Fréttablaðið - 26.10.2010, Page 4
4 26. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
VIÐSKIPTI Guðbjörg Edda Eggerts-
dóttir, aðstoðarforstjóri Actavis,
hefur í kjölfar skipulagsbreytinga
tekið við starfi
forstjóra Acta-
vis á Íslandi.
Guðbjörg
Edda, sem er
lyfjafræðing-
ur, hefur starf-
að hjá Actavis
og forverum
fyrirtækisins í
þrjátíu ár. Hún
var aðstoðarfor-
stjóri lyfjafyrirtækisins Delta árið
1999, framkvæmdastjóri á mark-
aðssviði Actavis Group árið 2002
og aðstoðarforstjóri fyrir tveim-
ur árum.
Guðbjörg situr sem fyrr í fram-
kvæmdastjórn Actavis og mun
stýra verkefnum víða, svo sem í
Japan, Kína og á Indlandi. - jab
Áréttað skal að uppfyllt hafa verið tvö
af þremur skilyrðum til þess að taka
næstu skref í afnámi gjaldeyrishafta.
Af frétt á síðu 8 í gær mátti skilja að
fullt afnám hafta stæði fyrir dyrum.
LEIÐRÉTTING
HJÁLPARSTARF Hjálparsími Rauða
krossins 1717 stendur fyrir átaki
vikuna 25.-31. október undir yfir-
skriftinni „Ég er ekki með ungl-
ingaveiki – mér bara líður illa“.
Tilgangurinn er sagður vera að
vekja athygli á því að stuðningur
í nánasta umhverfi skipti miklu
máli fyrir góða geðheilsu.
„Auðvelt getur verið að skil-
greina vanlíðan þessa aldurshóps
sem „unglingaveiki“ og afgreiða
málið þannig,“ segir á vefnum, en
með því sé lítið gert úr tilfinn-
ingum sem séu mjög raunveru-
legar fyrir viðkomandi einstakl-
inga. „Unglingar þurfa, ekki síður
en aðrir, á því að halda að hlust-
að sé á þá þó fullorðnum finn-
ist „vandamál“ þeirra oft vera
lítilvægleg.“ - óká
Vanlíðan ekki unglingaveiki:
Hlusta þarf
á unglingana
GUÐBJÖRG EDDA
EGGERTSDÓTTIR
Skipulagsbreyting hjá Actavis:
Guðbjörg for-
stjóri á Íslandi
FÉLAGSMÁL Fátækt og matarskortur
geta magnað sjúkdóma og gert
brautina til betri heilsu að grýttri
götu. Þetta sagði í erindi Ólafs
Ragnars Grímssonar forseta á
málþingi Umhyggju, félags til
stuðnings langveikum börnum, í
gær. Málþingið er haldið í tilefni
af 30 ára afmæli Umhyggju.
Forsetinn sagði þá fátækt sem nú
setti svip á þúsundir heimila, bið-
raðir eftir matvælum sem á viss-
an hátt væru orðinn mesti smán-
arblettur íslensks samfélags, hafa
gert fjölskyldunum sem glímdu við
slík örlög illa kleift að þurfa til við-
bótar að takast á við langvarandi
veikindi barna sinna.
„Þessar aðstæður í þjóðfélag-
inu gera erindi Umhyggju brýnna
en áður og reynslusjóð ykkar enn
verðmætari, ráð og leiðsögn dýr-
mæt fyrir alla sem ábyrgð bera í
glímunni við lausn þessa vanda,“
sagði Ólafur Ragnar og kvað starf
á vegum Umhyggju þó umfram
allt áréttingu þess grundvallar-
boðskapar að velferð barnanna
þyrfti ætíð að vera í fyrsta sæti.
- óká
Forseti Íslands segir þjóðfélagsaðstæður gera erindi Umhyggju brýnna en áður:
Segir biðraðirnar smánarblett
DÓMSMÁL Kona hefur verið
dæmd í þriggja mánaða skil-
orðsbundið fangelsi og til að
greiða Reykjavíkurborg nær
400 þúsund krónur sem hún
hafði dregið sér af sameiginleg-
um bankareikningi vistmanna á
vernduðu heimili við Krumma-
hóla í Reykjavík.
Konan starfaði við heima-
þjónustu hjá Félagsþjónustunni.
Hún hafði debetkort fyrir sam-
eiginlegum reikningi fjögurra
andlega fatlaðra vistmanna til
matarinnkaupa. - jss
Kona dæmd í fangelsi:
Stal af fötluðum
vistmönnum
HANDTEKIN Myndir teknar af Randy og
Evi Quade hjá lögreglu eftir handtöku
þeirra 18. september. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN Bandaríski leikarinn
Randy Quade og kona hans Evi
hafa sótt um hæli í Kanada.
Þau voru handtekin þar um
helgina fyrir að mæta ekki við
dómtöku máls á hendur þeim í
Bandaríkjunum.
Mál var í haust höfðað á hendur
hjónunum fyrir rétti í Santa Bar-
bara eftir að þau voru handtekin
fyrir innbrot og hústöku á fyrrum
heimili þeirra.
Hjónin segjast nú óttast Holly-
woodstjörnumorðingja sem þau
telja bera ábyrgð á dauðföllum
nokkurra vina Randys, þar á meðal
leikaranna Heath Ledger og David
Carradine. Hjónin voru látin laus
gegn tryggingu, en eiga að mæta
aftur fyrir rétt í Kanada í dag. - óká
Sækja um hæli í Kanada:
Segja líf þeirra
vera í hættu
Engar myndavélar í göngum
Hraðamyndavélar hafa ekki enn verið
settar upp í Bolungarvíkurgöngunum.
