Fréttablaðið - 21.10.2010, Side 26
21. október 2010 FIMMTUDAGUR26
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jakobína Sigurðs
(Bína)
frá Æðey í Ísafjarðardjúpi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn
14. október síðastliðinn. Útförin fer fram frá
Árbæjarkirkju mánudaginn 25. október kl. 13.00.
Sigmar Þór Óttarsson Helga Konráðsdóttir
Guðrún Sóley Guðnadóttir Helgi Harðarson
Garðar Guðnason Sigríður Sigurðardóttir
Friðrik Guðnason Elísa Sigrún Ragnarsdóttir
Ásgeir Ævar Guðnason Guðbjörg Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Árni Sigurðsson
frá Hjarðarási við Kópasker,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 15. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 26.
október kl. 15.00.
Sigurður Árnason Bryndís Alda Jónsdóttir
Ingunn Árnadóttir Sighvatur Arnarsson
Helgi Árnason Sigurlína Jóhannesdóttir
Daníel Árnason Sigurhanna Sigfúsdóttir
Gylfi Árnason Guðrún Vala Elísdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar,
Ólafur Kristófer
Bjarnason
frá Þorkelsgerði í Selvogi,
Reykjabraut 22, Þorlákshöfn,
lést 17. október á Landspítalanum í Fossvogi.
Systurnar.
Ástkær sonur okkar, bróðir og frændi,
Örn Egill Pálsson
lögfræðingur,
lést á heimili sínu þann 14. október síðastliðinn.
Útför fer fram frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn
26. október kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á
UNICEF.
Páll H. Kristjánsson Rósa Helgadóttir
Bjarnveig Pálsdóttir Hallur Ágústsson
Unnur Lea Pálsdóttir Pétur H. Pétursson
Viktor Stefán Pálsson Margrét Björk Ólafsdóttir
Íris Björk Pálsdóttir Bjarni Arnaldsson
Páll Ágúst, Andri Berg, Herdís, Sara Rós, Róbert Dagur,
Rósa Björk, Anton Breki, Glódís Ólöf og Brynhildur Sif.
Okkar ástkæri eiginmaður og fjöl-
skyldufaðir,
Grétar Halldórsson,
Kirkjuvegi 23, Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 18. október 2010.
Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hins látna.
Margrét Sigurgeirsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
68
Samkvæmt ákvörðun Alþingis fór hinn 21. október
1933 fram þjóðaratkvæðagreiðsla um afnám
banns við innflutningi sterkra drykkja. Kosninga-
þátttaka var dræm. Rúmur helmingur kjósenda
mætti ekki til leiks. Aðeins 45,3 prósent þeirra
sem á kjörskrá voru greiddu atkvæði. Af greiddum
atkvæðum voru 2,4 prósent ógild. 57,7 prósent
þeirra sem atkvæði greiddu vildu afnema bannið
en það var aðeins rúmur fjórðungur (25,5 prósent)
atkvæðisbærra manna. Þessi fjórðungur var látinn
nægja til að greiða slitrunum af bannlögunum
banahöggið.
Ekki voru lögin numin úr gildi strax. Rúmt ár leið
þar til Alþingi samþykkti ný áfengislög. Það gerðist
9. janúar 1935. Lögin gengu í gildi 1. febrúar. Þá
voru liðin rúm tuttugu ár frá því að bannlögin
komu að fullu til framkvæmda. Þessi lög stóðu
mjög að baki áfengislögunum frá 1928, meðal
annars misstu sveitarfélög réttinn til að hafna
verslun með áfengi. Heimild: Lýdheilsustöð.is
ÞETTA GERÐIST: 21. OKTÓBER 1933
Kosið um afnám bannlaga
ÁFENGI Aðeins tæpur helmingur
kjósenda kaus í þjóðaratkvæða-
greiðslu um afnám bannlaga.
Málþing um fitufordóma verður haldið
á Háskólatorgi í dag að undirlagi sál-
fræðingsins Sigrúnar Daníelsdóttur
sem starfar við meðferð átraskana á
Landspítalanum. „Ég hef lengi verið að
reyna að ýta á eftir breyttum hugsun-
arhætti í samfélaginu í tengslum við
heilsu, útlit og holdafar og langaði að fá
fólk til landsins sem er virkt í þessari
mannréttindabaráttu og stundar rann-
sóknir á fitufordómum,“ segir Sigrún.
Hún segir litla umræðu um fordóma
vegna holdafars á Íslandi. „Þeir eru
hins vegar svo algengir og rótgrónir í
menningu okkar að fæst okkar átta sig
á því þegar þeir koma fram. Þeim má
þó líkja við fordóma vegna hörundslit-
ar og samkynhneigðra, sem þóttu norm
áður en fólk gerði sér grein fyrir því að
um fordóma væri að ræða.“
Sigrún segir fitufordóma hafa auk-
ist á undanförnum áratugum. Á mál-
þinginu munu tveir erlendir fyrirlesar-
ar ljá máls á þeim. Þeir eru Dr. Kerry
O’Brien, dósent í heilsu- og félags-
sálfræði við Háskólann í Manchester
og rannsakandi á sviði fitufordóma,
og Marilyn Wann, bandarísk bar-
áttukona og rithöfundur, sem hefur
staðið í forgrunni baráttunnar gegn
holdafarsmismunun um árabil. Wam
leggur meðal annars út frá eftirfar-
andi orðum: „You can not hate pople
for their own good“ en með þess konar
hugsunarhætti réttlætir fólk fordóma
gagnvart feitu fólki. „Það þykir feitu
fólki fyrir bestu að það sé litið horn-
auga því þannig séu meiri líkur á að
það taki sig á. Rannsóknir á fitufor-
dómum hafa hins vegar sýnt fram á að
fitufordómar hafa mjög mikil og nei-
kvæð áhrif og það er hræðilegt að búa
við það að vera álitinn annars flokks
alla ævi,“ segir Sigrún. „Eitt sem ein-
kennir þessa fordóma er að fólk álít-
ur sem svo að holdafarinu megi alfarið
stjórna. Fólk réttlætir fordómana með
því að ef þeir sem fyrir þeim verða
vilji komast hjá þeim geti þeir bara
tekið sig á. Það er hins vegar flóknara
en fólk heldur enda er engin vísinda-
lega staðfest aðferð til þess að grenn-
ast og ekki endilega gefið að hreyfing
og hollt mataræði leiði til þess að fólk
verði mjótt, þó að það verði vissulega
heilbrigðara.“
Sigrún segir rannsóknir ekki benda
til þess að fordómar gegn holdafari
ýti undir það að fólk temji sér heil-
brigðari lífsvenjur. „Það er mun lílegra
að fólk sem er litið hornauga bregðist
við með sjálfsniðurrifi. Okkur þarf að
þykja vænt um líkama okkar til þess
að við hugsum vel um hann.“ Sigrún
segir erfitt að greina í sundur vísindin
í sambandi við offitu. „Yfirleitt erum
við með rannsóknir sem geta ekki sagt
til um hvort það er fitan sjálf sem er
heilsuspillandi eða hvort það eru þættir
eins og mataræði, stöðug streita vegna
fordóma, megrunarkúrar, svefnleysi
eða megrunarlyf svo dæmi séu nefnd.
Í allri umræðu er framsetningin sú að
fitan sé meginvandinn en það er ekki
fyllilega vitað hvernig ólíkir þættir
spila saman.“
Sigrún segir mikilvægt að aðgreina
hegðun og holdafar. „Ég vil að sjálf-
sögðu mæla gegn óheilbrigðri hegðun
eins og að borða óhollan mat, hreyfa
sig lítið og reykja. Það er hins vegar
ekki hægt að fullyrða sem svo að sá
sem sé feitur hljóti að lifa óheilbrigðu
lífi en hinn granni að gera allt rétt.“
Sigrún segir vissulega rétt að Íslend-
ingar hafi þyngst á síðustu þrjátíu
árum. „Við tókum kipp eftir 1980 en
höfðum þó verið bæði að þyngjast og
hækka alla öldina. Við lifum lengur í
dag en áður og tíðni hjarta- og æða-
sjúkdóma hefur minnkað.“ Sigrún
segir það hafa gengið mjög erfiðlega
að staðfesta það með rannsóknum að
hreyfingarleysi og rangt mataræði
valdi því að fólk sé að þyngjast. „Við
vitum ekki nákvæmlega hvað veldur
þó vissulega séu margar tilgátur sem
koma til greina. Vandinn er að farið er
með þær sem staðreyndir.“
Málþingið, sem er haldið í samvinnu
við félags- og mannvísindasvið HÍ, fer
fram í stofu 103. Það hefst klukkan 16
og er öllum opið.
vera@frettabladid.is
SIGRÚN DANÍELSDÓTTIR: STENDUR FYRIR MÁLÞINGI UM FITUFORDÓMA
Algengir og rótgrónir fordómar
AUKINNAR UMRÆÐU ÞÖRF Sigrún segir ekkert benda til þess að fordómar gegn holdarfari ýti
undir heilbrigðari lífsvenjur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR skáld er 68 ára.
„Ó að lífið væri ljóð!“
Merkisatburðir
1819 Jón Þorláksson skáld og prestur á Bægisá deyr. Hann er
þekktastur fyrir þýðingu á Paradísarmissi Miltons.
1914 Orrustunni um Varsjá lýkur með ósigri Þjóðverja.
1933 Þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram um afnám bannlaganna.
15.866 eru á móti banni en 11.625 með því. Áfengisbann
er síðan afnumið 1. febrúar 1935.
1944 Ríkisstjórn Ólafs Thors, nýsköpunarstjórnin, tekur við völd-
um. Hún situr fram í febrúar 1947. Í henni voru fulltrúar
Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Sósíalistaflokks. Megin-
markmið hennar var nýsköpun atvinnulífs og var notaður
til þess hluti gjaldeyrisforðans sem hafði safnast í seinni
heimsstyrjöldinni.
1957 Kvikmyndin Jailhouse Rock með Elvis Presley í aðalhlut-
verki er frumsýnd.
1967 Upp kemst um eitt mesta smyglmál í áratugi, kennt við
bátinn Ásmund. Með honum var smyglað 12.000 flöskum
af áfengi og einhverju af sígarettum.
1988 Listasafn Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara er opnað
í Laugarnesi í Reykjavík, en þennan dag hefði Sigurjón
orðið áttræður.
1997 Söngur Eltons John um Díönu prinsessu slær heimsmet í
sölu. Alls hafa 33 milljón eintök verið seld.