Fréttablaðið - 26.10.2010, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 26. október 2010 15
HAUSTÚTSALA
Faxafen 12 S. 533-1550.
OPIÐ
VIRKA DAGA 11 – 18. LAU. 11 – 16. SUN. 13 –16
Aðeins í nokkra daga!
50-80%afsl.
Mannfyrirlitning
Fyrir margt löngu var ég að spjalla við roskinn mann
um aðstæður alþýðufólks á
árum áður. Þessi maður óx úr
grasi í afskekktu þorpi úti á
landi, og sagði mér meðal ann-
ars að hann hefði eitt sinn á
yngri árum tekið þátt í að bera
mann í rúmi sínu milli bæja.
Þetta var heilsulaus maður á
fátækraframfæri, en slíkt fólk
var kallað sveitarómagar eða
þurfalingar og var réttinda-
laust. Hreppurinn greiddi með
því og ástæða þessa flutnings
var sú, að bóndi á öðrum bæ
hafði boðist til að hafa hann á
heimilinu fyrir lægri upphæð
en bóndinn sem hann hafði
legið hjá í góðu atlæti. Þurfa-
lingurinn var að sjálfsögðu
ekki spurður hvernig honum
litist á vistaskiptin og hrepp-
urinn kynnti sér ekkert endi-
lega hvort lægra meðlag þýddi
verra atlæti. Burðarmaður-
inn sagði að sér hefði liðið
undarlega í þessu hlutverki.
Þótt þurfalingurinn hafi ekki
borið sig illa, var hann greini-
lega órólegur. Vissi ekkert
hvað beið hans.
Mér fannst nánast óraun-
verulegt að vera að ræða við
mann sem mundi þessa tíma
og hafði tekið þátt í flutningi
sveitarómaga á vegum hrepps-
ins á æskuárum sínum. Þjóð-
in var þá fátæk, raunverulega
fátæk. Hreppstjórinn þurfti að
skoða hagstæðustu lausnir, og
þessi tilhögun var viðurkennd
um allt land. Það breytir ekki
því að það kostaði ekkert þá
frekar en núna að sýna fólki þá
lágmarks virðingu að umgang-
ast það sem manneskjur, en
ekki eins og húsdýr eða kenni-
tölu í tölvu.
Vanhæfni í samskiptum
Þrátt fyrir ótrúlegar framfar-
ir hér á landi á síðustu áratug-
um, miklum samskiptum við
aðrar þjóðir, bæði sem ferða-
menn og námsmenn víða um
heim, erum við langt frá því
að vera veraldarvön eða fáguð
í samskiptum hvert við annað.
Sama hráa tillitsleysið og yfir-
lætið sem áður sneri að þeim
sem minna máttu sín kemur
enn upp á yfirborðið þegar
á reynir. Oft er það reyndar
sprottið úr vanhæfni í mann-
legum samskiptum. Þannig eru
mörg dæmi til um karla sem
ganga út af heimilum sínum
fyrirvaralaust og segjast í leið-
inni vilja skilnað. Jafnvel þótt
börn þeirra standi hjá. Ganga
svo út án frekari skýringa.
Og nú tíðkast ekki að fólki sé
sagt upp eftir ára eða áratuga
starf hjá fyrirtækjum með því
að yfirmaður ræði málið og
gefi viðkomandi svigrúm. Nú
fær hann tilkynningu um að
hann sé rekinn hér og nú. Ekki
endilega skýring. Bara: Þurf-
um ekki lengur á þér að halda!
Eins gott að við eigum góða
sálfræðinga.
Og nú erum við að upplifa
spegilmynd framkomunnar
við þurfalingana. Hið opinbera
þarf að draga saman. Þrengja
að heilsustofnunum, loka heim-
ilum með fólki sem getur ekki
séð um sig sjálft, eða flytja það
annað. Fólkið fær ekkert val.
Heimili fyrir Alzheimer-
sjúklinga úti á landi er lokað,
er mér sagt. Fólk er fært
annað, til dæmis í annað
byggðarlag. Enginn er spurður.
Ekki er leitað eftir leiðum til
að mæta þessu fólki.
Á sama tíma er ein nefndin
eftir aðra sett á laggirnar, og
hvers kyns verkefni sem ekk-
ert liggur á að framkvæma eru
sett á oddinn. Ekkert líf er í
atvinnusköpun, enginn skiln-
ingur á því hvað það er sem
drífur samfélagið áfram, og
mannfyrirlitningin birtist nú
skýrast hjá þeim sem mæra
þá sem minna mega sín í öðru
hverju orði. Forgangsröðun er
vægast sagt sérkennileg.
Það gera þetta allir
Ég var að fletta bók um fylgj-
ur og fyrirboða eftir Sigurð
Haralz sem kom út árið 1965.
Niðurlag bókarinnar er á
þessa leið: „Nú á dögum virð-
ist íslenska þjóðin svífa í eins
konar tækni- og gróðavímu.
Það er tvistað í kringum gull-
kálfinn af slíku ofurkappi að
slíkt og þvílíkt hefur aldrei
skeð áður hér á landi. Ef ein-
hver spyr, hvort það sé nú víst,
að öllu öðru sé fyrir slíkt fórn-
andi, þá er svarið: Það gera
þetta allir.
Ef enn er spurt: Getur ekki
skeð, að þetta sé of dýru verði
keypt, eða er það örugglega
víst að þetta sé svona eftir-
sóknarvert? Þá er svarið: Það
gera þetta allir.
Ef ekkert er athugavert við
þann hugsunarhátt, sem svona
svör bera með sér, þá hefur
mér og mínum skjátlast – og
það meira en lítið.“
Er þetta ekki kunnuglegt?
Vorum við stikkfrí? Berum
við ekki ábyrgð?
Jónína
Michaelsdóttir
blaðamaður
Í DAG
Ekkert líf er í atvinnusköpun,
enginn skilningur á því hvað það
er sem drífur samfélagið áfram,
og mannfyrirlitningin birtist nú
skýrast hjá þeim sem mæra þá
sem minna mega sín í öðru hverju orði.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á:
visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU