Fréttablaðið - 26.10.2010, Qupperneq 30
22 26. október 2010 ÞRIÐJUDAGUR
menning@frettabladid.is
Leikhús ★★★★
Dísa ljósálfur
Höfundur og leikstjóri: Páll Baldvin
Baldvinsson.
Helstu hlutverk: Álfrún Helga
Örnólfsdóttir, Kári Viðarsson, Sól-
veig Arnarsdóttir, Steinn Ármann
Magnússon, María Þórðardóttir,
Þórir Sæmundsson, Esther Thalia
Casey.
Danshöfundur: Helena Jónsdóttir.
Tónlist: Gunnar Þórðarson
Nýr íslenskur söngleikur í Austur-
bæjarbíói. Prúðbúin börn og afar
og ömmur fjölmenntu á þessa
tímamótasýningu með tónlist
Gunnars Þórðarsonar og texta Páls
Baldvins Baldvinssonar. Dísa var
lítil en samt svo stór. Ég vil vera
Dísa, sagði lítil skvísa að sýning-
unni lokinni. Samferðamaður minn
fjögurrra ára var ekki í nokkrum
vafa um hver var uppáhaldið hans
og hver var aðalpersónan, auðvitað
býflugan.
Páll Baldvin Baldvinsson ræðst
hér í að leikgera lítið kver, sem á
sínum tíma var til á hverju heimili,
um hina sígildu teiknimyndasögu
Dísu ljósálf eftir Hollendinginn
G.T. Rotmann. Dísa er sem kunn-
ugt lítill ljósálfur og verður fyrir
því að týna mömmu sinni í skóg-
inum. Og í leit hennar að móður-
inni fáum við að kynnast alls kyns
verum bæði góðum og vondum.
Dísa lendir í því að missa væng-
ina og líklega hafa hinir fullorðnu
mestan áhuga á að vita hvernig
það er leyst hér. Stóru ljótu skær-
in voru hér hvergi nálæg en ljóti
moldvörpukarlinn náði engu að
síður að hræða smáfólkið þannig
að grátur ómaði úr einu horni en
viðkomandi var þó fljótur að jafna
sig því margt bjart og skemmtilegt
fylgdi svo á eftir.
Hér hljómuðu í fyrsta sinn tónar
og lög úr smiðju Gunnars Þórðar-
sonar og voru mörg grípandi. Eink-
um þó söngur nornarinnar sem
Ester Thalia Casey söng og lék af
miklum styrk og tilfæringum.
Búningur hennar í nornagervinu
var skemmtilegur með hangandi
pottum á krínolínupilsi einu ógur-
legu, hins vegar hefði hún mátt
vera örlítið ljósari yfirlitum í gervi
móðurinnar í lokin.
Hér var leikgleðin í fyrirrúmi og
fullorðnir jafnt sem börn skemmtu
sér konunglega. Sólveig Arnars-
dóttir sem froskadrottningin átti
salinn í hvert sinn sem hún birtist.
Froskadrottningin var þó ekkert
góð, hún var dyntótt. Samferða-
maður minn sagði um kvöldið frá
músakrökkum og einum rosalega
vondum en langaði að vera býflugu-
strákurinn og hitta hann. Þessi
rosalega vondi var Moldvörpukarl-
inn, mjög ógnandi með skelfilega
ásjónu. Það var Þórir Sæmundsson
sem ljáði hann lífi og naut þess að
hræða krakka svo um munaði.
Það sem höfundurinn og leik-
stjórinn Páll Baldvin gerði svo
rétt í þessari sýningu var að
endurvekja þá gömlu hefð, (sem
því miður er dottin niður í hinum
leikhúsunum) að persóna verksins
hefur beint samband við salinn og
spjallar við áhorfendur. Þetta er
einfalt og þýðingarmikið. Steinn
Ármann lék býfluguna og hefði
í raun mátt sjást meira því hann
verður persónulegur tengiliður
milli salar og sviðs. Bráðskemmti-
legur.
Búningalistakonan María Ólafs-
dóttir býr hér til hvern gullmolann
á fætur öðrum. Storkurinn með sinn
stórkostlega fótabúnað vakti bæði
undrun og aðdáun. Kári Viðarsson
leikur froskastrákinn Jeremías sem
verður vinur Dísu og kynnir hana
fyrir sinni ógnvekjandi móður. Kári
hefur sterka útgeislun og var sam-
spil þeirra þriggja, Dísu, mömm-
unnar og hans mjög skemmtilegt.
