Fréttablaðið - 28.10.2010, Blaðsíða 1
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
Fimmtudagur
skoðun 22
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Hillur og skápar
veðrið í dag
28.október 2010
253. tölublað 10. árgangur
Nú í bíó
FAGLEG RÁÐGJÖF OG
FRÍ LEGUGREINING
Tilboð á heilsurúmum.
Sjá bls 19.
28. október 2010 FIMMTUDAGUR
1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Tískuvikan í London stóð yfir dagana 17. til 22. september en þar sýndu
fremstu hönnuðir heims vor- og sumarlínur sínar fyrir 2011. Næsta tískuvika
er ráðgerð dagana 18. til 23. febrúar en þá verður haust- og vetrarlínan 2011
kynnt. Á slóðinni www.londonfashionweek.co.uk er hægt að skoða það
helsta frá nýafstaðinni tískuviku og hita upp fyrir þá næstu.
S ýningarstúlkurnar svifu um pall-ana á tískuvikunni í Moskvu sem lauk nú um helgina. Þar mátti meðal annars sjá skósíða spari-kjóla í djörfum litum eftir rússneska hönnuðinn Galinu Vasilyevu.
Mikið var um dýrðir á nýliðinni tískuviku í Moskvu:
Rússnesk
litagleði
2
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvaliwww.gabor.is
Sérverslun meðHillur og skápar
Sérblað • 28. október 2010
Kynning
ÞJÓÐKIRKJAN Þrjú ný mál hafa í
síðasta mánuði komið inn á borð
fag ráðs þjóðkirkjunnar vegna ásak-
ana um kynferðisbrot. Þrír ein-
staklingar hafa leitað til fag ráðs-
ins og eru ásakanirnar á hendur
þremur prestum. Enginn prest-
anna hefur áður komið við sögu
hjá fag ráðinu.
Einn prestanna sem um ræðir
er enn að störfum innan kirkjunn-
ar. Einn er hættur störfum og sá
þriðji er látinn. Málin eru öll það
gömul að þau eru komin út fyrir
mörk refsiréttar, en eitt þeirra átti
sér stað þegar þolandi var barn að
aldri. Sá prestur er hættur störfum.
Hin tvö eru á bilinu sex til tíu ára
og voru báðir þolendur fullorðnir
að sögn Gunnars Rúnars Matthías-
sonar, formanns fagráðs Þjóðkirkj-
unnar.
Gunnar segir málin þrjú vera í
skoðun og fagráðið sé nú að styðja
við þolendurna að koma þeim í rétt-
an farveg.
„Ég veit ekki hvað verður úr þess-
um málum,“ segir Gunnar. „Það fer
allt eftir þeim sem til okkar leitar
og í hvaða farveg viðkomandi vill
að málið fari.“
Ekkert hefur verið aðhafst varð-
andi þann prest sem ásakaður er og
er enn að störfum. Gunnar segir að
það sé ekki hlutverk fagráðsins að
grípa þar til aðgerða. „Sum mál eru
þannig vaxin að þau kalla á inngrip
en önnur ekki,“ segir Gunnar. „Ég
efast um það að þetta mál sem um
ræðir sé þannig vaxið að það kalli á
að víkja viðkomandi úr starfi.“
Gunnar segir að ef mál fari í
formlegan farveg hjá lögreglu
eða úrskurðarnefnd sé það þeirra
aðila að segja til um áframhaldandi
aðgerðir. Ef brotaþoli kjósi að opin-
bera ekki málið sé það alfarið hans
að ákveða.
Gunnar vildi ekki gefa upp hvar
á landinu þeir prestar sem málin
varða væru eða hefðu verið starf-
andi. - sv
Þrír prestar til viðbótar
sakaðir um kynferðisbrot
Undanfarinn mánuð hafa Þjóðkirkjunni borist mál þar sem þrír prestar eru sakaðir um kynferðisbrot.
Málin eru fyrnd að lögum. Einn prestanna starfar innan kirkjunnar, annar er hættur og sá þriðji er látinn.Snýr aftur til Íslands
Kynlífsfræðingurinn Tracey
Cox endurnýjar kynni sín af
landi og þjóð.
fólk 54
Mikilsvirtur höfundur
Guðmundar Daníelssonar
rithöfundar minnnst með
menningarvöku á Selfossi.
tímamót 26
VÆTA AUSTAN TIL Í dag verður
stíf NA-átt við SA-ströndina en
annars víða 5-10 m/s. Úrkomulítið
en væta A-til. Hiti 0-8 stig, mildast
syðst.
VEÐUR 4
4
23
4
6
Fagráð Þjóðkirkjunnar var stofnað 1998 og kom fyrsta mál inn á borð þess
vegna kynferðisbrots prests árið 2005. Síðan þá hafa níu mál, þar með talin
þau þrjú sem hér um ræðir, komið upp. Hið síðasta var á hendur presti
sem starfaði meðal annars í trúboði erlendis fyrir hönd Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga. Hinn 23. ágúst síðastliðinn bárust ásakanir um kynferðis-
brot á hendur honum, sem hann játaði á fundi með fagráði kirkjunnar og
var í kjölfarið vikið úr starfi.
Níu mál í allt til fagráðs þjóðkirkjunnar
FRAMLEIÐSLA Norska mjólkurbúið Q, sem á síðasta
ári hóf framleiðslu á skyri að íslenskri fyrirmynd,
hlaut á þriðjudag þekkt norsk nýsköpunarverðlaun
fyrir skyrframleiðslu sína.
Íslenska skyrið hefur slegið í gegn í Noregi og á
skömmum tíma náð um fjórðungs markaðshlutdeild
á markaði fyrir léttar jógúrtvörur. Í rökstuðningi
fyrir verðlaunaafhendingunni segir að um nýja,
holla vöru sé að ræða sem hafi breytt matarvenjum
margra Norðmanna.
Skyrframleiðslan fer fram í samstarfi við
Mjólkur samsöluna en framleiðslutæknin er sú sama
og notast er við hjá MS.
Skyr hefur verið framleitt á Íslandi allt frá land-
námi en talið er að landnámsmennirnir hafi flutt
kunnáttuna með sér til Íslands og hún hafi tíðkast
á hinum Norðurlöndunum á þeim tíma. Skyrgerð
virðist hins vegar hafa dáið út annars staðar en á
Íslandi allt þar til nýlega, en auk þess að hafa náð
fótfestu í Noregi á skyr nokkrum vinsældum að
fagna í Danmörku auk þess að vera selt í Banda-
ríkjunum. - mþl
Hefur náð fjórðungs markaðshlutdeild á einu ári:
Íslenskt skyr slær í gegn í Noregi
BALL Á BANGSADEGI Alþjóðlegi bangsadagurinn var haldinn hátíðlegur í gær víða um heim.
Börnin á Austurborg létu ekki sitt eftir liggja heldur héldu ball í tilefni dagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Viðbúið er að útsvar
hækki á næsta ári, segir Dagur
B. Eggertsson,
formaður
borgar ráðs. Sú
hækkun dugar
hins vegar
ekki ein og sér
heldur verð-
ur einnig að
hækka gjöld
og skera niður
útgjöld til að
brúa gatið
milli tekna og
gjalda Reykjavíkurborgar, segir
Dagur. Útsvar í Reykjavík er nú
0,25 prósentum undir hámarki.
Jón Gnarr borgarstjóri snýr
aftur til starfa í dag eftir spítala-
veru vegna sýkingar. Nýlega
útilokaði Jón ekki að Dagur
tæki jafnvel við borgarstjóra-
embættinu en aðspurður í gær
sagði Dagur það ekki standa til.
- mþl
Útsvarið hækkað í Reykjavík:
Ekki á leið í stól
borgarstjóra
DAGUR B.
EGGERTSSON
Naumt gegn Lettum
Ísland vann tveggja
marka sigur á Lettlandi í
undankeppni EM 2012.
sport 48