Fréttablaðið - 26.10.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 26.10.2010, Blaðsíða 30
22 26. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR menning@frettabladid.is Leikhús ★★★★ Dísa ljósálfur Höfundur og leikstjóri: Páll Baldvin Baldvinsson. Helstu hlutverk: Álfrún Helga Örnólfsdóttir, Kári Viðarsson, Sól- veig Arnarsdóttir, Steinn Ármann Magnússon, María Þórðardóttir, Þórir Sæmundsson, Esther Thalia Casey. Danshöfundur: Helena Jónsdóttir. Tónlist: Gunnar Þórðarson Nýr íslenskur söngleikur í Austur- bæjarbíói. Prúðbúin börn og afar og ömmur fjölmenntu á þessa tímamótasýningu með tónlist Gunnars Þórðarsonar og texta Páls Baldvins Baldvinssonar. Dísa var lítil en samt svo stór. Ég vil vera Dísa, sagði lítil skvísa að sýning- unni lokinni. Samferðamaður minn fjögurrra ára var ekki í nokkrum vafa um hver var uppáhaldið hans og hver var aðalpersónan, auðvitað býflugan. Páll Baldvin Baldvinsson ræðst hér í að leikgera lítið kver, sem á sínum tíma var til á hverju heimili, um hina sígildu teiknimyndasögu Dísu ljósálf eftir Hollendinginn G.T. Rotmann. Dísa er sem kunn- ugt lítill ljósálfur og verður fyrir því að týna mömmu sinni í skóg- inum. Og í leit hennar að móður- inni fáum við að kynnast alls kyns verum bæði góðum og vondum. Dísa lendir í því að missa væng- ina og líklega hafa hinir fullorðnu mestan áhuga á að vita hvernig það er leyst hér. Stóru ljótu skær- in voru hér hvergi nálæg en ljóti moldvörpukarlinn náði engu að síður að hræða smáfólkið þannig að grátur ómaði úr einu horni en viðkomandi var þó fljótur að jafna sig því margt bjart og skemmtilegt fylgdi svo á eftir. Hér hljómuðu í fyrsta sinn tónar og lög úr smiðju Gunnars Þórðar- sonar og voru mörg grípandi. Eink- um þó söngur nornarinnar sem Ester Thalia Casey söng og lék af miklum styrk og tilfæringum. Búningur hennar í nornagervinu var skemmtilegur með hangandi pottum á krínolínupilsi einu ógur- legu, hins vegar hefði hún mátt vera örlítið ljósari yfirlitum í gervi móðurinnar í lokin. Hér var leikgleðin í fyrirrúmi og fullorðnir jafnt sem börn skemmtu sér konunglega. Sólveig Arnars- dóttir sem froskadrottningin átti salinn í hvert sinn sem hún birtist. Froskadrottningin var þó ekkert góð, hún var dyntótt. Samferða- maður minn sagði um kvöldið frá músakrökkum og einum rosalega vondum en langaði að vera býflugu- strákurinn og hitta hann. Þessi rosalega vondi var Moldvörpukarl- inn, mjög ógnandi með skelfilega ásjónu. Það var Þórir Sæmundsson sem ljáði hann lífi og naut þess að hræða krakka svo um munaði. Það sem höfundurinn og leik- stjórinn Páll Baldvin gerði svo rétt í þessari sýningu var að endurvekja þá gömlu hefð, (sem því miður er dottin niður í hinum leikhúsunum) að persóna verksins hefur beint samband við salinn og spjallar við áhorfendur. Þetta er einfalt og þýðingarmikið. Steinn Ármann lék býfluguna og hefði í raun mátt sjást meira því hann verður persónulegur tengiliður milli salar og sviðs. Bráðskemmti- legur. Búningalistakonan María Ólafs- dóttir býr hér til hvern gullmolann á fætur öðrum. Storkurinn með sinn stórkostlega fótabúnað vakti bæði undrun og aðdáun. Kári Viðarsson leikur froskastrákinn Jeremías sem verður vinur Dísu og kynnir hana fyrir sinni ógnvekjandi móður. Kári hefur sterka útgeislun og var sam- spil þeirra þriggja, Dísu, mömm- unnar og hans mjög skemmtilegt. Hina litlu hugljúfu Dísu leikur Álf- rún Helga Örnólfsdóttir og það er nú bara eins og að fletta upp á fyrstu blaðsíðunni í bókinni og sjá fyrir sér þessa litlu veru með tárin í augunum. Það hefði þó mátt lækka aðeins í tónlistinni þegar hún syngur einsöng. María Þórð- ardóttir er nokkuð skondin í hlut- verki músamömmunnar en fellur svolítið í skuggann af óhugnan- lega karlinum sem svartálfurinn, í moldvörpuatriðinu. Búningarnir voru heillandi, en hinn dökki bakgrunnur dró aðeins úr áhrifum einkum þá er norn- in birtist sem var í mjög flottum svörtum búningi sem féll svolít- ið inn í bakgrunninn. Músabörn og froskakrakkar dansa og tekst Helenu Jónsdóttur danshöfundi að laða fram bæði leikgleði og eins þær hreyfingar, hljóð og tíst sem einkennir dýrin. Tónlistin er heill- andi og það er mikill tregi í lítilli Dísu þegar hún syngur ein og er læst inni. Að týna mömmu er alveg hroða- legt og eitthvað sem allir krakkar skilja að er vont. Þess vegna hefði mátt gera aðeins meira úr endur- fundum þeirra mæðgna og splæsa í lokalag. Að öðru leyti var sýning- in hugljúf, áheyrileg og nokkuð trú gamla kverinu. Páli Baldvini tekst mjög vel að smíða söngleik úr sögunni og tón- list Gunnars Þórðarsonar er frá- bær og þegar farin að hljóma víða. Nú bíðum við eftir Rauðgrana og Álfinni álfakóngi. Elísabet Brekkan Niðurstaða: Sýning sem allir krakkar frá fjögurra ára ættu að sjá. Hugljúf Dísa og kvakandi froskar FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Mánaðarlegir hádegistónleikar hefja göngu sína í Íslensku óper- unni í dag. Hópur ungra einsöngv- ara tekur þátt í tónleikaröðinni ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara en einnig munu gestir úr röðum þekktra íslenskra söngvara líta við og láta í sér heyra. Nokkrir söngvaranna sem koma fram eru söngvarar úr Óp-hópn- um svokallaða, sem stofnaður var í fyrra og starfaði í samstarfi við Íslensku óperuna í fyrravetur. Á efnisskrá fyrstu tónleikanna í dag eru atriði úr Così fan tutte, Brottnáminu úr kvennabúrinu og Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart, Spaðadrottningunni eftir Tsjaí- kovskí og Carmen eftir Bizet. Flytjendur eru Bylgja Dís Gunn- arsdóttir sópran, Bragi Jónsson bassi, Erla Björg Káradóttir sópr- an, Hörn Hrafnsdóttir messósópr- an, Jóhanna Héðinsdóttir messó- sópran, Magnús Guðmundsson tenór, Rósalind Gísladóttir messó- sópran og Antonía Hevesi á píanó. Tónleikarnir hefjast klukkan 12.15 og er miðaverð 1.500 krónur. Háar nótur í hádeginu ÓP HÓPURINN Frá vinstri: Rósalind Gísladóttir, Erla Björg Káradóttir, Bylgja Dís Gunn- arsdóttir, Hörn Hrafnsdóttir, Antonía Hevesí og Jóhanna Héðinsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Halla Steinunn Stefánsdóttir bar- okkfiðluleikari frumflytur nýtt verk eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur í Þjóðmenningar- húsinu í kvöld klukkan átta. Halla Steinunn er listrænn stjórnandi kammerhópsins Nordic Affect og eru tónleik- arnir liður í starfi hópsins innan veggja Þjóðmenningarhússins. Efnisskráin er undir yfirskrift- inni „Allt nema Bach“ og mun Halla Steinunn að auki flytja verk eftir Telemann, Biber, Vils- mayr og Baltzar og fleiri. Tón- verkið sem hún frumflytur í kvöld pantaði Halla Steinunn sérstaklega hjá Maríu Huld, sem er einna þekktust fyrir starf sitt með Amiinu. Allt nema Bach HALLA STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.