýmsum
viðburðum til að vekja athygli á
sameiginlegum gildum, hlutlægni
og fagmennsku í hagskýrslugerð.
Framlag Hagstofu Íslands er að
gefa út endurbætta árbók um hag-
skýrslur, Landshagi 2010. Einnig
eru birtar nýjungar og áhugaverðar
upplýsingar á vef Hagstofunnar.
Flestir taka hagskýrslum sem
sjálfsögðum hlut og leiða ekki hug-
ann að þeirri miklu vinnu og sér-
hæfingu sem liggur að baki þeim.
Hagtölur verða í eðli sínu aldrei
alveg réttar en með faglegum og
hlutlægum vinnubrögðum er hægt
að nálgast gildi sem eru nægilega
traust til að lýsa stöðu eða breyt-
ingum innan viðunandi skekkju-
marka. Hagstofur flestra ríkja
standa frammi fyrir auknum kröf-
um um að birta niðurstöður fyrr en
áður, en á sama tíma að draga úr
frávikum við endurskoðun þeirra
og minnka kostnað við öflun hag-
talna. Með nýrri tækni hefur tek-
ist að mestu að mæta þessum kröf-
um, en á móti kemur að þjóðfélagið
er orðið flóknara, alþjóðaviðskipti
hafa aukist og kröfur komið fram
um meiri upplýsingar. Kröfur um
aukinn hraða og aukin gæði veg-
ast á og hafa verið helsta áskorun í
hagskýrslugerð frá upphafi.
Samskipti við aðrar þjóðir eru
sífellt mikilvægari á öllum svið-
um. Alþjóðleg samskipti hafa aukið
á kröfur um að hagtölur séu saman-
burðarhæfar á milli ríkja og svip-
aðar að gæðum. Ísland hefur verið
aðili að tölfræðisamstarfi Samein-
uðu þjóðanna frá upphafi og með
samningnum um evrópska efna-
hagssvæðið frá 1994 hefur Hag-
stofa Íslands, ásamt öðrum ríkjum
EFTA, tekið fullan þátt í tölfræði-
samstarfi Evrópusambandsins.
Hagstofan hefur einnig átt gott
samstarf við aðrar alþjóðastofnan-
ir, svo sem OECD og IMF, og skil-
ar hagtölum reglulega til þeirra.
Sem dæmi um mikilvægi alþjóða-
samskipta má nefna að á síðasta ári
sóttu fleiri erlendir aðilar gögn í
veftöflur Hagstofunnar en íslensk-
ir. Þá koma kröfur um nýjar eða
auknar upplýsingar í flestum til-
vikum frá alþjóðastofnunum.
Til að tryggja gæði hagtalna
samþykktu Sameinuðu þjóðirnar
grundvallarreglur í hagskýrslu-
gerð árið 1994. Í þeim er kveðið á
um sjálfstæði og faglega ábyrgð
hagstofa. Evrópusambandið setti
nokkuð ítarlegar verklagsreglur um
hagskýrslugerð árið 2005 og eru
í þeim fimmtán meginreglur sem
kveða m.a. á um faglegt verklag,
hlutlægni, trúnað og gæði. Báðar
þessar samþykktir hafa verið inn-
leiddar hér á landi. Þá tóku ný lög
um Hagstofu Íslands og opinbera
hagskýrslugerð gildi í upphafi árs
2008 sem færa löggjöfina hér á
landi að því sem best gerist ann-
ars staðar.
Til að tryggja að hægt sé að bera
saman hagtölur ríkja eru gefnir
út ítarlegir staðlar um hagskýrsl-
ur á vegum Sameinuðu þjóðanna
og hagstofu Evrópusambandsins,
Eurostat. Þannig má nefna staðla
Sameinuðu þjóðanna um þjóð-
hagsreikninga og opinber fjár-
mál, einnig að Hagstofa Íslands er
skuldbundin til að fara eftir 254
reglugerðum Evrópusambandsins
um hagskýrslugerð. Sendinefndir á
vegum alþjóðastofnana heimsækja
Hagstofuna reglulega og fara yfir
gæði og fylgja eftir stöðlum við
gerð hagskýrslna.
Þótt alþjóðasamstarf sé mikil-
vægt eru innlendar þarfir í fyrir-
rúmi hagskýrslugerðar. Hagtölur
eru mikilvægur þáttur í að fylgja
eftir þróun í efnahags- og félags-
málum. Þær eru hluti af opinberri
umræðu og eiga að sýna hvernig
okkur miðar miðað við fyrri ár eða
aðrar þjóðir. Hagtölur eru einnig
mikilvægur grunnur fyrir rann-
sóknir í háskólasamfélaginu og hjá
opinberum stofnunum og einka-
fyrirtækjum. Til að rækja skyldur
sínar við innlenda notendur gerir
Hagstofan notendakannanir og held-
ur reglulega fundi með notendahóp-
um þar sem þeir geta komið sjónar-
miðum sínum á framfæri.
Miðlun upplýsinga er ekki síður
mikilvæg en fagleg vinnubrögð við
söfnun og úrvinnslu. Samkvæmt
verklagsreglum í evrópskri hag-
skýrslugerð er öllum tryggður jafn
aðgangur að hagtölum. Í samræmi
við reglurnar er gefin út birting-
aráætlun ár hvert sem sýnir fyrir
fram hvenær hagtölur verða birtar
á vef Hagstofunnar. Allir notendur
fá aðgang að hagtölum á sama tíma;
almenningur, fjölmiðlar og stjórn-
völd. Hagstofan gaf út 457 fréttir á
síðasta ári, þar af var 241 á íslensku
og 216 á ensku. Á vef Hagstofunnar
eru rúmlega eitt þúsund töflur þar
sem notendur geta sótt sér gögn og
flutt efni í töflureikna til frekari
vinnslu. Svipaður fjöldi taflna er á
enska hluta vefsins.
Mikilvægt er að tryggja góðan
aðgang að hlutlægum og faglega
unnum hagtölum. Eru hagtölur eins
konar vegabréf ríkja í alþjóðasam-
félaginu og spegill þjóða. Á degi
hagtalna er vert að hvetja lesend-
ur til að kynna sér gögn á vef Hag-
stofunnar, hagstofa.is, og útgáfu
tölfræðiárbókar Hagstofunnar,
Landshagi 2010.
Alþjóðadagur hagtalna
Hagtölur
Ólafur
Hjálmarsson
hagstofustjóri
Ekki hef ég áður litið aðra eins hvatningu til ofbeldis, einelt-
is, útskúfunar og mannfyrirlitn-
ingar sem í Fréttablaðinu þann
16. október 2010. Þar skrifar í
bundnu máli sjálfskipaður rétt-
hugsuður sem nefnir sig Davíð
Jónsson, í bálki sem nefnist „Bak-
þankar“!
Davíð þessi þykist þess umkom-
inn að predika ofbeldi í garð fólks
sem honum fellur miður vel.
Senda í Víti, bera burtu í kist-
um, berja, lemja, banka, lumbra,
lemstra, láta hnefahögg dynja,
mauka, dangla.
Í blaði ykkar hvetur þessi
maður dómstól götunnar til að
ganga í skrokk á samborgurum
okkar ef við teljum ef til vill að
viðkomandi sé ekki pólitískt rétt-
hugsandi.
Ég þekki ekki neina samsvör-
un við þessa ofbeldishvatningu
og mannfyrirlitningu, hvorki
fyrr né nú, og tel sambærileg
skrif varla hafa verið birt í nein-
um fjölmiðli.
Þessi skrif Davíðs eru Frétta-
blaðinu til ósóma og lítillækkun-
ar. Látum vera þó Davíð þessi sé
svo óþroskaður og kvalinn í við-
horfi sínu gagnvart öðru fólki
en því sem honum geðjast, en að
birta þessa óhæfu og bera á borð
fyrir landsmenn unga og aldna og
dreifa inn á hvert heimili í land-
inu er virðingarleysi við mann-
kynið í heild.
Í öllum bænum, notið ekki fjöl-
miðil ykkar til að sá slíku eitri í
þjóðarsálina sem á nú í nægilegri
togstreitu.
Með vinsemd og virðingu,
Björn Hauksson
Til Fréttablaðsins
Samfélagsmál
Björn
Hauksson
Reykvíkingur
Kæru Hrafn Magnússon og Atli Gíslason.
Eftir að hafa lesið viðtal við
ykkur í Fréttablaðinu þann 24.
september sl., finn ég mig knúinn
til að rita ykkur eftirfarandi:
Í viðtalinu við ykkur félag-
ana kom fram að líkur væru á að
Alþingi muni hætta við að rann-
saka lífeyrissjóðina þar sem nú
þegar sé hafin rannsókn á vegum
lífeyrissjóðanna sjálfra, þ.e.
Landssambands lífeyrissjóða.
Eins og fram kom í grein eftir mig
sem birtist í Fréttablaðinu fyrir
skömmu, dreg ég stórlega í efa að
slík rannsókn geti orðið annað en
hvítþvottur þess sem fæst við að
rannsaka eigin gerðir.
Varla þarf að rifja upp fyrir
ykkur að á fundi Landssamtaka
lífeyrissjóðanna var ákveðið að
skipa þriggja manna rannsóknar-
nefnd óháðra, óvilhallra og hæfra
einstaklinga sem hefði það hlut-
verk að gera úttekt á fjárfestinga-
stefnu, ákvarðanatöku og laga-
legu umhverfi lífeyrissjóðanna í
aðdraganda hrunsins. Sömu aðilar
samþykktu að fela ríkissáttasemj-
ara að tilnefna þrjá einstaklinga til
setu í nefndinni.
Af einhverri ástæðu sem líklega
er sjálfstætt rannsóknarefni ákvað
sáttasemjari aðeins að mæla með
því að óvilhallur aðili tæki verk-
efnið að sér.
Á vefnum http://skemman.is
frá 04.05.2010 má lesa að Hrafn
Bragason, formaður rannsókn-
ar nefndarinnar, hafði áður verið
leiðbeinandi annars starfsmanns
nefndarinnar, Kristjáns Geirs Pét-
urssonar. Þeir félagar höfðu nefni-
lega „rannsakað“ þessi mál áður.
Varla þarf að taka fram að hér
eru varla lengur óháðir og hæfir
aðilar á ferð.
Atli sagðist ætla að bíða eftir
annarri skýrslu sem unnin verður
af sömu aðilum og ætlar svo að sjá
til hvort ástæða verði til að rann-
saka lífeyrissjóðina eitthvað frek-
ar. Allt ber þetta vott um það gagn-
sæi og heiðarleika sem íslenskum
almenningi er boðið upp á um þess-
ar mundir. Því spyr ég, getur verið
að störf Atla fyrir verkalýðshreyf-
inguna, og þá sérstaklega innan
stéttarfélagsins Eflingar, stýri hér
för?
Auðvitað veit ég ekki hvað fór
á milli Atla og Hrafns en Hrafn
sagði í umræddri frétt að þegar við
útkomu skýrslu þingmannanefndar-
innar hefði verið haft samband við
nefndina og áréttað að sjálfstæð
og óháð úttekt færi fram. En þetta
var auðvitað alls ekki rétt. Rann-
sóknin er auðvitað hvorki óháð né
sjálfstæð. Með öllum ráðum virðist
reynt að koma í veg fyrir að Alþingi
rannsaki lífeyrissjóðina. Er ekki
nauðsynlegt fyrir lífeyrissjóðina
að öðlast traust og verða hafnir yfir
áleitnar spurningar um spillingu?
Að Hrafn skuli hafa viðurkennt
að umrætt samtal hafi átt sér stað
gerir hina óháðu rannsókn Lands-
samtakanna nefnilega alls ekki
eins óháða og fólki er ætlað að
halda. Getur verið, eftir allt sem á
undan er gengið, að Landssamtök
lífeyrissjóðanna komist upp með
að stjórna rannsókn á sjálfum sér
frá A til Ö?
Atli Gíslason hefur starfað fyrir
verkalýðshreyfinguna í áratugi.
Er óeðlilegt að efast um aðkomu
hans þegar annað eins mál og
rannsókn á lífeyrissjóðum lands-
ins er á döfinni? Hingað til hef ég
haft trú á Atla, en eins og málið
blasir við núna hefur orðið breyt-
ing á. Réttast væri að þingmað-
urinn segði sig frá þessu máli nú
þegar. Eins er ég á þeirri skoðun
að stöðva beri rannsóknarnefnd
Landssamtakanna strax og fela
raunverulegum óháðum rannsak-
endum málið. Hér þarf alþjóðlegt
rannsóknarfyrirtæki eins og t.d.
Kroll að koma að málum. Engin
launung er á að Kroll er óháður
rannsakandi og engu háð nema
heiðarlegri niðurstöðu.
Það er sanngjörn krafa að lífeyr-
issjóðir launafólks verði hreinsað-
ir af því óorði sem af þeim fer. Við
sem eigum og treystum á sjóðina
hljótum að gera kröfu til þess að
hér orki ekkert tvímælis.
Opið bréf til Atla og Hrafns
Lífeyrissjóðir
Bjarki
Steingrímsson
stjórnarmaður í VR
Atli Gíslason hefur starfað fyrir verka-
lýðshreyfinguna í áratugi. Er óeðlilegt
að efast um aðkomu hans þegar annað
eins mál og rannsókn á lífeyrissjóðum
landsins er á döfinni?
Allt sem þú þarft...
Ekki missa af Fréttablaðinu á morgun
Spæjarar á mótorhjólum
vörðu miðborgina!
- viðtal við Jakob Frímann Magnússon miðborgarforkólf.
EINNIG:
Hvernig kýstu til stjórnlagaþings?
Allt um kosningarnar 27. nóvember.
Hagsmuna hverra gæta
Hagsmunasamtök heimilanna?