Fréttablaðið - 21.10.2010, Page 35
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010
Solid herraúlpa
st. s-xxl
litir: svartur
verð: 18.990,-
Solid herraúlpa
st. s-xxl
litir: svartur
verð: 16.990,-
MIA dömuúlpa
st. xs-xl
litir: svartur, rauður,
og camouflage
verð: 16.990,-
Diesel dömuúlpa
st. s-xl
litir: svartur, grænn
verð: 29.990,-
„Við í Galleri Sautján höfum lagt
mikið á okkur til að bjóða upp á gott
úrval af úlpum og vetrarflíkum í
ár,“ segir Guðlaug Elísa Einarsdótt-
ur, verslunarstjóri Galleri Sautján
í Kringlunni. „Snið og gerðir eru
margar og verð er frá 8.990 krón-
um. Allir ættu því að geta fundið sér
hlýja og góða flík fyrir veturinn.“
Guðlaug segir fjórar gerðir af
Moss úlpum í boði en þær eru hann-
aðar á Íslandi af hönnunarteymi
Galleri Sautján með þarfir íslenska
markaðarins í huga. „Sniðið er orðið
klassískt hjá okkur og ávallt vin-
sælt. Í ár bættum við fallegum rauð-
um lit í úrvalið sem og hermanna-
munstrinu við þær svörtu og hefur
þeim verið vel tekið. Þá erum við
með mjög vinsælar Diesel-úlpur
í hermannagrænu og svörtu. Þær
eru síðar með stórum kraga, gróf-
ar og eru flottar við alla hermanna-
tískuna sem er í gangi núna,“ segir
Guðlaug.
Hún segir dúnúlpurnar frá Ichi
líka vera vinsælar en þær fást bæði
svartar og gráar. „Verðið á þeim
kemur líka skemmtilega á óvart en
þær kosta 8.990 krónur.“
Úrvalið af vetrarflíkum og úlpum
í Galleri Sautján er fjölbreytt. Hvort
sem verið er að leita að úlpu eða
kápu, beinni, aðsniðinni, stuttri
eða síðri flík þá eru möguleikarn-
ir margir og úrvalið ætti að henta
breiðum hópi kvenna. Guðlaug segir
úlpurnar hafa byrjað að seljast vel
strax í byrjun september og eftir ný-
legt kuldakast er greinilegt að allir
vilja fá sér hlýja og góða utanyfir-
flík fyrir veturinn.
Aldrei meira úrval af úlpum
Guðlaug Elísa Einarsdóttir, verslunar-
stjóri í Galleri Sautján í Kringlunni.
Soffía Tinna Gunnhildardóttir, starfsmaður í Galleri Sautján í Smáralind, innan um
hluta úrvalsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Síðar karlmannsúlpur með
hettu og flottar dúnúlpur eru
áberandi í Galleri Sautján í ár.
Úlpurnar komu óvenju snemma
í Galleri Sautján í ár, eða upp úr
byrjun september. Þrátt fyrir
mikið hlýindaskeið byrjuðu þær
strax að rjúka út enda veit fólk
sem er að þær eru fljótar að
klárast. „Þó að það sé búið að vera
hlýtt þá vita Íslendingar af feng-
inni reynslu að það kemur vetur,
það er ekkert leyndarmál. Ef þeir
sjá góða úlpu á góðu verði eru því
margir sem slá til jafnvel þó að
veturinn sé ekki skollinn á með
fullum þunga,“ segir Davíð Kristj-
án Guðmundsson, verslunarstjóri
Galleri Sautján í Smáralind.
Hann segir mikið um síðar karl-
mannsúlpur í ár og að margar séu
með hettu og jafnvel loðkraga. „Þá
er mikið um að hægt sé að taka
loðkragann eða jafnvel hettuna
af, sem býður upp á að hægt sé að
nota flíkurnar við ólík tækifæri,“
segir Davíð. Hann segir úlpurnar
á mjög breiðu verðbili sem hentar
ólíkum aldurshópum.
Beðinn um að lýsa úrvalinu
nánar segir Davíð sænskar Elvine
úlpur vera klassa flíkur. „Þetta eru
flottar aðsniðnar úlpur sem end-
ast í mörg ár. Þær eru með hettu
sem má losa af en þannig er hægt
að nota þær við fínni tækifæri. Þá
erum við með svipaðar úlpur frá
öðrum merkjum ásamt dúnúlpum,
mittisjökkum og ýmsu fleiru.“
Davíð segir Mao-úlpurnar vera
með þeim vinsælustu ásamt Solid-
dún- og hettuúlpunum sem eru á
góðu verði. „Dúnúlpurnar fást
bæði stuttar og síðar og mittisúlp-
urnar eru með góðu stroffi. Við
erum með úlpur sem falla inn í
götutískuna en líka fínni snið svo
allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Þar sem verðbilið
er breitt býður það líka upp á að
fólk geti jafnvel átt fleiri en eina
góða úlpu. Það fer auðvitað eftir
því úr hverju fólk hefur að spila
en það getur verið gaman að eiga
eina úlpu sem hentar yfir köldustu
vetrarmánuðina en aðra sem er
betri vor og haust. Þá getur verið
gaman að vera ekki gæinn í „þess-
ari“ úlpu heldur eiga möguleika
á því að skipta eða í það minnsta
breyta henni eitthvað.“
Úlpur við allra hæfi
Davíð segir úlpurnar í Galleri 17 henta breiðum aldurshópi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM