Fréttablaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010
Klassísk og karlmannleg snið
verða áberandi í verslunum
Herragarðsins í vetur.
Með kólnandi veðri er kominn
tími á hlýjar yfirhafnir. Í verslun-
um Herragarðsins í Kringlunni og
Smáralind er að finna gott úrval af
jökkum, frökkum og úlpum, en þar
ber hæst klassísk og karlmannleg
snið í haust og vetur. Vilhjálm-
ur Svan Vilhjálmsson, verslunar-
stjóri Herragarðsins í Kringlunni,
er öllum hnútum kunnugur.
„Áherslan er á klassík snið.
Með því á ég alls ekki við karlaleg
snið heldur þessi sígildu sem notið
hafa vinsælda um langt skeið, þó
í nýjum og ögn breyttum útfærsl-
um. Við erum með merki á borð
við Bugatti, sem við höfum verið
með í ein tuttugu ár, ítalska merk-
ið Mabrun og hið ameríska Ralph
Lauren, sem er ekki að eltast við
tískusveiflur heldur stendur vörð
um ákveðinn stíl. Segja má að
ákveðið bóhemaútlit frá sjöunda
áratugnum sé í tísku og þar koma
sterkir inn sígildir sjóliðajakkar
og svo ýmsir aðrir flottir jakkar
og frakkar, þar sem svart og grátt
og brúnir tónar ráða ríkjum.“
Vilhjálmur getur þess að fram-
úrstefnulegri fatnaður sé líka á
boðstólum í verslunum Herra-
garðsins, sem leitist ávallt við að
þjóna breiðum kúnnahópi.
„Við erum að sjálfsögðu líka
með „nútímalegri“ yfirhafnir, þar
á meðal aðskorna jakka frá fram-
leiðendunum Sand og Strellson,
með skemmtilegum smáatriðum
og litríku fóðri, rauðu og fjólu-
bláu, sem mynda skemmtileg-
ar andstæður við svart, grátt og
brúnt efni yfirhafnanna,“ segir
hann og bætir við að flottir frakk-
ar og jakkar í hermannastíl falli
líka í þennan flokk.
„Þá eru frakkarnir frekar að-
sniðnir með þeim möguleika að
geta nota þá meira hversdags
frekar en aðeins sem spariflík,“
bendir Vilhjálmur á. Tekur fram
að þeir sem séu í leit að fallegum
og hlýjum úlpum komi heldur ekki
að tómum kofanum í Herragarðin-
um, þar sem þær séu í mjög góðu
úrvali.
Bóhemar, sjóliðar og
töffarar í tindátaleik
Vilhjálmur Svan Vilhjálmsson, verslunarstjóri í Herragarðinum í Kringlunni, spáir klassískum jökkum og frökkum vinsældum í
vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Herragarðurinn hefur í meira en
þrjá áratugi séð landsmönum fyrir
góðu úrvali af herrafatnaði, jakka-
fötum, skyrtum og yfirhöfnum
og kappkostað að höfða til breiðs
kúnnahóps, karlmanna frá aldrin-
um átján ára og upp úr.
Að sögn Vilhjálms Svan Vil-
hjálmssonar, verslunarstjóra
Herragarðsins í Kringlunni, hefur
úrvalið aldrei verið betra en ein-
mitt nú og á það ekki síst við um
yfirhafnir. „Úrvalið hefur sjald-
an verið betra en í vetur og við
kappkostum að finna það rétta
fyrir kúnnana okkar til að halda
að þeim hlýju og umfram allt svo
þeir líti vel út.“
Hann bætir við að þetta endur-
speglist meðal annars í fjölbreytt-
um og vönduðum vörumerkjum,
svo sem Bugatti, Mabrun, sem sér-
hæfir sig í yfirhöfnum, og einnig
Ralph Lauren, Sand og Strellson.
Gott úrval og einstök gæði
Úr verslun Herragarðsins í Kringlunni sem þar var opnuð árið 1987. Herragarður-
inn hefur einnig frá árinu 2001 rekið herrafataverslun í Smáralind í Kópavogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON