Fréttablaðið - 26.10.2010, Page 38
30 26. október 2010 ÞRIÐJUDAGURFÉSBÓKIN
Ný útgáfa af borðspilinu Fimbulfamb er væntan-
leg fyrir jólin í nýrri útgáfu hjá Veröld. Spilið kom
upphaflega út árið 1993 og seldist strax upp. Eftir
það hefur Fimbulfamb verið ófáanlegt og hafa verið
uppi áskoranir til útgefenda um að endurútgefa spil-
ið. Meðal annars hafa á þriðja þúsund manns undir-
ritað hvatningu þess efnis á Facebook. Núna, eftir
sautján ára bið, er spilið loksins að koma út með
nýjum orðaforða og í nýjum búningi.
„Ég lýsi yfir mikilli ánægju með þetta. Þetta
eru mjög skemmtilegar fréttir,“ segir Örn Úlfar
Sævarsson, dómari í Gettu betur og íslenskufræð-
ingur. „Ég hef heyrt að það hafi verið svartur
markaður með notuð spil. Fólk hefur mjög mikinn
áhuga á svona spilum sem eru að leika sér með
tungumálið.“
Fimbulfamb byggist sem fyrr á útsjónarsemi
og ímyndunarafli þátttakenda sem eiga að búa til
sannfærandi skýringar á sjaldgæfum íslenskum
orðum sem þeir hafa ekki hugmynd um hvað þýða.
Sá sigrar sem tekst best að blekkja mótspilara sinn.
„Það er þessi skemmtilegi sköpunarkraftur sem
er í tungumálinu okkar og þessi fjölbreytni sem er
aðlaðandi í þessu. Ég hef ekki spilað þetta í nokkur
ár en það er bara af því að maður hefur ekki komist
í þetta,“ bætir Örn við.
Að baki nýrri útgáfu á spilinu liggur mikil vinna
fjölmargra aðila síðastliðin tvö ár. Við söfnun orð-
anna, sem eru hátt í tvö þúsund, var þess gætt að
spilið yrði skemmtilegt en einnig að með því yki
fólk orðaforða sinn og skilning á íslenskri tungu. - fb
Fimbulfamb í nýrri útgáfu
MEÐ NÝJA SPILIÐ Bjarni Þorsteinsson og Pétur Már Ólafsson
hjá Veröld með hið nýja Fimbulfamb. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er smá áskorun, núna er
maður búinn að lesa verkið og er
að fara á fyrsta fund með leik-
stjóranum,“ segir Högni Egils-
son, forsprakki Hjaltalín. Hann
hefur fengið það vandasama verk
í hendurnar að semja tónlist-
ina við leikverkið Ofviðrið eftir
sjálfan William Shakespeare
sem Borgarleikhúsið frumsýn-
ir um jólin. Leikstjóri er hinn lit-
háíski Oskaras Korsunovas sem
hlotið hefur fjölda verðlauna um
allan heim. Með aðalhlutverkin
fara þeir Ingvar E. Sigurðsson og
Hilmir Snær Guðnason sem hafa
ekki gert mikið af því að leika
saman á sviði.
Högni segist hlakka mikið til
þessa verkefnis en hann samdi
tónlist fyrir leikrit í Listaháskóla
Íslands sem frumsýnt var um
jólin. Vinnan uppi í Borgarleikhúsi
verður án nokkurs vafa þó eilítið
ný fyrir hann. „Þetta bar nokkuð
brátt að en maður getur ekki sagt
nei við Shakespeare,“ segir Högni.
Töluverð tónlist verður í verkinu
enda mun Íslenski dansflokkur-
inn taka virkan þátt í því. Högni
sagðist ekki vera farinn að leggja
drög að tónlistinni sjálfri en sagði
verkið vera spennandi. „Þetta er
mjög óræð saga með undarlegt
sögusvið sem gefur mikið rými
til túlkunar,“ útskýrir Högni.
Hjaltalín tekur ekki þátt í jóla-
tónaflóðinu þetta árið með nýrri
plötu en sveitin mun hins vegar
koma fram á allnokkrum tónleik-
um, meðal annars í Hofi ásamt
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.
Þá er á dagskrá sveitarinnar
tónleikaferð í desember þannig
að tónskáldið Högni mun þurfa
að halda nokkuð vel á spöðun-
um. „Maður verður að haga tíma
sínum skynsamlega ef þetta á að
hafast,“ segir Högni en auk þess
er nú verið að leggja lokahönd á
tónleikamynd sem koma á út á
næstunni. Þar verður tónleikum
Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveitar
Íslands gerð góð skil.
freyrgigja@frettabladid.is
HÖGNI EGILSSON: SEMUR TÓNLISTINA Í OFVIÐRINU Í BORGARLEIKHÚSINU
Maður getur ekki sagt nei
við William Shakespeare
MIKIÐ VERK FRAM UNDAN Það verður ekkert grín fyrir Högna Egilsson að semja tón-
list við Ofviðrið eftir William Shakespeare. Hér er tónlistarmaðurinn á sínum fyrsta
fundi með leikstjóranum Oskaras Korsunovas og fólki sem vinnur að sýningunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta verður mjög gaman,“ segir
Snorri Helgason sem spilar á tón-
listarhátíðinni South By Southwest
í Texas næsta vor. Hljómsveitin
Benni Hemm Hemm spilar einnig
á hátíðinni, sem er mjög þekkt á
meðal tónlistaráhugamanna.
„Ég fór einu sinni með Sprengju-
höllinni og það var geðveikt
gaman. Þetta er mjög skemmti-
leg hátíð og ég hlakka mikið til,“
segir Snorri og er sammála því að
hátíðin gæti verið mikill stökk-
pallur fyrir hann sem sólótónlist-
armann. „Þetta er fáránlega stór
hátíð og maður þarf að vera hepp-
inn til að það verði eitthvað úr
þessu því það eru tuttugu þúsund
bönd sem koma fram þarna.“
Snorri er nýbyrjaður á þriggja
vikna tónleikaferðalagi um Kan-
ada og var staddur í Nýfundna-
landi þegar Fréttablaðið hafði
samband við hann. Með honum í
för er kanadíski tónlistarmaður-
inn Lindy Vopnfjord. „Þetta er
gaur sem ég kynntist þegar við
vorum að spila með Sprengju-
höllinni í Toronto. Við gistum
hjá honum þar. Þetta er svona
„singer songwriter“ eins og ég
og við erum að túra saman í Vol-
voinum hans,“ útskýrir Snorri.
„Þetta er búið að vera alveg frá-
bært. Það hefur verið góð stemn-
ing á tónleikunum okkar og það er
líka allt fáránlega fallegt hérna í
Nýfundnalandi.“
Fyrsta sólóplata Snorra, I´m
Gonna Put My Name On Your
Door, kemur út í Evrópu, Banda-
ríkjunum og í Kanada um miðjan
nóvember. Hún kemur einnig út um
svipað leyti heima á Íslandi á vinyl
en hún kom út á geisladiski fyrir
síðustu jól. Snorri flutti til London
fyrr á árinu og er enn að koma sér
þar fyrir. „Ég er búinn að spila þar
einu sinni til tvisvar í viku og verið
að kynnast borginni. Þetta er búið
að vera geðveikt gaman en maður
tekur einn mánuð í einu og reynir
að láta þetta ganga upp.“ - fb
Snorri spilar á South By Southwest
SNORRI HELGASON Snorri spilar á
tónlistarhátíðinni South By Southwest í
Texas á næsta ári.
William Shake-
speare samdi
38 leikrit á ferli
sínum. Þau hafa verið þýdd á
öll helstu tungumál heims.
38
„Eitt er að komast yfir diskinn
með þeim Gylfa, Megasi og
Rúnari í Kolaportinu, viku fyrir
gefinn útgáfudag. En að mæta
þeim öllum þrem korterum
síðar í Nóatúni er absúrd.“
Katla Margrét Þorgeirsdóttir, einn af
umsjónarmönnum Hringekjunnar.
GEISLAÞRÆÐIR, fyrsta bók Sigríðar Pétursdóttur
BLINDHÆÐIR, fjórða ljóðabók Ara Trausta Guðmundssonar
MOLDARAUKI, þriðja ljóðabók Bjarna Gunnarssonar
Höfundarnir verða á staðnum
Léttar veitingar
Allir velkomnir
Í kvöld, 26. október kl. 20:30
verður haldið útgáfupartí þriggja nýrra bóka í
BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR, Laugavegi 18
ÚTGÁFUPARTÍ
ÞRIGGJA BÓKA Í BMM
BÆKURNAR VERÐA Á SÉRSTÖKU ÚTGÁFUTILBOÐI