Fréttablaðið - 22.10.2010, Blaðsíða 64
22. október 2010 FÖSTUDAGUR40
sport@frettabladid.is
ÍSLENSKA KARLALANDSLIÐIÐ í knattspyrnu mætir Ísrael í vináttulandsleik
þann 17. nóvember næstkomandi. Leikurinn fer fram í Tel Aviv. Ísrael er í 56. sæti
heimslistans en Ísland í því 110. Þetta er í þriðja sinn sem þjóðirnar mætast í knatt-
spyrnulandsleik. Hinir tveir leikirnir fóru fram árið 1992 og vann Ísrael þá báða.
FÓTBOLTI Sænska úrvalsdeildarfé-
lagið Jitex BK vill fá Rakel Hönnu-
dóttur til liðs við sig. Þetta stað-
festi hún í samtali við Fréttablaðið
í gær.
Rakel fór til Svíþjóðar fyrr í
mánuðinum og leist forráðamönn-
um félagsins vel á hana. „Það gekk
mjög vel úti. Viðbrögðin sem ég
fékk voru mjög fín og þeir vilja fá
mig,“ sagði Rakel. „Ég hef feng-
ið mjög gróft samningstilboð frá
þeim en mér líst svo sem ekki
illa á það sem þeir höfðu fram að
færa.“
Rakel hefur verið lykilmaður
í liði Þórs/KA sem varð í 2. sæti
Pepsi-deildar kvenna í ár og vann
sér þar með þátttökurétt í Meist-
aradeild Evrópu á næstu leiktíð,
fyrst kvennaliða á Norðurlandi.
„Ég er núna að hugsa málið og
er að velta fyrir mér öllum mögu-
legum kostum og göllum. Valið
snýst fyrst og fremst um að vera
hér áfram eða fara til Svíþjóðar,“
sagði Rakel. „Þetta er ekki auðveld
ákvörðun en ég á von á að komast
að niðurstöðu á næstu vikum.“
Hún segist samt hafa stefnt að
því að komast að í atvinnumennsk-
unni. „Ég vil ná lengra en ég hef
gert en þarf líka að hugsa um
hvað sé best fyrir mig – hvar mér
myndi líða best og hvar ég gæti
lært mest.“
Henni líst vel á lið Jitex, sem
náði fínum árangri í sænsku
úrvalsdeildinni í sumar. „Liðið var
á sínu fyrsta ári í deildinni og náði
sjötta sæti. Þetta er lið í Gautaborg
og mér leist vel á það.“
Fjölmargir íslenskir knatt-
spyrnumenn, karlar og konur,
eru nú á mála hjá sænskum knatt-
spyrnuliðum. „Ég hef aðeins heyrt
í stelpunum úti og spurt út í lífið
í Svíþjóð. Það er annars voðalega
lítið ákveðið enda er ég enn að
hugsa málið.“
Rakel lék sinn fyrsta meistara-
flokksleik árið 2004, þá sextán ára
gömul. Síðan þá hefur hún skorað
119 mörk í jafn mörgum leikjum
í deild og bikar, sem er frábær
árangur. Hún á að baki 30 A-lands-
leiki og hefur skorað í þeim tvö
mörk. - esá
Sænska úrvalsdeildarfélagið Jitex BK vill semja við Rakel Hönnudóttur:
Jitex vill fá Rakel til Svíþjóðar
RAKEL HÖNNUDÓTTIR Gæti verið á leið í
sænsku deildina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
NÚ ER
TVÖFALT
MEIRA
Í VINNING
EN Á-DUR!
I I
!
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
ÚRV.D.
1. D.
Sunderland - Aston Villa
Birmingham - Blackpool
Chelsea - Wolves
WBA - Fulham
Wigan - Bolton
Burnley - Reading
Norwich - Middlesbrough
Swansea - Leicester
Hull - Portsmouth
Millwall - Derby
Nottingham - Ipswich
Preston - Crystal Palace
Watford - Scunthorpe
72.000.000
27.000.000
21.000.000
45.000.000
ENSKI BOLTINN 23. OKTÓBER 2010
42. LEIKVIKA
(13 R.)
(12 R.)
(11 R.)
(10 R.)
Stærstu nöfnin eru í Enska
boltanum og nú er potturinn
orðinn ennþá stærri. Vertu með
og tippaðu fyrir kl. 13 á morgun.
SÖLU LÝKUR 23. OKT. KL. 13.00
1 X 2
TIPPAÐU Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA Á 1X2.IS
HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds-
son landsliðsþjálfari hefur valið
sautján leikmenn fyrir leikina gegn
Lettlandi og Austurríki í undan-
keppni EM 2012. Fyrri leikurinn
er gegn Lettum í Laugardalshöll
á miðvikudaginn 27. október en
sá seinni er í Austurríki þremur
dögum síðar. Þetta eru tveir fyrstu
leikirnir í undankeppninni þar
sem fjögur lið keppa um tvö sæti í
úrslitakeppninni í Serbíu.
„Það er gríðarlega mikilvægt
að byrja þessa undankeppni vel og
hver einasti leikur í þessum riðli
er lykilleikur. Við verðum að gera
mjög vel til að koma okkur upp úr
þessum riðli. Austurríkismenn eru
sýnd veiði en ekki gefin og Þjóð-
verjar eru með frábært lið. Við
höfum ekki efni á að vanmeta Letta
því þeir eru líka með mjög fram-
bærilegt lið,“ segir Guðmundur en
hann fagnar því þó að fá að byrja
á heimavelli á móti fyrir fram sla-
kasta liðinu í riðlinum.
„Við höfum bara tvo daga saman
og tvær æfingar fyrir þennan
fyrsta leik. Það tekur alltaf tíma
að stilla saman strengina, bæði í
varnarleik og sóknarleik og allt
þar á milli. Við þurfum að gera vel
til þess að koma okkur í stand, við
tökum leikinn á miðvikudaginn
mjög alvarlega og svo bíður okkar
mjög erfiður leikur á móti Austur-
ríkismönnum á þeirra heimavelli,“
segir Guðmundur.
Hrósar Sigurbergi
Guðmundur Guðmundsson hefur
fengið gott tækifæri til að fylgj-
ast með íslensku leikmönnunum í
þýsku deildinni og sem dæmi um
það hafa fyrstu þrír deildarleikir
Rhein-Neckar Löwen undir hans
stjórn verið á móti Íslendinga-
liðum. „Ég hef frábært tækifæri
til að skoða leikmennina sem eru
hérna. Allir íslensku leikmenn-
irnir hafa spilað vel á móti okkur
í Rhein-Neckar Löwen og ætli þeir
séu ekki að reyna að sýna sig fyrir
mér,“ segir Guðmundur í léttum
tón. Einn þeirra var Sigurbergur
Sveinsson, sem skoraði átta mörk
utan af velli á móti lærisveinum
Guðmundar.
Guðmundur valdi Sigurberg líka
í hópinn og hrósaði honum fyrir
frammistöðuna. „Sigurbergur spil-
aði vel á móti okkur og var mjög
sannfærandi,“ sagði Guðmundur.
Guðjón Valur Sigurðsson er
enn frá vegna meiðsla og þá glím-
ir Sturla Ásgeirsson einnig við
meiðsli. „Það eru ýmsar stöður sem
við þurfum að manna öðruvísi en
við höfum gert áður. Við erum með
menn í hópnum sem þurfa að leysa
vinstra hornið. Við erum að horfa
til Loga [Geirssonar] og Hannes-
ar [Jóns Jónssonar]. Ég tel að Logi
sé klár í að spila þessa stöðu og
hann er besti kosturinn til að leysa
vinstra hornið,“ segir Guðmundur
og bætti við: „Ég treysti Loga og
Hannesi fullkomlega til þess að sjá
um þessa stöðu.“
Guðmundur er ánægður með
þróun mála hjá landsliðsfyrirlið-
anum Ólafi Stefánssyni, sem mun
spila sinn 300. landsleik á móti Lett-
um. „Það er búið að vera gríðarlegt
álag á Ólafi Stefánssyni. Það er ekk-
ert skrítið að menn hafi áhyggjur af
honum en hann er búinn að standa
sig frábærlega. Hann hefur verið
að bæta sig og er að komast í betra
stand,“ segir Guðmundur.
„Það verður mjög gaman að hitta
strákana í landsliðinu en þetta er
líka öðruvísi tilfinning fyrir mig,
þar sem ég bý erlendis núna,“ segir
Guðmundur, sem telur að mikið
muni reyna á liðið í þessum tveim-
ur leikjum.
Engin tilraunastarfsemi
„Það er mjög erfiður leikur í Aust-
urríki en það þarf líka að halda
einbeitingu á Lettum,“ segir Guð-
mundur, sem ætlar ekki að prófa
nýja hluti í Höllinni á miðvikudag-
inn kemur.
„Við getum ekki verið með neina
tilraunastarfsemi á móti Lettum því
við þurfum að stilla saman streng-
ina á mánudag og þriðjudag og svo
verðum við bara að vera komnir
í gírinn á miðvikudaginn. Það er
ekki tími fyrir neina tilraunastarf-
semi. Ég vona að við fáum fólkið
til þess að mæta því það er mikil-
vægur stuðningur sem við þurf-
um á að halda. Það er alltaf gríðar-
legur munur á því hvort við erum
að spila fyrir fullu húsi eða ekki,“
sagði Guðmundur að lokum.
ooj@frettabladid.is
Logi er besti kosturinn
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari tilkynnti landsliðshóp sinn fyrir
komandi leiki í undankeppni EM 2012. Hann valdi Loga Geirsson og Hannes
Jón Jónsson sem vinstri hornamenn liðsins í forföllum Guðjóns Vals og Sturlu.
ERFITT VAL Það er nóg að gera hjá Guðmundi Guðmundssyni þessa dagana enda er
hann að þjálfa lið Rhein-Neckar Löwen. FRÉTTABLAÐIÐ/DIENER
Markmenn:
Björgvin Páll Gústavsson, Kadetten
Hreiðar Levy Guðmundsson, TV Ems-
detten
Aðrir leikmenn:
Alexander Petersson, Fuchse Berlin
Arnór Atlason, AG Köbenhavn
Aron Pálmarsson, THW Kiel
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Hannover-
Burgdorf
Hannes Jón Jónsson, Hannover-Burgdorf
Ingimundur Ingimundarson, AaB
Logi Geirsson, FH
Ólafur Andrés Guðmundsson, FH
Ólafur Stefánsson, Rhein-Neckar Löwen
Róbert Gunnarsson, Rhein-Neckar Löwen
Sigurbergur Sveinsson, Rheinland
Snorri Steinn Guðjónsson, AG Köben-
havn
Sverre Jakobsson, Grosswallstadt
Vignir Svavarsson, Hannover-Burgdorf
Þórir Ólafsson, N-Luebbecke
Landsliðshópurinn á móti Lettlandi og Austurríki
Allir íslensku leik-
mennirnir hafa spilað
vel á móti okkur í Rhein-
Neckar-Löwen og ætli þeir
séu ekki að reyna að sýna sig
fyrir mér.
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON
LANDSLIÐSÞJÁLFARI ÍSLANDS