Hina litlu hugljúfu Dísu leikur Álf-
rún Helga Örnólfsdóttir og það
er nú bara eins og að fletta upp á
fyrstu blaðsíðunni í bókinni og
sjá fyrir sér þessa litlu veru með
tárin í augunum. Það hefði þó mátt
lækka aðeins í tónlistinni þegar
hún syngur einsöng. María Þórð-
ardóttir er nokkuð skondin í hlut-
verki músamömmunnar en fellur
svolítið í skuggann af óhugnan-
lega karlinum sem svartálfurinn,
í moldvörpuatriðinu.
Búningarnir voru heillandi, en
hinn dökki bakgrunnur dró aðeins
úr áhrifum einkum þá er norn-
in birtist sem var í mjög flottum
svörtum búningi sem féll svolít-
ið inn í bakgrunninn. Músabörn
og froskakrakkar dansa og tekst
Helenu Jónsdóttur danshöfundi að
laða fram bæði leikgleði og eins
þær hreyfingar, hljóð og tíst sem
einkennir dýrin. Tónlistin er heill-
andi og það er mikill tregi í lítilli
Dísu þegar hún syngur ein og er
læst inni.
Að týna mömmu er alveg hroða-
legt og eitthvað sem allir krakkar
skilja að er vont. Þess vegna hefði
mátt gera aðeins meira úr endur-
fundum þeirra mæðgna og splæsa
í lokalag. Að öðru leyti var sýning-
in hugljúf, áheyrileg og nokkuð trú
gamla kverinu.
Páli Baldvini tekst mjög vel að
smíða söngleik úr sögunni og tón-
list Gunnars Þórðarsonar er frá-
bær og þegar farin að hljóma víða.
Nú bíðum við eftir Rauðgrana og
Álfinni álfakóngi. Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Sýning sem allir krakkar
frá fjögurra ára ættu að sjá.
Hugljúf Dísa og kvakandi froskar
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Mánaðarlegir hádegistónleikar
hefja göngu sína í Íslensku óper-
unni í dag. Hópur ungra einsöngv-
ara tekur þátt í tónleikaröðinni
ásamt Antoníu Hevesi píanóleikara
en einnig munu gestir úr röðum
þekktra íslenskra söngvara líta
við og láta í sér heyra.
Nokkrir söngvaranna sem koma
fram eru söngvarar úr Óp-hópn-
um svokallaða, sem stofnaður var
í fyrra og starfaði í samstarfi við
Íslensku óperuna í fyrravetur.
Á efnisskrá fyrstu tónleikanna
í dag eru atriði úr Così fan tutte,
Brottnáminu úr kvennabúrinu og
Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart,
Spaðadrottningunni eftir Tsjaí-
kovskí og Carmen eftir Bizet.
Flytjendur eru Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir sópran, Bragi Jónsson
bassi, Erla Björg Káradóttir sópr-
an, Hörn Hrafnsdóttir messósópr-
an, Jóhanna Héðinsdóttir messó-
sópran, Magnús Guðmundsson
tenór, Rósalind Gísladóttir messó-
sópran og Antonía Hevesi á píanó.
Tónleikarnir hefjast klukkan
12.15 og er miðaverð 1.500
krónur.
Háar nótur í hádeginu
ÓP HÓPURINN Frá vinstri: Rósalind Gísladóttir, Erla Björg Káradóttir, Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir, Hörn Hrafnsdóttir, Antonía Hevesí og Jóhanna Héðinsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Halla Steinunn Stefánsdóttir bar-
okkfiðluleikari frumflytur nýtt
verk eftir Maríu Huld Markan
Sigfúsdóttur í Þjóðmenningar-
húsinu í kvöld klukkan átta.
Halla Steinunn er listrænn
stjórnandi kammerhópsins
Nordic Affect og eru tónleik-
arnir liður í starfi hópsins innan
veggja Þjóðmenningarhússins.
Efnisskráin er undir yfirskrift-
inni „Allt nema Bach“ og mun
Halla Steinunn að auki flytja
verk eftir Telemann, Biber, Vils-
mayr og Baltzar og fleiri. Tón-
verkið sem hún frumflytur í
kvöld pantaði Halla Steinunn
sérstaklega hjá Maríu Huld, sem
er einna þekktust fyrir starf sitt
með Amiinu.
Allt nema Bach
HALLA STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR