Fréttablaðið - 27.10.2010, Side 42
27. október 2010 MIÐVIKUDAGUR26
sport@frettabladid.is
ALEXANDER PETERSSON verður ekki með íslenska landsliðinu gegn Lettum í kvöld vegna meiðsla á hné. Hann
fór í myndatöku vegna meiðslanna í gærkvöldi en niðurstöður hennar liggja ekki fyrir. Ekki verður tekin nein áhætta með
því að láta hann spila í kvöld. Hann gæti þó spilað með gegn Austurríki um helgina.
HANDBOLTI Ísland hefur í kvöld
keppni í undankeppni EM 2012
þegar strákarnir okkar mæta
Lettlandi í Laugardalshöllinni.
Ísland er einnig með Þýskalandi
og Austur ríki í riðli og eru Lettar
fyrir fram taldir vera með lak-
asta lið riðilsins. Guðmundur
Guðmundsson segir það gott að fá
heimaleikinn gegn Lettum fyrst en
varar við vanmati.
„Þetta er leikur gegn liði sem
er sýnd veiði en ekki gefin,“ segir
Guðmundur. „Alþjóðlegur hand-
bolti er orðinn þannig að bilið
á milli liða er alltaf að minnka.
Þess vegna þarf að taka svona leik
alvarlega og fara í hann af fullum
krafti.“
Næst á Ísland erfiðan útileik
gegn Austurríki um helgina og
segir Guðmundur að liðið muni
nýta leikinn gegn Lettum til að
stilla strengina fyrir þann leik.
„Auðvitað lítum við ekki á þenn-
an leik sem æfingaleik hjá okkur
en vegna fyrirkomulagsins er
þetta gott tækifæri til að undir-
búa okkur fyrir leik gegn sterkum
andstæðingi enda er Austurríki
með betra lið en Lettland,“ segir
Guðmundur.
„Engu að síður þarf að klára
verkefnið í kvöld almennilega og
Lettar eru með nokkra sterka leik-
menn sem spila í Þýskalandi og
þarf að hafa gætur á.“
Þetta er nú í þriðja sinn sem
íslenska landsliðið kemur saman
síðan það vann til bronsverðlauna
á EM í Austurríki í janúar. Álag-
ið er mikið á leikmenn og segir
Guðmundur mikilvægt að nota
hvert skipti vel þegar liðið kemur
saman.
„Við þurfum að nota hvert tæki-
færi – hverja æfingu og hvern leik
– til að verða betri og spila okkur
saman. Það tekur alltaf lengri
tíma að stilla varnarleikinn enda
leikmenn vanir því að spila mis-
munandi varnarleik með mismun-
andi áherslum með sínum liðum.
Það er oft mesta vinnan fólgin í
því. Nú höfum við engan tíma og
því verður þetta að smella saman
strax,“ segir Guðmundur.
Hann neitar því ekki að það sé
sérstakt að hefja undankeppni
fyrir stórmót nú þegar annað stór-
mót, sjálf heimsmeistarakeppnin í
Svíþjóð, er handan við hornið.
„Það er alltaf verið að fjölga
leikjum og auka álagið. Það er ekki
gott,“ segir Guðmundur. Á þessum
tíma í fyrra kom landsliðið saman
í heila viku þar sem það æfði ein-
göngu og spilaði enga landsleiki.
„Ég hefði gert það aftur nú ef
þess hefði verið kostur. Meira að
segja hjá félagsliðum gefst of sjald-
an tækifæri til að æfa almenni-
lega, sérstaklega ef lið spila líka
í Evrópukeppnum. En svona er
þetta bara og við veltum okkur
ekki frekar upp úr því.“
eirikur@frettabladid.is
Vanmetum ekki Lettana
Ísland hefur í dag leik í undankeppni Evrópumeistaramótsins sem haldið verð-
ur í Serbíu árið 2012. Fyrsti leikur Íslands í riðlinum verður gegn Lettlandi í
Laugardalshöllinni í kvöld. „Sýnd veiði en ekki gefin,“ segir landsliðsþjálfarinn.
EINBEITTUR Róbert Gunnarsson á æfingu íslenska landsliðsins í vikunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ísland ekki tapað í höllinni í fjögur ár
Ísland hefur ekki tapað keppnisleik í Laugardalshöllinni í fjögur ár. Hér má sjá
alla keppnisleiki Íslands í höllinni undanfarinn áratug.
Dags. Andstæðingur Undankeppni Markahæstur Úrslit
17/6/09 Makedónía EM í Austurríki, 2010 Alexander Petersson, 10 34-26
14/6/09 Noregur EM í Austurríki, 2010 Alexander Petersson, 10 34-34
29/10/08 Belgía EM í Austurríki, 2010 Guðjón Valur Sigurðsson, 12 40-21
15/6/08 Makedónía HM í Króatíu, 2009 Guðjón Valur Sigurðsson, 9 30-24*
17/6/07 Serbía EM í Noregi, 2008 Alexander Petersson, 9 42-40**
17/6/06 Svíþjóð HM í Þýskalandi, 2007 Ólafur Stefánsson, 6 25-26**
9/6/02 Makedónía HM í Portúgal, 2003 Sigfús Sigurðsson, 11 33-28**
10/6/01 Hv.-Rússland EM í Svíþjóð, 2002 Ólafur og Sigfús, 7 26-27**
*Ísland tapaði þó samanlagt og komst ekki áfram.
**Úrslitin nægðu til að koma Íslandi á HM.
Enski deildabikarinn
16 LIÐA ÚRSLIT
Birmingham - Brentford 1-1
0-1 Sam Wood (68.), 1-1 Kevin Phillips (90.).
Birmingham vann í vítaspyrnukeppni, 4-3.
Wigan - Swansea 2-0
1-0 Mauro Boselli (51.), 2-0 Ben Watson, víti (90.).
Leicester - West Brom 1-4
0-1 Simon Cax (21.), 1-1 Paul Gallagher (53.), 1-2
Somen Tchoyi (62.), 1-3 Steven Reid (79.), 1-4
Simon Cox (90.).
Ipswich - Northampton 3-1
0-1 Liam Davis (16.), 1-1 Carlos Edwards (26.), 2-
1 Damien Delaney (44.), 3-1 Tamas Priskin (88.).
Manchester United - Wolves 3-2
1-0 Bebe (56.), 1-1 George Elokobi (60.), 2-1 Ji
Sung Park (70.), 2-2 Kevin Foley (76.), 3-2 Javier
Hernandez (90.).
Spænska bikarkeppnin
Real Murcia - Real Madrid 0-0
AD Ceuta - Barcelona 0-2
0-1 Maxwell (16.), 0-2 Pedro (25.).
Sænska úrvalsdeildin
LF Basket - Solna 92-68
Logi Gunnarsson skoraði sautján stig fyrir Solna.
Borås - Uppsala 75-85
Helgi Már Magnússon skoraði níu stig fyrir Upps.
ÚRSLIT
HANDBOLTI Sigurbergur Sveinsson
hefur farið vel af stað með DHC
Rheinland á sínu fyrsta tímabili
í þýsku úrvalsdeildinni. Hann
hefur spilað vel að undanförnu
og skoraði til að mynda tíu mörk í
leik gegn Gummersbach um helg-
ina. Þar áður hafði hann skorað
níu mörk í bikarleik gegn stórliði
Kiel og þar áður átta í deildarleik
gegn Rhein-Neckar Löwen. Guð-
mundur Guðmundsson landsliðs-
þjálfari er þjálfari Löwen.
„Það er frábært að vera kom-
inn aftur í landsliðið,“ segir
Sigur bergur. „Ég hef stefnt að
því leynt og ljóst og notaði lands-
liðið til að koma mér í rétta gír-
inn fyrir leikinn gegn Löwen. Ég
tók sérstakar aukaæfingar fyrir
þann leik,“ bætir hann við og
glottir.
„Annars gengur mér vel í
Þýskalandi og ég hef til að mynda
verið að bæta nýtinguna mikið.
Ég fæ mikið að spila hjá þessu
félagi sem ég þarf á að halda.“ - esá
Sigurbergur Sveinsson:
Æfði aukalega
fyrir Gumma
SIGURBERGUR Líður vel hjá DHC Rhein-
land í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HANDBOLTI Hannes Jón Jónsson
var valinn aftur í íslenska hand-
boltalandsliðið og verður væntan-
lega með gegn Lettum í kvöld.
Hann segir það undir sér sjálfum
komið að nýta þau tækifæri sem
hann fær en Hannes hefur verið
að spila vel með sínu liði, Hann-
over-Burgdorf, í þýsku úrvals-
deildinni í haust.
„Ég fæ tækifærið nú af því
að það gengur vel í Þýskalandi
og aðrir eru meiddir. Ég ætla að
nýta tímann vel, njóta þess að
spila með landsliðinu og reyna að
hjálpa eitthvað til,“ sagði Hannes.
„Ég undirbý mig fyrir þessa
tvo leiki eins og ég muni spila þá
báða. Það kemur svo bara í ljós
hvað verður úr því.“
Hannes er einn þriggja lands-
liðsmanna í Hannover-Burgdorf
en hinir eru Vignir Svavarsson og
Ásgeir Örn Hallgrímsson. - esá
Hannes Jón Jónsson:
Nýt tímans
með landsliðinu
FÓTBOLTI Alþjóðaknattspyrnu-
sambandið, FIFA, hefur tilkynnt
hvaða 23 leikmenn eru tilnefnd-
ir í kjörinu um leikmann ársins.
Alls eiga heimsmeistarar Spán-
verja sjö leikmenn en Argentínu-
maðurinn Lionel Messi var
kjörinn í fyrra. Hann er einnig
tilnefndur í ár.
Spænska úrvalsdeildin á einnig
flesta leikmenn á listanum, ellefu
talsins. Aðeins þrír leika í ensku
úrvalsdeildinni en enginn Eng-
lendingur var tilnefndur að þessu
sinni.
Þessir koma til greina: Xabi
Alonso (Spánn), Daniel Alves
(Brasilía), Iker Casillas (Spánn),
Cristiano Ronaldo (Portúgal),
Didier Drogba (Fílabeinsströnd-
in), Samuel Eto’o (Kamerún),
Cesc Fabregas (Spánn), Diego
Forlán (Úrúgvæ), Asamoah Gyan
(Gana), Andrés Iniesta (Spánn),
Júlio César (Brasilía), Miroslav
Klose (Þýskaland), Philipp Lahm
(Þýskaland), Maicon (Brasilía),
Lionel Messi (Argentína), Thom-
as Müller (Þýskaland), Mesut
Özil (Þýskaland), Carles Puyol
(Spánn), Arjen Robben (Holland),
Bastian Schweinsteiger (Þýska-
land), Wesley Sneijder (Holland),
David Villa (Spánn) og Xavi
(Spánn). - esá
Leikmaður ársins hjá FIFA:
Sjö Spánverjar
tilnefndir
FÓTBOLTI Javier Hernandez er að
stimpla sig inn í enska boltann af
miklum krafti þessa dagana. Í gær
var hann hetja Manchester United
er hann tryggði liðinu 3-2 sigur á
Wolves í ensku deildabikarkeppn-
inni með marki undir lok leiksins.
Þar með endurtók hann leikinn
frá því um helgina er hann tryggði
sínum mönnum 2-1 sigri á Stoke
með marki seint í leiknum. Þá
skoraði hann reyndar bæði mörk
United en hann kom inn á sem
varamaður í gær þegar tíu mínút-
ur voru til leiksloka.
Staðan þá var 2-2 en United hafði
tvívegis komist yfir í leiknum,
með mörkum Portúgalans Bebe og
Suður-Kóreumannsins Park. Bebe
var í gær að spila sinn fyrsta leik í
byrjunarliði United, sem var eins
og svo oft áður í þessari keppni
skipað leikmönnum sem fá síður
tækifæri í öðrum keppnum.
Leikmenn Wolves börðust þó
fyrir sínu í leiknum og jöfnuðu tví-
vegis með mörkum þeirra George
Elokobi og Kevin Foley. Öll mörk-
in komu í síðari hálfleik en sá fyrri
var afar tíðindalítill.
„Það vill oft verða að menn
verða oft mjög fljótt að hetj-
um en hann [Hernandez] á
allt það hrós skilið sem hann
fær,“ sagði Alex Ferguson,
stjóri United, eftir leik-
inn. „Hann er afar fag-
mannlegur og mætir
fyrstur á æfinga-
svæðið á hverjum
degi og fer alltaf
síðastur heim. Það
er að borga sig nú.“
Hann sagði leikinn
hafa verið erfiðan.
„Leikurinn var mjög
opinn í síðari hálfleik.
Wolves spilaði mjög vel
og þetta var virkilega góður bikar-
leikur,“ sagði Ferguson.
Fjórir aðrir leikir fóru fram í
keppninni í gær. Úrvalsdeildar liðin
Birmingham, West Brom og Wigan
komust öll áfram sem og Ips-
wich, sem hafði betur
gegn Liverpool-bönun-
um í Northampton. - esá
Fimm leikir fóru fram í ensku deildabikarkeppninni í gærkvöldi:
Hernandez aftur hetja United
CHICHARITO
Javier Hernandez hefur slegið í
gegn á Old Trafford.
NORDIC PHOTOS/GETTY