Samkvæmt Vegagerðinni á Vestfjörð-
um voru tafir á gerð samninga um
kaup á myndavélum. Vonast er til að
hægt verði að setja upp vélar á næstu
vikum.
VESTFIRÐIR
ÍRAK Skjöl frá Bandaríkjaher, sem
áttu að fara leynt, sýna að mann-
fall af völdum stríðsins í Írak
hefur verið töluvert meira en til
þessa hefur fengist staðfest.
Samkvæmt gögnunum, sem birt
voru á vefsíðunni Wikileaks um
helgina, hafa átökin í Írak kostað
109 þúsund manns lífið þann tíma
sem þau ná til, en það er megnið
af stríðstímanum, eða frá 1. jan-
úar 2004 til ársloka 2009, að und-
anskildum maímánuði 2004 og
marsmánuði 2009. Stríðið hófst í
mars árið 2003.
Af þeim sem létu lífið þenn-
an tíma voru 66 þúsund skráðir
almennir borgarar, 24.000 upp-
reisnarmenn, 15 þúsund hermenn
írösku stjórnarinnar og tæplega
fjögur þúsund hermenn innrásar-
liðsins.
Á forsíðu Wikileaks er bent á
að samkvæmt þessum tölum hafi
stríðið að meðaltali kostað rúm-
lega 30 almenna borgara lífið á
hverjum einasta degi.
Þessar tölur þurfa ekki að vera
tæmandi upplýsingar um mann-
fall í Írak, bæði vegna þess að þær
ná ekki yfir allan tímann og eins
vegna þess að ekki er víst að öll
þau dauðsföll, sem áttu sér í reynd
stað, hafi ratað í skýrslur Banda-
ríkjahers.
Tölur um mannfall í Írak hafa
verið mjög á reiki allar götur síðan
innrás var gerð í landið í mars árið
2003.
Hæsta talan kemur frá breska
læknablaðinu Lancet, sem gerði
árið 2006 könnun á dauðsföllum í
Írak og komst að þeirri niðurstöðu
að alls hafi átökin kostað nærri 655
þúsund manns lífið, bæði beint og
óbeint, fram til júnímánaðar það
ár.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið hefur reglulega birt tölur
um dauðsfall bandarískra her-
manna í Írak. Sú tala er komin upp
í 4.425. Að auki hafa hermenn ann-
arra innrásarríkja gefið upp sam-
tals rúmlega 300 dauðsföll.
Á vefsíðunni Iraq Body Count
hefur grannt verið fylgst með
mannfalli í Írak. Þar hafa menn
fullyrt að allt að 107 þúsund
almennir borgarar hafi látist
af völdum stríðsátakanna. Þær
tölur eru byggðar bæði á frétt-
um, skýrslum óháðra samtaka og
opinberum gögnum, sem starfs-
fólk síðunnar hefur tekið saman
jafnóðum.
Eftir að hafa farið yfir skjöl-
in frá Wikileaks segir á vefsíð-
unni Iraq Body Counts að þar hafi
komið fram upplýsingar um 15
þúsund dauðsföll almennra borg-
ara, sem áður var ekki vitað um.
Heildarfjöldi almennra borgara,
sem látnir eru af völdum stríðs-
ins, er þá kominn upp í 122 þús-
und samkvæmt heimildum Iraq
Body Counts. Samkvæmt þeirri
tölu er meðaltal fallinna almennra
borgara komið upp í 50 á hverjum
einasta degi. gudsteinn@frettabladid.is
30 almennir borgarar
drepnir daglega í Írak
Lekinn á Wikileaks varpar nýju ljósi á umfang stríðsins í Írak. Samkvæmt Iraq
Body Counts hefur stríðið kostað 122 þúsund almenna borgara lífið. Fimmtán
þúsund þeirra var ekki vitað um fyrr en með nýju gögnunum á Wikileaks.
LÍKKISTUR Í ágúst árið 2007 létu fjórir Írakar lífið í átökum Bandaríkjahers og her-
skárra sjíamúslima í Bagdad. Á myndinni sjást þeir bornir til grafar. NORDICPHOTOS/AFP
UMHYGGJA Forseti Íslands gerði fátækt
að umfjöllunarefni í ræðu á málþingi sem
haldið var í gær í tilefni af 30 ára afmæli
Umhyggju. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
9°
9°
9°
10°
8°
9°
9°
24°
12°
17°
22°
31°
5°
11°
15°
5°
Á MORGUN
8-13 m/s.
FIMMTUDAGUR
5-10 m/s.
-1
2
2
3
2
4
5
0
7
6
6
4
2
5
5
13
15
6
5
8
4
7
0
1
3
3
5
-3-1
-1
0
-2
KÓLNANDI Á
MORGUN Það
snýst í norðaustan-
átt á morgun og fer
þá hægt kólnandi,
en á fi mmtudag
verður hitinn víðast
um og undir frost-
marki. Þrátt fyrir
blátt fi mmtudags-
kort verður yfi rleitt
fínasta veður á
landinu en hætt
við stöku éljum.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Sigmundur Halldórsson sigmundur@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
GENGIÐ 25.10.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
207,4189
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
111,17 111,71
174,97 175,83
155,98 156,86
20,912 21,034
19,299 19,413
16,937 17,037
1,3784 1,3864
175,32 176,36
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR