Fréttablaðið - 26.10.2010, Qupperneq 2
2 26. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Annað árið í röð
hafa greinst óvenjumörg HIV-smit
hér á landi. Aukningin stafar fyrst
og fremst af aukningu meðal fíkni-
efnaneytenda. Það sem af er þessu
ári hafa greinst sextán manns með
HIV-smit hér á landi. Af þessum
hópi hafa ellefu greinst síðastliðna
þrjá mánuði.
Haraldur Briem sóttvarnalækn-
ir segir það verulegt áhyggjuefni
hversu margir hafa greinst með
HIV-smit á undanförnum mánuð-
um. Hann segir engar haldbærar
skýringar á þróun síðustu mánaða.
„Maður veltir fyrir sér hvort um
tilviljun sé að ræða en þetta sem er
að gerast núna er nokkuð sem við
höfum haft áhyggjur af alla tíð.“
Haraldur bendir á að frá upphafi
alnæmisfaraldursins hefur HIV-
smit verið tiltölulega fátítt meðal
fíkniefnaneytenda.
Af þeim sem greinst hafa á
þessu ári eru sex fíkniefnaneyt-
endur sem misnota sprautur og
nálar, sex gagnkynhneigðir og fjór-
ir samkynhneigðir. Umtalsverður
hluti þeirra sem greinast er fólk
af erlendu bergi brotið og kemur
oftast frá löndum þar sem HIV og
alnæmi er útbreitt.
Haraldur segir ekkert samband
vera á milli fíkniefnanotendanna
og útlendinga sem greinst hafa
með smit. „Þetta fólk sem kemur
utan frá er svo óheppið að koma
frá svæðum þar sem þetta er afar
útbreitt á meðal gagnkynhneigðra
og ekkert samband þarna á milli.“
Áður hefur Landlæknisembættið
lýst áhyggjum af því að meiri harka
og tillitsleysi ríki meðal fíkniefna-
neytenda en oft áður. „Starfsfólk
Landspítala sem sinnir þessu fólki
talar um að þessir einstaklingar
séu sinnulausir gagnvart eigin
heilsu og annarra. Þetta hefur
orðið harðsvíraðra með árunum,
hverju sem það er um að kenna.“
Þórarinn Tyrfingsson, yfirlækn-
ir á sjúkrahúsinu Vogi, segir erf-
itt að draga stórar ályktanir út
frá tiltölulega fáum einstakling-
um. „Þetta gæti verið bundið við
einn til tvo einstaklinga sem eru
að smita út frá sér. Það sem hafa
skal hugfast er að fíklar geta smit-
ast með öðrum leiðum en með
óhreinum nálum. Þeir eru ógætn-
ir í ýmsum málum, þar á meðal í
sínu kynlífi.“
Allt fram til ársins 2007 þótt-
ust menn rekja öll HIV-smit sem
sprautufíklar á Vogi fengu til kyn-
maka. „Þetta var fyrst og fremst
kynsjúkdómur. En síðustu tvö árin
er ég fyrst sannfærður um það að
fólk er að smitast þegar það spraut-
ar sig í einhverjum tilvikum, sem
setur málið alveg í nýjan farveg.“
svavar@frettabladid.is
Holskefla HIV-smita
á síðustu mánuðum
Sextán einstaklingar hafa greinst með HIV-smit á þessu ári. Ellefu hafa greinst
á þrem mánuðum. Sóttvarnalæknir talar um holskeflu. Yfirlæknir á Vogi segir
hugsanlegt að öll smit sprautufíkla megi rekja til eins eða tveggja einstaklinga.
HEILBRIGÐISMÁL Aukinn fjöldi greindra klamy-
díutilfella árið 2009 skýrist af nýrri aðferð til
greininga sem tekin var í notkun á sýklafræði-
deild Landspítalans. „Samkvæmt niðurstöðum
rannsókna er nýja aðferðin næmari en aðferð-
in sem var áður notuð,“ segir í nýútkomnum
Farsóttafréttum Landlæknisembættisins.
„Allt bendir því til að aukning greindra
klamydíutilfella á síðastliðnu ári stafi af bætt-
um greiningaraðferðum en ekki sé um að
ræða raunverulega aukningu á klamydíusmiti
í samfélaginu. Fjöldi greindra tilfella og hlut-
fall jákvæðra sýna í maímánuði á þessu ári er
svipaður mánaðarlegum fjölda tilfella í maí á
síðasta ári,“ segir í ritinu.
Fram kemur að klamydíusýking greinist
oftar í konum en körlum og að konur séu að
jafnaði yngri en karlar þegar þær smitast af
klamydíu. „Sýkingin er algengust í konum
á aldrinum 15 til 19 ára en flestir karlmenn
sýkjast á aldrinum 20 til 24 ára. Klamydíusýk-
ingar eru hins vegar afar fátíðar meðal karla
og kvenna sem yngri eru en 15 ára og eldri en
40 ára.“
Helstu einkenni klamydíusýkingar eru sögð
vera sviði við þvaglát og útferð, en stór hluti
þeirra sem sýkjast sé einkennalaus. „Klamy-
díusýkingar geta valdið bólgu í eggjaleiðurum
með fylgjandi ófrjósemi hjá konum. Bólgur í
eistalyppum hjá körlum, sem geta valdið ófrjó-
semi, eru vel þekktar en eru sjaldséðari en
fylgikvillar hjá konum.“ - óká
Aukinn fjöldi greindra klamydíusýkinga til kominn vegna betri greiningartækni:
Svipaður fjöldi klamydíutilfella í ár og í fyrra
MARGIR EINKENNALAUSIR Klamydía er kynsjúkdómur
sem helst kemur upp hjá yngra fólki. NORDIC PHOTOS/GETTY
KÚBA, AP Omar Khadr, 24 ára
Kanadamaður, játaði sig sekan af
öllum fimm ákæruatriðum fyrir
sértökum dóm-
stól Bandaríkja-
hers í fanga-
búðunum við
Guantanamo á
Kúbu.
Khadr var
sakaður um að
hafa tekið þátt
í bardaga gegn
bandarískum
hermönnum í
Afganistan árið 2002, þegar hann
dvaldi hjá ættingjum sínum þar
aðeins fimmtán ára gamall.
Khadr hefur áður sagst
saklaus, en lögmenn hans segja
hann ekki hafa átt annarra kosta
völ en að játa gegn samningi um
refsingu, því réttarhöldin hefðu
hvort eð er ekki orðið sanngjörn.
- gb
Réttarhöld í Guantanamo:
Yngsti fanginn
játar á sig brot
OMAR KHADR
Erpur, er það nú svart, ma‘r?
Neinei, ég get ekki kvartað því það
eina sem er blastað er Bjartmar og
Blaz ma‘r.
Erpur Eyvindarson, einnig þekktur sem
Blaz Roca, kemur fram á tónleikum með
Bjartmari Guðlaugssyni á Café Rosenberg
í kvöld.
‘8
3
‘8
5
‘8
7
‘8
9
‘9
1
‘9
3
‘9
5
‘9
7
‘9
9
‘0
1
‘0
3
‘0
5
‘0
7
‘0
9
16
14
12
10
8
6
4
2
0
Útbreiðsla HIV á Íslandi 1983-2009
HIV-smitaðir eftir íslenskum eða erlendum uppruna og greiningarári
Fíkniefnaneytendur greindir með HIV-smit
6
5
4
3
2
1
0
‘8
3
‘8
5
‘8
7
‘8
9
‘9
1
‘9
3
‘9
5
‘9
7
‘9
9
‘0
1
‘0
3
‘0
5
‘0
7
‘0
9
*
*15.10.2010Heimild: Farsóttarfréttir
Innlent
Erlent
HARALDUR
BRIEM
ÞÓRARINN
TYRFINGSSON
SKIPULAGSMÁL Kaþólska kirkjan
hefur sent inn fyrirspurn til
borgaryfirvalda um það hvort
leyfi fengist fyrir byggingu fjöl-
notahúss og safnaðarheimili neð-
anjarðar á Landakotstúni.
Nýja byggingin á að þjóna gest-
um eftir messu og nýtast biskupi
sem og vegna félagsstarfs barna
í Landakotsskóla. Húsnæðið á að
tengjast bæði Biskupsstofu og
Landakotsskóla með neðanjarðar-
göngum. Núverandi græn svæði
á byggingarreitnum eiga að halda
sér að mestu og hugmyndin er sú
að draga dagsbirtu inn til end-
anna með því að móta jarðveginn
þar þannig. - gar
Kaþólskir vilja byggja:
Safnarheimili
neðanjarðar á
Landakotstúni
LANDAKOTSTÚN Ný áform um uppbygg-
ingu er komin á borð skipulagsyfirvalda.
STJÓRNLAGAÞING Endanleg tala
yfir frambjóðendur til stjórn-
lagaþings er 523. Landskjörstjórn
bárust í allt 526 gild framboð, en
þrír afturkölluðu framboð sín.
Sjötíu prósent frambjóðenda eru
karlmenn, eða 364. Konurnar eru
159.
Ekki kom til þess að úrskurða
þyrfti um gildi einstakra fram-
boða, að því er segir í tilkynn-
ingu frá landskjörstjórn.
Til stendur að birta innan tíðar
frekari upplýsingar um fram-
bjóðendur, til dæmis skiptingu
þeirra eftir kjördæmum og ald-
ursbili. Þá vinnur landskjörstjórn
að gerð lista yfir frambjóðendur
þar sem fram koma ýmsar upp-
lýsingar. Hann verður birtur á
vefnum eins fljótt og auðið er. - sh
Búið að fara yfir meðmælin:
523 framboð til
stjórnlagaþings
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn í
fimm orlofshús í Selvík við Álfta-
vatn í Grímsnesi í síðustu viku.
Þjófarnir komust inn um glugga
með því að spenna þá upp. Í öllum
húsunum voru flatskjáir, sem
allir voru teknir.
Að auki var brotist inn í þrjá
aðra sumarbústaði í einkaeigu sem
eru við Álftavatn. Úr þeim var
flatskjáum, hljómflutningstækj-
um, áfengi og ýmsu öðru stolið. Í
sumum húsanna hafði verið mikið
rótað í skápum og hirslum.
Brotist inn í sumarbústaði:
Stálu flatskjá-
um og áfengi
FÓLK Vilhelm Sigurjónssyni,
þroskahömluðum manni sem rek-
inn var úr starfi sínu hjá Nettó í
síðustu viku, hefur verið boðin
vinna hjá Kosti. Þá hefur honum
einnig verið boðið í atvinnuviðtal
í Melabúðinni.
Vilhelm hafði séð um innkaupa-
kerrur hjá Nettó í Mjódd í tvö ár og
brottrekstur hans með tíu mínútna
fyrirvara vakti hörð viðbrögð. Fólk
hefur jafnvel ákveðið að sniðganga
verslanir Nettó.
Jón Gerald Sullenberger í Kosti
segist fyrst hafa frétt af málinu um
kvöldmatarleytið í gær og hringt
strax í föður Vilhelms og boðið
stráknum vinnu. „Mér finnst svona
framkoma fyrir neðan allar hellur.
Við hljótum að finna eitthvað fyrir
strákinn að gera. Það eru að koma
jól og við eigum að vinna saman,
ekki á móti hvert öðru,“ segir Jón
Gerald. Búðin sé að verða eins árs
og það gæti orðið besta afmælis-
gjöfin að fá Vilhelm til starfa.
Pétur Alan Guðmundsson í Mela-
búðinni segir að hann hafi frétt að
Vilhelm væri á lausu og heyrt vel
af honum látið. Því hafi verið sjálf-
sagt að boða hann í viðtal. „Fyrir
gott fólk er alltaf hægt að finna
starf,“ segir hann.
Sigurjón Þór Hafsteinsson,
faðir Vilhelms, segir að hann
hafi ekki rætt tilboðin við son
sinn enn. Þá hafi ekki verið
rætt við Atvinnu með stuðn-
ingi, sem mun þurfa að koma
að málum. Ekk-
ert sé því
ráðið enn.
- sh
Brottrekinn starfsmaður Nettó með tilboð á borðinu frá Kosti og Melabúðinni:
Vilhelm boðið í tvö atvinnuviðtöl
JÓN GERALD OG PÉTUR Hringdu
báðir í föður Vilhelms í gær
og buðu feðgunum að
koma í atvinnuviðtal.
SPURNING DAGSINS
Mikið úrval af frábærum tilboðum - líttu við